Ragga Nagli
Heilsuvarpid
Podcast by Ragga Nagli
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#104 Helga Dís og Bjarki hjá Nettó - Heilsudagar 06.09.2024 48:35
Helga Dís markaðs og upplifunarstjóri og Bjarki innkaupastjóri hjá Nettó kíktu í spjall og fræða okkur um sögu Heilsudaga, þróun og vinnuna við að skipuleggja stærstu hátíð okkar heilsuperranna. Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á íslandi @netto.is @nowiceland
#103 Jana heilsukokkur - Heilsudagar Nettó 04.09.2024 50:57
Jana Steingríms heilsukokkur kíkti í Heilsuvarpið en hún heldur úti vinsælu matarbloggi undir jana.is og á instagram undir janast. Þessi þáttur er annar af fjórum í sérstakri Heilsudagaseríu í samstarfi við Nettó. Jana er einmitt forsíðustúlkan á heilsublaðinu og segir að við getum öll eldað. Við Jana getum matarperrast saman í marga klukkutíma og vonandi skilaði spjallið allskyns góðum ráðum í að...
#102 Helgi Ómars Heilsudagar Nettó 01.09.2024 1:02:31
Helgi Ómars er einn áhrifavaldur hjá Nettó og hann kíkti í Heilsuvarpið af þessu tilefni og við röbbuðum saman um allskonar heilsutengt, og eins og okkar er von og vísa förum við um víðan völl þar sem meira að segja Smjattpattarnir koma við sögu. Þessi þáttur er fyrsti þáttur af fjórum í Heilsudagaseríu í samstarfi við Nettó í tilefni af Heilsudagar eru 29/8-8/9 með fullt af frábærum tilboðum á he...
#101 Magnús Jóhann - einkaþjálfari og borðtennismeistari 21.08.2024 57:56
Gestur Heilsuvarpsins er Magnús Jóhann einkaþjálfari í Hreyfingu,BS í sálfræði og margfaldur íslandsmeistari í borðtennis.er með , s Hann hefur hjálpað hundruðum ná markmiðum sínum í ræktinni en einnig búið í Suður Kóreu svo hann hefur upplifað margt og hefur frá mörgu að segja. Skemmtilegt spjall við megahressan gaur, Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi @nowiceland @netto.is
#100 Lotuþjálfun HIIT - sólóvarp 19.07.2024 30:08
Allt um lotuþjálfun (HIIT) í þessu sólóvarpi. Vonandi öllum spurningum um þetta æfingaáreiti svarað. Hvað er það? Hvers vegna er HIIT gott fyrir okkur Hvenær er best að gera lotuþjálfun? Hversu margar lotur í einu? Hversu langar lotur? Hversu oft í viku. Heilsuvarpið er styrkt af NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
#98 Krissi Haff - Jákvæðasti maður Íslands 28.06.2024 1:15:13
Krissi Haff félagsfræðingur er örugglega jákvæðasti maður Íslands. Hann missti pabba sinn 15 ára og glímdi við sorgina með jákvæðni og von og hugarfari að glasið er alltaf hálffullt Hann heldur úti hlaðvarpinu Jákastið þar sem hann fær til sín þekkta einstaklinga og spyr hvernig þau nota jákvæðni í sínu lífi. Rosalega skemmtilegt spjall og öll fara súper jákvæð inni í daginn eftir þessa hlustun.
#97 Gynamedica Harpa Lind og Sonja - Breytingaskeiðið 07.06.2024 50:01
Harpa Lind og Sonja frá Gynamedica eru hafsjór af fróðleik um allt sem viðkemur breytingaskeiðinu. Gynamedica er lækninga og heilsumiðstöð fyrir konur sem fagna 2 ára afmæli um þessar mundir. Þar starfar teymi lækna, hjúkrunarfræðing sem bjóða stuðning, fræðslu, eftirfylgni á breytingaskeiði. Leggið vel við hlustir og dragið fram glósubækurnar. Styrktaraðilar @nowiceland @netto.is
#96 Kristinn Johnson - Allt um skó í hlaup og göngur 08.05.2024 1:10:49
Kristinn Johnson framkvæmdastjóri Eirberg er gestur Heilsuvarpsins. Eirberg selja vörur sem efla heilsu, auka lífsgæði, auðvelda störf og daglegt líf. Undir þeim hatti eru ALTRA hlaupaskór sem og Vivo barefoot skór. Umfjöllunarefni þáttarins er hvernig skór eru bestir í hlaup, göngur sem og daglegt líf. Mjög fróðlegur þáttur fyrir alla sem vilja gefa fótunum sínum alla ást sem þeir eiga skilið með...
