Lovísa og Linda

Fljúgum hærra

Music IS ↓ 131 episodes

Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni.  Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun.  Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum

Author

Lovísa og Linda

Category

Music

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

81) Fljúgum hærra - Katy Perry 15.11.2023

Katy Perry átti frekar óhefðbundið uppeldi þar sem báðir foreldrar hennar voru ofsatrúaðir predikarar. Hún feta þó ekki í fótspor þeirra heldur eltir tónlistardraumana þó það gangi mjög brösuglega til að byrja með og hefðu einhverjir örugglega bara gefist upp og farið heim. Og þolinmæðin borgaði sig því á endanum fær hún bæði konungsríkið og prinsinn sjálfan

80) Fljúgum hærra - Margaret Bourke-White. Stríðsljósmyndari í háloftunum 08.11.2023

Sem barn lærði hún að nöfnin á öllum stjörnunum og átti froska og slöngur sem gæludýr. Þegar hún fullorðnast sást hún gjarnan utan á háhýsum stórborga með myndavélina með sér.   Þetta var hin bandaríska Margaret Bourke-White sem varð stríðsfréttaljósmyndari í seinni heimstyrjöldinni og vann fyrir tímaritin „Fortune“  og „Life“. Hún varð heimsfræg fyrir bæði frábærar myndir og einstakt hugrekki og...

79) Fljúgum hærra - Dolly Parton 01.11.2023

Dolly Parton er goðsögn í lifanda lífi.  Hún braust ung úr sárri fátækt í Tennessee og varð ekki bara ein af ríkustu konum Hollywood á tímabili heldur stórstjarna í heimi tónlistar og gríðarlega afkastamikill lagahöfundur. Og þrátt fyrir að vera orðin rúmlega sjötug þá lætur hún engan bilbug á sér finna og hennar 49. sólóplata er væntanleg næuna í þessum mánuði þar sem fjöldinn allur af heimsþekkt...

78) Fljúgum hærra - Karimeh Abbud og hennar Palestína 25.10.2023

Karimeh Abbud fangaði í ljósmyndum sínum Palestínu fyrir seinni heimstyrjöld og samfélagið sem leystist upp í kjölfar Nakba - hörmunganna miklu.  Hún var fyrsti kvenkyns ljósmyndari Palestínu og mögulega fyrsta palestínska konan til að keyra sinn eigin bíl. Í dag eru myndir hennar mikilvæg söguleg heimild um horfinn tíma.

77) Fljúgum hærra - Kim Gordon (Sonic Youth) 18.10.2023

Kim Gordon ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona.  Hún fór í listaháskóla og stefndi á feril í myndlist eða sviðslistum en örlögin höguðu því þannig að fólk sem hún hittir á námsárunum og stuttu eftir það var margt í einhverju tónlistar- og hljómsveitastússi og áður en hún veit af er hún bæði farin að syngja og spila á bassa í mjög framúrstefnulegu rokkbandi.

76) Fljúgum hærra - Þórdís, Sigríður og garðálfar á Laugarvatni 11.10.2023

Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Marrow unnu saman að því í þrjú sumur að ljósmynda veröld frístundaíbúa í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni.  Lífið þar virðist hverfast um samveru og notalegheit í  sólríku umhverfi með garðálfum og blómum. Þessi paradís er horfin í dag,  því stuttu eftir að verkefninu lauk var öllum hjólhýsaeigindum tilkynnt að byggðin yrði aflögð.  Í Þjóðminjas...

75) Fljúgum hærra - Diana Ross 04.10.2023

Diana Ross er búin að eiga sleitulausan feril frá árinu 1959 til dagsins í dag og er hvergi nærri hætt. Hún var aðal rödd  The Supremes, eins vinsælasta söngtríós allra tíma, hún leikur í kvikmyndum og nær að gefa út gríðarlega vinsæla discoplötu þegar disco tímabilinu var eiginlega lokið. Og hún stendur alveg undir því að vera kölluð díva eins og við heyrum í þættinum.

74) Fljúgum hærra - Toyoko Tokiwa og konurnar í Rauða hverfinu 27.09.2023

Hún var þrettán ár gömul þegar faðir hennar deyr í sprengjuárás Bandaríkjahers og seinna þetta sama ár, 1945 falla kjarnorkusprengjur á Hiroshima og Nagasaki.  Þegar Toyoko Tokiwa verður seinna ljósmyndari beinir hún linsunni að óvininum, bandarískum hermönnum í rauða hverfinu í Yokohama, heimaborg hennar. Frægastu myndirnar sýna nöturlegar aðstæður vændiskvenna í samskiptum við hermenn og  hún sk...

