Lovísa og Linda

Fljúgum hærra

Music IS ↓ 131 episodes

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni.  Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun.  Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum

Author

Lovísa og Linda

Category

Music

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

31] Fljúgum hærra - Linda McCartney. Rokkið og rúnturinn 26.10.2022

Hún var New York stelpa, fædd inn í heim tónlistar og markaði sér sinn sess þar sem ljósmyndari á sama tíma og rokkið var að trylla nýja kynslóð.  Linda giftist Bítlinum Paul McCartney og stór hluti af þeirra lífi var á vegum úti í tónleikaferðalögum. Ljósmyndabókin hennar „Roadwork“ fær sérstaka athygli í þessum þætti.

30) Fljúgum hærra - Tori Amos 19.10.2022

Tori Amos var undrabarn í tónlist. Hún var farin að leggja stund á klassískan píanóleik þegar jafnaldrar hennar voru ekki einu sinni farnir að lesa og ný hættir að nota bleyju. Hún varð þó aldrei konsertpíanisti eins og til stóð í upphafi því hún vildi bara spila það sem henni fannst skemmtilegt og það gat verið David Bowie og Led Zeppelin rétt eins og Debussy eða Schubert. Örlögin haga því þannig...

29) Fljúgum hærra - Ingibjörg Ólafsdóttir. Kona á fjöllum 12.10.2022

Hún fór á alla kleifa tinda landsins, alla jökla og hvern slóða sem hægt var.  Þetta var fjallgeitin og landslagsljósmyndarinn Ingibjörg Ólafsdóttir sem eyddi öllum sínum aurum í filmur, framköllun og útivist. Myndir hennar voru í tímaritum, á póstkortum og dagatölum og kannski uppá vegg heima hjá Lollu í Skagafirði.

28) Fljúgum hærra - Lolla og Linda. Sveitavargurinn og Gaflarinn 05.10.2022

Hverjar erum við? Hvaðan komum við, hvert erum við að fara og af hverju erum við eitthvað að tjá okkur um konur í tónlist og ljósmyndun? Vegna fjölda áskorana (ekki bara út af því að Linda var búin að vera á safnamannaskralli á austfjörðum og ekki tilbúin með næsta handrit) þá ætlum við að segja aðeins frá okkur sjálfum.  Það koma við sögu hópferðir á þungarokkstónleika, mixteip, gæruvesti, tjaldú...

27) Fljúgum hærra - Róisín Murphy (Moloko) 28.09.2022

Róisín Murphy hóf tónlistarferilinn eiginlega alveg óvart þegar hún hitti strák í partýi sem hana langaði til að kynnast betur, vatt sér upp að honum og notaði svo súra pick up línu að hann gat ekki annað en boðið henni á deit og saman urðu þau svo dúettinn Moloko. Þegar þau svo nenntu ekki lengur að vera kærustupar einhverjum árum seinna ákveður hún að demba sér í sólóferil og þar koma við sögu s...

26) Fljúgum hærra - Vivian Maier. Mary Poppins með myndavél 21.09.2022

Vivian var stórkostlegur ljósmyndari sem vann fyrir sér sem barnfóstra.  Teinrétt í alltof stórri kápu og skóm þræddi hún bæði breið borgarstræti og nöturleg skúmaskot í leit að sögum. Hún hins vegar sýndi engum verkin sín og stærsti hlutinn af filmum hennar voru óframkallaðar þegar hún dó. Í dag er enn verið að slást um verkin hennar

25) Fljúgum hærra - Ann og Nancy Wilson (Heart) 14.09.2022

Hljómsveitina Heart þekkja eflaust allir sem á annað borð hafa hlustað á tónlist síðustu 45 árin eða svo og þó margir tengi hana við spandex, hárlakk og dramatískar powerballöður þá er það tímabil bara örlítið brot af þeirra langa ferli. Systurnar Ann og Nancy Wilson hafa verið stoð og stytta Heart nánast frá upphafi og margt hefur gengið á í þeirra lífi síðan þær byrjuðu að syngja saman Bítlalög...

24) Fljúgum hærra - Homai Vyarawalla, fyrsti kvenfréttaljósmyndari Indlands 07.09.2022

„Þessi stelpa hættir ekki fyrr en hún er búin að blinda mig“ sagði Gandhi einhvertímann þegar hann var orðinn leiður á flassinu hennar Homai Vyarawalla. Hún var fyrsti konan í Indlandi sem starfaði sem fréttaljósmyndari og þekkt undir dulnefninu Dalda 13. Hún myndaði helstu stórviðburði í sínu landi, lítil snaggaraleg kona á reiðhjóli, klædd í sarí með þunga myndavél á öxlinni.

