Fílalag

Fílalag

Music IS ↓ 371 episodes

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.

Author

Fílalag

Category

Music

Podcast website

filalag.is

Latest episode

May 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Will You Love Me Tomorrow – Paradísarmissir, missir, missir, missir (bergmál) 10.05.2024

The Shirelles / Carole King – Will You Love Me Tomorrow Hvað er þetta annað en paradísarmissir? Allt saman! Allar sögur! Nakið fólk að borða ávexti í vellystingum og búmm skömmustulegt fólk með fýkjublöð um klofið, grátbiðjandi um miskunn. Tveggja ára barn á bleyju, öskrandi og krotandi á veggi. Búmm. Sex ára barn í skóla, […]

Quit Playing Games (With my Heart) – Tárin, árin, sárin 03.05.2024

Backstreet Boys – Quit Playing Games (With my Heart) Höfrungasýning í skemmtigarði. Aflitaðir endar. Rigning inni í vöruhúsi. Uppásnúnir gallajakkar. Pýramídasvindlara-umboðsmaður. Vinir að eilífu. Plakötin yfir rúmstokknum. Tárin, árin, sárin. Skipt í miðju, uppfært andlit, skemmtiferðasigling um veröld sem var, horfnar ástir, skot í myrkri, ölvunarakstur, MTV í Þýskalandi. Það var hlegið a...

Gvendur á Eyrinni – Harmurinn, tyggjóið, eyrin og eilífðin 26.04.2024

Dátar – Gvendur á Eyrinni Esjan er klædd flaueli. Handan hennar springur bomban. Sveppaskýið rís til himins. Faxaflóinn verður appelsínugulur. Við ströndina standa eyjaskeggjar með hnausþykk bítnikka-sólgleraugu og horfa á hamfarirnar en heyra ekkert hljóð. Svo fara allir heim til sín og sjóða ýsu og hlusta á aflafréttir í útvarpinu. Ekkert gerðist. Það er allt […]

Perfect Day – Fullkominn dagur (Live frá Kex Hostel) 12.04.2024

Lou Reed – Perfect Day Í tilefni tíu ára afmælis Fílalag var ákveðið að hóa saman fólki og henda í snar basic live-fílun á Kex Hostel. Það þýddi ekkert annað en að fullkomna daginn með því að fíla Perfect Day. Er hægt að hugsa sér fílanlegra lag? Rammpirraður Lou Reed í lautarferð. Þetta gerist ekki […]

Heaven on their Minds – Stóru samskeytin 05.04.2024

Carl Anderson og Jesus Christ Superstar leikhópurinn – Heaven on their Minds Sólbruni. Tímasprengja. Páskar. Heilaga landið. Gallabuxur. Aktivismi. Oflæti. Broadway. Hamas. Bringuhár. Langferðabílar. Vinátta. Stereo. Neysla. Biskupsstofa. Flugskeyti. Fótanudd. Mattheusarguðspjall. Leðurjakki. Vandarhögg. Þórscafé. Handsprengja. Klútar. Kynlíf. Carlsberg. Konseptplötur. Eyðimörk. Sviti. PLO....

Can’t Get You Out Of My Head – Búmmerangið í sefinu 29.03.2024

Kylie Minogue – Can’t Get You Out Of My Head Orðið “popp” til að lýsa ákveðinni tegund tónlistar er einstaklega mikil svikamylla því það er viðeigandi fyrir það sem það lýsir á þrjá mismunandi vegu. Í fyrsta lagi þá lýsir orðið ákveðnu hljóði sem einkennir einmitt góða popptónlist. Góð popptónlist smellur í hlustunum, hún lætur […]

House of The Rising Sun – Húsið vinnur 22.03.2024

The Animals – House of the Rising Sun Eins og við vitum öll þá hófst Bítlaæðið í Bandaríkjunum þegar ungmennni þess lands fengu að líta óklippt goðin augum í beinni sjónvarpsútsendingu frá CBS myndveri Ed Sullivans. Það var 9. febrúar 1964 og veröldin varð ekki söm aftur. Bítlarnir komu vel fyrir, dilluðu sér upp og […]

(Everything I Do) I Do It for You – Ör beint í hjartað 15.03.2024

Bryan Adams – (Everything I Do) I Do It for You Þér er boðið í ferðalag. Hoppaðu upp á hestvagninn. Litli-Jón slær keyri í gamla bikkju og þú þýtur af stað í gegnum Skírið með fríðu föruneyti. Þetta er þeysireið, framhjá miðaldamörkuðum þar sem menn skjóta örvum og konur í þreföldum pilsum dansa. Við rjúkum […]

