Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
One Headlight – Glætan og myrkrið 12.06.2020 1:02:42
The Wallflowers – One Headlight Ég veit hvað þú gerðir síðasta sumar. Þú keyrðir yfir brúna hjá sýslumörkunum á einni lukt og bjúikkinn hvarf inn í myrkrið. Það komast ekki allir á Kirkjugarðsballið í haust sem ætluðu þangað í vor. Maísakurinn. Bregðuruslið. Sætir unglingar leiknir af þrítugum alkóhólistum. Hörð ljós níunnar. Ein lukt. Beint í […]
Wild World – Genakokteill allrar eilífðar 05.06.2020 50:17
Cat Stevens – Wild World Í hvítri mussunni stígur hann á Ibiza-sprekið og klórar sér snöggt kafloðnum maganum. Steven Demetre Georgiou, einnig þekktur sem Cat Stevens, einnig þekktur sem Ysuf Islam, var einn heitasti lagahöfundur og söngvari sjöunnar. Allt sem hann gerði á árunum upp úr 1970 breyttist í gull, og það sem meira, það […]
Mellow Yellow – Gamli gulur 29.05.2020 59:05
Donovan – Yellow Mellow Pottlok á höfði. Graður Skoti horfir til Austursins og sigrar Vestrið. Frasabók sexunnar klár í vasa. Allir slakir, gulir og gíraðir. Stælarnir í hámarki. Aðdróttanir, bananar, víðar skyrtur. Skyldufílun á gamla gula.
Dreams – Sútað leður 22.05.2020 1:59:28
Fleetwood Mac – Dreams Loðfíll tekinn fyrir. STOP. DD Unit kölluð inn. STOP. Macið sútað. STOP. Leðurvesti, tögl. STOP. Hér er um að ræða risafílun á öllum skala. Stórkostlegur gestófíll, stórkostlegt lag. Hnífapörin munduð. Loðfíllinn skorinn.  Mac & Cheese a Chili’s í úthverfi Fort Lauderdale. Fleetwood Mac á grillið. Anytime, 24/7/365.
Heart of Glass – Óbrjótandi, óþrjótandi kúl 15.05.2020 1:33:04
Blondie – Heart of Glass New York. Rottur. Pizzukassar. Ljósmyndarar. Leðurjakkar.. Brunastigar. Rafgítarar. Trommuheilar. Þröngir kjólar. Strigaskór. Kalkúnasamlokur. Platínugyllt hár. Gulir leigubílar. Stressaðir endurskoðendur. Lakkrísbindi. Diskótjútt. Ökklinn á Sidda frænda. Pillur. Blondie var og er, óþrjótandi kúl, með óbrjótandi glerhjarta.
For Whom The Bell Tolls – Feigð, húð, hryggð, hefnd, reiði, örkuml, angist, bólur, reiði, sekt, keyrsla 08.05.2020 1:24:33
Metallica – For Whom the Bell Tolls Kalifornía 1981. Veröldin heilsar nýrri tónlistarstefnu. Metallinn hefur fengið að súrrast í áratug og nú er komið að kalsíum og næringaefnabættri uppfærslu. Keyrslu-málmurinn er fundinn upp. Thrash-metallinn. Fremstir í flokki eru nokkrir unglingar í gallajökkum með slæma húð. Þeir eiga eftir að verða eitt stærsta skrímsli tónlistarsögunnar. Hvort [̷...
My Hero – Lappadagasnilld 01.05.2020 44:42
Foo Fighters – My Hero Handboltarokkið er tekið föstum tökum í þætti dagsins. Um er að ræða slökkviliðsmannastomperinn My Hero með Foo Figthers, úr miðju hávaðastríðinu 1998. Nirvana lagði skyndilega upp laupana vorið 1994 við fráfall Kurt Cobains og eftir stóðu tveir hálfþrítugir atvinnulausir rokkarar. Krist Novoselic er í dag að mestu þekktur sem gaurinn sem […]
Sweet Caroline – Harka demantsins, ljúfleiki lífsins 24.04.2020 1:01:19
Neil Diamond – Sweet Caroline Þá er komið að augabrúnunum frá Brooklyn. Neil Diamond. Axlafílarinn mikli. Strit og uppskera. Hvolpaást í sumarbúðum. Vor, sumar, útsprungin blóm í vasa í Viceroy mettuðu baksviðsherbergi. Barnalæknabringan. Skyrturnar, skylmingarnar, Talmúd-ritningin. Haltu kjafti brjóstsykur. Svartur gítar, svart hár, svört aska á botni kamínu í bjálkakofa. Stjörnur á hi...