23) Fljúgum hærra - Taylor Momsen (The Pretty Reckless) 31.08.2022

Barnastjarnan sem sagði skilið við leiklistarferilinn og módelstörfin þar sem hún var á hraðri leið upp metorðastigann til að láta sinn stærsta draum rætast sem var að syngja og spila á gítar í sveittri rokkhljómsveit.

22) Fljúgum hærra - Shadi Ghadirian, listljósmyndari í Íran 24.08.2022

Shadi Ghadirian er listljósmyndari í heimalandi sínu Íran. Í verkum sínum fjallar hún iðulega um mannréttindi og stöðu kvenna þrátt fyrir gríðarlega strangar reglur um tjáningarfrelsi. Heimilisstörfin, kvennlíkaminn, tabú hlutir og stríð er allt að sjá í verkum hennar sem eru öll unnin inní stúdíói.

21) Fljúgum hærra - Sister Rosetta Tharpe. Guðmóðir rokksins 17.08.2022

Sister Rosetta Tharpe hefur bæði verið kölluð guðmóðir rokksins og "the original soul sister". Hún bæði söng og spilaði á rafmagnsgítar og var áhrifavaldur á tónlist ekki ómerkari manna en  Chuck Berry, Little Richard og Johnny Cash. Hún gekk svo í endurnýjun lífdaga á fimmtugs aldri eftir mörg mögur ár í heimalandinu þegar ungir, hvítir Bretar uppgötva bluse og gospel tónlist svartra Ba...

20) Fljúgum hærra - Skuggalegar konur 10.08.2022

Konurnar í skugganum eru 19. aldar ljósmyndarar frá Íslandi, Danmörku og Færeyjum sem sagt er frá á ljósmyndasýningunni „Í skugganum“ sem stendur nú yfir í Þjóðminjasafninu. Hlaðvarpssysturnar  Lolla og Linda skruppu í hús hámenningarinnar og ræða um ljósmyndir og líf  þessar kvenna innan um hefðarfólk,  indjána og þræla. Hvernig svo  hönnun á klósetti blandast inni í þetta samtal er ofar okkar ei...

19) Fljúgum hærra - Norah Jones 03.08.2022

Norah Jones hefur átt einstaklega farsælan tónlistarferil alveg frá því fyrsta platan hennar kom út fyrir 20 árum síðan og sló alveg rækilega í gegn öllum að óvörum. Hún hefur selt yfir 50 milljón plötur og unnið 9 Grammy verðlaun. Sungið með Willie Nelson, Dolly Parton, Mike Patton og Foo Fighters svo eitthvað sé nefnt og Billboard Magazine setti hana á toppinn yfir merkilegustu jazz tónlistarmen...

18) Fljúgum hærra - Tina Modotti 27.07.2022

Tina Modotti var ástríðu ljósmyndari og ákafur byltingarmaður sem skildi eftir sig lítið en merkilegt myndasafn.  Slóð Tinu er þvert yfir heimsálfur og líf hennar ævintýri líkast.

17) Fljúgum hærra - Courtney Love (Hole) 20.07.2022

Courtney Love hefur átt mjög skrautlega ævi svo vægt sé til orða tekið. Topparnir hafa verið háir en lægðirnar líka að sama skapi mjög djúpar. Hún hefur ekki bara fengist við tónlist heldur líka leiklist nánast allan sinn feril og hefur m.a.s verið tilnefnd til Golen Globe verðlauna fyrir kvikmyndaleik. Og svo var hún auðvitað líka gift Kurt Cobain. 

16) Fljúgum hærra - Anne Geddes 13.07.2022

Ástralski ljósmyndarann Anne Geddes skaust upp á stjörnuhimininn uppúr 1990 með ofur rómantískum myndum sínum af ungabörnum sofandi inn í blómum eða liggjandi á graskeri. Hrifnæmnin hríslaðist um almúgan sem keypti bækur og dagatöl í milljónum eintaka. Anne ætlaði alltaf að verað heimsfrægur ungabarnaljósmyndari og varð það sannarlega.

