Fílalag

Fílalag

Music IS ↓ 371 episodes

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.

Author

Fílalag

Category

Music

Podcast website

filalag.is

Latest episode

May 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

White Rabbit – Nærðu huga þinn 15.01.2021

Jefferson Airplane – White Rabbit San Francisco 1967. Reipi undir smásjánni. Rannsóknarlögreglumenn frá FBI með hlerunarbúnað í hvítum sendiferðarbílum. Drullugir hippar. Satan stutt frá. Maður í skyrtu með víðum 19. aldar ermum siglir niður Thames, sér sefið, sér froskana, lirfurnar. Hann gleypir flugu. Nett tign í sírisi. Frændi Charlie Chaplin loðnari en fjallagórilla. Fimm hundruð [&#823...

Feel – Svarthvítt bað 08.01.2021

Feel – Robbie Williams Bootcut gallabuxur. Sperrt mjóbak. Diesel auglýsing. Stóðhestur kældur í baði. Robbie Williams var ungur þegar hann mætti með augabrýrnar sínar og þrátt fyrir mikla kókanínneyslu og allskonar ólifnað, þá er hann ennþá jafn sperrtur og ný upptrekktur gormur. Hér er farið yfir allt það helsta. Manchester heimspekina, hestagredduna og keisaradæmi bjórglasabotnsins. Robbie...

Jólin alls staðar – Geimvera krufin í kjallara Búnaðarbankans í Austurstræti 22.12.2020

Ellý Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson – Jólin alls staðar Okkar fallegasta jólalag er tekið fyrir í dag. Það voru hjónin Jóhanna G. Erlingsson og Jón „Bassi” Sigurðsson sem eru höfundar hins eilífa og unaðslega verks Jólin alls staðar, en verkið var sungið af systkinunum Ellý og Villa Vill á jólaplötu þeirra sem gefin var út […]

Euphoria – Bugles, Dópamín, kerúbíni þenur lúður 11.12.2020

Loreen – Euphoria Þríhöfða vöðvatröll stígur niður úr leikmyndageimskipi .Glussahljóð fyllir skálar eyrna. Fasteignasali í Reykjavík kaupir ljótan jakka í Sautján. Buglesi er sturtað í skálar í húsi í Kórahverfinu. Evrópa, ertu vakandi, Evrópa, sefur þú? Gervisnjókornavél er flutt með FedEx sendibíl. Bílstjórinn hlustar á fréttastúf um kjaraviðræður. Himnar opnast og sól lemur sig niður [&#8...

Stand By Me – Konungleg upplifun 04.12.2020

Ben E. King – Stand By Me Viltu vera konungur, en finnst of mikið vesen að gera uppreisn og drepa gamla kónginn? Viltu vera konungur en veist ekkert um pólitík eða hernað og hreinlega nennir ekki að klæða þig í purpurarauða skikkju og setja upp kórónu? Það er allt í lagi. Því þú getur orðið […]

Kinky Afro – Þriggja daga lykt 27.11.2020

Happy Mondays – Kinky Afro Brútalismi. Gráir veggir. Steinsteypa. Rigning. Vond hárgreiðsla. Bryðjandi kjálkar. Vond nærvera. Sveittar nasir. Engin markmið. Engar vonir. Engin reisn. Engin niðurstaða. Ekkert í gangi. Nema ALLT. Happy Mondays er skilgreiningin á losta. Skaðræði. Fryst hjörtu í leit að blossa.

Don’t Get Me Wrong – Hindin heilaga 20.11.2020

The Pretenders – Don’t Get Me Wrong Chrissie Hynde, söngvari, gítarleikari og lagahöfundur hljómsveitarinnar Pretenders hafði marga fjöruna sopið þegar hún söng lagið “Don’t Get Me Wrong” árið 1986. Þessi ameríska söngkona flutti ung til Bretlands og drakk í sig pönksenuna og stofnaði þar band sitt, sem átti eftir að verða geysivinsælt bæði í Bretlandi […]

Sister Golden Hair – Filter Última 06.11.2020

America – Sister Golden Hair Sjöan. Hraun. Teppi. Sértrúarsöfnuðir. Fyrstu bylgju hugbúnaðarfrumkvöðlar. Gyllta hárið. Heisið. Loftið. Þyngslin. Gula geðrofið. Buxna-bulge. Kjallarinn í botlanganum. Þurrt hár. Þurr kynging. Klístraðir lófar. Panilklæddir veggir, panilklæddir bílar, panilklædd samviska þjóðar. Beltissylgja spennt. Nál stillt. Fótur á pedal. Skyggð gleraugu á grímu. Gullslegin...

