RÚV

Heimskviður

News IS ↓ 263 episodes

Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 11, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

59 | Lokaþáttur: Stóri gagnalekinn og kynlífshneyksli þingmanns 18.12.2020

Í fimmtugasta og níunda og síðasta þætti Heimskviða fjöllum við meðal annars um aðför ungverskra stjórnvalda að fjölmiðlafrelsi og Evrópuþingmanninn sem sótti kynlífspartý með öðrum karlmönnum á meðan hann freistar þess að takmarka réttindi hinsegin fólks. Þá segjum við frá raunverulegum möguleikum þess stóra gagnalekans, áhyggjur sem mörg viðruðu eftir að þjónusta Facebook og Google bilaði á dögu...

58 | Njósnaskandall í Bretlandi og fá fátækustu ríkin bóluefni? 11.12.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um eina flóknustu og dýrustu opinberu rannsókn í sögu Bretlands, um stöðu fátækustu ríkja heims þegar bóluefni gegn Covid 19 eru annars vegar og um framtíð orkugjafa nú þegar reynt er að draga úr brennslu kola. Þegar upp komst að breski umhverfisaðgerðasinninn Mark Stone væri í raun leynilögreglumaðurinn Mark Kennedy óraði fáa fyrir því að uppgötvunin myndi leiða af...

57 | Minnkaklúðrið, norðurslóðir og Fairytale of New York 04.12.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um framtíð samstarfs á Norðurslóðum og áhrif kórónuveirufaraldursins á þau sem þar búa, um framtíð loðdýraræktar og svo segjum við frá sögu jólalagsins sem nú er búið að ritskoða fyrir eina af útvarpsrásum BBC. Loftslagsbreytingum hefur fylgt vaxandi áhugi á málefnum Norðurslóða, en Ísland er nú í forystu þeirra ríkja sem vinna saman á svæðinu þar sem Bandaríkin og R...

56 | Átökin í Tigray, yfirgefin Palestína og var Maradona guðlegur? 27.11.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um hálfguðinn Diego Armando Maradona, sem lést í vikunni, um framtíðarhorfur í Palestínu og átök í Tigray héraði í Eþíópíu. Einn dáðasti knattspyrnumaður sögunnar, Diego Armando Maradona, lést á miðvikudag, sextugur að aldri. Guðmundur Björn Þorbjörnsson fjallar um skrautlegan æviferil Maradona með aðstoð Helga Hrafns Guðmundssonar, sagnfræðings, sem bjó lengi í Arge...

55 | Nagorno-Karabakh, norræn krísa og bjargvætturinn Dolly Parton 20.11.2020

Í Heimskviðum í dag verður fjallað um aðdraganda ástandsins í Nagorno-Karabakh héraði, um bresti í norrænu samstarfi á tímum kórónuveirunnar og gleðigjafann Dolly Parton og hlutverk hennar í þróun bóluefnis gegn kórónuveirunni. Nagorno-Karabakh, lítið hérað í Suður-Kákasusfjöllunum, hefur verið bitbein Armeníu og Aserbaísjan áratugum saman. Nýlega kom til harðra átaka þar, sem endaði með friðarsam...

46 | Brexit, #MeToo og Julian Assange 18.09.2020

Í Heimskviðum í dag erfjallað um næsta kafla í sögunni endalausu, úrgöngu Breta úr Evrópusambandinu, Julian Assange og #MeToo í Danmörku. Brexit-sagan endalausa tók á sig nýja mynd í síðustu viku þegar Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands lagði fram nýtt frumvarp, sem brýtur í bága við alþjóðalög og útgöngusamning Breta við Evrópusambandið. Margir hafa brugðist ókvæða við, þar á meðal Evrópusa...

45 | Leitin að bóluefni, Navalny og Tyrkland Erdogans 11.09.2020

Í Heimskviðum í dag segjum við frá kapphlaupinu að bóluefni gegn Covid-19, kynnum okkur stöðuna í Rússlandi í aðdraganda héraðskosninga þar um helgina, og segjum frá ferli eins þekktasta stjórnarandstæðings landsins, Navalny. Þá segjum við frá mannréttindum í Tyrklandi í sögulegu samhengi. Heimsmet í bóluefnaframleiðslu er handan við hornið en þúsundir vísindamanna keppast nú um að verða fyrstir t...

