Ragga Nagli
Heilsuvarpid
Podcast by Ragga Nagli
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#78 Heiðrún Finnsdóttir - Allir geta eitthvað 02.06.2023 1:18:23
Heiðrún Finnsdóttir er gestur Heilsuvarpsins. Heiðrún á ótrúlega sögu. Hún var 105 kg með vefjagigt, þunglyndi, liðagigt og kvíða og ákvað að snúa við blaðinu. Hún var búin að prófa alla kúra þegar hún fór í Polefitness og þaðan lá leiðin í Crosfit og er með Level 1 Crossfit þjálfararéttindi. Síðan hefur margt vatn runnið til sjávar og hún setti á fót hin geysivinsælu Allir geta eitthvað námskeiði...
#77 Snorri Barón - umboðsmaður Crossfitstjarnanna 18.05.2023 1:35:38
Snorri Barón umboðsmaður er með rúmlega 30 Crossfitstjörnur undir sínum verndarvæng, og eins og bangsapabbi sem hugsar um þau með alúð og umhyggju. Hann er þeim innan handar hvenær sem er sólarhringsins, og semur ríkulega við styrktaraðila svo þau geti lifað af sinni íþrótt. Þessi þáttur er bæði fyrir þá sem vita lítið um Crossfit því Snorri er megahress og segir skemttilega frá en líka fyrir okku...
#76 Halldóra og Viðar Kvennastyrkur + Kvennakraftur 07.05.2023 1:15:03
Halldóra Anna Hagalín og Viðar Bjarnason eigendur Kvennastyrks í Hafnarfirði sem er líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem áherslan er á að hver og ein hreyfi sig útfrá eigin getu og þjálfun aðlöguð að hverri konu með áherslu á getu en ekki útlit og vigt. Þau segja að það sé nauðsynlegt að hafa líkamsræktarstöð eingöngu fyrir konur þar sem margar upplifa sig óörugga í hefðbundnum kynjablönd...
#75 Ingi Torfi Macros og mataræði 18.04.2023 1:03:08
Í þessum þætti er ég að tala við Inga Torfa Sverrisson hjá ITS macros en þau hafa hjálpað þúsundum að ná árangri með að telja orkuefni og læra gott máltíðamynstur. Við fórum um víðan völl í öllu sem viðkemur mataræði, macros og heilbrigðu sambandi við mat. Ég minni á Heilsukvöldið þar sem bæði ég og Ingi Torfi verðum með fyrirlestra um mataræði í Hverslun þann 21. apríl kl 18.30. Heilsuvarpið er í...
#74 Jónas Tryggvi Betra Box sambönd + samskipti 10.04.2023 1:04:03
Jónas Tryggvi Stefánsson frá Betra Box, er áhugamaður um samskipti, sambönd, og meðvirkni. Hann vill ekki að við festum okkur í ákveðnu boxi. Í þættinum töluðum við um allskonar tengt samböndum, kynlífi, heilbrigð samskipti, tilfinningar og sjálfsbetrun. @betrabox Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
#73 Hlynur Kristinn Það er Von 24.03.2023 1:00:56
Hlynur Kristinn Rúnarsson er stofnandi samtakann Það er von Markmið þeirra er að vinna gegn fordómum, skömm og vekja von hjá þeim sem glíma við fíknisjúkdóma og gefa annað tækifæri í lífinu. Hlynur á sjálfur ótrúlega sögu af bata en hann hefur verið edrú í næstum 4 ár. Hann er nýútskrifaður með BS í lögfræði og er nú í mastersnámi. Heilsuvarpið hvetur alla til að gerast Vonarliðar og leggja samtök...
#72 Halldóra Skúladóttir - Breytingaskeiðið 12.03.2023 57:24
Gestur þáttarins er Halldóra SKúladóttir hjá Kvennaráð.is. Hún er sprenglærð í breytingaskeiði kvenna, sjúkraliðamenntun og dáleiðari. Halldóra er hafsjór af fróðleik um breytingaskeiðið, og markmið hennar er að fræða, upplýsa og uppræta fordóma. Takið fram penna og stílabók, því þið eruð að fara að glósa hérna. @kvennarad.is Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
#71 Sólveig Sigurðardóttir Crossfitstjarna 15.02.2023 1:15:09
Í þessum þætti tala ég við Sólveigu Sigurðardóttur, Crossfitstjörnu, en hennar frægðar Sól reis hratt síðasta ár þegar hún stóð sig stórkostlega í undanúrslitunum í London og tryggði sig inn á Crossfitleikana í einstaklingskeppni. Sólveig er einlæg, hlý, hreinskilin og í alla staði yndisleg manneskja. Hún opnar sig um reynsluna af Crossfit keppnum, að æfa með háklassa keppendum á Mallorca, og hver...