#95 Vöðvabygging 101 - hvernig byggirðu vöðva 18.04.2024 36:32
Allt sem þú þarft að vita um lyftingar og hvaða þættir þurfa að vera til staðar til að byggja upp vöðva. Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó. @nowiceland @netto.is
#94 Birna Varðar næringarfræðingur - orkuskortur og æfingar 03.04.2024 1:05:13
Birna Varðar, næringarfræðingur, doktorsnemi í íþrótta og heilsufræði, rannsakandi á sviði fæðu og átraskana. Hún hefur skoðað orkuskort í íþróttum og áhrif á heilsu og árangur. Við tölum um orkuskort í æfingum hjá almenna ræktariðkanda því alltof mörg borða of lítið í samræmi við æfingarnar og fjöllum um áhrif of lítillar næringar hefur á líkamlega og andlega heilsu, og langtíma afleiðingar. Fylg...
#93 Kreatín - allt sem þú vilt vita 27.03.2024 21:08
Í þessum þætti tala ég um kreatín og svara algengum spurningum Hvernig virkar kreatín? Hvenær er best að taka það. Hvernig? Hversu mikið? Hvaða týpa er best? Get ég tekið kreatín þó ég sé ekki að æfa? Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi og Nettó @nowiceland @netto.is
#92 Geir Gunnar - mataræði án öfga 06.03.2024 1:04:35
Geir Gunnar Markússon næringarfræðingur er gestur Heilsuvarpsins Geir Gunnar starfar hjá Heilsustofnun NLFÍ og ritstjóri heimasíðunnar. BS í matvælafræði og MS í næringarfræði og einkaþjálfarapróf og brennur fyrir heilsu, næringu, hreyfingu og berst gegn öfgum og hindurvísindum í næringar- og heilsufræðum. Bókin hans Góð heilsa alla ævi án öfga fáanleg í næstu bókabúð. Við töluðum um nýju bókina,...
#91 Valdimar Þór - Meðvirkni og samskipti 23.02.2024 1:19:43
Valdimar Þór Svavarsson er ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu, með MS í stjórnun og stefnumótun, BA í félagsráðgjöf. áfalla- og uppeldisfræðum Piu Mellody. Við tölum um meðvirkni og samskipti og áföll í æsku. Stútfullur þáttur af fróðleik og verkfærum fyrir góð samskipti og aukinn skilning á meðvirkni. www.fyrstaskrefid.is Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @netto.is @nowiceland
#90 Katrín Edda - ADHD sem fullorðin 22.01.2024 1:11:27
Gestur þáttarins er Katrín Edda Þorsteinsdóttir, verkfræðingur, samfélagsmiðlastjarna, Crossfittari, móðir og eiginkona búsett í Þýskalandi og vinnur fyrir Bosch. Við töluðum um þjálfun á meðgöngu og eftir fæðingu en aðallega um hvernig var að fá ADHD greinginu sem fullorðin og hvað áhrif það hefur haft á hennar líf í dag. @katrinedda Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @netto.is @nowiceland
#89 Erlendur Jóhanns - Testósterón og hormónakerfi karla 09.01.2024 1:13:51
Gestur þáttarins er Erlendur Jóhann Guðmundsson einkaþjálfari sem hefur startað sem einkaþjálfari í 15 ár á hinum ýmsu stöðum, og því hokinn af reynslu í bransanum. Hann rekur núna Formið heilsurækt í Ármúla sem er persónuleg nálgun í þjálfun í öruggu umhverfi. Við tölum um ýmislegt sem viðkemur þjálfun, að koma sér í form á nýju ári en aðallega tölum við um hormónakerfi karla og ótrúlegur fróðlei...
#88 Kristín Þórhalls- Kraftlyftingakona og dýralæknir 20.12.2023 1:03:44
Kristín Þórhallsdótir er líklega sterkasti dýralæknir Íslands og klárlega ein af sterkustu konum landsins. Hún fann sig í kraftlyftingum eftir að hafa eignast langveikt barn árið 2018. Hún byrjaði að dútla í venjulegri rækt og Crossfit en áttaði sig fljótlega á að hún var mjög sterk og var hvött til að reyna fyrir sér í kraftlyftingum. Kristín hefur unnið til fjölda verðlauna á skömmum tíma en hún...
