Lovísa og Linda
Fljúgum hærra
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
Author
Lovísa og Linda
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
56) Fljúgum hærra - Eliza Scidmore. 19.aldar ferðalangur og Japans unnandi. 26.04.2023 44:03
Víðförla 19. aldar konan Eliza Ruhamah Scidmore ber titilinn fyrsti kvenljósmyndari tímaritsins National Geographic. Hún skrifaði sjö ferðabækur og yfir 300 greinar í blöð og tímarit. Hún var mikil aðdáandi Japans og má þakka henni að hin frægu sakura tré voru flutt til höfuðborgar Bandaríkjanna. Svo er jökull í Alaska skírður eftir henni, ekki amarlegt það.
55) Fljúgum hærra - Pink 19.04.2023 1:00:40
Pink átti að verða r&b stjarna en gafst upp á því eftir eina plötu og fór að semja og syngja tónlist eins og hana langaði til að gera. Hún stóð með sjálfri sér og tók sénsinn þegar allir voru að segja henni að hún væri að gera mikil mistök. Hún lætur ekki vaða yfir sig en er líka með húmorinn í lagi og kann þá list að taka sér pásur frá sviðsljósinu og vera ekki upptekin af frægðinni frægðarin...
54) Fljúgum hærra - Dorothea Lange 12.04.2023 1:05:47
Hin bandaríska Dorothea Lange er risanafn í ljósmyndun. Hún var töffari með næmt auga og fór í sögubækurnar fyrir heimsfræga mynd af farandverkakonu með börnin sín, mynd sem varð táknmynd Kreppunnar miklu . Þótt Dorothea hafi haltrað alla ævi eftir að hafa fengið lömunarveiki sem barn, þá stoppaði það hana ekki frá því að eyða stórum hluta ævinnar á vegum úti með myndavélina á lofti.
53) Fljúgum hærra - Carole King 05.04.2023 1:09:50
Þó nafn Carole King hringi ekki strax bjöllum hjá einhverjum þá er hún einn virtasti og farsælasti kvenkyns lagahöfundur 20. aldarinnar í Bandaríkjunum. Auk þess að eiga sjálf eina af mest seldu plötum allra tíma þá hefur hún samið yfir 100 lög sem hafa náð inn á Billboard Hot 100 listann og hafa yfir 1000 tónlistarmenn flutt lögin hennar í gegn um tíðina.
52) Fljúgum hærra - Ljósmyndaherdeildin og FBI njósnarinn 29.03.2023 52:08
Einn af sögufrægum ljósmyndahópum Bandaríkjanna var hin róttæka og kraftmikla Ljósmyndaherdeild – The Photo League í New York. Óvenju marga konur voru í þessum hópi sem börðust gegn félagslegu óréttlæti með myndavélina að vopni. En í hópi þeirra var líka uppljóstrari FBI sem sá kommúnista í hverju horni.
51) Fljúgum hærra - Nina Simone 22.03.2023 1:00:15
Nina Simone ætlaði aldrei að spila jazz eða dægurlög heldur stefndi hún á það frá unga aldri að verða konsertpíanisti. Hún var mjög ósátt með þá uppgjöf sem henni fannst réttindabarátta svartra í Bandaríkjunum hafa endað í og flytur þaðan 1968 og til dauðadags 2003 býr hún annarsstaðar og þá lengst af í Frakklandi. Hún þótti skapmikil og oft erfið í samskiptum en enginn efaðist um hæfileika hennar...
50) Fljúgum hærra - Madame Yevonde. Meistari litljósmyndunar 15.03.2023 49:09
Yevonde var brautryðjandi í ljósmyndatækni og þá sérstaklega á sviði litljósmyndunar sem hún fór að stunda á undan flestum öðrum.
49) Fljúgum hærra - Sinéad O´Connor 08.03.2023 1:12:50
Sinéad O´Connor hefur gengið í gegn um margt á sinni ævi. Á nokkrum vikum fór hún frá því að vera ein skærasta stjarnan á popp himninum og eftirlæti allra yfir í að vera úthrópuð og smánuð fyrir það eitt að rífa eina ljósmynd í beinni útsendingu í sjónvarpi. En eins og hún hefur sjálf sagt þá ætlaði hún aldrei að verða poppstjarna heldur aðgerðasinni að berjast fyrir réttlæti
48) Fljúgum hærra - Faye Schulman. Ljósmyndun, björgun frá helförinni 01.03.2023 1:04:56
Faye Schulman var pólsk gyðingastúlka sem slapp undan klóm Nasista í seinni heimstyrjöldinni vegna ljósmyndakunnáttu sinnar. Hún líkt og fleiri gyðingar, gekk til liðs við sovéska skæruliða. Íklædd pardusloðfeldi og með riffilinn og myndavélina að vopni dvaldi hún tvö ár í skóginum. Ljósmyndir hennar eru einstakar og mikilvæg söguleg heimild.