Hausverkun – Drullumall sem varð að múr 17.04.2020 1:17:23
Botnleðja – Hausverkun Gestófíll: Ari Eldjárn Það er komið að því. Hnausþykk fílun á bestu rokkhljómsveit síðari tíma á Íslandi. Ari Eldjárn var kallaður út því hér þurfti að draga búrhveli að landi. Botnleðja var rokktríó sem hafði allt. Ungæðiskraft, fyndna texta og svo voru þeir líka mjög kúl. Heiðar, Raggi og Halli voru með þetta. […]
The Rose – Sú sem sprakk út 10.04.2020 59:14
Bette Midler – The Rose „Stóra systir mín var vön að sitja á gólfinu í herberginu sínu. Þetta var 1979 og nánast daglega setti hún 45 snúninga plötuna með Rósinni undir fóninn á plötuspilaranum frá Sears. Hún lést í fyrra, var 53 ára gömul. Maðurinn hennar og ég vorum að fara í gegnum dótið hennar […]
Organ Donor – Kvíðadrepandi félagsmiðstöðvastomper 03.04.2020 57:38
DJ Shadow – Organ Donor Lygnið aftur augum. Hann er kominn að kveða burt kvíðann. Sjálfur skuggaprinsinn. DJ Shadow, í linum Dickies buxum og með hveitilitað hörund býður hann ykkur á scratch-námskeið. Það er komið að því að fíla. Það fíla allir Organ Donor, jafnt dýr sem menn. Fólk sem hefur aldrei heyrt það fílar það […]
Þeir bestu – Ég mun fela öll mín tár 27.03.2020 1:02:35
Hljómar – Ég mun fela öll mín tár Undir fílunarnálunni eru Hljómar frá Keflavík. Besta band Íslands, fyrr og síðar.  Þeir voru vinsælastir, frjóastir og metnaðarfyllstir allra banda á Íslandi í svo langan tíma. Óháð öllu meiki og heimsyfirráðum, þá hefur ekkert band gefið hann jafn grimmann. Frá falsettum Berta Jens til lagasmíða Gunna Þórðar, […]
Alheimssturtan – Óðurinn til gleðinnar: Gestófíll Jóhann Alfreð 20.03.2020 1:30:31
Ludwig van Beethoven – Óðurinn til gleðinnar Gestófíll: Jóhann Alfreð Kristinsson Það sem lagt hefur verið á álfuna. Fyrst voru það kóngarnir, púðraðir, grimmir og graðir. Blóðið bunaði. Svo voru það byltingarsinnarnir, grimmari, graðari, hraðari. Blóðið spýttist. Svo var það Napóleon, púðraður, graður og agaður og blóðið fossaðist. Og með þessu fylgdist Schiller og síðar Lúðvík gamli [̷...
I’m Sleeping My Day Away – Einbeittur brotavilji 13.03.2020 51:32
D.A.D. – I’m Sleeping My Day Away Sporðdreki hríslast eftir maga á konu með mjótt mitti. Þurrt eyðimerkurlandslag. Smokkar. Rauður Winston á náttborði. Hríslandi kögur á ljótum leðurjakka. Danir í húsbát súpa á náttúruvíni. Fólk á Akranesi skaddar sig. Leðurblökur undir þakskyggni í Perth í Ástralíu. Í myrkrinu eru glyrnur. Mikki Mús liggur í valnum. Skorinn á […]
Dreams – Málaðu veggina með trönuberjasultu 06.03.2020 55:27
Cranberries – Dreams Ungt fólk í yfirgefnum vöruhúsum. Dýna á gólfi. Bjór. Fússball borð. Kona í hippakjól keyrir belgvíðan gulan leigubíl yfir hvít, spíssuð úthverfagrindverk. Hlátur. Þau eru mætt og þau mála og mála. Mála og borða pizzur. Draumar. Rauð sósa út á kinn. Trönuberjasulta lengst út á kinn. Mála barnaherbergi. Stilla upp rimlarúmum, óróum. […]
Sunday Mornin’ Comin’ Down – Loðinn óður til þynnku 28.02.2020 1:08:25
Kris Kristofferson – Sunday Morning Coming Down Aldrei í veraldarsögunni hefur verið jafn viðeigandi að vera þunnur eftir áfengisdrykkju en í Nashville 1970. Famboðið af steiktum kjúkling til að borða og teppalögðum stigum til að hrynja niður var einfaldlega svo mikið. Og þar var Kris, skelþunnur. Þar var Kris, vel hærður. Þar var Kris, með […]
Cry Me a River – Leyfðu mér að fljóta á kanó á stórfljóti tára þinna 21.02.2020 1:09:56
Justin Timberlake – Cry Me a RiverGestófíll: Dröfn Ösp Snorradóttir-Rozas Hann ólst í Mikka Mús klúbbnum, missti nánast sveindóminn með svörtu eyrun á hausnum og dansaði sinn stengjabrúðudans á stjörnutorgi heimsins. En árið 2002 reis hann upp eins og heilagur Mikjáll forðum. En saga Timburvatnsins er hvorki sagan af upprisu Krists eða eilífri endurholdgun fuglsins Fönixar […]
Superstar – Hvítar tennur, brúnt leður 14.02.2020 58:35
Carpenters – Superstar Trésmiðurinn brúnast í sólinni. Leðurólar Jésú-sandalanna herpast um svitastorkna ökkla. Það húmar að. Raðmorðingjamyrkur skellur á. Vaktmaður Golfklúbbsins er skorinn á háls. Það er há-sjöa. Sjálvirkir vatnsúðarar spreyja út í nóttina. Súperstjarnan skín á himni.