#70 Daníel Gunnarsson - frá magaermi í vaxtarrækt 04.02.2023 1:02:36
Daníel Gunnarsson fór í magaermi í maí 2021. Í nóvember 2022 stóð hann helskafinn á sviði að keppa í vaxtarrækt og lét þar gamlan draum rætast. Draumur sem hann hélt að yrði alltaf bara óraunhæf óskhyggja. Ekki nóg með að fara á svið, heldur lenti hann í öðru sæti. Ótrúleg saga af dugnaði, elju, þrautseigju, jákvæðni og skynsemi hjá okkar manni. Heilsuvarpið er rækilega styrkt af NOW á Íslandi og...
#69 Sara Sigmunds Crossfit drottning 02.01.2023 1:08:23
Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir, Crossfit drottning, sálfræðinemi, verðandi einkaflugmaður. Sara er hlý, kærleiksrík, fyndin og einlæg. Hún opnar sig um hvernig hún komst andlega í gegnum meiðslin á hnénu, hversu mikilvægt er að hrósa, og hvernig eitt hrós var þúfan sem velti þungu hlassi á hennar Crossfit ferli. Ótrúlega skemmtilegt viðtal við stórkostlega konu. Styrktaraðilar Heilsuvarpsins Nettó...
#68 Sveinn Gunnar Björnsson kírópraktor 30.11.2022 1:02:32
Sveinn Gunnar Björnsson eða Svenni Kíró er kírópraktor hjá Kíró Lindum. Hann lærði í Atlanta Georgia, og glímdi sjálfur við bakmeiðsli ungur að árum. Svenni er gangandi fróðleiksmoli um allt sem viðkemur líkamsstöðu og beitingu í æfingum og daglegu lífi. Hann er líka einn af þremur frumkvöðlum sem settu á markað Kuldi Sleeve sem er kæliermi fyrir hné, olnboga og fleiri liði. Kuldi sleeve fæst t.d...
#67 Erlendur Rafnkell Crossfit Fenrir Elite 16.11.2022 1:35:05
Í þessum þætti tala ég við Ella eiganda Fenrir Elite á Höfn í Hornafirði. Elli á magnaða sögu þrátt fyrir ungan aldur. Hann hefur glímt við þunglyndi kvíða, og fíkn en vann sig útúr því og stofnað Crossfit stöð sem fagnar mikilli velgengni. Sannarlega frumkvöðull sem á framtíðina fyrir sér, bæði sem elítu Krossfittari og slyngur viðskiptamaður. Skemmtilegt spjall við kláran og duglegan mann. Heils...
#66 - Gústi Hermanns - ADHD á fullorðinsárum 22.10.2022 1:10:33
Gústi Hermanns er verkfræðingur sem glímdi við kulnun og í þvi ferli greindist hann með ADHD og það opnaði augu hans fyrir ýmsu úr æskunni. Hér segir hann frá einkennunum og hvernig er að vera með ADHD sem fullorðinn. Þátturinn er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
#65 - Friðrik Agni Árnason dansari og hamingjusprengja 06.10.2022 1:19:06
Friðrik Agni Árnason er dansari og annar eigandi Happy studios. Hér talar hann um lífshlaup sitt, starfið sitt og opnar sig á einlægan hátt um kynferðisofbeldi sem hann varð fyrir snemma á lífsleiðinni og hvernig hann hefur unnið úr því áfalli. Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó @fridrikagni @nowiceland @netto.is
#64 Hinrik Páls - Lyftingar og mataræði 24.09.2022 1:03:03
Hinrik Pálsson situr í stjórn Kraftlyftingasambands Íslands og er með næringarþjálfunargráðu frá Working against gravity. Hann veitir næringarráðgjöf hjá Fiercely fuelled nutrition. Hinrik hefur síðustu ár keppt í kraftlyftingum bæði hér heima og erlendis, og er einnig að klára nám til að fá þjálfararéttindi í greininni. Hann er með margar háskólagráður, BA í félagsfræði, MA í afbrotafræði, M.Sc í...
#63 - Anna Claessen- Kulnun, streita, zumba og Jallabína 10.09.2022 1:10:00
Anna Claessen glímdi við kulnun í starfi og persónulega lífinu en komst uppúr því með ýmiss konar aðstoð. Nú er hún að fara af stað með netnámskeið í streitustjórnun. Anna er dansari, fjölmiðlafræðingur, markþjálfi,einkaþjálfari, skemmtikraftur og prófessjónal peppari. Hún kennir Zumba og Jallabína og rekur Happy studios ásamt Friðriki Agna Árnasyni. @happystudiosiceland Heilsuvarpið er í boð Now...
#Breytingaskeið - Æfingar og mataræði 20.08.2022 33:27
Margar konur klóra sér í hausnum hvernig þær eiga að haga æfingum og mataræði fyrir, á meðan, og eftir breytingaskeið. Því líkaminn breytist, hormónabúskapur breytist, insúlínnæmið breytist, líkamssamsetningin breytist. Og margar konur upplifa að þó þær æfi mikið og borði hollt sjái þær fitusöfnun á kvið og verra líkamsform eftir fertugt. Í þessum þætti tala ég um hvaða æfingar eru áhrifaríkastar...