The Best – Það allra besta 02.11.2020

Tina Turner – The Best Ein stærsta saga veraldar. Anna Mae Bullock, fædd í Tennessee 1939. Sú orkuríkasta, sú gæfasta, sú stóra. Tina Turner. Sú sem snéri öllu á hvolf. Tók bresku rokk yrðlinganna og sýndi þeim hvar Davíð keypti mánaskeindan landann. Sýndi öllum hvað það er að lifa af. Sýndi öllum heiminum hvað það […]

Vanishing act – Við skolt meistarans 15.10.2020

Fílabeinskistan – FílalagGull™ Lou Reed – Vanishing Act Lou Reed syngur svo nálægt hljóðnemanum í þessu lagi að maður finnur leðurkeimaða andremmuna. Og maður fílar það. Það er eins og að vera staddur við skolt meistarans að hlýða á það undravirki sem lagið Vanishing Act er. Um er að ræða Rás 1 gúmmelaði fyrir lengra […]

Fuzzy – Fjúkandi pulsubréf 02.10.2020

Grant Lee Buffalo – Fuzzy Klæðið ykkur í gallajakka og leðurjakka og rörsjúgið stóra kók á aftasta bekk í Stjörnubíó þar til hryglir í pappamálinu. Setjið hnausþykkt brúnt seðlaveskið í rassvasann og gelið hárið. Skvettið Calvin Klein ilmvatni á hrjúft spjaldið. Spennið á ykkur mótorhjólaklossana. Dragið djúpt andann. Árið er 1993. Það er fuzzari. Hér […]

The Age of Aquarius – Kapítalisminn og draumar hippakynslóðarinnar að r##a inn í kústaskáp 25.09.2020

The 5th Dimension – The Age of Aquarius Unglingar með reykelsi. Tónaðir Broadway leikarar í útpældum fatahenglum. Veröld að fara af hjörunum. Hér er um að ræða kapítalismann og drauma hippakynslóðarinnar saman inn í kústaskáp að búa til beikon. Engu er til sparað í þessari tungllendingar-neglu sem þrumaði sér inn á topp Billboard listans sumarið […]

Theme from New York, New York – Með 20. öldina út á kinn 18.09.2020

Frank Sinatra – Theme from New York, New York Bláskjár. Frank Sinatra. Níu hundruð þúsund sígarettur. Tvö hundruð og átta tíu þúsund martíní-glös. T-steikur, broads, kertaljós. Röddin í útvarpinu, axlirnar á sviðinu, augun á umslaginu. Francis Albert. Jarðaður með foreldrum sínum. Kistan úttroðin af stemningsvarningi. Slökkt á Las Vegas. Empire State byggingin lýst bláu ljósi. […]

The Power of Love – Tyggjó, kærleikur, agi, höggmynd, skriðþungi, stjörnuþoka, tryggð 11.09.2020

Jennifer Rush – The Power of Love Það er þýsk-amerísk negla í dag. Hin Ameríska Jennifer Rush fór til Þýskalands til að taka upp sitt frægasta lag, The Power of Love, sem er eitt vinsælasta og útbreiddasta lag allra tíma. Sem hefur rokið á topplista með henni sjálfri, Celine Dion og hinum áströlsku Air Supply. […]

Love Minus Zero/No Limit – Hrafninn sem kyndir ofn okkar allra 04.09.2020

Bob Dylan – Love Minus Zero / No Limit Lagið sem er til umfjöllunar í dag er svo epískt að greinin um fílunina verður í “Í ljósi sögunnar” stíl. Dagarnir 13., 14. og 15. janúar voru nokkuð kaldir í New York borg árið 1965. Hitinn fór lítið yfir frostmark og fór alveg niður í mínus […]

Live is Life – Að eilífu æring 21.08.2020

Opus – Live is Life Maradona horfir á Vesúvíus. Grétar Örvarsson stingur múslískeið í munn. Kartöflusalat svitnar á útiborði í bjórgarði í Graz. Evrópa er öxull. Hemmi Gunn setur á sig svitaband og fer á svið á Broadway. Rúta með móðuðum rúðum brunar í gegnum íslenska sumarnótt. Veröldin er drifskaft. Maður með permanent horfir upp […]

Loser – Áferð sultunnar 14.08.2020

Beck – Loser Eftirpartísófi með teppi hekluðu úr tékknesk-bóhemískum ljóðum og bróderaður með Andy Warhol Factory-flúxi. Póst-móderníski skúnkurinn Beck Hansen er fílaður niður í sviðasultu í dag og það er margt sem hægt er að japla á: Myndlistarsköddunin, molasykurinn og miðsnesið á David Geffen. Þessi kynningartexti hefur enga skýra línu enda er sólbakaður loðfíll undir […]

