Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Að leggja sér músík til munns (Fílalag + SOÐ) 23.11.2018 1:21:36
Fílalag fékk Kristinn Guðmundsson hjá Soð með sér í lið fyrir sinn nýjasta þátt. Á meðan Snorri og Ebbi fíluðu lagið A Whiter Shade of Pale eldaði Kristinn mat sem byggðan er á laginu, en Soð er matreiðsluþáttur. Það er því einnig hægt að horfa á þennan þátt Fílalags, í styttri útgáfu, hjá Soð. A […]
Nákvæmlega – Þegar Suðurland nötraði 16.11.2018 1:09:41
Skítamórall – Nákvæmlega Gestófíll: Sóli Hólm Fílalag fékk sérstakan gest til sín til að útskýra hinn mikla hamfarakrókódíl sem sunnlenska aldamóta-sveitaballapoppið var. Sóli Hólm mætti og nötraði er hann lýsti af áfergju stemningunni í raðhúsapartíi í Hveragerði árið 2000 og fílingnum sem skók allt Suðurlandið á árunum 1997-2002. Já. Þetta var einn stór jarðskjálfti og […]
Just the Way You Are – Brúnhærð, krulluð sjöa 09.11.2018 1:11:51
Farið er á rostungaveiðar í dag. Sjálfur Billy Joel er fangaður og ekki er um lítið skrokk-ummál að ræða. Billy Joel, píanómaður, spelmaður með þykka höfuðkúpu, er dreginn á land, löðraður lýsi. Joel hefur átt nokkur tímabil. Hreinræktaður píanómaður, MTV-brúða en þó ávallt boxari og Bronxari. Og hér er gripið inn í eitt hans mikilvægasta […]
Angel – Gríðarleg árás 02.11.2018 48:37
Massive Attack – Angel Hnausþykkt vax drýpur. Á er skollið hakkaramyrkur. Nú mega vinirnir vara sig. Engillinn stígur niður. Dimmt er myrkur augna. Tortíming er í nánd. Pópúlar músíkk verður ekki dýpri, ekki seigari. Í kolakjallaranum brenna eldar í ofnum. Fílið og deyið.
I Put A Spell On You – Álagsstund 26.10.2018 1:02:59
Það fór fram hópfílun þegar Fílahjörðin mætti við drykkjarstöðvar sínar og stakk sér á bólakaf í tilfinninga-uppnáms-stomperinn I Put a Spell on You. Var lagið bæði mergfílað með höfundi sínum, Screamin’ Jay Hawkins og svo einnig með Creedence Clearwater Revival. Sérhver taug var þanin í þessari fílun. Móða stríðsins. Ofsi afbrýðisseminnar. Ofsóknaræðið og lostinn í […]
Money For Nothing – Ókeypis peningar 19.10.2018 59:01
Árið er 1985. Heimsbyggðin er þyrst í rokk og popp. Kalda stríðið er í gangi en fólk austan járntjaldsins vill snjóþvegnar gallabuxur og ískalt kók. Dire Straits mæta, með sjálfan Sting sér við hlið, og gefa heiminum seðjandi mjólk úr júgrum sínum. Money for Nothing. Um er að ræða bæði upphafningu og ádeilu á MTV-kynslóðina […]
Spirit in the sky – Ljósið við enda ganganna 12.10.2018 55:34
Hvernig ætli stóra ferðalagið sé? Hápunktur allrar lífsreynslu hlýtur að vera sjálf himnaförin. Að klára dæmið og sameinast alheims-andanum. En er hægt að reyna að ímynda sér það? Í velmegunar-skýi sexunnar voru menn og konur allavega komin þangað. Norman Greenbaum fór langt með að koma fólki í nýja vídd með lagi sínu Spirit in the […]
Waterfalls – Jarmið. Gjaldþrotið. Geggjunin. 05.10.2018 1:21:23
Það þurfti ekkert minna en vel-versaðan gestófíl til að afhausa fílinn í herberginu þegar Waterfalls með TLC var tekið fyrir. Sandra Barilli, bransakona, mætti í fílun og fór yfir stóru umfjöllunarefni Níunnar. HIV, dópið, stúlknasveitir og jarmið. Tionne „T-Boz” Watkins, Lisa „Left Eye” Lopes og Rozonda „Chilli” Thomas mynduðu TLC og urðu strax vinsælar, fóru […]
Our House – Afar vel smíðað hús 28.09.2018 1:06:19
Þeir voru sperrtir, glenntir og illa tenntir. Crosby, Stills, Nash og Young, með hassmola í vösum átján hundruð grýlna jakka sinna. Þetta var súpergrúbba – rjómi flower-power menningarinnar, tappaður á þjóðlagapela. Los Angeles. Víetnam-stríðið. Glamrandi gítarar. Alpha-male raddanir. Tónleikasalir fylltir 60s woke gleraugnaglámum. Milljón eyru sperrt. Þvílík stemning. Crosby, Stills, Nash o...
