Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Oh What A Night (December ’63) – Kransæðarfílingur 15.11.2019 50:08
Frankie Valli and the Four Seasons – December, 1963 (Oh What a Night) Árið 1975 var þannig komið fyrir hljómsveitinni The Four Seasons og söngvara hennar, Frankie Valli, að það var ekkert eftir nema fílingurinn. Fötin voru úr pólýester, tennurnar gular og áratuga sukk-líferni var farið að taka sinn toll. En akkúrat þá, þegar svitalyktin […]
I Only Have Eyes For You – Fegurð að handan 08.11.2019 47:40
The Flamingos – I Only Have Eyes For You Mjúkur koss úr hamborgaralúgu. Tyggjó-plata á rauðri tungu. Mínígolf í myrkrinu. Elskandi, dekkandi faðmur svínaslátrara heims. Gljáfægð stræti fyllt rykfrakkabófum. Óspillt engi. Djöflar í fylgsnum. Geðrof. Nálgunarbann. Einbeittur ástarvilji. Fuglar syngja. Kalkúnn eltir gulan pallbíl og drepur lögfræðinginn á kamrinum. Í milljónir ára, tugmilljónir...
I Will Always Love You – Gullstöng 01.11.2019 1:03:12
I Will Always Love You – Dolly Parton & Whitney Houston Hringið í Immanuel Kant. Já. Bara niður í gröfina í Kalíníngrad. Og andið í tólið. Það er fagurfræðileg fullkomnun undir fílunarnálinni í dag. I Will Always Love You. Stór orð. Stór framkvæmd. Hér er jafna fyrir ykkur. Virði hverrar sekúndu í I Will Always […]
Alone Again Naturally – Að finna botninn 25.10.2019 51:10
Alone Again Naturally – Gilbert ‘O Sullivan Strappið á ykkur væmna leðurtösku. Ræsið Volkswagen bjölluna á köldum vetrarmorgni. Það er sjöa. Öllum er kalt. Það lekur blóð úr öllum hjörtum. Það er kominn tími á væmna írska singer-songwriter neglu. Og væmin er hún kannski, en skotheld er hún einnig. Við erum að tala um milljón […]
A Town Called Malice – Að hrista úr sér sjöuna 18.10.2019 48:09
The Jam – A Town Called Malice Nú er moddið tekið fyrir í allri sinni dýrð. Sultan er fíluð. Paul Weller í brakandi ullarjakkafötum að negla út melódíska þjóðsöngva á Rickenbackerinn. Weller fór fyrir þriðju kynslóð moddara. Hann var barn sjöunnar en átti líka stóran þátt í að hrista þyngslin af þjóðinni. Weller, maður alþýðunnar, […]
Because The Night – Lát huggast barn 11.10.2019 58:33
Patti Smith – Because the Night Rokk. Ljóð. Sköddun. Dýpt. Eftirpartí á Njálsgötu 1980. Óþægilegar buxur. Þurrt hár. Öskubakkar. Sjöl. Kökkur í hálsum. Leðurjakki. Sameiginleg vonbrigði. Mótlæti. Grimmd. Losti. Heitt bað. Of heitt bað. Dofi. Hægur dans. Svefn. Dauði.  Patti Smith. Dóttir ryðbeltis og roða morguns. Drottning dænersköddunar, frönsku akademíunnar, geislavirkra holræsanna o...
The Revolution Will Not Be Televised – Er hægt að sigra fasisma og hafa gaman á meðan? 04.10.2019 53:50
Gill Scott Heron – The Revolution Will Not Be Televised Ameríska ljóðskáldið Gill Scott Heron sagði það best árið 1970. Þú horfir ekki á byltinguna í sjónvarpinu. Það er ekki nóg að flatmaga í sófanum og borða pizzu og styðja aktívismann án þess að leggja neitt að veði sjálfur. Það voru aðrir tímar þá. Fólk […]
Thirteen – Að vera þrettán 27.09.2019 56:53
Big Star – Thirteen Hvernig er að vera þrettán? Það er einstaklingsbundið. Eitt er víst og það er að minningin af því að vera þrettán er ekki sú sama og að vera þrettán. Minningin er í öllum tilfellum angurvær, jafnvel sársaukafull, en umfram allt alveg ósvikin. Það er soft-trigger-warning á þessum þætti Fílalags, eða að […]
Atlavík ’84 – Koddafar í andliti. Matarkex í maga. 20.09.2019 1:00:21
Rúnk – Atlavík ’84 Hvað gerist ef maður hleypir rafstraumi ofan í blauta rauðrófustöppu? Yfirleitt gerist reyndar ekki neitt. En stundum gerist snilld. Hljómsveitin Rúnk er súpergrúbba íslenska indísins. Hér er um að ræða Ólympus fjall Fókus 2000 menningarinnar. Meðlimir bandsins voru þau Björn Kristjánsson (Borko), Svavar Pétur Eysteinsson (Prins Póló), Hildur Guðnadóttir (Chernobyl,...