Ragga Nagli - Heilsuhegðun í sumarfríi 09.08.2022 34:19
Í þessu sólókasti tala ég um að vera kortér í kulnun, nauðsyn þess að taka frí og hvernig við viðhöldum heilsuhegðun í sumarfríinu. Heilsuvarpið fór í smá marineringu í nokkra mánuði en snýr nú aftur í vetur með hvetjandi og fræðandi þætti. Styrktaraðilar Heilsuvarpsins @netto.is @nowiceland
#60- Haraldur Holgersson Crossfit og Friends 14.03.2022 1:00:55
Haraldur Holgersson er klárlega næsta karlkyns vonarstjarna Íslands í Crossfit heiminum. Hann hefur farið á Crossfit leikana sem unglingur og í liðakeppni. Hann æfir og þjálfar í Crossfit XY og stefnir á leikana sem einstaklingur 2022. Haraldur er líka manna fróðastur um Friends þættina. Þátturinn er í boði Nettó verslananna og NOW á Íslandi
#59- Rannveig Ásgeirs - Konur og hjartasjúkdómar 14.02.2022 1:00:59
Í þessum þætti tala ég við Rannveigu Ásgeirsdóttir, verkefnastýru hjá GORED iceland sem er vitundarvakning um hjarta og æðasjúkdóma kvenna. Ungar konur eru í aukinni áhættu á háþrýstingi og sykursýki á meðgöngu og síðan seinni hluta ævinnar á breytingaskeiðinu. Febrúar er HJARTAMÁNUÐURINN og vill GÓRED hamra á að fólk þekki ættarsögu sína, sem og hin ýmsu gildi eins og blóðþrýsting, sykurstuðul o....
#58-Helgi Ómars - Lífið eftir ofbeldissamband 25.01.2022 47:50
Helgi Ómars er áhrifavaldur, frumkvöðull, ljósmyndari, en fyrst og fremst dásamleg mannvera og hugrökk hetja, en hann kom sér út úr margra ára ofbeldissambandi. Hann hefur unnið í sjálfum sér síðan, að styrkja sjálfsmyndina og sjálfstraustið og deilir hér hvað reyndist honum vel í þessari sjálfsvinnu og ráðleggingar til annarra í sömu stöðu. Þátturinn er tekinn upp í Podcaststöðinni @podcastodin H...
#57-Daníel Gunnarsson- Magaermi, breyttar matarvenjur, líkamsímynd 12.01.2022 1:13:05
Daníel Gunnarsson er smiður, og nemi í mannauðsstjórn og skipulagsstjórnun. M.Sc í Háskólanum í Reykjavík. Hann fór í magaermi í maí 2021. Hann talar hér um reynslu sína af þeirri aðgerð, breyttar matarvenjur með nýtt magarými, líkamsímynd sína, bæði fyrir og eftir aðgerð og einelti í æsku vegna vaxtarlags og margt fleira. Þátturinn er tekinn upp í Podcaststöðinni í Kópavogi @podcaststodin Þátturi...
#56 Anna Marta - Næring, hreyfing, sorg 28.12.2021 1:18:32
Anna Marta hefur gengið í gegnum barnsmissi og talar hér um hvernig heilbrigður lífsstíll og einstök jákvæð sýn á lífið hefur hjálpað henni að takast á við sorgina og lifa með henni. Anna Marta er með online þjálfun en einnig framleiðir hún pestó og Döðlumauk undir merkinu AnnaMarta og súkkulaðið Dásemd til styrktar Barnaspítala Hringsins. Þátturinn er í boði Nettó og NOW á Íslandi. @nowiceland @n...
#55 Júlían Jóhannsson - kraftlyftingakappi og heimsmethafi 09.12.2021 58:52
Júlían Jóhann Karl Jóhannsson er fremsti kraftlyftingamaður Íslands en hann var kosinn íþróttamaður ársins 2019. Júlían setti heimsmetið í réttstöðulyftu í 120 + kg flokki en hann togaði 405.5 kíló upp frá jörðu árið 2019 í Dubai. Nýlega vann hann gull í réttstöðulyftu í Stavanger í Noregi. Kona Júlíans, Ellen Ýr, stundar einnig kraftlyftingar svo þetta er líklega sterkasta par Íslands. Þú getur f...
#54 Hekla Guðmunds - Bandvefslosun, nudd og teygjur 26.05.2021 56:52
Hekla Guðmundsdóttir er eigandi Bandvefslosun,is Hekla hefur hannað Body reroll, nýtt æfingakerfi sem sameinar teygjur, slökun, djúpteygjur og bandvefslosun. Hekla fræðir okkur um hvað bandvefur, hlutverk hans í líkamanum og mikilvægi þess að hugsa vel um hann með teygjum og nuddi og hvernig bandvefslosun minnkar verki og vöðvaspennu, bætir líkamsstöðu, eykur hreyfanleika, og undirbýr líkamann fyr...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.