Going Home: Theme from Local Hero – Allt er fyrirgefið 08.03.2024

Mark Knopfler – Going Home (Theme from Local Hero) Andinn. Stemningin. Newcastle upon Tyne. Þú þarft ekki að vera bestur, þú þarft ekki að vinna titla, þú þarft bara að vera góður við mömmu þína og gera við vaska. Þú ert hetja heimaslóðanna og við fyrirgefum þér mistök þín. Fílalag vaknar til lífsins á afmælisári […]

Teenage Dirtbag – Í aldingarði incelsins 10.11.2023

Wheatus – Teenage Dirtbag Girtu kakíbuxurnar upp að handakrikum þannig að pínulítið hjartað skýlist undir beltissylgju úr látúni. Fáðu þér oreo og mjólk eftir skóla. Það er keila í kvöld. Farðu út í K-Mart til að kaupa kanil því ef veröld þín lyktar ekki af kanil þá er hún ekki lengur númer eitt. Hálfsjálfvirkir bílar, hálfsjálfvirkar […]

My Heart Will Go On  – Stirðnandi klökka hjartalausa djúp 03.11.2023

My Heart Will Go On (Love Theme from Titanic) – Celine Dion Blómabúðalykt. Orð sem voru hvísluð svo lágt að þau aldrei heyrðust. Unglingaherbergið sem stendur óhreyft. Þú heyrir panflautuleik á torgi í útlöndum. Ódýran, ómerkilegan panflautuleik spilaðan af kasettu. En þú færð kökk í hálsinn. Því þú ert lille og heimurinn er stór. Að […]

Got My Mind Set On You – Fjórfaldur skeinipappír í kók 27.10.2023

George Harrison – Got My Mind Set on You Hawai-skyrtuklædd Samsonite taska með bavíana-rass situr á Kastrup og drekkur 40 millítra af colgate tannkremi. Last call for boarding. Útitekinn maður opnar Fosters dós í verkfæraskúr. Hann leggur garðklippurnar á hilluna, gengur út og sest upp á leggjalangan flamingóa og tekst á loft. Á húsþaki í […]

Sing – Hjakk og spaghettí 20.10.2023

Fjórir fölir náungar í pólóbolum. Ljótur brúnn öskubakki á borði, búinn til í leirmótun á Waldorf-skóla. Hafrakex með sultu í kvöldmat í gær. Draumkennt blik í augum, sviti á efri vörum. Sami straumur og sló raflosta sínum yfir augu Syd Barrets lýstur inn í herbergi rafsurgs og tómra tebolla. Úr pottinum óma galdrar Tin-eyjunnar, óður […]

Skriðþunginn í skálinni – Bítlarnir – Dizzy Miss Lizzy, lifandi í Hollywood Bowl 1965 13.01.2023

Bítlarnir eru að mörgu leyti þægilegt viðfangsefni. Þeir voru fjórir og þeir voru þvengmjóir. Þrátt fyrir alla sköpunargáfuna og dýptina þá eru Bítlarnir konsept sem er nokkuð þægilegt að setja í einn harðan pakka. Framkvæmdatímabil Bítlana afmarkast af sléttum tölum. Þeir störfuðu á árunum 1960-1970. Þetta var orkupakki sex, og hann situr naglfastur undir jólatré […]

Strönd og stuð! – Good Vibrations 29.04.2022

Rafbylgjur smjúga í gegnum þunna gifsveggi. Brunabíll keyrir í útkall. Í höfuðkúpu er haldin veisla. Húlahringir orbita áreynslulaust. Pabbi skammar. Stanislav nágranni er sendur í raflostameðferð. Sólin hamrar geislum sínum á stillt hafið. Segulband flækist. Ljósálfur liggur á blakbolta. Stendur svo upp og stígur dans, á ströndinni, í takt við rafbylgjur. Þessi fílun fór fram live […]

Goodbye Yellow Brick Road – Hinn sinnepsguli vegur (Live í Borgó) 22.10.2021

Elton John – Goodbye Yellow Brick Road Árið er 1973. Kynóðir Jesúsar safna krökkum upp í Volkswagen rúgbrauð og keyra til fjalla. Djúpgul skotveiðisólgleraugu seljast eins og heitar lummur. Bólufreðnir síðhippar gæða sér á Tex Mex meðan hár vex. Veröldin varð vitstola 1969 en þarna fjórum árum síðar hefur skollið á með heiðgulu rofi. Og […]