47) Fljúgum hærra - Debbie Harry (Blondie) 22.02.2023 1:13:22
Debbie Harry varð ein af stærstu stjörnum pönk- og nýbylgjusenunnar í New York á átta áratugnum þegar konur áttu oft enn í erfiðleikum með að vinna sér inn viðurkenningu í tónlistarbransanum á eigin forsendum. Hún leikur í kvikmyndum, gefur út sólóplötur og dregur svo vagninn þegar Blondie snúa aftur með látum eftir margra ára dvala. Og svo var hún vinkona Andy Warhol
46) Fljúgum hærra - Emma Schenson. Ljósmyndarinn og dómkirkjan í Uppsala 15.02.2023 47:31
Hin sænska Emma Schenson var fyrsti ljósmyndarinn til að opna stofu í hinni sögufrægu borg Uppsala. Saga dómkirkjunnar, frægir vísindamenn og jafnvel stórbruni tengjast sögunni um Emmu. Og svo þekkja bæði Linda og Lolla borgina.
45) Fljúgum hærra - Dusty Springfield 08.02.2023 55:30
Dusty Springfield fór frá því að vera eina af stærstu poppstjörnum 7. áratugarins í það að vera öllum gleymd, grafin og umkomulaus í Bandaríkjunum þar sem engin eftirspurn var eftir henni. Gefandi út plötur sem enginn nennti að hlusta á. Þar til að tveir ungir tónlistarmenn sem sem voru miklir aðdáendur hennar draga hana aftur fram í dagsljósið og dusta af henni rykið.
44) Fljúgum hærra - Zanele Muholi 01.02.2023 34:03
Zanele Muholi frá Suður Afríku kallar sig ekki ljósmyndar heldur aktívista. Við kíktum á yfirstandandi sýningu Muholis á Listasafni Íslands sem fjallar bæði um ranglæti og ofbeldi gangvart hinsegin fólki í Afríku en líka um samhug, ást og stolt.
43) Fljúgum hærra - Sia 25.01.2023 1:00:38
Á einhverjum tímapunkti á ferlinum komst Sia að því að hún vildi ekki verða þekkt andlit, bókstaflega. Hún vildi bara bara vera konan bak við tjöldin sem semdi lög fyrir margar af stærstu tónlistarstjörnum dagsins í dag. En þegar hún svo sjálf átti hvern risa smellinn eftir annan þá voru góð ráð dýr og þannig kom hárkollan fræga, sem náði niður fyrir nef til sögunnar.
42) Fljúgum hærra - Lee Miller 18.01.2023 1:08:13
Lee Miller var ljósmyndari sem átti mörg líf. Hún fór frá því að vera módel í New York yfir að mynda átök í seinni heimstyrjöldinni í návígi, nokkuð sem fáir kvenkyns stríðsljósmyndarar gerðu. Ævi hennar var ævintýraleg og verkin hennar mjög eftirminnileg.
41) Fljúgum hærra - Stevie Nicks (Fleetwood Mac) 11.01.2023 1:30:33
Stevie Nicks er búin að eiga einstakan tónlistarferil sem spannar heil 50 ár bæði sem meðlimur Fleetwood Mac, einnar vinsælustu hljómsveitar seinni tíma og svo sem sóló listamaður. Hún hefur samið hvern risa smellinn eftir annan og verið fyrirmynd fjölda tónlistarkvenna í gegn um árin. Sveipuð dulúð og ljóma og átt afskaplega litríka æfi svo ekki sé meira sagt.
40) Fljúgum hærra - Álfastelpurnar Elsie og Frances 04.01.2023 46:17
Frænkurnar Elsie Wright og Frances Griffiths voru bara táningar þegar þær tóku saman fimm ljósmyndir í fallegum gróðurlundi í smá þorpinu Cottingley í West Yorkshire í Englandi. Þær urðu heimsfrægar sem og bærinn þeirra og myndirnar sköpuðu umtal og deilur frá birtingu þeirra árið 1920 langt fram á 20 öldina.