73) Fljúgum hærra - Marie Fredriksson (Roxette) 20.09.2023

Þó Marie Fredriksson sé þekktust sem annar helmingur dúettsins Roxetta þá er hún líka ein af ástsælustu söngkonum Svíþjóðar þar sem hún gaf út 8 sólóplötur sem allar náðu miklum vinsældum þar í landi. Hún var orðin mjög þekkt tónlistarkona í heimalandinu þegar þau Per Gessle stofna Roxette sem fyrir ótrúlega tilviljun slær í gegn í Bandaríkjunum án þess þó plöturnar þeirra, sem á þeim tíma voru tv...

72) Fljúgum hærra - Lynn Goldsmith. Rock´n´roll ljósmyndarinn 13.09.2023

Lynn Goldsmith er töffari frá Detroit borg sem fékk snemma titillinn rock 'n' roll ljósmyndarinn.  Hún hefur myndað allar stjörnur í rokkheiminum frá hippatímanum fram til okkar daga. Grand Funk Railroad hefur strippað fyrir hana, mamma hans Gene Simmons í Kiss hefur rekið út úr sér tunguna í myndavélina hennar og Patti Smith er besta vinkona hennar. Lynn er ótrúlega fjölhæf og sló meira...

71) Fljúgum hærra - Taylor Swift 06.09.2023

Þó Taylor Swift sé ekki nema 33 ára gömul þá er hún fyrir löngu orðin ein allra vinsælasta tónlistarkonan í heiminum í dag og þarf að fara alla leið í Bítlana, Elvis, Michael Jackson, Elton John og aðra slíka tónlistarmenn sem eru búnir að gefa út tónlist áratugum samna til að skáka henni í sölutölum. Hún er á listum hjá Time Magazine og Forbes yfir áhrifamestu konur samtímans og New York magazine...

70) Fljúgum hærra - Eve Arnold; Marilyn Monroe og allir hinir 30.08.2023

Frægustu ljósmyndir Eve Arnold voru óvenjulegar myndir af leikkonunni Marilyn Monroe.  Eve var líka önnur af tveimur til að verða fyrstu kvenkyns ljósmyndarar Magnum og tók eftirminnilegar myndir af Malcom X þrátt fyrir mikið mótlæti við það verkefni. Hún var þekkt fyrir þolinmæð og ósérhlífni og þessi spræka kona hafnaði ekki spennandi ljósmyndaverkefni fyrr en 84 ára gömul.

69) Fljúgum hærra - Skin (Skunk Anansie) 23.08.2023

Skin, söngkona Skunk Anansie  er fædd og uppalin í Brixton hverfinu í Suður-London en í stað þess að fara út í r&b, hip hop eða reggea tónlist eins og mörgum hefði þótt eðlilegast þá dembir hún sér á kaf í kraftmikið gítarrokk.  En hún hefur líka gert allskonar annað eins og að vera plötusnúður, X-Factor dómari og tísku icon.

68) Fljúgum hærra - Stúdíó Luisita og næturdrottningar Argentínu 16.08.2023

Systurnar Luisita og Chela Escarria opnuðu ljósmyndastofu á frægasta breiðstræti Buenos Aires höfuðborgar Argentínu árið 1958.  Næturdrottningar, gamanleikarar, dansarar og tónlistarfólk mætti í myndatöku í stássstofu þeirra systra sem breyttist í stúdíó dag hvern. Myndir þessara samhentu systra hefðu mögulega fallið í gleymsku ef þær hefðu ekki eignast sinn bjargvætt. Nú veit öll Argentína af til...

67) Fljúgum hærra - Aretha Franklin 09.08.2023

Þegar við hugsum um soul tónlist dettur eflaust flestum okkar Aretha Franklin í hug enda hafði hún mjög verðskuldað titilinn The Queen of Soul. Hún átti feril sem spannaði næstum 70 ár og gaf út 39 sólóplötur. Hún fékk 18 sinnum Grammy verðlaun og var fyrsta konan til að vera vígð inn í Rock´n´roll hall of fame. Rolling Stone kallaði hana stórkostlegustu söngkonu sinnar kynslóðar og hún fékk sérst...

66) Fljúgum hærra - Dora Maar, drottning súríalistanna 02.08.2023

Það má sannarlega kalla franska ljósmyndarann og listamanninn Doru Maar drottningu súríalistanna. Ljósmyndir hennar voru eins og úr annarri veröld, hönd skríður úr skel, skrímsli situr á bæn og mannslíkamar taka á sig dýrslega mynd.  Þessi dulúðlega kona var ein örfárra kvenna í innsta hring súríalsita í París á millistríðsárunum.  Stjarna hennar skein skært sem listljósmyndari þegar hún tók þá ör...