44 | Öryggi fréttamanna, hin pólitíska NBA deild og Hvíta-Rússland 04.09.2020

Í Heimskviðum í dag er fjallað um öryggi blaðamanna í heiminum, sem víða er verulega ábótavant og segjum frá samblandi íþrótta og aktívsima eftir að leikmenn NBA neituðu að spila leiki á dögunum í mótmælaskyni vegna kynþáttamisréttis í Bandaríkjunum. Og svo fáum við nýjustu fréttir frá ástandinu í Hvíta-Rússlandi. Í vikunni hófust í París réttarhöld yfir mönnum sem sakaðir eru um aðild að skotárás...

43 | #FreeBritney, sýn Repúblikana og sjálfsvíg á Grænlandi 28.08.2020

Í þriðja þætti haustsins er fjallað um sjálfsvíg ungs fólks á Grænlandi, sýn Repúblikana á Donald Trump og um hreyfinguna FreeBritney, sem er mönnuð stuðningsfólki tónlistarkonunnar Britney Spears. Er Britney Spears fangi föður síns? Þessu trúa þau sem fylgja #FreeBritney-hreyfingunni. Í tólf ár hefur þessi heimsfræga tónlistarkona, sem er oft kölluð prinsessa poppsins, ekki haft yfirráð yfir fjár...

42 | Flóttinn yfir Ermasund, morðið á Hariri og hin nýja Múlan 21.08.2020

Í öðrum þætti haustins er fjallað um flóttann yfir Ermasundið. Þúsundir flóttamanna hafa það sem af er ári farið frá Frakklandi til Bretlands yfir Ermasundið á misgóðum bátum, rétt eins og gerðist við Miðjarðarhaf fyrir fimm árum, til að óska eftir hæli í Bretlandi. Þegar hefur orðið eitt dauðsfall af þessum sökum. Stjórnmálamenn kenna glæpagengjum og öðrum stjórnmálamönnum um, en hjálparstofnanir...

41| Trump í vanda, æfir Hvítrússar og framtíð Líbanon 14.08.2020

Í fyrsta þætti annarrar þáttaráðar Heimskviða er komið við í Bandaríkjunum, Hvíta-Rússlandi og Líbanon. „Donald Trump og Repúblikanaflokkurinn eru í miklum vandræðum,“ segir stjórnmálaprófessorinn James Thurber, í viðtali við Bjarna pétur Jónsson. Thurber segir sömuleiðis að fyrirhugaðar forsetakosningar í Bandaríkjunum verði mikil prófraun fyrir lýðræðið þar í landi. Svo gæti farið að eftir 80 da...

Sumarútgáfa: Mið-Austurlönd 07.08.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í áttunda og síðasta sumarþættinum er Mið-Austurlönd. Fjallað er um dauða Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtoga hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, eða ISIS. Samtökin eru ekki svipur hjá sjón í dag miðað við það sem áður var. Langur vegur er þó frá því a...

Sumarútgáfa: Deilur og átök 31.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjöunda sumarþættinum eru deilur og átök. Fjallað er umdeilda friðaráætlun Bandaríkjastjórnar og Ísraelsstjórnar fyrir Palestínu, af hverju svo margir Bandaríkjamenn falli ár hvert í skotárásum, og nýja heimastjórn á Norður-Írlandi. Heimskviður er fréttaskýringaþá...

Sumarútgáfa: Suður-Ameríka 24.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í sjötta sumarþættinum er Suður-Ameríka. Fjallað er um þá vaxandi óánægju sem gætir meðal almennings út í ríkjandi stjórnvöld víða í álfunni, morðið á argentíska saksóknaranum Alberto Nisman, og bræðraþjóðirnar Kólumbíu og Venesúela. Heimskviður er fréttaskýringaþát...

Sumarútgáfa: Spilling 17.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fimmta sumarþættinum er spilling. Fjallað er um spillingu í Suður-Afríku, Líbanon og morð á virtum blaðamanni á Möltu. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi. Ritstjórar þátt...

Sumarútgáfa: Glæpir og sakamál 10.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fjórða sumarþættinum er glæpir og sakamál. Fjallað verður um morðið á Olof Palme, servéttu sem varð morðingja að falli í Bandaríkjunum, hvarf Önnu Elisabeth Hagen og almennan áhuga fólks á sakamálum. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og l...

Sumarútgáfa: Skemmtanaiðnaðurinn 03.07.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er skemmtanaiðnaðurinn. Óskarsverðlaunin veitt 9.febrúar, í 92. sinn. Það er ekki ósennilegt að stór hluti þjóðarinnar verði óútsofinn í vinnu og skóla á mánudag, þau sem vilja fylgjast með því hvort Hildur Guðnadóttir bæti ekki síðustu og stær...

