Ragga Nagli

Heilsuvarpid

Health IS ↓ 133 episodes

Podcast by Ragga Nagli

Author

Ragga Nagli

Category

Health

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

May 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#31 - Katrín Edda - Líkamsímynd og jákvætt sjálfstal 12.05.2020

Í þessum þætti tala ég við Katrínu Eddu Þorsteinsdóttur, verkfræðing hjá Bosch um feril hennar í fitness, og ferlið yfir í Crossfit iðkun, neikvæða líkamsímynd, niðurrífandi innra sjálfstal og hvernig hún breytti því í uppbyggjandi og hvetjandi samtal til að öðlast sterkari sjálfsmynd. Á Instagram deilir Katrín með fylgjendum sínum æfingum, og talar opinskátt um sínar baráttur við kvíða, lágt sjál...

#30 - Ofát í COVID - hvernig getum við hætt að háma í okkur í heimavistinni? 30.04.2020

Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. Heilsuvarpið er sponsorað af Lífsalt sem er nýtt á markaðnum og inniheldur 60% minna natríum en hefðbundið sjávarsalt en...

#29 Þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu með Jakobínu Jóns 19.04.2020

Í þessum þætti tala ég við Jakobínu Jónsdóttur einn eiganda og þjálfara líkamsræktarstöðvarinnar Granda 101 Jakobína er styrktarþjálfari, ólympískur þjálfari sem og hóptímaþjálfari með LEVEL 1 Crossfit og einn eigandi Grandi 101 ásamt tvíburasystur sinni, Elínu, og eiginmönnum þeirra, Núma og Grétari Ali. Grandi er ein besta líkamsræktarstöð landsins sem býður uppá fjölbreytt úrval tíma fyrir mömm...

#28 - Heimaæfingar með Bigga Þjálfara 01.04.2020

Í þessum þætti fékk ég Biggi þjálfari til lað koma og tala um heimaæfingar, enda ekki vanþörf á nú þegar allar líkamsræktarstöðvar eru lok, lok og læs og allt í stáli. Við förum yfyir hvað við getum gert heima, hvernig við getum aukið ákefðina með lágmarks búnaði og hann kemur með dæmi um mjög áhrifaríka æfingu heima í stofu og eina sem þarf er skrokkurinn og ein ketilbjalla. Það eru fáir jafn hok...

#27- Hvernig styrkirðu ónæmiskerfið 23.03.2020

Í þessum þætti fer ég yfir hvernig við getum dúndrað upp ónæmiskerfið okkar með minn trausta Helga Ómars mér við hlið. Hvað getum við sjálf gert til að efla varnir líkamans? Hvernig getum við sofið betur? Hvaða vítamín eru mikilvæg? Hvað er best að borða? Við getum auðvitað ekki komið í veg fyrir smit en við getum gert okkar til að vera vel í stakk búin til að takast á við Kórónuna og þá mögulega...

#26 Unnar Helgason styrktarþjálfari - Ofþjálfun, endurheimt, Crossfit. 09.03.2020

í þessum þætti tala ég við Unnar Helgason er styrktar og þrekþjálfari fyrir MMA og Crossfit sem og sótsvartan almúgann. Hann er yfirstyrktarþjálfari hjá keppnishópum hjá Mjölni Hann þjálfar m.a Gunnar Nelson bardagakappa, Aron Einar landsliðsmann í fótbolta og Eygló Ósk sunddrottningu Unnar hefur stofnað þrjár Crossfit stöðvar: Crossfit Hamar, Crossfit Akureyri og Crossfit XY. Hann hefur jafnframt...

#25 Edda Falak Crossfit drottning 22.02.2020

Edda Falak Crossfit drottning er algjör ofurkona, bæði gullfalleg og fljúgandi gáfuð. Hún er með Mastersgráðu frá Copenhagen Business School og þjálfar og keppir í Crossfit og stefnir ótrauð á heimsleikana. Hér segir hún á sinn opna og einlæga hátt frá sinni sögu um ofþjálfun, sem og gefur góð ráð til æfinga og mataræðis en samband hennar við hvorutveggja er ótrúlega heilbrigt og heilsteypt. Njóti...

# 25 Árni Þóroddur - Streita 12.02.2020

Árni Þóroddur sálfræðingur snýr aftur í Heilsuvarpið og að þessu sinni tölum við um streitu. Þennan bölvald samtímans sem er að kæla niður hinn vinnandi mann. Hvaða aðferðir nota sálfræðingar til að kljást við streitu. Hvernig getum við komið í veg fyrir streitu. Árni hefur búið í Kaupmannahöfn í 12 ár og vinnur þar sem sálfræðingur á sömu stofu og Ragga Nagli. Hann þykir einn sá besti í faginu, e...

#24 - Fannar Aðalsteinsson - Aftur í form eftir jól og nýár 13.01.2020

Fannar Aðalsteinsson er kírópraktórsnemi, 32 ára tveggja barna faðir, meðeigandi og þjálfari hjá Crossfit Kraftvrk síðan árið 2011. Hann hefur búið meira og minna í Danmörku síðan 2000. Fannar var í yfirþyngd þegar hann byrjaði að æfa 2008 og á Boot Camp en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan enda hefur hann farið í gegnum 24 tíma Hell Run og hef gaman af erfiðum áskorunum. Hér kemur Fannar m...

