Lovísa og Linda
Fljúgum hærra
Gömlu vinkonurnar Lolla og Linda setjast niður og fræða hvor aðra um tónlist og merkilegar konur. Lolla sem er djúpvitur tónlistargúrú segir frá framúrskarandi konum úr tónlistarheiminum og í seríu 3 segir hún frá hinum ýmsu tónlistarstefnum og merkum atburðum í tónlistarsögunni. Safnakerlan Linda dregur hins vegar fram sögur af spennandi konum í ljósmyndun. Þið finnið okkur líka á Facebook og getið hlustað á þættina okkar á Spotify, Apple Podcast og fjölmörgum öðrum hlaðvarpsveitum
Author
Lovísa og Linda
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
6) Fljúgum hærra - Margrét og Lára 04.05.2022 47:03
Þær voru hefðardömur og ljósmyndarar en ólíkar eins og dagur og nótt en báðar settu fingrafar sitt á íslenska bókmenntasögu. Í þessum þætti segir Linda okkur frá frænkunum Margréti Möller Árnason og Láru Ólafsdóttur.
5) Fljúgum hærra - Robyn 27.04.2022 47:19
Robyn er unglingastjarnan sem komst heilu og höldnu frá Amerísku poppmaskínunni og varð frumköðull í elctro tónlist eins og við þekkjum hana í dag.
4) Fljúgum hærra - Annie Leibovitz 20.04.2022 52:33
Í þessum þætti segir Linda okkur frá ljósmyndaranum Annie Leibovitz sem er án efa einn frægasti tísku- og portretljósmyndari samtímans. Hún hefur myndað alla frá Elísabetu Englandsdrottningu, John Lennon og Lady Gaga til Barack Obama og Bill Gates og er enn að 72 ára gömul
3) Fljúgum hærra - Elle King 13.04.2022 37:37
Í þessum þætti ætlum við að fræðast aðeins um söngkonuna Elle King. Stelpuna sem lærði að spila á banjó af því henni fannst það svo cool hljóðfæri, vildi ekki nota eftirnafnið pabba síns sem er heimsþekktur leikari því hún vildi komast áfram á eigin verðleikum en ekki út á frægð pabbans og fann sér eiginmann frá helvíti í hótellobbýi í London. - - - - - - - Playlista og allskonar skemmtilegt íta...
2) Fljúgum hærra - Gerda Taro 06.04.2022 1:07:51
Í þessum þætti ætlar Linda að segja okkur frá ljósmyndaranum Gerdu Taro. Hún var mikill töffari sem myndaði Spænsku borgarastyrjöldina í gríð og erg, átti frægan kærasta og varð næstum því fræg sjálf ef ekki hefði verið fyrir smávægilegt óhapp þar sem skriðdreki kom við sögu.
1) Fljúgum hærra - Linda Perry (4 Non-Blondes) 05.04.2022 1:15:23
Í þessum fyrsta þætti ætlum við að fræðast aðeins um Lindu Perry. Það þekkja eflaust allir lagið What´s up með 4 Non-Blondes, hljómsveitinni hennar sem gaf út eina plötu 1992, átti þennan risa smell og hvarf síðan af sjónarsviðinu. En Linda Perry hefur ekki setið aðgerðarlaus síðan og ætlum við að segja ykkur frá því hvað hún hefur verið að bralla í öll þessi ár þar sem koma við sögu tónlistardív...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.