With Or Without You – Leggstu í fósturstellingu, hver sem þú ert, hvar sem þú ert 21.09.2018 1:09:31
Hver ertu? Þú! Hvort sem þú borðaðir bjúga í kvöldmat eða slafraðir í þig fusion-rétti á sushi samba innan um fasteignasala og myndlistarflippara. Hver sem þú ert! Leggstu á malbikið. Láttu þig sökkva. Hvar sem þú ert. Ertu á Sauðárkróki að drekka nýmjólk eftir vakt hjá Rækjuvinnslunni? Ertu lögga með vélindabakflæði? Ertu það? Ertu kristinn, […]
Lust For Life – Lostaþorsti 14.09.2018 1:04:09
Stundum er allt í góðum gír. Allir sáttir. Enginn með vesen. Matur í ísskápnum. Bíómynd í sjónvarpinu. En þá grípur fólk einhver losti. Þorsti í skaðræði, gríðarleg löngun í tortímingu og rassaspörk. Um það fjallar lagið Lust for Life. Það er hin hreinræktaða stemning. Ásókn í romp. Hér er hún mætt: sálarbaseraða, pönk-lúppan – lamin […]
I Wanna Be Adored – Ljónið öskrar 07.09.2018 49:57
Hafið þið verið að fíla Liam Gallagher á netinu? Hafið þið verið að rifja upp 90s fílinginn, anorakkana, sólgleraugun og brit-pop-strigakjaftinn? Gleymið öllu sem þið hafið verið að gösla í. Gleymið öllu, því allt er þetta bara lélegt endurvarp af frumöskrinu. Stone Roses. Þeir mættu með fyrstu plötuna sína 1989. Og Britpop fæddist! Madchester-typpafnykurinn var […]
Myth – Svifryk. Blóð. Brúnar krullur. 31.08.2018 1:05:02
Nú er fjandinn laus. Fílalag er á nálægum slóðum. Í dag er lag úr indíkreðsunni frá 2012 tæklað. Það er Airwaves norpið. Það er fjúkandi Japaninn. Það er strandkofinn í mistrinu. Óhamingunni verður allt að vopni. Eldur úr iðrum, ár úr fjöllum, goðsögnum eyðir. Allt hverfur. Jafnvel mistrið. Það hverfur líka. Ó mistrið. Það sem […]
Walking On Sunshine – Lík dansa 24.08.2018 1:10:42
Fílalag er snúið aftur eftir tveggja vikna hlé. Snorri er nýgiftur og svífur nú um á rósrauðu skýi. Fílun dagsins er því fílgúdd-þykknið sjálft „Walking on Sunshine”. Sjaldan hefur annarri eins rakettu verið spýtt inn í hagkerfið og þessu lagi. Það komast allir í fíling við að heyra þetta lag. Ef þetta lag væri spilað […]
Parklife – Chav-tjallismi 17.08.2018 51:09
Þeim langaði að fanga breska hversdagsstemningu. og þeim tókst það. Blur hlóð í væna wagner-í-eldspýtustokk-exístensíalíska-popp-sápu-óperu, sem þó aldrei rís, heldur kraumar allan tímann eins og skaftpottur á gamalli AGA eldavél í sundurmolnuðu múrsteinshúsi í Longsleddale í Kúmbríu. Um er að ræða bresk tilþrif: gnægtarborð tilvísana, undiröldu og stemningar, í mónótónískum sælgætisumbúðum. Það s...
