Ragga Nagli
Heilsuvarpid
Podcast by Ragga Nagli
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#54 Hjördís Ósk - Crossfit, næring, líkamsímynd 16.05.2021 1:03:18
Hjördís Ósk er íþróttafræðingur, yfirþjálfari og framkvæmdastjóri Crossfit XY. Hún hefur tvisvar keppt á Crossfit leikunum. Hjördís á frækinn feril í íþróttum frá blautu barnsbeini, körfu, fótbolta frjálsum og sundi Sannkölluð ofurkona með mörg járn í eldinum. Þátturinn er sem fyrr í boð NOW á íslandi @nowiceland @hverslun
#53 Ásdís Hjálms spjótkastari- Hugarfar í íþróttum. Neikvæð ummæli. 25.04.2021 1:12:43
Ásdís Hjálmsdóttir er lyfjafræðingur og fremsti spjótkastari Íslandssögunnar og keppt 3x á ÓL 2008, 2012 og 2016. Býr í Svíþjóð og er eigi kona einsömul. Hún talar um þjálfun á meðgöngu, hvernig er að lesa ummæli um sjálfa sig og hvort það sé sanngjarnt að ætlast til að það sé hluti af því að vera íþróttamaður að mynda þykkan skráp og mikilvægi hugarfarsins og sjónmynda þegar kemur að þjálfun. Ásd...
#52 Árni Björn - Lyftingar - Crossfit - Langveikt barn 02.04.2021 1:04:47
Árni Björn Kristjánsson eigandi og stöðvarstjóri að Crossfit XY. Árið 2009 var hann var 130 kg með of háan blóðþrýsting og missti 30 kg á örfáum mánuðum í CrossFit. Hann talar hér um Lyftingar, CrossFit og Árni Björn og kona hans eiga langveikt barn og í þessum þætti opnar hann sig um hvernig þau hafa þurft að berjast við kerfið til að sækja réttindi sín. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @nowicel...
#52- Silja Úlfars - Hlaupastíll, hlaupatækni og ofþjálfun 15.03.2021 1:16:13
Silja úlfars er frjálsíþróttakona er þekktust sem spretthlaupari í 100-200 og 400 m vegalengdum. Silja hefur lagt keppnisskóna á hilluna og sinnir nú námskeiðahaldi í hlaupatækni og hlaupastíl Ég ráðlegg öllum að draga fram glósubækurnar og blýantinn því í þessum þætti eys hún úr viskubrunninum og dælir úr reynslubankanum góðum ráðum til að hámarka hlaupaþjálfunina. En hún talar líka um þegar hún...
#51- Björgvin Karl Crossfittari -næsti arftaki Matt Fraser? 23.02.2021 1:07:31
Björgvin Karl Guðmundsson hefur keppt á Crossfit heimsleikunum síðan árið 2014 og tvisvar komist þar á pall í þriðja sætið. Hann er án efa skærasta karlkyns Crossfit stjarna okkar Íslendinga. Björgvin er konungur Hveragerðis þar sem hann æfir og þjálfar í Crossfit Hengill sem bróðir hans og mágkona eiga og reka. Hvernig er hann að þjálfa fyrir Open og heimsleikana, hvaða veikleika er hann að vinna...
#50 Þuríður Erla - Crossfit, lyftingar, bætiefni, svefn 08.02.2021 1:07:35
Þuríður Helgadóttir Crossfitdrottning kíkti í Heilsuvarpið. Hún er að undirbúa sig fyrir undankeppni Heimsleikanna í Crossfit. Þuríður býr í Sviss og þjálfar í Crossfit zug. Þuríður byrjaði að æfa í Crossfit Sporthúsinu 2010 og þjálfaði þar frá 2012 og hefur keppt á heimsleikunum fimm sinnum. Fylgstu með Þuríði á @thurihelgadottir á instagram. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi @hverslun @nowicelan...
#49 - Að eiga barn með kvíða: Biggi og Linda 01.02.2021 1:09:13
Biggi og Linda kíktu í Heilsuvarpið til að segja frá hvernig er að eiga barn með kvíða. Hvaða mistök þau gerðu. Hvaða hegðuna þau tóku eftir sem ýttu undir grunsemdir um að jafnvel ættu sér rætur í andlegum kvillum frekar en líkamlegum. Þau miðla hér ráðleggingum hvernig við getum búið til gott umhverfi á heimilinu, og hvetjum frekar en að beita pressu. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi. www.nowfo...
#48 Birna Varðar - Átraskanir og hlutfallslegur orkuskortur 16.01.2021 1:02:22
Birna er með BS gráðu í næringarfræði frá HÍ og meistargráðu í þjálffræðivísindum með íþróttanæringarfræði sem sérsvið frá Maastricht háskóla í Hollandi. Hún stundar nú doktorsnám í íþrótta-og heilsufræði við HÍ. Í þessum þætti talar hún um doktorsverkefnið sitt um hlutfallslegan orkuskort í íþróttum sem þýðir í raun að næra sig ekki nóg í samræmi við hreyfinguna. Birna glímdi sjálf við átröskun o...