Wannabe – Kryds-ild 24.09.2021

Fyrsta plata Spice Girls hét Spice og hún var nákvæmlega það: krydd. Og ekkert venjulegt krydd heldur napalm-karrí-lyftiduft. Kryddpíurnar sprengdu upp veröldina, og eins og allar alvöru sprengjur, þá gerðust hlutirnir hratt og átökin voru mikil. En það sem stóð eftir voru þó falleg skilaboð um mátt tónlistar, gildi vináttu og mátt stúlkna og kvenna […]

Have You Ever Seen The Rain? – Full ákefð 17.09.2021

Creedence Clearwater Revival – Have You Ever Seen The Rain? Saga Creedence Clearwater Revival er best tekin saman með einu orði: ákefð. Hljómsveitin starfaði aðeins í örfá ár en gaf út sjö stórar plötur, ferðaðist um heiminn, tók Ed Sullivan mulninginn og Woodstock mulninginn og allt þar á milli. Og svo nánast eins skyndilega og […]

Gentle On My Mind – Lagið sem allir fíluðu 10.09.2021

John Hartford og ýmsir – Gentle on My Mind Setjið á ykkur svunturnar. Á hlaðborðinu eru Glen Campbell, Aretha Franklin, Frank Sinatra, Elvis Presley og Dean Martin. Þau eiga það öll sameiginlegt að hafa flutt og maukfílað lagið Gentle on My Mind eftir ameríska blue-grass tónlistarmanninn John Hartford, og það gerið þið einnig. Gentle on […]

Over & Over – Sans Serif 03.09.2021

Hot Chip – Over and Over Það er komið að tilgangslausu trúttilúllus skaðræði í formi duracell airwaves hjakks. Nú skal djammað fast og post mortem framkvæmt á post modern. Öld grafíska hönnuðarins. Eftirpartí á ellefunni. Þriggja pipara Ban Thai réttum sturtað yfir nóvember-kvíðann. Þröngar buxur, 8 GB RAM, heimildamynd um erfðabreytt matvæli. Staffadjamm. Ofnskúffan hennar […]

Let’s Spend the Night Together – Brokkið ykkur 27.08.2021

Rolling Stones – Let’s Spend the Night Together Farið inn í föðurhúsin, undir loðfeldinn, inn í merginn, inn í kjarnsýruna og marinerið ykkur þar til Stephen Hawking segir Bó að segja gó á Big Bang. Náðuð þið þessu. Ekki. Tökum þetta aftur. Farið inn í föðurhúsin, undir loðfeldinn, inn í merginn, inn í kjarnsýruna og […]

It Ain’t Over ‘Til It’s Over – Make-Up-Sex Möxun 20.08.2021

Lenny Kravitz – It Ain’t Over ‘Til It’s Over Snjáð gallabuxnaefni. Nefhringur. Skartgripir. Búdda-líkneski. Lág fituprósenta. Fender Rhodes. Haltu-mér-slepptu-mér-orka. Steinaldarmataræði. Innlit útlit í Amazon. Ríðum saman út í sólarlagið með John Wayne einu sinni enn. Einu sinni enn. Einu sinni enn. Kaffibarþjóna-augnaráðið. Vifta í húsgagnalausu herbergi. Engissprettur á...

The Logical Song – Saðsamasti morgunverður allra tíma 06.08.2021

The Logical Song bresku hljómsveitarinnar Supertramp frá 1979 er svo rökrétt að það nær ekki nokkurri átt. Samið af þunnum Bretum í hljómsveitabolum, tekið upp í fyrsta flokks hljóðveri í Bandaríkjunum, loftþéttur popppakki fyrir alla framtíð. Létt heimspekilegur texti með tímalausum hugleiðingum, Abbey Road hljómandi gítarar, wurlitzer hljómborðslínur og möfflaðar sjöu-trommur. The Logical Song e...

Foolish Games – Djásnið í djúpinu 30.07.2021

Jewel – Foolish Games Það er mikið af rusli í heiminum. KFC-umbúðir á sófaborði, ljótar byggingar í illa skipulögðum borgum sem öllum er sama um, kusk á hillu, milljónir laga sem er tímasóun að hlusta á. Í raun er heimurinn bara einn stór ruslahaugur. Saga okkar líka. Flestar minningar, flest orð sem hafa verið sögð, […]

Fílalag – Wild Thing (2.0) – Þáttur frá 2014 23.07.2021

Fílalag er í hýði eins og flestir aðrir landsmenn. Því gripum við til þess að gramsa í gullkistunni og draga fram í dagsljósið eina af fyrstu fílunum sem kuklaðar voru enda ekki að undrast því lagið er algjör frumeðlustomper: Wild Thing. Takk fyrir. Við látum ekki eina útgáfu duga heldur kjömsum á þrem útgáfum; orginallinn, […]

Listen to the Fílalag podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.