Fílalag

Fílalag

Music IS ↓ 371 episodes

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.

Author

Fílalag

Category

Music

Podcast website

filalag.is

Latest episode

May 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Nessun Dorma – Hetja sigrar 16.07.2021

Milljónir manna, milljónir sagna, tjöld máluð í litbrigðum jarðarinnar, sól á himni, hveiti á akri. Og stígvélið sparkar í knöttinn á miðjarðarhafi sagna, valda, átaka og ástríðna. Ítalía. Legíónur Sesars, drottnarar veraldar á tímum biblíusagna, meitlaðir hermenn og mömmustrákar olíu og hveitis. Verdi, Puccini, pússuð stígvél og strimlaskegg. Sigur, deiling, drottnun. La Scala á öðrum […]

Love – Eggjarauðan sem aldrei eyðist 09.07.2021

John Lennon – Love Það er ekki bara Brimborg sem er öruggur staður til að vera á heldur líka innsta hólf í innstu kistu hvelfingar grafhýsis Tútankamúns. Það er hægt að verja og það er hægt að brynverja. Og ekkert er jafn öruggt, jafn varið, jafn hugmyndafræðilega afmarkað og lagið “Love” með John Lennon. Love […]

Heartbreaker – Harmurinn og hæðirnar 02.07.2021

Bee Gees – Heartbreaker Saga Bee Gees er Sagan með stóru S-i og greini. Saga þjóðflutninga, saga efnahagsþrenginga, hæstu hæða, dýpstu dala. Elsta saga í heimi. Fyrsta Mósebók, fjórði kafli: Kain og Abel. Á ég að gæta bróðir míns? Vesalingar og krypplingar Victors Hugo, verksmiðjubörn Dickens. Undirskálaaugu Andersens. Saga Bee Gees inniheldur þjóðflutninga, lestarslys, hótelsvítur, […...

Killing Me Softly With His Song- Að smyrja kæfu ofan á skýin 25.06.2021

Roberta Flack – Killing Me Softly Lyklapartí í Norræna húsinu 1973. Samískar hempur lagðar á gólfin. Reykelsi fíruð. Kæfan smurð. Maður að koma heim af næturvakt hjá HS Orku lamast og leggur bílnum í myrkrinu, roðnar í myrkrinu. Peningar, kærleikur, myrkur. Hið myljandi hjól draumanna. Mylla draumanna.

Tubthumping – Almyrkvi af gleði 18.06.2021

Chumbawamba – Tubthumping Gestófíll – Ari Eldjárn Í raun deyr man mörg þúsund sinnum áður en vomurinn með ljáinn mætir loksins. Það verður mótlæti, það verður sköddun, það verða vonbrigði, það verður lágdeyða og stundum er fótunum hreinlega sópað undan vel meinandi fólki. En ef einhver heldur að tilgangur lífsins sé að forðast mótlæti, átök […]

King of the Road – Að elta skiltin 11.06.2021

Roger Miller – King of the Road Ef það er eitthvað sem vantar á Íslandi þá er það alvöru vegamenning. Að geta farið út í buskann. Á Íslandi er maður alltaf kominn í hring áður en maður veit af. Það er helst að maður geti náð einhverri smá útlegð á Kjálkanum eða kannski nyrst á […]

Uptown Girl – Blöðruselur í brunastiga 04.06.2021

Billy Joel – Uptown Girl Það er útkall. Bláu ljósin og vælandi sírena. Upp í brunastiga í Bronx stendur útþaninn kalkúnn og spangólar á gula leigubílana sem þjóta hjá. Það er ekki hægt að tjónka við hann. Elsta saga veraldar. Fátæki strákurinn sem er skotinn í prinsessunni, eða öfugt. Lítið krakkaævintýri, en samt svo stórt. […]

Son of a Preacher Man – Spartsl í holu hjartans 28.05.2021

Dusty Springfield – Son of a Preacher Man Fíkja veraldar. Svið biblískra atburða. Martin Luther King skotinn til bana á mótelsvölum. Memphis, 1968. Svið harmsins. Dusty Springfield var frá Bretlandi. Hét upprunalega O’Brien. Hún var eiginlega of hæfileikarík til að vera til. Hún fann sig í öllu, þjóðlagahefð en líka sálartónlist þar sem hún gaf […]