Fannar Karvel - Ræktin lokuð. Hvað þýðir það fyrir eigendur og iðkendur? 05.01.2021 1:12:28
Fannar Karvel er íþróttafræðingur, styrktarþjálfari HSÍ, kennari í Háskóla Reykjavík og eigandi Spörtu heilsuræktar. Hann talar hér um hvað lokun líkamsræktarstöðva í COVID hefur þýtt fyrir hann sem eiganda og hvaða áhrif það hefur á iðkendur og almenna lýðheilsu landans. Hvaða lausnir hann sér í stöðunni til að geta opnað aftur og hvaða ráðstöfunum þyrfti að fylgja. @spartarvk Facebook: Sparta Re...
#46 Jól Í Núvitund 20.12.2020 30:48
Við eyðum fleiri klukkustundum, jafnvel sólarhringum og dögum í að hugsa um mat. Versla í matinn. Elda matinn. Skera. Preppa. Undirbúa. Leggja á borð. Ganga frá eftir mat. En sjálf athöfnin að borða. Athöfnin sem við öll elskum. Hún tekur innan við fimmtán mínútur. Á hraða örbylgjunnar er matnum andað að sér. Upplifum ekki bragðið, lyktina og kryddin. Þessi þáttur kennir okkur verkfæri núvitundar...
#46 Árni sálfræðingur - COVID Kvíði 12.12.2020 1:06:02
Í þessum þætti tölum við Árni sálfræðingur um COVID kvíða. Margir eru að glíma við óvissu, hræðslu við veiruna, kvíða yfir að smitast, ótta við smitskömm, einmanaleika, fjárhagslegt óöryggi og margt fleira tengt þessum heimsfaraldri. Við Árni förum yfir hvað er kvíði, hvernig getum við tæklað hann og hvernig getum við minnkað hann. En fyrst og fremst að við normalíserum að okkur líði illa og ekker...
#45 Hvernig gerirðu hollar máltíðir gúrmetisgómsæti? 06.12.2020 32:35
Hvernig gerirðu heilsusamlegar máltíðir að jólaballi í munninum á þér? Hvernig býrðu til langvarandi heilbrigt samband við mat með að njóta hverrar einustu máltíðar? Hvernig hækkarðu fullnægingarfaktorinn í daglegu máltíðunum þínum til að koma í veg fyrir ofát seinna meir? í þessu sólóvarpi færðu allskonar hugmyndir, verkfæri, tæki og tól frá Röggu Nagla til að gera hverja máltíð að kúlínarískri f...
#44 Árni sálfræðingur - Impostor Syndrome 16.11.2020 1:00:49
Í þessum þætti tölum við Árni sálfræðingur um loddaralíðan eða Impostor syndrome sem lýsir sér í að við erum haldin viðvarandi hræðslu um að það komist upp um okkur sem loddara í starfi og daglegu lífi, því við séum að blekkja aðra um hæfileika, færni og þekkingu. Sálfræðingarnir Pauline Clance og Suzanne Imes komu með þetta hugtak 1978 eftir að hafa séð þessar tilfinningar og hugsanir koma ítreka...
#43 Helgi Ómars - Meðvirkni í samböndum 08.11.2020 54:02
Í þessum þætti tölum við Helgi Ómars um hvernig meðvirkni kemur fram í samböndum og þróast ómeðvitað í samskiptamynstri milli tveggja aðila. Við tölum um hvernig Helgi er smám saman að vinna sig útúr sinni meðvirkni og standa betur með sjálfum sér eftir nýleg sambandsslit og finna sín gildi og markmið aftur. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi www.nowfoods.is @nowiceland
#42 - Biggi þjálfari - Spurt Og Svarað 24.10.2020 1:02:19
Biggi þjálfari kom í heimsókn í Heilsuvarpið til að svara spurningum sem fólk sendi á instagram og við völdum fimm úr bunkanum sem kom inn í gegnum skilaboðin. Fáir eru jafn hoknir af reynslu og Biggi þegar kemur að þjálfun, því hann hefur yfir 20 ára reynslu og ekki þjálfað þúsundir heldur tugþúsundir. Hann stofnaði og rak Boot Camp stöðvarnar um árabil, en þar áður sleit hann barnsskónum í hinu...
#41 Bjöddi þjálfari- Heimaæfingar 18.10.2020 1:03:52
Nú þegar ræktin er lokuð aftur í COVID vantar marga innblástur og hugmyndir fyrir heimaæfingar eða útiæfingar. Björn Þór Sigurbjörnsson þjálfari í World Class miðlar hér af reynslu og þekkingu til að halda mótivasjóninni og nýjungum í ræktarrútínunni þó dyrnar að líkamsræktarstöðvum séu skelltar í lás. Þátturinn er í boð NOW á Íslandi.
#40 - Kvíði með Steinunni Önnu sálfræðingi 26.09.2020 1:14:04
Steinunn Anna er sálfræðingur hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og kennari í Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur sérhæft sig í kvíða hjá börnum og fullorðnum sem og áráttu og þráhyggju. Við tölum um kvíða í þessum þætti og hvernig við getum tæklað hann þegar hann dúkkar upp. Hvernig getum við berskjaldað okkur fyrir kvíða og sannað fyrir okkur að kvíðinn er oft verri í hausnum en í...