Nights in White Satin – Pluss-áklæði kynslóðanna 10.08.2018 51:15
Hér verður sigið ofan í þægilegt aftursæti á biblíusvörtum leigubíl sem keyrir í gegnum rigninguna í gljáandi stórborg. Baby by your side. Sexan varð sjaldan jafn sexí, jafn pluss-rafmögnuð. Nögl er dregin eftir silki-áklæði. Svartir olíudropar rigna yfir ljóskerin. Þeim tókst það. Þessum bresku pöbb-stemnings-böllum tókst það. Aldrei vanmeta Breta sem eitthvað bublar í. Hér […]
Narcotic – Nítíuogátta oktana límonaði-sprengja 03.08.2018 1:05:50
Liquido – Narcotic Hér er það komið. Gas allra landsmanna, jagerskota-þrusa. Hér er þrumuguðinn Þór öskurstemmdur upp í skýjunum, klæddur eins og Duff-Man, að hella límonaði-ferskri dísilolíu yfir djammþyrst ungmenni í sumrinu, og kveikja svo í öllu draslinu. Þetta lag gat ekki verið ófílað. Þetta er lag heillar kynslóðar. Cross-over negla úr níunni, þjóðsöngur sem […]
Peggy Sue – Hin mikla malbikun 27.07.2018 1:18:53
Hvernig stendur á því að þetta hefur ekki verið fílað fyrr? Fílunarsaga án Buddy Holly er eins og Nýja testamentið með engum Jésú. En hér er hann loksins tekinn fyrir, smyrjarinn mikli frá Lubbock, Charles Hardin Holley og dyggar krybbur hans. Saga Buddy Holly er saga hinnar miklu malbikunar. Saga þess þegar rokktónlist var breytt […]
Hard to Explain – Rokgjarnt lífrænt efnasamband (live á Húrra) 20.07.2018 51:44
Það kom ekkert annað til greina en að ganga nærri sér á live-fílun frammi fyrir sjálfri Fílahjörðinni. The Strokes var fílað. Hljómsveit sem skóp Fílabræður á sínum tíma. Rokkbylgjan upp úr aldamótum skall hart á Vesturlandabúum og sumir eru enn að seig-freta í þröngar Happy Mondays Dillon hosurnar. Hér er þetta allt tekið fyrir. Brúnu […]
Jack & Diane – Svo basic að það blæðir 13.07.2018 1:15:48
Tottið chili-pylsu og troðið henni í svöðusár frelsarans. Lífið heldur áfram löngu eftir að það hættir að vera spennandi. Í dag verður farið inn í Kjarnann. Haldið ykkur fast. Fyrst smá formáli. Fílalag hefur þrisvar sinnum fjallað um Bruce Springsteen, meðal annars í fyrsta þættinum sínum. Ástæða þess að Springsteen er svo hátt skrifaður hjá […]
What’s Going On – Hvað er í gangi??!! 06.07.2018 1:54:08
Árið er 1971. Alríkisstjórn Bandaríkjanna hefur tekið þeldökk ungmenni í hundruð þúsunda tali úr ryðguðum vonleysis iðnborgum sínum og sent þau í stríð til Asíu to “go and kill the yellow man,” svo vitnað sé í stjórann. Herinn hefur mætt og ítrekað sprautað á liðið með brunaslöngum. Á sama tíma og ísskápar landsins kalkúnavæðast sem […]
Coffee & TV – Alkóríseruð indí-drulla, endastöð, snilldarstöð 29.06.2018 1:06:38
Blur voru ein stærsta popphljómsveit níunnar. Damon Albarn var poppskrímsli sem þefaði uppi stemningu og samdi popphittara. Hann elskaði athygli og poppkúltúr. En innan Blur var líka að finna hreinræktaða indídrullu í formi gítarleikarans Graham Coxon. Og eins og gengur brenndi Blur brýr að baki sér. Það er erfitt að halda sér á popp-toppnum. Og […]
Álfheiður Björk – Ítölsk skíða-ástarjátning borin fram með tómatsósu á Broadway, Ármúla 22.06.2018 55:46
Kapteinn Ahab dó áður en hann náði að sigrast á Moby sínum Dick og lengi hefur litið út fyrir að Fílalag væri ekki að ráða við stóra fiska í íslenskri poppsögu eins og Eyjólf Kristjánsson og Björn Jörund. En viti konur. Hér eru þeir fílaðir báðir í einu. Það er komið að því að fíla […]
All the Things She Said – Hlaðnara en demantanáma 15.06.2018 54:48
Það er við hæfi að fíla lag frá Rússlandi í dag. Og ekkert venjulegt lag. Um er að ræða stærsta smell t. A.T.u, nu-metal popp-gúmmelaði með þjóðdansa-kviðristum. Lag sem er hlaðnara af orku en óopnaður Monster í kælinum við kassann í Elko. En hvaðan kemur þessi rosalega orka sem heyra má í t. A.T.u? Það spilar að […]
Easy – Eðlur. Tunnur. Easy. 08.06.2018 1:06:46
Kjöt hægeldast. Svitadropar merlast á pensilstrokuyfirvaraskeggjum. Afró gljáir. Það eru allir góðir. Þetta er easy. Alabama-kóngar í Los Angeles. Sólrík sjöa. Allt í gangi. Fílunarstig: hátt. Rauð viðvörun. Sérhver taug sperrt. Eldrauð fílunarviðvörun! Þetta er ekki flókið. Þetta er easy.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.