39) Fljúgum hærra - Annie Lennox (Eurythmics) 21.12.2022 1:05:11
Hún kemur úr verkamannafjölskyldu í Skotlandi og verður síðan ein af skærustu poppstjörnum 9. áratugarins auk þess að eiga glæstan sólóferil. Í 34 ár hefur hún unnið ötullega að málefnum tengdum HIV smituðum í Afríku og arinhillan hennar er hlaðin verðlaunagripum og viðurkenningum sem hún hefur hlotið í gegn um tíðina bæði fyrir bæði fyrir tónlistarsköpun og ekki síður fyrir störf sín að mannúðar...
38) Fljúgum hærra - Zofia Rydet 14.12.2022 41:45
Pólski ljósmyndarinn Zofia Rydet varð frægust fyrir þá brjálæðislegu hugmynd sem hún fékk árið 1978; að ljósmynda öll heimili í landinu. Þá var hún 67 ára gömul en setti það alls ekki fyrir sig. Hún myndaði í meira en hundrað þorpum og skildi eftir sig stórkostlegt myndasafn sem vottar um hverfandi heim.
37) Fljúgum hærra - Jóla Jóla! - Jólatónlist 07.12.2022 54:20
Þessi þáttur er með aðeins óhefðbundnu sniði þar sem það eru jú að koma jól. Hér tökum við fyrir nokkur klassísk jólalög, segjum aðeins frá þeim og heyrum útvaldar konur syngja þau. Já hver hefði trúað því að sumir færu að grúska í jólalögum alveg af sjálfsdáðum og án þess að vera búin að sturta í sig kakó og Stroh 80% allan daginn?
36) Fljúgum hærra - Grace Slick (Jefferson Airplane) 30.11.2022 1:16:14
Grace Slick var í miðri hringiðu psychedelic tónlistarsenunnar í San Francisco um miðjan sjöunda áratuginn. Hún spilaði með hljómsveit sinni Jefferson Airplane á Woodstock og á hinu fræga Monterey festivali 1967. Hún verður svo óvænt 80´s poppstjarna komin á fimmtugs aldurinn þannig að tónlistin hennar er spiluð bæði af hippakynslóðinni og MTV kynslóðinni. Richard Nixon, Hells Angels og veitingahú...
35) Fljúgum hærra - Grace Robertson 23.11.2022 51:20
Ljósmyndarinn Grace Robertson tók ljósmyndir á eftirstríðsárunum sem vöktu gleði og vellíðan. Verk hennar voru þó alls ekki grunhyggin og í dag telst hún til frum femínista þar sem viðfangefni hennar var mest veröld kvenna.
34) Fljúgum hærra - Florence Welch (Florence + the Machine) 16.11.2022 52:43
Florence Welch skaust upp á stjörnuhimininn 2009 með hljómsveitinni sinni Florence + the Machine sem hún stofnaði með Isabellu vinkonu sinni í pínulitlu upptökustúdíói í London. Hún hafði bæði sérstaka rödd og klæddi sig allt öðruvísi en tónlistarkonur á hennar aldri gerðu á þeim tíma. Svona eins og sambland af Stevie Nicks og persónu úr renaissance málverki en í grunninn er hún bara bókaormur sem...
33) Fljúgum hærra - Alice Seeley Harris – Mannréttindasinni í ljósmyndaherferð 09.11.2022 54:26
Breska viktoríudaman Alice Seeley Harris hafði engan sérstakan áhuga á að verða ljósmyndari þegar hún gerðist trúboði í Kongó. Ljósmyndir hennar af þjáningu íbúanna urðu þó sögulegar myndir sem spiluðu lykilhlutverk í að hrekja frá völdum nýlenduherrann Leopold II, konung Belgíu. Geri nú aðrir betur!
32) Fljúgum hærra - Marianne Faithfull 02.11.2022 1:21:11
Ef einhver hefur átt viðburðaríka ævi þá er það þessi stórkostlega kona. Hún varð poppstjarna 17 ára gömul alveg óvart, verður kærasta Mick Jagger, missir gjörsamlega fótana í lífinu og deyr næstum því tvisvar. Hún rís þó eins og Fönix upp úr öskustónni og á ríflega miðjum aldri eignast hún aðdáendur og samstarfsfólk í ekki ómerkari tónlistarmönnum en Nick Cave, Warren Ellis, Billy Corgan og Beck...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.