Workingman’s Blues #2 – Með hjartað fullt af bananabrauði 22.05.2021

Bob Dylan – Workinman’s Blues #2 Bob Dylan kjarnar hugmyndina um „boomer”. Það er erfitt að kyngja því nú á tímum þegar 37 ára gamalt fólk kallar 39 ára gamalt fólk búmera og heldur að það sé með neglu. En það er áttræður Bubbi gamli Zimmermann, fæddur 24. maí 1941, sem er aðalbúmerinn. Hann útskrifaðist […]

Dry The Rain – Skoskt, artí, indífokk 14.05.2021

The Beta Band – Dry the Rain Þunglyndisfílgúddið verður ekki tærara en þetta. Hér er hann mættur í Pringles-mylsnaða sófann þinn: Indígírkassinn mikli sem hrært hefur í þunnum keltum í tvo áratugi. Dry the Rain með Beta Band er þéttofinn refill. Í ísskápnum eru 28 síðir Amstel, sígarettuaskan fellur ofan á pínulitlar bjórvambir, græjurnar óma […]

Fyrir átta árum – Einn kílómetri af eilífð 07.05.2021

Heimir og Jónas – Fyrir átta árum Sumarlandið. Vormanían. Spássering í kringum Tjörn. Byltingarfólk og hökutoppar. Glaumbar og hass. Predikari segir þér hvað kílóið af salti kostar í raun og veru. Kinkandi kollar. Guy Ritchie þrútnar. Kristalsglasi hent á arin. Vakan hefur staðið yfir alla vikuna, allt vorið. Undir 19. aldar legubekk á Þrúðvangi liggur […]

I Can See Clearly Now – Að skipta út hryggjarsúlu sinni fyrir sólargeisla 30.04.2021

Johnny Nash – I Can See Clearly Now Ef fílgúdd væri vara sem maður kaupir út í búð, þá erum við í þann mund að setja tvo fimmtíu kílóa sekki í skottið á bílnum við bílastæðið hjá Costgo. Framundan er bökuð kartafla snædd í ölvandi sólskini undir hamraveggjum. Pakkið fellihýsinu í súputening og étið það. […]

Music – Að leggjast á hraðbrautina 23.04.2021

Madonna – Music „Popp” er hart orð. Það eru þrjú pé í því og það brotnar á vörum manns. Popp er líka harður business. Líklega sá allra harðasti. Popp fær fólk til að lita á sér hárið, klæðast þröngum buxum, syngja í falsettum, dilla rassinum, öskra eins og apar, taka pillur, fara í málaferli við […]

Come on Eileen – Keltnesk krossfesting 16.04.2021

Dexys Midnight Runners – Come on Eileen Fyrir þau ykkar sem hafið gengið slyddublaut inn í blokkarstigagang. Fyrir þau ykkar sem hafið stigið inn í stóran leigubíl um miðja nótt á leiðinni úr einu fokkjúi með vonda hljóðvist í það næsta. Fyrir þau ykkar sem hafið borðað grænt epli í miðju nóvemberskammdegi og fundið maga […]

Næturljóð – Gárur á tjörn tímans 09.04.2021

Næturljóð – MA Kvartettinn Fáni blaktir yfir Studebaker á Holtavörðuheiði. Prúðbúinn maður festir á sig skóhlífar í innbænum á Akureyri. Púrtvíni hellt í glas í reykfylltu bakherbergi á Sóleyrjargötu. Elfur tímans áfram rennur. Þjóðin er fyrirburi í kassa. Hábeinn heppni finnur túskilding og býður öllum með sér inn í Gamla bíó. Fiskifluga suðar. Ilmandi hey […]

Hallelujah – Heilög gredda 26.03.2021

Hallelujah – Ýmsir Leonard Cohen var 49 ára þegar hann tók upp lagið Hallelujah fyrir plötu sína “Various Positions”. Plötunni var hafnað af bandaríska útgáfurisanum Sony, enda var hún í þyngri kantinum og flest lögin spiluð á casio-hljómborð. En á plötunni voru samt tvö af helstu lögum Lenna: Dance Me To the End of Love […]

Sk8er Boi – Halló litli villikötturinn minn 19.03.2021

Avril Lavigne – Sk8er Boi Opnaðu ferska dós af tennisboltum (já, tennisboltar eru seldir í dósum og þær opnast með flipa eins og gosdósir og gefa frá sér “ttsss” hljóð). Dragðu djúpt andann og finndu ferskan ilm síðkapítalismans streyma ofan í dýpstu lungnarætur. Farðu í Kringluna og rústaðu Kringlunni. Rústaðu líka kortinu þínu. Kauptu þig […]

We are Young – Fómó-framleiðsla 12.03.2021

Fun. – We Are Young Það er þversagnarkenndur vöndull undir nálinni. Poppsmellur sem fór í fyrsta sæti ameríska vinsældalistans, peppandi, ærandi og neysluhvetjandi Super-Bowl-auglýsinga teppalagning. En á sama tíma er lagið, We Are Young, dulbúið örvæntingarhróp heillar kynslóðar. Gallajakkaklæddrar kynslóðar sem var stungið í samband við ramen og látin framleiða fómó í boði Verizon. Gefið [...