I Wanna Get High – Skúnka-skaðræði 07.08.2020

Cypress Hill – I Wanna Get High Það er komið að skoti úr bongóinu. Hér er um negul-neglu að ræða. Kúbversk-mexíkönsku-amerísku á-skala-við-Billy-Joel-seljandi gangsterarnir frá Suðurhliði. Það heyrðist hvíslað undir síprus-viðnum að guðspjallið skrifaði guðspjallamaðurinn B-Real ásamt senaða hundinum. Á tímabili lágu allir í valnum. Háskólakrakkar í Bandaríkjunum, lagerstarfsmenn í Austurrík...

Heyr himna smiður – Miðalda-monsterið 31.07.2020

Kolbeinn Tumason & Þorkell Sigurbjörnsson – Heyr himna smiðurÁrið 2018 völdu Íslendingar sitt uppáhalds tónverk í kosningu sem haldin var á vegum Ríkisútvarpsins. Niðurstaða valsins var áhugaverð þó hún hafi kannski ekki komið sérstaklega á óvart. Vinsælasta tónverk íslensku þjóðarinnar er kórverkið Heyr himna smiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson við rúmlega 800 ára gamlan sálm Kolbeins [&...

Blue Monday – Yfirlýsing 24.07.2020

New Order – Blue Monday Hvenær varð síðast bylting? Hversu gömul er sú hugmyndafræði sem við styðjumst við á Vesturlöndum í dag? Hversu gamall er nútíminn? Þurfti ekki að umturna öllum viðmiðum og setja ný mörk eftir lok síðari heimstyrjaldar – eða eftir fall kommúnismans? Hvert er skipulag hlutanna í alþjóðavæddum heimi viðskipta og hugmynda? […]

Roar – Kona öskrar 17.07.2020

Katy Perry – Roar Úr valdamesta landinu, farsælasta ríkinu, undan menningarheimi útbreiddustu trúarbragðanna, með öguðustu aðferðafræðinni, stendur hún á alstærsta sviðinu. Og öskrar! Katy Perry er ein sú allra stærsta undanfarinna áratuga. Hún á 100 milljónir fylgjenda á Twitter, 100 milljónir á Insta. Urrið hennar er með þrjá milljarða spilana á YouTube. Og hún hefur […]

Jóga – Litbrigði jarðarinnar 10.07.2020

Björk – Jóga Stærsta poppstjarna Íslands fyrr og síðar er tekin fyrir í dag. Snúðarnir, hvíta dúnúlpan, textúrinn, vefnaðurinn. Ferill Bjarkar er fínofinn og verður aldrei greindur til hlítar, en sumir þræðir eru meira áberandi en aðrir. Björk er útpæld, verk hennar eru gagnrýnendakonfekt og tengsl hennar við stór þemu eins og umhverfisvernd og frelsisbaráttu […]

Everybody Wants to Rule the World – Tvö skott, miskunnarleysi, náungakærleikur er fyrir aumingja 03.07.2020

Tears for Fears – Everybody Wants to Rule the World Charles Chaplin bítur í grænt epli í útlegð sinni í Manoir de Ban við Genfarvatn. Ólívutanaður Ísraeli klístrar á sig Ray Ban Aviators og snýr sveif í skriðdreka sem er í þann mund að storma inn í Líbanon. Þristur í lágflugi yfir túndrum Síberíu. Maður […]

Norwegian Wood & Fourth Time Around – Þegar Guð steig niður 26.06.2020

Bítlarnir – Norwegian Wood (This Bird Has Flown)Bob Dylan – Fourth Time Around Turnarnir tveir í sexunni voru Bítlarnir og Bob Dylan. Og það er ekki lítið að hafa verið turn í sexunni því í sexunni þróaðist tónlist mikið. Hún dýpkaði og tók inn ýmsa eiginleika sem áður voru framandi í dægurtónlist. Hún hætti að […]

By Your Side – Koddahjal, silkisjal 19.06.2020

Sade – By Your Side Hin nígerísk-breska Helen Folasade Adu, eða „Sade” líkt og samnefnd hljómsveit hennar nefnist, er ein af þeim stóru af MTV-kynslóðinni. Hún átti risasmelli í áttunni en lá mikið til baka í níunni en kom svo aftur árið 2000 með risasmellinum By Your Side. Að hlusta á Sade er eins og að vera boðið […]

Listen to the Fílalag podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.