#22 Fimm heilsuráð fyrir mataræðið - með Helga Ómars 02.01.2020

Í þessum þætti tækla ég fimm breytingar á mataræðinu sem þú getur fléttað inn í lífsstílinn þinn fyrir nýja árið. Hér er talað um heilsuvenjur sem hlustendur hafa örugglega ekki heyrt í hinum hefðbundnu mataræðiskúrum sem nú tröllríða öllu í janúar. Mér til halds og trausts í þessum er minn ástkæri Helgi Ómars sem kemur með skemmtilega vinkla og tips frá sjálfum sér. Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla...

#22 Magga Gnarr einkaþjálfari- Átröskun, fitness, barneignir 02.12.2019

Margrét Gnarr er ekki bara falleg, greind og skemmtileg. Hún hefur líka marga fjöruna sopið þrátt fyrir ungan aldur. Hún er atvinnukona í fitness og keppti í bikiní í mörg ár, bæði hér heima og erlendis á vegum IFBB sambandsins. Hún hefur orðið heimsmeistari í bikinífitness Magga er með svarta beltið í Tae kwon do og æfði þá íþrótt af kappi, hugsanlega of miklu kappi, þar til fitnessið tók við. En...

#21 - Streita með Sölva Tryggva 06.11.2019

Sölvi Tryggvason er landsmönnum vel kunnur enda var hann fastagestur í sjónvarpsstofunni kvöld eftir kvöld í langan tíma. Hann upplifði kulnun í starfi og örmögnun og í kjölfarið fór að prófa ýmislegt á eigin skinni til að ná aftur heilsu og gaf síðan út bók með því nafni þar sem hann segir frá þessum tilraunum sínum. Sölvi er maður með marga hatta og komið víða við. Hann er með B.A í sálfræði. kv...

#21 Erla Björns svefnsálfræðingur - Svefn og heilsa 23.10.2019

Erla Björnsdóttir er sálfræðingur og doktor í svefnrannsóknum. Hún heldur fyrirlestra og heldur úti síðunni www.betrisvefn.is, sem er hugræn atferlismeðferð i gegnum netið við svefnvandamálum. Öllum finnst gott að sofa og við fúnkerum öll miklu betur í daglegu lífi þegar vel sofin. Erla er öðrum fróðari um þetta ástand svefninn sem við eyðum þriðjungi ævinnar og því mikilvægi sem hann spilar í að...

#20 GeirGunnar næringarfræðingur - Ketó, föstur, Paleo og aðrir kúrar 13.10.2019

Geir Gunnar Markússon er næringarfræðingur sem starfar hjá NLFÍ og rekur vefsíðuna Heilsugeirinn sem er alhliða heilsuráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Geir Gunnar hefur haldið fjölda fyrirlestra um leiðir til að minnka sykur í mataræði, hollustu í innkaupakerruna, næring og árangur í íþróttum og mýtur og ranghugmyndir í næringu. Við Geir Gunnar erum á sömu blaðsíðunni og alfarið á móti ska...

#19 Arnór Sveinn - Bætiefni og vítamín 28.09.2019

Arnór Sveinn Aðalsteinsson er sjálftitlaður sérfræðingur í bætiefnum og vinnur fyrir Icepharma sem flytur inn NOW vörurnar á Íslandi. Arnór er með tvær háskólagráður en báðar alls ótengdar bætiefnum og heilsubransanum en hann er menntaður viðskiptafræðingur og heimspekingur. Hann spilar fótbolta af kappi með KR en fyrir nokkrum árum lenti Aron sjálfur í kulnun og daðraði við að brenna út og byrjað...

#18 EvertVíglundsson - Crossfit eftir fertugt, líkamsrækt og heilsa 19.09.2019

Gestur þáttarins er Evert Víglundsson, crossfit þjálfari og eigandi CrossFit Reykjavík. Evert þarf vart að kynna fyrir neinum enda er hann líklega andlit Crossfit á Íslandi og hreystin holdi klædd. Hann stofnaði fyrstu Crossfit stöðina á Íslandi og er því hokinn af reynslu í öllu sem viðkemur líkamsrækt, hreysti og Crossfit enda stundað íþróttir frá blautu barnsbeini á Húsavík og á fullorðinsárum...

#17 - Í form eftir sumarið- Óli Ólafs einkaþjálfari 25.08.2019

Ólafur Örn Ólafsson er þjálfari í Vesterbronx Gym og Crossfit Copenhagen og býr í Kaupmannahöfn. Hann rekur vefsíðuna www. Fit4anything.com fjarþjálfun ásamt konu sinni Köru. Hann er lærður einkaþjálfari og Crossfit þjálfari og kennir bæði TRX tíma, þjálfari Crossfit og er einkaþjálfari maður á mann. Hann er hokinn af reynslu Hann steig sín fyrstu skref í þjálfun í Nordica Spa en færði sig síðar u...