15) Fljúgum hærra - Kate Bush 06.07.2022

Kate Bush er ein allra merkilegasta tónlistarkona okkar samtíðar. Þegar jafnaldrar hennar voru að taka út unglingaveikina sat hún heima við píanóið og samdi lög sem við erum að hlusta á enn þann dag í dag og eru alveg jafn góð og þau voru þá.  Hún er brautryðjandi á mörgum sviðum og er ein af fáum sem getur látið sig hverfa algerlega úr sviðsljósinu árum saman en fellur aldrei í gleymsku. 

14) Fljúgum hærra - Julia Margaret Cameron 29.06.2022

Julia Margaret Cameron fæddist áður en ljósmyndatæknin var fundin upp.  Þegar hún byrjar að mynda var hún að skapa list og lét miskunarlausa gagnrýni ljósmyndara ekki á sig fá. Meðan Darwin hrósar manni og Lísa í Undralandi vill sitja fyrir á mynd eru manni allir vegir færir.

13) Fljúgum hærra - Chrissie Hynde (Pretenders) 22.06.2022

Hún elst upp í Akron í Ohio en flytur rétt rúmlega tvítug til Bretlands og hefur búið þar allar götur síðan.  Hún lendir í suðupotti pönksins, giftist næstum því Johnny Rotten og stofnar svo hljómsveitina Pretenders 1978 og verður heimsfræg nánast á einni nóttu þegar lagið Brass in pocket slær í gegn. Og öllum þessum árum seinna er hún enn sami töffarinn, enn að búa til tónlist, mála olíumálverk o...

12) Fljúgum hærra - Anna Þórhallsdóttir 15.06.2022

Þjóðin var full af spenningi  þegar sólmyrkvi sást á Íslandi árið 1954.  Áhugaljósmyndarinn Anna Þórhallsdóttir hafði skilið myndavél sína eftir heima en varð svo upprifin að hún stökk inní næstu ljósmyndavöruverslun til að fá lánaða myndavél og smellti af 8 myndum. Myndirnar þóttu einstakar og Anna lifði í frægðarsól þessara mynda alla ævi.

11) Fljúgum hærra - Macy Gray 08.06.2022

Í þessum þætti fáum við að kynnast konunni sem ætlaði aldrei að verða söngkona því henni fannst hún hljóma  eins og Andrés Önd frekar en Dionne Warwick og hver hafði áhuga á að heyra það? Hún var því komin á þrítugs aldur með mann og börn þegar frægðin ber óvænt að dyrum og hér er hún enn þrátt fyrir ýmis ljón sem urðu á veginum

10) Fljúgum hærra - Diane Arbus 01.06.2022

Hún er ein af stóru nöfnunum í vestrænni ljósmyndasögu og brautryðjandi í faginu. Hún myndaði gjarnan furðulegt fólk sem hún fann í afkimum samfélagsins eins og sirkusfólk, dverga, risa, tvíbura, þríbura, fólk á nektarnýlendum eða úr transveröldinni  svo fátt eitt sé nefnt.  Þetta er engin önnur en hin ameríska Diane Arbus. Hún er heimsþekkt og verk hennar margbirt og margumtöluð og skilgreind frá...

9) Fljúgum hærra - Joan Jett 25.05.2022

Joan Jett var ekki nema 17 ára þegar hún stofnar kvennarokkhljómsveitina The Runaways. Þegar sú hljómsveit leysist upp þá stefnir hún á sólóferil en það reyndist hægara sagt en gert að sannfæra plötuútgáfufyrirtæki um að stelpa í leðurgalla með gíta og magnarann stilltan á 11 væri einhver söluvara. En Joan gafst ekki upp og hér er hún enn með Gibsoninn sinn að spila rokk.

8) Fljúgum hærra - Jette Bang 18.05.2022

Jette Bang ólst upp í umhverfi sæfarenda og heimskautafara og dreymdi um að komast til Grænlands. Þegar hún loksins fór á norðurslóðir var það ekki til að sigra jökla og öðlast frægð heldur til að ljósmynda og kvikmynda hversdagslíf inúita og búa meðal þeirra við hörð lífskjör. Myndir þessarar dönsku konu eru einstakar.

7) Fljúgum hærra - Nina Hagen 11.05.2022

Í þessum þætti segjum við frá tónlistarkonunni, pönkdrottningunni og ólíkindatólinu Ninu Hagen. Hvernig unglingastjarna frá Austur-Berlín stofnar eitt allra heitasta bandð í pönk og nýbylgjusenunni í Evrópu um miðjan 8. áratuginn en verður svo tískuicon, besta vinkona Jean Paul Gaultier og gerir plötu með Giorgio Moroder. 

Listen to the Fljúgum hærra podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.