Born in the U.S.A. – Kældur, vaggandi skrokkur í BNA 07.02.2020 1:07:51
Bruce Springsteen – Born in the U.S.A. Levis 501. Nestisbox úr stáli. M16 hríðskotariffill. Eldar loga. Miskunnsami samverjinn kveikir sér í sígarettu og askar ofan á fólkið í ræsinu. Samverjinn ryður sér inn í neðanjarðarlest með harðplasta stresstösku sem hefil. Það er átta. Það er harka. Allir lúðrar eru þandir. Allt logar. Nema þeir sem […]
Love is a losing game – Djúpsteiktur loftsteinn af himnum 30.12.2019 1:03:42
Amy Winehouse – Love is a Losing Game Hún varð aldrei gömul. Samt var rödd hennar djúp og vitur. Djass-þjáning úr fimmunni, soul-titringur úr sexunni. Sígarettur að brenna út í öskubökkum í spilasölum rússneskra olígarka, transfitusafi kjúklingsins í Southgate. Hámenning. Lágmenning. Dekadans. Tattú. Kerti í vínflöskum. Reykingalykt af feldi grás síams-kattar. Camden. Gljástig djassgeggjara....
Stanslaust stuð – Glimmer á lifrapylsu 22.12.2019 1:06:13
Páll Óskar – Stanslaust stuð Þá kom loksins að því. Páll Óskar, maður fólksins, var fílaður í strimla frammi fyrir lýðnum. Ekkert passar betur fyrir Palla-fílun en múgur og margmenni. Músík Páls Óskars er músík fólksins. Sá Íslendingur sem ekki hefur maukfílað Palla er með ruslafötu í stað hjarta. Palli breytti Íslandi. Hann setti glimmer […]
Týpískt – Ironic 13.12.2019 57:59
Alanis Morissette – Ironic Ottawa. Sleðaferð. Þreföld ógn. Flannel. Cadillac Eldorado. Gleðin er endalaus. Kakó í lokin. Atlantis týndist. Alanis líka. Hún var gerð að níugríninu. Kanadíski go-2 brandarinn. En nú rís hún upp á ný. Það er háflóð. Kakóið streymir upp úr Tim Hortons bollunum. Þið getið reynt að synda. Þið getið reynt að […]
Only Shallow – Háheiðinn, þjóðsögulegur en iðnvæddur rafmulningur 06.12.2019 51:08
My Bloody Valentine – Only Shallow Ímyndið ykkur ef að innan í jörðinni sjálfri væri stórt tómarúm. Það væri hægt að taka lyftu niður fleiri þúsund kílamótra og í kjarna sjálfrar jarðarinnar væri stór hvelfing. Þessi hvelfing væri Grafhýsi hugmyndanna. Grafhýsið væri eins og mörg önnur grafhýsi, með flúraða veggi sem lýstu því í myndmáli […]
Bitter Sweet Symphony – Að fasa út sársaukann 29.11.2019 53:29
The Verve – Bitter Sweet Symphony Eitt stærsta lag allra tíma. 1997. Manchester-drjólar að gefa hann góðan. Stórir leðurjakkar. Alkólíseraðir tónlistarblaðamenn, skrjáfandi þunnir, skrifandi og túlkandi. Há-britpop. Allt í gangi. En ljúfsára tónkviðan fjallar aðeins um eitt: Sársaukann. Það sem allir eiga sameiginlegt. Þetta tengist allt mali katta, raftíðnisviði heilans og öðrum þáttum sem...
Guð blessi meyjarblómið þitt amma – The Village Green Preservation Society 22.11.2019 55:38
The Kinks – The Village Green Preservation Society Fílalag kafar djúpt ofan í glatkistuna að þessu sinni og grefur upp eina frumfílun frá júní 2014. Það er kannski við hæfi að líta um öxl þegar þetta nostalgíuhnoss er fílað. Kjamsið. Fílið. Munið. Gleymið.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.