#87 Erla Súsanna - Jákvæð sálfræði og þakklæti 26.11.2023 1:08:06
Erla Súsanna er menntaður kennari og heldur úti heimasíðunni Töfrakistan.is en hún leggur áherslu á jákvæða sálfræði og þakklætisiðkun. Erla kennir einnig Jóga nidra, býður uppá allskonar retreat og selur þakklætisdagbókina á töfrakistan.is Mjög áhugavert spjall við stórkostlega jákvæða konu með hlýja nærveru. Gjöriði svo vel. Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
#86 Helgi Ómars - öryggi í samböndum og allskonar spjall 20.10.2023 1:00:13
Sameiginlegur þáttur Helga og Röggu fyrir bæði Helgaspjallið og Heilsuvarpið. Við töluðum um allt og allskonar tengt samböndum, að setja mörk, og meira að segja pólitík. Sjálfseflingarnámskeiðið er 20. og 21. október Skráning raggaoghelgi@gmail.com Heilsuvarpið er í boði NOW og Nettó @nowiceland @netto.is
Árni Þóroddur - Narsissmi 09.10.2023 1:07:09
Árni Þóroddur sálræðingur kíkti í spjall og við köfum djúpt í samskiptavanda, að setja mörk, eitruð sambönd og narsissma. Árni er einn vinsælasti viðmælandinn minn og svíkur sannarlega ekki í þetta sinn frekar en fyrri daginn Fylgið endilega Árna þar eru fræðslumyndbönd um allskyns sálfræðitengd málefni. @mind.in.motion.psychology Ég minni á námskeiðið okkar Helga ómars Sjálfseflin allur pakkinn s...
#84 Eik Gylfadóttir - Dóttirin í eyðimörkinni 21.09.2023 1:32:48
Eik Gylfadóttir er sjúkraþjálfari, næringarþjálfari og bjó um árabil í Dubai og Abu Dabi og þjálfaði Crossfit. Eik hefur farið á heimsleikana í Crossfit þrisvar sinnum. Hún er hafsjór af fróðleik um alt sem viðkemur þjálfun, næringu og endurhæfingu en spáir líka mikið í hugarfarinu sem knýr okkur áfram í æfingum. Kíkið endilega á Eik á samfélagsmiðlum en hún heldur úti Building Thriving lifestyle...
#BiggiBingó 03.09.2023 1:31:10
Gestur Heilsuvarpsins er Arnaldur Birgir eða Biggi þjálfari. Við tölum um þjálfun eftir fertugt, hvernig líkaminn breytist og hvernig við þurfum að hagræða þjálfun og næringu í samræmi en halda samt áfram að ná árangri. Biggi er hokinn af reynslu eftir næstum þrjátíu ár í bransanum og þúsundir skjólstæðinga á ferilskránni. @coachbirgir Heilsuvarpið er í boði Nettó og NOW á Íslandi Kóðinn HEILSUVAR...
#82 Khan Porter - Mest sjarmerandi maðurinn í CrossFit 15.08.2023 1:24:39
Gestur minn í HV er enginn annar en Ástralinn Khan Porter sem er ein stærsta stjarnan í Crossfit heiminum. Khan er ekki bara afburða íþrottamaður en er líka sálfræðimenntaður, djúpur hugsuður, brennur fyrir andlega heilsu og er mikill talsmaður þess að fólk opni sig um vandamál en hann hefur sjálfur glímt við andleg veikindi. Khan bjó á Íslandi í 6 mánuði og æfði í CrossFit Reykjavík með liðinu he...
# 81 Lucie Martinsdóttir - Sterkasta mamma Íslands? 31.07.2023 1:10:26
Lucie Stefanikova (Martinsdóttir) er kraftlyfingakona frá Tékklandi búsett á Íslandi. Hún er grjótsterk en líka stórkostleg fyrirmynd hvernig hún sinnir móðurhlutverkinu, starfi sínu sem þjálfari og rífur í lóðin. Lucie er fróð, hógvær, róleg og með einstakt æðruleysi. Mögulega sterkasta mamma íslands gjöriði svo vel. @lucie_martins_lifts Heilsuvarpið er í boði NOW á Íslandi Mæli með kreatíni fyri...
#80 Nökkvi Fjalar - konungur heilsunnar 14.07.2023 1:15:21
Nökkvi Fjalar Orrason er gestur Heilsuvarpsins að þessu sinni og miðlar af þekkingu reynslu í gegnum sína miðla til að tileinka sér betri heilsuvenjur t.d hugleiðslu, æfingar, mataræði, föstur, betri svefn og öndunaræfingar. Nökkvi býr í London þar sem hann er að þróa nýtt app fyrir áhrifavalda, Mintseer, sem hjálpar þeim að halda utan um sín verkefni og samstörf við fyrirtæki. Dragið fram glósubæ...
#79 Hjörtur Jóhann - buffaðasti leikari Íslands 22.06.2023 1:20:50
Gestur HEILSUVARPSINS er Hjörtur Jóhann Jónsson leikari. Ég hef verið aðdáandi Hjartar síðan 2016 þegar ég sá hann eiga stórleik í Njálu. Hjörtur er stórkostlegur leikari og hann segir okkur hér frá sínum heilsuvenjum og hvernig hann æfir í ræktinni fyrir hin ýmsu hlutverk í bíói og á sviði. Hjörtur er með hlýja nærveru, skemmtilegur, einlægur og fyndinn. Frábært spjall við frábæran mann. Heilsuva...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.