Itchycoo Park – Að brenna sig á fegurðinni 05.03.2021

Small Faces – Itchycoo Park Hoppum og skoppum í gegnum blómagarðinn með litlar sólhlífar og gúrkusamlokur í maganum eins og í bók eftir Thackeray og veltumst um í grasinu og hlæjum og brennum okkur á brenninetlum og hellum mjólk á sárið og grátum með hjörtum okkar yfir fegurðinni og breytum sorginni í útvarpsbylgjur sem við […]

Útrásin í myrkrinu – Smells Like Teen Spirit 26.02.2021

Gestófíll: Ilmur Kristjánsdóttir Þeir frelsuðu unglinga á Vesturströnd Bandaríkjanna, þeir frelsuðu unglinga í Bangkok á Tælandi. Þeir frelsuðu unglinga í Austurbæ Reykjavíkur. Nirvana kom sá og sónikaði sig í gegn með sinni annarri plötu. Skiptir ekki máli hét hún í lauslegri þýðingu og þar með var tónn níunnar sleginn og hann var sleginn fast. Whatever. […]

Harðsnúna Hanna – Hámark norpsins 19.02.2021

Ðe lónlí blú bojs – Harðsnúna Hanna Steypustyrktarjárn. 24 metrar á sekúndu. Tikk í fánastöngum. Þrefaldur vodki í kók. Vanlíðan. Æsingur. Spenna. Æring. Bældar tilfinningar. Gráar minningar. Mótlæti, skaðræði, flótti, norp, örvænting, stuð. Skyggð sjóngleraugu. Drápuhlíðargrjót. Hass. Gangstéttarhella. Volkswagen bjalla. Snókerkjuði. Slímugt þang í fjöru, grár vikur í holti. Svarthvít veröl...

I Feel Love – Eimuð ást 12.02.2021

Donna Summer – I Feel Love Alþjóðlegt teymi. Bandarísk söngkona, Týróli, Breti, Þjóðverji að sjá um snúrurnar og Íslendingur á kantinum. Saman skópu þau dansmúsíkina og allt fór þetta fram í München í Þýskalandi í sinnepsgulri sjöu. Nú er frumdanstónlistarsleggjan I Feel Love með Donnu Summer tekin fyrir og er hér um að ræða stóra […]

Fourth Rendez-Vous – Til stjarnanna 05.02.2021

Jean-Michel Jarre – Quatrième Rendez-vous Belgískur milljónamæringur stígur um borð í einkaþotu. Kona með áhyggjufulla rödd segir frá siðferðislegum álitamálum í tengslum við loðdýrarækt. Gufan merlast úr viðtækjunum og blandast gufunni úr pottinum þar sem ýsan sýður. Velkomin að speglinum. Jörðin hlýnar. Rafbylgjur flæða. Fólk í þungum þönkum leggst í bastrólu. Hlutabréf hækka. Kvartbuxur í...

Blister in the Sun – Graftarkýlið sem sprakk út 29.01.2021

Violent Femmes – Blister in the Sun Fyrsta lag á fyrstu plötu hljómsveitarinnar Violent Femmes er þeirra stærsta lag. Það heitir Blister in the Sun og söngvarinn, Gordon Gano, var aðeins átján ára þegar það var tekið upp – en hann hafði víst samið lagið mun fyrr. Lagið er því óður til unglingagreddu og óöryggis, […]

Da Funk – Skothelt, skyggt gler 22.01.2021

Daft Punk – Da Funk Endurtekningin. Lífsleiðinn. Gljáinn. Feimnin, friggðin, nostalgían. Jökullinn hopar. Evrópa ropar. Sykurpúðar, stúdíólúðar, Christian Dior blússur liggja eins og hráviði fyrir framan kennslustofuna þar sem enfant terrible úr stúdentaóeirðunum ’68 ætlar að kenna þér kynferðislega geómatríu. Daft Punk eru kontrapunktur kapítalismans. Endurvinnslustöð og endastöð. All...

Listen to the Fílalag podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.