Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rammstein – Þrútinn iðnaðartilli sem þráir mammasín 17.05.2019 17:53
Rammstein – Rammstein Uppskrift að konsepti: Alið manneskju upp í samfélagi sem dýrkar karlmennsku, hernaðarhyggju og stáliðnað. Bætið við slatta af nasistasekt og uppeldisfræðisblæti. Kryddið með bókmenntasköddun og bóhemískum lífsviðhorfum. Allt fer þetta fram í dauðateygjum þrúgandi kommúnisma og leyndahyggju. Látið manneskjuna æfa sund.  Hvað skyldi koma út úr því? Hlustið. Fílið.
Barn – Barn eilífðar 10.05.2019 52:34
Ragnar Bjarnason – Barn Sviðsmynd: Ísland og allt sem því fylgir sekkur í sæ. Konseptið klárast. Ekki meiri íslensk tunga. Ekki meiri Öræfajökull. Ekki meiri ORA-baunir. Ekki meiri #MyStopover. Bara allt farið. Blóm og kransar. Samfélag þjóðanna leikur á fiðlu og horfir á eftir þessari hugmynd sem Ísland var. En hvaða lag skyldi leikið? Til […]
Love Don’t Cost A Thing – Þegar allt glóði 03.05.2019 56:34
Jennifer Lopez – Love Don’t Cost a Thing Popptíví tíminn. Latin sprengjan. Bronshúðað fólk, dansandi á ströndinni. Glingur og drasl á hverjum fingri, eyrnalokkar, naflalokkar, allt í gangi. Og drottningin, sem var reyndar stærri en þetta allt. Jennifer. Úr hverfinu, bronsuð úr Bronxinu. Hápunkturinn var í kringum 2001. Þegar hún stytti nafn sitt í J.Lo og […]
Summer In The City – Bartar, hiti 26.04.2019 46:26
The Lovin’ Spoonful – Summer in the City Hvar? New York borg, New York ríki, Bandaríkin. Hvenær? 4. júlí 1966. Hvað? Sprengja af himnum. Er hægt að ímynda sér heitari kjarnaorku en sjóðheitan júlídag á miðri Manhattan í miðri sexunni? Heimsveldið með allt í botni. Heraflar á hreyfingu í Asíu. Bílar að spýtast út úr […]
American Girl – Gallaefni nuddast saman, neistar fljúga 19.04.2019 1:09:08
Tom Petty & The Heartbreakers – American Girl Innkoma Thomas Earl Petty inn í ameríska músíksenu er jafn einföld og hún er ótrúleg. Ef hjartað er á réttum stað þarf þetta ekki að vera flókið. Bara klæða sig í gallajakka, strappa á sig Rickenbacker og tengja sig inn í strauminn. Tom Petty er stóri galdurinn […]
Final Countdown – Með sjóðheitan kjarnorkuúrgang í klofinu 12.04.2019 55:38
Europe – The Final CountdownÞað var lokaniðurtalning í gamla Nýló salnum þegar hármetal-hesthúsið Europe var fílað í allri sinni dýrð, frammi fyrir fílahjörðinni. Tjúúúúú. The Final Countdown er það sem við viljum öll. Spólgröð kaldastríðs negla með hestamannaívafi, sænskt metal-salat með öllu helstu trikkunum: lúðra-synthanum, ofurhraða gítarsólóinu og óperusöngstílnum. Kannski besta iðnaða...
Fix You – Alheimsfixið 05.04.2019 58:24
Coldplay – Fix YouRétt eins og stýrikerfið á tölvunni þinni er með „settings” eða „preferences”, þá hefur hinn hlutlægi heimur einnig stillingar. Og í dag er hin vestræna veröld stillt inn á afstæðishyggju, trúleysi og dýrkun á einstaklingnum. Í því felst að ekkert er réttara en annað eða fegurra en annað. Þetta er póst-módern stilling. […]
Unchained Melody – Ballad Maximus 29.03.2019 46:29
Righteous Brothers – Unchained MelodyHvað er hægt að segja? Hér er um að ræða stærstu ballöðu hins vestræna heims. Lag sem hættir ekki að rísa. Spanið er gríðarlegt. Hér er stiginn rússneskur ballet í bland við amerískan babtista-skjálfta. Allt er undir. Allt vinnst. Í Unchained Melody leysist allur mannsandinn úr læðingi. Unchained Melody er gjöf. […]
Marquee Moon – Glorhungur í myrkur og norp 22.03.2019 53:48
Television – Marquee Moon Þá er það East-Village Fokkjú baugasnilld í boði ameríska frumpönksins. Undir nálinni er Television. Önnur eins leðurjakka tyggjó slumma hefur aldrei verið tekin upp eins og fyrsta platan með þessu póetíska gítarglamrandi braki.  Television er grímulaus ásókn í fegurðarskaðræði. Til að fegurð ljóssins sjáist þarf einnig að fíla skuggana. Television teygir [R...