The Boy With The Arab Strap – Lifrarpylsa sem dansar búgí vúgí (Live á Kex Hostel) 13.09.2019 1:00:58
Belle & Sebastian – The Boy With the Arab Strap Íslendingar athugið. Það er til enn kaldhæðnara og grárra samfélag en það íslenska. Við erum ekki heimsmeistarar í norpi, niðurrifi og bugun. Það eru að minnsta kosti aðrir keppendur á þeim ólympíuleikum og sumir af bestu leikmönnunum koma frá Skotlandi. Þess vegna er Skotland æðislegt. […]
Roadrunner – Stemmdur hundur 06.09.2019 54:14
The Modern Lovers – Roadrunner Hvað er betra en hundur sem gægist út um bílrúðu með tunguna úti? Stemningslega séð? Ekkert. Jonathan Richman og hljómsveit hans, Aðdáendur nútímans, voru samt nokkuð nærri því í lagi sínu Roadrunner. Þeir eru gjörsamlega hunda-stemmdir í þessari prótó-pönk ljóðrænu skyldufílunar neglu frá 1973. Lagið, sem fjallar um úthverfamenningu í Bandaríkjunum, […]
End Of The World – Dramatískt, loðið, hættulegt 30.08.2019 42:18
Aphrodite’s Child – End of the World Í fyrsta skipti í Fílalag er það grískt. Og grískt skal það vera með allri þeirri hnausþykku drjúpandi olíu sem því fylgir. Aphrodite’s Child er hugsanlega frægasta rokksveit sem komið hefur frá Grikklandi og halelúja, ó áfram kristmenn krossmenn, hvað hún gaf hann góðann. Það nær í raun […]
Some Velvet Morning – Poseidon og leðurstígvélakvendið 23.08.2019 51:29
Nú er það áferð. Lagið sem fílað er í dag hefur sömu áferð og ef feldur af jarðíkorna væri tekinn, honum dýft ofan í stamp fullan af hunangi sem staðsettur væri í gufubaði og hann svo strengdur upp milli tveggja kaktusa til þerris. Það er djúpt í þessu, það er ljúft í þessu. En með […]
West End Girls – Brakandi sigur 16.08.2019 1:01:24
Pet Shop Boys – West End GirlsÞað brakar í poppkorni. Það heyrist til dæmis afar skýrt í bíósölum rétt áður en kvikmyndin hefst. Fátt einkennir popp meira en brökun. Það er því mjög viðeigandi að hitt fyrirbærið sem einnig gengur undir nafninu popp, popptónlist, er einnig andlag brökunar. Segja má að því meira sem braki í […]
Get it on – Að gefa hann góðann 09.08.2019 1:08:09
T.Rex – Get it On Útvíðar buxur. Fílingur. Allt er stemning. Að dansa við jólatréð er stemning. Að láta renna í bað er stemning. Allir eru sætir, allir eru skítugir. Vínylplatan hefur djúpar rákir.  Jarðskjálfti má ríða yfir. Nálin mun ekki haggast úr sínu grúvi. Þetta verður tekið heim. Enginn er svangur. Allir eru nærðir […]
Tætum og tryllum – Stemning allra landsmanna 02.08.2019 1:05:26
Stuðmenn – Tætum og tryllum Leggjum á borð. Það er 1975. Það er þjóðvegur. Það er ökutæki. Það er fólk um borð. Það er stemning. Hið mikla íslenska vegalag er fílað í dag. Og skaparar þess, sjálfir Stuðmenn, með Björgvin Halldórsson í forsöng. Herra Guð. Þetta er of mikið. Með þetta lag í akstri, sól […]
Every Breath You Take – Dúnmjúkt eltihrella síris 26.07.2019 1:09:18
The Police – Every Breath You Take Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Wikipedia er hér um að ræða mest spilaða lag allra tíma. Takk fyrir. Kannski ekki útilokað enda líður ekki sá dagur á léttbylgjum hins vestræna heims að þessu lagi er ekki fleytt. En í hverju felst galdurinn? Er það möfflaður gítarleikurinn eða kröftugt mjóbak Stings? […]
David – Stinnur kattaþófi 12.07.2019 56:51
GusGus – DavidBagettulitað hold. Frönsk retrófútúrísk hraðlest. Þunnur maður með þýska nýbylgju á VHS undir hendinni. Klapparstígurinn í íslenskum september úða. Steppur Rússlands. Kampavín. Sunnudagsskóli. Lamadýr. Strandsalt hár. Drukkið úr kaleik. Tjaldbúðir. Dulur. Slæður. Flautur. Skálabumbur. Syndir. Fjármálastjóri Airbus sýpur brimsalta ostru og askar sígauna ofan í tvíhnepptan ullar...