65) Fljúgum hærra - Sumarsmellir 28.06.2023

Í þessum lauflétta þætti rennum við í gegn um nokkra sumarsmelli sem eru ómissandi á sumarplaylistann. Hvort sem fólk er að grilla, skella sér í roadtrip, stússast í garðinum eða bara súpa freyðivín á svölunum hjá sér í þeim landshlutum þar sem sést til sólar þá gerir tónlist réttu stemminguna.

64) Fljúgum hærra - Patti Smith 21.06.2023

Patti Smith ætlaði sér aldrei að verða tónlistarkona. Hún var ljóðskáld og hafði fengið gefnar út nokkrar ljóðabækur og ætlaði bara að halda áfram á þeirri braut. En svo þegar Sam Shepard vinur hennar stakk upp á því að hún væri með undirspil við ljóðaupplesturinn þá breyttist það allt. Það eru engar íkjur að segja að hún sé goðsögn í lifanda lífi þrátt fyrir að hafa tekið sér langar pásur til að...

63) Fljúgum hærra - Hou Bo, ljósmyndari Maós 14.06.2023

Hou Bo var munaðarlaus sveitastelpa í Kína sem lærði ljósmyndun af japönskum stríðsföngum og reis til metorða sem einn mikilvægasti ljósmyndari í hirð Mao Zedong leiðtoga Kína.  Ljósmyndir hennar sýndu gríðarlega glansmynd af leiðtoganum meðan þjóðin dó úr hungri. Hún var harður kommúnisti og mikill aðdáandi Maós þrátt fyrir að lenda sjálf í þrælkunarbúðum í Menningarbyltingunni.

62) Fljúgum hærra - Alicia Keys 07.06.2023

Hún elst upp hjá einstæðri móður í hinu alræmda Hells Kitchen hverfi í New York þar sem vændiskonur voru á hverju götuhorni og glæpir og ofbeldi daglegt brauð. Hún eyðir löngum stundum við píanóið þar sem Chopin og Nina Simone eru í miklu uppáhaldi og það skilaði sér í því að hún var komin með plötusamning fyrir tvítugt. Hún kemst líka að því að það borgar sig að þekkja Opruh Winfrey og svo kemur...

61) Ellen von Unwerth - kynþokki og súpemódel 31.05.2023

Gáskafull erótík og geislandi kabarettandrúm er einkennandi fyrir tískuljósmyndir þessarar konu. Ellen von Unwerths er frá Þýskalandi og sló í geng með sexý gallabuxnamyndum af Claudiu Schiffer á níunda áratuginum. Sirkus, karnival, ofurfyrirsætur og poppdívur var veröld Ellenar og henni finnst ekkert skemmtilegra en að lokka fyrirsætur og frægt fólk úr fötunum fyrir framan myndavélina.

60) Fljúgum hærra - Alanis Morissette 24.05.2023

Alanis Morissette fór frá því að vera gleymd unglingastjarna frá Kanada í það að verða frægasta, reiða kona heimsins.  Hún talaði beint til milljóna ungra kvenna á plötunni sinni Jagged little pill sem fundu sjálfar sig í textunum hennar og hún varð súperstjarna aðeins 21 árs gömul.

59) Fljúgum hærra - Valentina Kulagina og sovésk áróðursplaköt 17.05.2023

Bóndakonur með skóflur og reistan hnefa, byltingakonur með riffla eða keyrandi traktor, reykspúandi verksmiðjur, risastórir akrar, múgurinn og leiðtoginn. Áróðursveggspjöldin sem hin rússneska  Valentina Kulagina skapaði voru fullar af slíkum ljósmyndum. Maðurinn hennar Gustav Klutsis var stjarna í þessu fagi og fyrir þessi kommúnísku hjón átti lífið í Sovétríkjunum, hinu nýja ríki jafnræðis að ve...

58) Fljúgum hærra - Eurovision 10.05.2023

Þar sem að Eurovision keppnin er núna í fullum gangi þá þótti okkur tilvalið að skella í einn laufléttan þátt um það stórmerkilega fyrirbæri. Við rennum yfir sögu keppninnar og spilum nokkur vel valin lög sem sum eru töluvert betri en önnur en öll fanga þau anda Eurovision síns tíma

57) Fljúgum hærra - Grace Jones 03.05.2023

Hún fer frá því að alast upp í litlum bæ á Jamaica í að verða tískumódel í París, kynnast Andy Warhol, halda uppi stuðinu með discotónlist í Studio 54 og gefa síðan út reggae skotnar pop plötur og láta taka af sér iconic ljósmyndir. Og svo koma James Bond,  Arnold Schwarzenegger og Pavarotti líka við sögu

Listen to the Fljúgum hærra podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.