Númeró 200 15.03.2019 46:17
Fílun í lok þáttar: The Zombies – This Will Be Our Year Í tilefni af 200. þætti Fílalags fer Sandra Barilli með okkur í ferðalag um lendur fílanna. Viðkomustaðir eru ýmis skemmtileg atvik úr sögu þáttanna þar sem dagsetningum er haldið skilmerkilega til haga. Ringó fer á klósettið, Paul Simon stendur ráðvilltur frammi fyrir stafrænni […]
Forever Young – Dramatík. Fegurð. Kviðristun. 08.03.2019 1:19:59
Youth Group – Forever Young Alphaville – Forever Young Það eru tvær útgáfur undir nálinni hjá Fílalag í dag en aðeins eitt lag. Og þvílíkt lag. Hér er ekkert lítið í húfi. Heimurinn, fegurðin, æskan. Forever Young er rýtingur í kvið dauðlegra. Hversu oft hefur einhver horfst í augu við staðhæfinguna: það er erfitt að eldast án […]
Modern Love – Að gönna Síðuna 01.03.2019 38:29
Hann mætti aftur, sólbrúnn, í stórum jakka og gult hár. Hann tætti í sig áttuna. Við erum að tala um Hnífa-Davíð í sinni tíundu endurholdgun. Platan hét Let’s Dance og hittararnir komu í röðum. Modern Love líklega sá mest gírandi. Það er bannað að spila Modern Love með Bowie nálægt kirkjugörðum. Alls ekki mæta með […]
Freak Like Me – Hlaðið virki 22.02.2019 58:41
Sugababes – Freak Like MeÞað er komið að því að kafa ofan í popptíví-árin. Þegar popptónlist innihélt ekki siðferðisleg skilaboð. Sugababes komu frá London og slógu í gegn með sinni fyrstu plötu ári 2000. Tveimur árum síðar hélt sigurgangan áfram með lögum eins og Round Round og svo laginu sem fílað er í dag, Freak […]
Year of the Cat – Ofið teppi úr sjöunni 15.02.2019 1:02:35
Al Stewart – Year of the Cat Þá er komið að einu hnausþykku. Hér er um að ræða twix rjómasúkkulaði þar sem karamellan mallar við kjörhitastig. Breskt þjóðlagakonfekt með óskiljanlegum en þýðum texta. Hér er allt gert rétt. Þetta er lag til að príla í. Að þessu sinni er fílunin hrein. Það er hvorki hægt […]
Blue Velvet – Ég er einn og það er vont 08.02.2019 1:10:13
Bobby Vinton – Blue Velvet Bobby Vinton, pólsk-ameriski prinsinn. Myrkrið, mýktin, rafmögnun flauelsins. Sveppaský í bakgrunni. Ofbeldi í lofti. Einu sinni var. Mannslíkaminn. Húsasund í Pittsburgh. Lýsandi glyrnur í myrkrinu. Spítölun. Líkaminn er klastur, vöðva sina og eldglæringa. Bandaríkin eru ljóðrænni en öll Vestur-Evrópa til samans. Pennsylvanía ein og sér skákar allri Skandinavíu. D...
