Ragga Nagli

Heilsuvarpid

Health IS ↓ 133 episodes

Podcast by Ragga Nagli

Author

Ragga Nagli

Category

Health

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

May 18, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#8-Gummi Kírópraktór- stoðkerfið, Crossfit, rassinn og hreyfiteygjur 18.02.2019

Gummi Kíró eða Guðmundur Birkir Pálmason er maður með marga titla á ferilskránni. Harðkjarnaður Hornfirðingur, fyrrum vaxtarræktarkappi og vann sem einkaþjálfari í rúman áratug áður en hann menntaði sig í kírópraktík í Svíþjóð. Gummi stundar Crossfit af kappi og því eldri en tvævetur í sölum ræktar og með mikla þekkingu á líkamanum, hreyfingu og meiðslum. Hann stofnaði kírópraktorstofu í Stokkhólm...

# 7 - Árni Þórddur sálfræðingur- Kvíði 05.02.2019

Árni Þóroddur Guðmundsson er löggiltur sálfræðingur í Kaupmannahöfn og Hann er með sína eigin stofu ásamt Röggu Nagla á Frederiksberg þar sem hann tekur á móti skjólstæðingum og er hokinn af reynslu af vinnu með kvíða, depurð, þunglyndi og streitu. Eins sinnir hann fjölskylduráðgjöf Í þessum þætti tölum við kollegarnir og gömlu vinirnir aðallega um kvíða og hvernig hann birtist okkur bæði líkamleg...

# 6 - Vaxtarrækt og fitness með Kidda Sam 24.01.2019

Kristján Samúelsson eða Kiddi Sam er að öðrum ólöstuðum einn fremsti fitness og vaxtarræktarkappi sinnar kynslóðar. Hann keppti á yfir 10 mótum en hefur nú lagt Speedo skýluna á hilluna. Kiddi byrjaði að lyfta lóðum 16 ára gamall og keppti fyrst árið 1997. Hann hefur verið búsettur í Malmö síðasta áratuginn og starfað lengi sem einkaþjálfari og fjarþjálfari og er hafsjór að fróðleik þegar kemur að...

Þáttur 5 - Heilsuvarpið: CrossFit með Anítu Dögg Watkins 14.01.2019

Aníta Dögg Watkins er eigandi og þjálfari í Kraftværk, vinsælli CrossFit stöð í Kaupmannahöfn sem hún á og rekur ásamt eiginmanni sínum. Hún er lærð hárgreiðslukona en sinnir nú einungis þjálfunarstörfum og er hafsjór af fróðleik og hokin af reynslu í öllu sem viðkemur CrossFit, BootCamp, OCR og mobility. Við fórum um víðan völl varðandi þjálfun og mataræði í þessu lauflétta spjalli. Njótið! - Rag...

Þáttur 4 - Heilsuvarpid: Streita með Gústa lækni 02.01.2019

Gústi læknir, Ágúst Óskar Gústafsson, er heimilislæknir í Kaupmannahöfn. Hann hefur sérhæft sig í meðhöndlun á streitu og heldur úti Facebook síðu "Ekki halda stressi til streitu." Hér talar hann um áhrif streitu á líkamlega heilsu og við ræðum hvaða bjargráð við getum notað til að höndla sreituvalda og minnka áhrif hennar. Gústi lumar á ýmsum ráðum úr sínu klíníska starfi og reynslu af meðhöndlun...

Þáttur 3 - Heilsuvarpid: Svefn með Helga Ómars 19.12.2018

"Ég gleymdi að ýta á rec!!!" Í upphafi heyrið þið örvæntingarástand sem skapaðist í miðri upptöku þar sem ég hélt að ég hefði gleymt að ýta á upptökutakkann. Okkur fannst við hæfi að hafa það með til að sýna að við erum öll mannleg og gerum mistök. Í þessum þætti er fjallað um undirstöðuna fyrir alla heilsuhegðun - svefninn. Af hverju þurfum við að sofa? Hvernig getum við bætt svefninn? Hvaða skre...

Þáttur 2 - Heilsuvarpið: Æfingar með Bigga þjálfara 11.12.2018

Gestur þáttarins er Arnaldur Birgir Konráðsson, þjálfari til 20 ára og einn stofnanda Boot Camp á Íslandi. Við ræðum um allt sem viðkemur hreyfingu, æfingum, hvatningu og hver eru algengustu mistökin sem hann sér í ræktinni. Hann kemur með mörg góð ráð fyrir byrjendur og lengra komna.

Þáttur 1 - Heilsuvarpid: Fimm máttarstólpar heilsu 29.11.2018

Í þessum þætti er fjallað um fimm máttarstólpa góðrar heilsu og nauðsynlegar heilsuvenjur undir hverjum og einum sem stuðla að betri líðan og lífsgæðum. Svefn. Mataræði. Hreyfing. Streitustjórnun. Félagslíf.

Listen to the Heilsuvarpid podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.