#16 Veitingahús - strategíur til að borða hollt - með Helga Ómars 15.07.2019

Veitingastaðir - strategíur til að borða hollt Í þessum þætti ræðum við Helgi Ómars strategíur, tips og trix til að velja vel af matseðli borða hollt og taka ákvarðanir sem styðja við okkar markmið og gildi þó við séum úti að borða á veitingastað. Hvað er best að velja? Hvaða kúsínur eru betri en aðrar? Hvernig lesum við hollustu af matseðlinum. Hvernig undirbúum við okkur fyrirfram til að taka gó...

#15 Ólympískar lyftingar - Eyþór Einarsson 26.06.2019

Eyþór Einarsson er styrktarþálfari með Level 1 þjálfunargráðu í Crossfit. Hann hefur þjálfað í Granda 101 og Crossfit Suðurnes. Hann flutti nýlega til Kaupmannahafnar þar sem hann hefur verið með námskeið í Ólympískum lyftingum í Kraftværk crossfit og nú í Butcher’s Lab crossfit. Eyþór er með B.S í Sálfræði frá HR og hefur nám í klínískri sálfræði í Kaupmannahafnarháskóla haustið 2019. Eyþór hefur...

#14 Jákvæð sálfræði með Begga Ólafs 01.06.2019

Beggi Ólafs eða Bergsveinn Ólafsson eins og hann heitir fullu nafni, er algjör perla og drengur góður. Hann er mastersnemi í Hagnýtri jákvæðari sálfræði og þjálfunarsálfræði, fótboltamaður og spilar með Fjölni í Inkasso deildinni. Beggi er jafnframt með vinsælt hlaðvarpi sem heitir Millivegurinn ásamt Arnóri Sveini Aðalsteinssyni Beggi heldur reglulega fyrirlestra og námskeið í fyrirtækjum eins og...

#13 Eldað í bunkum - hvernig við undirbúum hollar máltíðir í ísskápinn með Helga Ómars 30.04.2019

Í þessum þætti tölum við Helgi Ómars um hvernig við eldum í bunkum og undirbúum heilsusamlega máltíðir fyrir vikuna . Því undirbúningur er árangur og ef við eigum tilbúna hollustu í ísskápnum eftir langan vinnudag þegar hungrið er í botni og örvæntingin allsráðandi þá þökkum við fyrir að hafa eytt smá tíma í að preppa, skera, sjóða, steikja, grilla þegar við vorum í stuði. Við tölum um okkar uppáh...

#12 Ragga Nagli - Föstur. 17.04.2019

Þessi þáttur er sólóvarp um föstur þar sem ég nördast í föstufræðunum. Hvað eru föstur? Hverjir ættu að fasta? Hver er heilsufarslegur ávinningur af föstum? Eru þær áhrifaríkar fyrir fitutap? Get ég fastað þó ég sé að byggja upp vöðva? Rhodiola( burnirrót) sem var minnst á í hlaðvarpinu fæst í Nettó og á Hverslun.is Hér er umfjöllun um manninn sem fastaði í 382 daga: https://www.diabetes.co.uk/blo...

#11 - OfurGísli: Vaxtarrækt og fitness 01.04.2019

Gísli Örn Reynisson Schramm er vafalaust massaðasti lögfræðingur landsins. Enda kallar hann sjálfan sig OfurGísla og heldur úti heimasíðu undir því nafni. Það eru greinilega einhver bætiefni í humrinum þarna fyrir austan því hann er enn eitt hreystimennið frá Hornafirði til að koma í þáttinn. Gísli er alltaf kátur, glaður og hlæjandi. Að hitta hann í ræktinni nærir bæði líkama og sál því fáir taka...

#10 Ásdís Grasalæknir - Bætiefni. Heilsa kvenna. Skjaldkirtillinn. Jurtalyf 20.03.2019

Ásdís útskrifaðist með BSc í grasalækningum árið 2005 og hefur rekið eigin stofu um árabil, í Reykjanesbæ og höfuðborginni, þar sem fjöldi einstaklinga hefur leitað til hennar í ráðgjöf. Er með viðtalsstofu á Hringbraut 99 Keflavík og í Hreyfingu 2.hæð Álfheimum Rvk. Grasalækningar snúast um virkni lækningajurta og hæfni þeirra til að bæta heilsu fólks. Ásdís Ragna Einarsdóttir er alfróð þegar kem...

# 9 - AronMola: Tilfinningar, veganismi, samfélagsmiðlar, ferðalög 07.03.2019

Aron Már Ólafsson eða AronMola þarf vart að kynna fyrir íslenskri þjóð, allavega ekki yngri kynslóðinni þar sem hann hefur birst á símaskjánum okkar um nokkurt skeið. Aron er samfélagsmiðlastjarna á næsta leveli. Hann sigraði Snapchat sem kom honum á kortið með sprenghlægilegum sketsum. Hann étur Instagram í morgunmat. Hann andar að sér internetinu. Aron er leiklistarnemi í Listaháskóla Íslands og...

Listen to the Heilsuvarpid podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.