Chase the Devil – Skrattinn og Sogæðakerfið 01.02.2019 49:51
Max Romeo – Chase the Devil Hvað gerir maður gegn djöflinum? Ef hann hittir hann einn á túni til dæmis? Hvað gerir hann? Segir hæ? Berst við hann? Eða setur hann á sig járnbrynju og eltir hann. Eltir hann lengi, lengi. Lagið “Chase the Devil” eða “Eltu Skrattann” eins og það útleggst á íslensku er […]
Common People – Nikkuspil neðan þilja (live á Kex Hostel) 26.01.2019 1:06:55
Eftir næstum fimmtán ár af ströggli sló hljómsveitin Pulp í gegn. Þau komu frá Sheffield og höfðu norpað í artí nýbylgju rokk baslinu svo lengi að fitugir hártoppar þeirra voru komnir með sjálfstæðar kennitölur. En svo gerðist það. Pulp sló í gegn. Brit poppið kom til bjargar. Fyrst var það lagið Babies árið 1992. Enn […]
Garden Party – Partíið endalausa 18.01.2019 55:29
Mezzoforte – Garden Party Það eru engin orð framkölluð í laginu sem er fílað í dag. Í því heyrist aðeins söngur saxafóns og tóna. Það er enginn skrítinn framburður sem upplýsir um uppruna, stétt eða stöðu flytjandans. Hér er leikinn hreinn gleðidjass, tónlistin sem leikin er í lyftunni upp í sjöunda himin. Að þessi músík […]
So Alone – Krummi krunkar í tyggjóbréf og andar ferskleika 11.01.2019 57:31
Bang Gang – So Alone Hér er farið yfir Bang Gang. Og hér er að mörgu að hyggja. Aldrei gleyma Hrafna-Flóka. Aldrei gleyma undirgöngunum undir Miklubraut, svarta svaninum, fituga syntha-hárinu, tíkallasímunum. Íslenska kúl. Aldrei gleyma hvaðan þú komst. Íslenska kúl. Þegar þú ert alveg við það að týna þér í hashtag mystopover mulningi. Aldrei gleyma skeljasandsklæddum […]
Call On Me – Graður Svíi penslar 04.01.2019 26:31
Í fílun dagsins er farið í skemmtilegt ferðalag um vegi poppsins. Eric Prydz heitir listamaðurinn sem er til umfjöllunar. Ef maður myndagúglar Prydz, sem er sænskur plötusnúður með sterkan rave-bakgrunn, fær maður upp mynd af hálf-miðaldra manni með Audda Blö húfu og skegghýjung. Og árið 2004 var árið hans. Þá gaf hann út lagið sitt, […]
Turn! Turn! Turn! – Breyting, snúningur, beygja, umrót 28.12.2018 51:47
The Byrds – Turn! Turn! Turn! Hvað eiga ofbeldisfullir konungar Ísraels til forna sameiginlegt með sólbrúnum 68 kynslóðar kaliforníu-hippum? Allt. Hér mæta þeir inn í taugakerfi ykkar. Fogglarnir. Moppuhártoppslegnir Los Angeles gítar-prestarnir. Tambúrínu-lemjandi hass-hvolparnir. Með tvö þúsund og fimm hundruð ára boðskap. Þú hefur fengið fimmtíu og þrjú ár til að búa þig undir boðskapinn...
Fairytale of New York – Þegar allt er meyrt 21.12.2018 56:09
The Pogues – Fairytale of New York Löngu áður en Jésú kristur ákvað að heiðra jarðarbúa með nærveru sinni var fólk byrjað að dýrka vetrar- og sumarsólstöður. Það var tíminn þegar dulveröldin sameinaðist þeirri raunverulegu, þegar álfar og vættir fóru á kreik, ríkir urðu fátækir og fátækir ríkir. Vetrarsólstöður, jólin, eru einnig tími þar sem […]
Laisse Tomber Les Filles – Láttu stelpurnar í friði 14.12.2018 1:01:23
France Gall – Laisse Tomber Les Filles Mið-sexu stælarnir. Tyggjóið. Franska yfirlætið. Gainsbourg-töfrarnir. Stelpu yé-yé. Þetta er gírandi. Fíkn. Daníelsbók biblíunnar. Úthverfi í London. Vitiði ekkert hvað er á seyði? Hlustið á þáttinn. Hlustið á þáttinn kisur. Knémenn. France Gall söng þetta. Gainsbourg skrifaði þetta. Um slíkt himnastöff þarf að fara fögrum orðum. Aðeins hógvær orð...
You’ll Never Walk Alone – Gangráður heimsbyggðar 07.12.2018
Músík er sameinandi afl sem spyr hvorki um stétt né stöðu. Þetta eru væmin orð, en þó alveg sönn. Jafnvel hörðustu rokkarar koma heim af djamminu og sjá endursýningu á Mamma Mia á bíórásinni og skæla ofan í leðurjakka sína. Lagið sem fílað er í dag er upphaflega úr söngleik – mjög væmnum Broadway-söngleik – […]
Love Will Tear Us Apart – Fenið 30.11.2018 1:00:41
Ef til væri playlisti sem héti: “Motivational hits fyrir fólk sem fílar ekki Motivational hits” þá er alveg öruggt hvaða lag væri þar efst á blaði. Love Will Tear Us Apart. Lag sem hefur ært ófáan Englendinginn í gegnum tíðina, kramið hjörtu og látið varir herpast. Samt er lagið enginn gleðisprengja. Það fjallar um þjáninguna. […]
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.