Grunnbrennslan #2 - hvernig fær maður hærri grunnbrennslu? 16.09.2020 56:54
Hvernig hröðum við á grunnbrennslunni? Hvað veldur hægri grunnbrennslu? Hvaða hlutverki gegna hormónar í grunnbrennslunni? Af hverju er mikilvægt að borða meira? Hvernig bökkum við útúr því að vera í megrun yfir í að borða meira og auka þannig grunnbrennsluhraðann. Af hverju eru lyftingar svona mikilvægar fyrir grunnbrennsluna. Þessum spurningum og fleiri er svarað í þessum þætti af Heilsuvarpinu...
Að Setja Mörk 29.08.2020 55:43
Í þessum þætti tölum við Helgi Ómars um hvernig og hvenær við setjum mörk gagnvart öðru fólki til að auka sjálfstraustið og hækka sjálfsvirðinguna. Hvaða orð notum við fyrir uppbyggileg samskipti Hvaða orð eru eitruð og keyra upp ágreining. Hvers vegna erum við hrædd við að setja öðru fólki mörk. Hvernig getum við yfirstigið þann ótta. Vonandi hafið þið gagn og gaman að. Þátturinn er í boði Now á...
#37 - Ræktarkvíði 24.08.2020 1:01:00
Við finnum öll fyrir ræktarkvíða á einhverjum tímapunkti. Sérstaklega byrjendur eða þeir sem eru að æfa aftur eftir langt hlé. Við ímyndum okkur að við séum fyrir, að við séum asnaleg eða gerum okkur að fífli. Í þessum þætti ræðum við Helgi Ómars um verkfæri sálfræðinnar til að yfirstíga kvíða, og kúplað hreyfingu inn í daglegt líf án þess að óttast álit annarra meðan við svitnum í sölum ræktar. Þ...
#36- Þarmaflóran með Birnu G. Ásbjörns 05.07.2020 1:01:47
Allir sjúkdómar byrja í þörmunum sagði Hippókrates. Þessi þáttur er algjör bomba. Allt sem þú þarft að vita um heilbrigða þarmaflóru. Hver eru einkenni óheilbrigðrar þarmaflóru. Hvaða matvæli eru góð fyrir okkur og hvað er slæmt fyrir þarmaflóruna. Hvaða bætiefni eru góð fyrir þarmaflóruna og hvað er peningasóun. Hvað er lekir þarmaveggir og hvernig lögum við það Í þessum þætti tala ég við Birnu G...
#35 SnorriBaró Umboðsmaður - Crossfit sportið, Greg Glassman, áskoranir umboðsmanns 26.06.2020 1:04:23
Í þessum þætti tala ég við Snorra barón sem er umboðsmaður Söru og Björgvin Karl Guðmundsson ásamt öðrum rísandi CrossFit stjörnum úti í heimi. Snorri hefur alið manninn víða, hann var dyravörður í níunni, gaf út tímaritið Undirtóna og átti auglýsingastofuna Vatíkanið. Nú er Snorri í fullu starfi sem umboðsmaður. Við tölum um Crossfit íþróttina, umboðsmannastarfið, eðli þess og áskoranir og að sjá...
#34- Unnar Már osteopati - heilbrigt stoðkerfi og mobility 14.06.2020 55:50
Unnar Már Unnarsson er osteopati sem á og rekur Osteo heilsumiðstöð sem er staðsett í Granda 101. Osteopatía nálgast líkamann útfrá heildrænni nálgun þar sem leitað er að rót vandans eða verksins í í öllu sem kemur til greina. Svefn, streita, líkamsbeiting, líkamsstaða, andlega hliðin og vinnuaðstaða. Það gefur skjólstæðingnum og meðferðaraðila stóran verkfærakassa í meðferðum. Hér tölum við um al...
#33 - Steinunn Þórðardóttir, streita, astmi, exem 03.06.2020 1:02:23
Þátturinn er í boði Lífsalt @arcitcseaminerals NOW á Íslandi @nowiceland Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarðar sem viðkemur bæði líkamlegri og andlegri heilsu. Ég spjalla sjálf eða fæ til mín góða gesti sem eru sérfræðingar á sínu sviði og plokka úr þeim viskuna fyrir okkur sótsvartan almúgann til að nýta okkur í daglegu lífi. www.ragganagli.com inniheldur greinar u...
#32- Grunnbrennslan - hvernig dúndrum við grunnbrennslunni í fimmta gír 20.05.2020 57:35
Í þessum þætti tala ég um grunnbrennsluna, hvernig hægist á henni með röngum æfingum og mataræði. Hver eru einkenni af laskaðri og hægri grunnbrennslu og hvernig við getum keyrt hana upp aftur. Hér nýt ég liðsinnis míns ástkæra Helga Ómars úr Helgaspjallinu. Þátturinn er í boði: Lífsalt @arcitcseaminerals NOW á Íslandi @nowiceland Njótið. Heilsuvarp Röggu Nagla fjallar um allt milli himins og jarð...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.