Sumarútgáfa: Karlar 26.06.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í öðrum sumarþættinum er karlar. Fjallað er um andlát Kobe Bryant, eins besti körfuboltamanns allra tíma, hefði farist í hörmulegu þyrluslysi í janúar. Kobe var ekki dæmigerður íþróttamaður. Hann var líka skáld, og óskarsverðlaunahafi, sem var í stöðugri leit að ful...

Sumarútgáfa: Konur 19.06.2020

Í sumar verða áhugaverðir og tímalausir pistlar úr Heimskviðum vetrarins endurfluttir. Hver þáttur hefur sitt sérstaka þema, og þemað í fyrsta sumarþættinum er konur. Við fjöllum um Aung San Su Kiy leiðtoga Mjanmar, belgísku íþróttakonuna Marieke Vervoort og líknardráp í Belgíu, og deilu eiginkvenna tveggja af þekktustu fótboltamönnum Bretlands, Rebeccu Vardy og Coleen Rooney. Heimskviður er frétt...

40 | Lokaþáttur: Sögurnar sem ekki voru sagðar 12.06.2020

Í fertugasta og síðasta þætti Heimskviða veturinn 2019-2020 fara þáttastjórnendur yfir víðan völl. Hvaða fréttir frestuðust vegna Covid-19? Hvaða fréttir voru ekki sagðar? Eurovision-keppnin, sigur Liverpool í ensku úrvalsdeildinni, Brexit, staða flóttamanna, engisprettufaraldur í Afríku, staðan á Vesturbakkanum, og fleira. Heimskviður er fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hát...

38 | Afvopnunarsamningar, Bolsonaro og Inger Støjberg 29.05.2020

Í þrítugasta og áttunda þætti Heimskviða er fjallað um afvopnunarsamninga, og þá staðreynd að Donald Trump dró nýverið Bandaríkin út úr samningi um svokallaða gagnkvæma loftelgi. Þetta er þriðji alþjóðasamningurinn sem Trump dregur Bandaríkin út úr á kjörtímabilinu. Hallgrímur Indriðason rýnir í hvaða afleiðingar úrsagnir frá þessum samningum geta haft á alþjóðasamfélagið, ásamt Alberti Jónssyni,...

37 | Sinnuleysið í Ischgl, ríkisstjórn í Ísrael og barnarán í Kína 22.05.2020

Í þrítugasta og sjöunda þætti Heimskviða er fjallað um skíðabæinn alræmda, Ischgl í Austurríki. Stjórnarandanstæðingar í Austurríki segja að hagsmunatengsl ferðaþjónustunnar í Tírol og yfirvalda í Austurríki skýra sinnuleysi gagnvart útbreiðslu Covid-19 í bænum. Þúsundir taka nú þátt í hópmálsókn og fara fram á bætur frá Austurríska ríkinu vegna veikindanna en ýmislegt bendir til þess að ferðamála...

36 | Biden í bobba, ný heimsmynd og ópólitískur Jordan 15.05.2020

Í þrítugasta og sjötta þætti Heimskviða er fjallað um ásakanir á hendur Joe Biden, frambjóðanda Demókrata í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Nýverið var hann ásakður um alvarlegt kynferðisofbeldi af konu sem var aðstoðarmaður hans snemma á tíunda áratugnum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Biden er ásakaður um óviðeigandi framkomu í garð kvenna, en þetta er í fyrsta sinn sem hann er saka...

34 | Sænska leiðin, matarskortur í heiminum, og hver á Grænland? 01.05.2020

Í þrítugasta og fjórða þætti Heimskviðna bregðum við okkur til Svíþjóðar, nánar tiltekið til Gautaborgar, þar sem Kári Gylfason fréttamaður býr. Kári flytur sinn fyrsta pistil fyrir Heimskviður og fjallar um það hvernig Svíar hafa brugðist við kórónuveirufaraldrinum. Nálgun Svía er þvert á það sem gert er í öllum sambærilegum samfélögum og hefur verið harðlega gagnrýnd. Dauðsföll í Svíþjóð af völd...

33 | Trú og heimsfaraldur, krísa í Barcelona og framtíð sjónvarps 24.04.2020

Í þrítugasta og þriðja þætti Heimskviðna er fjallað um trúarbrögð á tímum heimsfaraldurs. Fjölmargar kirkjur og trúfélög víða um heim hafa óhlýðnast yfirvöldum og virt samkomubann að vettugi, sem getur haft alvarlegar afleiðingar. En svo getur virkt trúarlíf fólks líka haft jákvæð áhrif, bæði á andlega líðan, og auðvitað með því að hlýða yfirvöldum en um leið hjálpa öðrum. Guðmundur Björn Þorbjörn...

Listen to the Heimskviður podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.