Virtual Insanity – Að dansa sig frá vandræðum 05.07.2019 1:03:26
Jamiroquai – Virtual Insanity Varúð, varúð! Framundan er fílun á flíspeysuslagara. Inka gullið er fundið. Fönk-fnykinn leggur yfir allan bæinn. Peningalykt. Það er Jay Kay. Það er frumbyggja-djamm. Það er íslenskt panilklætt útilegudjamm. Takið skrykkdans í svefnpokum ykkar og luftgítarið ykkur í drasl með flugnaspöðum. Nú skal fílað. Nú skal papparazzi lemjandi sportbíla götustrákurinn kr...
Anyone Who Had A Heart – Dimmblátt stræti 20. aldar 28.06.2019 44:42
Úr gullkistu FílalagsAnyone Who Had a Heart – Dusty Springfield New York. Djass. Dýpt. Tuttugasta öldin. Gulir belgvíðir leigubílar fljóta um strætin. Farþegar sökkva í plussið. Slaki í öxlum. Nagandi ótti í brjóstum. Flygill á fimmtugustu hæð. Aska í bakka. Teppi á gólfum. Teppi á veggjum. Teppi á innanverðum heilahvelum. Teppalagðar taugar, teppalagðar kransæðar. Allt er […]
That’s Amore – Hreindýrahorn á húddinu 21.06.2019 56:39
Dean Martin – That’s Amore Hann er mættur. Húðin glansar eins og Miðjarðarhafið á sumareftirmiðdegi, tennurnar skína eins og ítölsku alparnir. Hann er fullur, hann er stemmdur, hann er Dino Paul Crocetti, öðru nafni Dean Martin. Það er allt stórt við Dean Martin. Stór augu, stórt nef, stórt enni, stórt hár, stór munnur, stór haka, […]
Stop! In The Name Of Love – Stopp! Stöðvaðu! 14.06.2019 1:08:31
The Supremes – Stop! In The Name of Love Hættu öllu sem þú ert að gera. Hættu að hugsa það sem þú varst að hugsa. Nú er komið að stórvirkum vinnuvélum. Upp með hendur, niður með brækur, hættu að svindla ef þú vilt ekki láta malbikunarvaltarann breyta þér í pönnuköku. Beint frá Hitsville U.S.A. Beint […]
Glugginn – Frumdagar kúlsins 07.06.2019 38:06
Flowers – Glugginn Gestófíll: Teitur Magnússon Fílalag grefur í gullkistu sína að þessu sinni og töfrar fram eina af sínum fyrstu fílunum. Um er að ræða fílun á Glugganum með Flowers. Lagið er samið af Rúnari Gunnarssyni forsprakka Dáta og einum besta söngvara Íslandssögunnar og Þorsteini Eggertssyni frumrokkara og hirðskáldi sexu og sjöu. Alíslenskt lag, […]
Race For The Prize – Kalsíumhlaðin sprengja litbrigða og hugmynda 31.05.2019 54:28
The Flaming Lips – Race for the Prize Ef atómsprengja með glimmeri springur í eyðimörk og enginn heyrir í henni eða sér hana. Sprakk hún þá? Önnur spurning. Eins og flestir vita er hægt að kjúfa hljóðmúrinn, þ.e. ferðast hraðar en hljóðið. Þetta geta hraðskreiðar orrustuþotur til dæmis gert og við það heyrast gríðarlegar himnadrunur. […]
Rio – 35 millimetra bresk heimsveldisgredda 24.05.2019 1:21:55
Duran Duran – Rio Gestófíll: Gunnar “Taylor” Hansson Núna hellum við okkur út í þetta. Takið fram mittissíðu smókingjakkana með uppbrettu ermarnar, blásið hárið, hyljið varir ykkar með þykkum háfjalla-varasalva. Auðvitað er margoft búið að rifja þetta upp og hlæja að þessu. En Fílalag kafar dýpra. Þetta er ekkert hláturverkefni heldur alvöru greining. Duran Duran […]
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.