Fílalag

Fílalag

Music IS ↓ 371 episodes

Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.

Author

Fílalag

Category

Music

Podcast website

filalag.is

Latest episode

May 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sódóma – Skyrta úr leðurlíki – Aukaþáttur vegna byltingarinnar 05.04.2016

Extra! Extra! Nú er sendur í loftið sérstakur almannavarnarþáttur Fílalags. Það ríkir óvissa. Skaðmundur er út í horni. Forsetinn flaug heim. Örninn er sestur. Hvað er að gerast? Fílalag ætlar að grípa inn í með örstutta skýringu á ástandinu – en líka með brakandi ferska fílun. Það sem verður fílað er það eina sem getur […]

Gyöngyhajú Lány – Bomba frá Búdapest 01.04.2016

Hafið þið einhverntíman heyrt lag frá Ungverjalandi? Kannski í Eurovision. Það hefur verið eitt af þessum lögum sem Íslendingar pirra sig á – eurotrashað diskópopp með flötu þjóðlagastefi – hallærislegir kósakkadansarar, gervisnjór og stífmáluð díva að syngja ensku með óskiljanlegum hreim. Eitthvað svoleiðis. Þetta að ofan á ekki að skiljast sem diss á Ungverjaland heldur […]

Into The Mystic – Lag sem hefur allt 25.03.2016

Hér höfum við manninn sem gat gert allt: RnB, garage rokk, blues, soul, djass og síkadelíu. Van Morrison er samnefnari sexunnar. Þunni Norður-Írinn sem bara gat ekki annað en slegið í gegn, jafnvel þó persónuleiki hans virðist þola vinsældir illa. Í dag fílum við lag sem hefur þetta allt. Tónlistarlega er það veisla, textalega er […]

Trans Europe Express – Stunde Null 18.03.2016

Klæðið ykkur í vönduð ullarjakkaföt frá Brinchsler & Söhne. Skiptið um koparþræði AKG heyrnartólanna. Setjist í fagurgerðan móderniskan stól úr þýsku geitarleðri. Í dag verður Fílalag á elitista-slóðum. Kraftwerk er fílað í dag. Sjálft orkuverið frá Düsseldorf. Líklega ein frægasta hljómsveit Þýskalands og ein áhrifamesta poppsveit sögunnar. Áhrifin ná langt út fyrir heim raftónlistar. Áhrif [...

Don’t Speak – Ekki segja neitt. Uss. Uss… 11.03.2016

Endurflutt er nú Fílalagsfílun á laginu Don’t Speak með No Doubt. Lagið var fyrst fílað 2014 en er nú sett aftur inn á netið eftir að hafa verið ósækjanlegt með öllu. Don’t Speak er 90s negla af seigu sortinni. Að sjálfsögðu er lagið fyrst og fremst poppsmellur með tilheyrandi froðubaði og easy listening elementum en í […]

Drive – Að skera myrkrið 04.03.2016

Nýrómantík er hreyfing í listum. Í bókmenntum reið tímabilið yfir á síðari hluta 19. aldar og lifði eitthvað fram á 20. öldina og tekur svo auka-hiksta öðru hvoru. Nýrómantík einkennist af enn meiri dramatík en hefðbundin rómantík – stundum eru öfgarnar svo miklar að það virkar eins og grín. Dæmigerður nýrómantíkus klæðir sig í óperulegan […]

Égímeilaðig – Fyrir tíma Tinder 02.03.2016

Fílalag heldur áfram að róta í gullkistunni og sendir hér aftur út þátt frá í mars 2014 sem ekki hefur verið fáanlegur á netinu í langan tíma. Maus var stofnuð fyrir rúmum tuttugu árum og varð strax mjög vinsæl, bæði meðal gagnrýnenda og einnig almennings. Maus spiluðu kúl alternative rokk, mikið undir áhrifum frá bresku […]

Paper Planes – Einn á lúðurinn frá London 26.02.2016

Fílalag fílar níu ára gamalt lag í dag. Hér er um að ræða einn stærsta smell ársins 2007: Paper Planes með M.I.A. Engin borg gefur hann eins góðan og London. Það er margreynt. Síðasti skammtur London kom á síðasta áratug þegar Amy Winehouse, Libertines og M.I.A. riðu röftum. Þá var gaman. Klæðið ykkur í krampaþröngar Cheap […]

Without You – Til hvers að lifa? 24.02.2016

Without You kom fyrst út með hljómsveitinni Badfinger árið 1970. Það sló ekki í gegn. Höfundar lagsins, Pete Ham og Tom Evans urðu síðar óhamingju að bráð. Líf þeirra beggja endaði með sjálfsmorði. Ári síðar gaf Harry Nilsson það út og breytti því í risasmell. Nilsson átti líka tiltölulega erfiða ævi. Hann lést úr hjartaáfalli […]

Time Of The Season (LIVE á Húrra) – Sexí nördar 19.02.2016

The Zombies voru enskir gleraugnanördar í rúllukragabolum. Sem betur fer voru þeir uppi in the 60s þannig að það var kúl að vera nölli í rúllu á þessum tíma. Nördar eru líka sexí. Ef vel tekst til er útkoman æðisgengin búkhljóða-flower-power eilífðarnegla. Þessi þáttur Fílalags var tekinn upp á skemmtiðstanum Húrra að viðstaddri Fílahjörðinni. Við […]

Hungry Heart – Glorhungrað hjarta 12.02.2016

Að vera svangur er mannlegasta lífsreynsla sem til er. Það hafa allir gengið í gegnum það og því geta fylgt gríðarlegar tilfinningar. Að vera svangur er reyndar meira en mannlegt – dýrin verða líka svöng. í raun er ekkert jafn eðlilegt í heiminum og myndskeið sem sýna ljón tæta í sig sebrahesta og slafra blóðugar […]

I Was Made For Loving You (Gestófíll: Ari Eldjárn) – Konungar sellátsins 05.02.2016

Það er rokk í þessu, það er diskó í þessu, það er dramatík sem hæfir óperu en samt er þetta látlaust og smurt. Svona mætti lýsa laginu sem er til umfjöllunar í Fílalag í dag. Hljómsveitin er að sjálfsögðu Kiss og lagið er „I Was Made For Loving You“ sem kom út á plötunni Dynasty […]

Hlið við hlið – Þegar Friðrik Dór sló í gegn 29.01.2016

„Hlið við hlið“ var fyrsti útvarpssmellur Friðriks Dórs. Það kom út haustið 2009 og hefur síðan þá verið maukfílað af fólki úr öllum stéttum íslensks samfélags. Nú er komið að því að tala um þetta lag í góðar 40 mínútur og krefst það greiningar á íslenskri ungmenningu síðustu 15 ára. Fílalag býður ykkur í ísbíltúr, […]

Smack My Bitch Up – Skilaboð fyrir heila kynslóð 22.01.2016

Fáar hljómsveitir settu jafn skýran svip á unglingamenningu níunnar (90s) og Liam Howlett og félagar í The Prodigy. Bandið gaf út þrjár metsöluplötur á áratugnum: Experience (1992), Music for the Jilted Generation (1994) og svo að lokum The Fat of the Land (1997) þar sem óskammfeilnin var orðin slík að það krefst sérstakrar dægurfræðilegrar greiningar. […]

My Sweet Lord – Hare krishna, hallelúja! 15.01.2016

George Harrison sat ekki auðum höndum eftir að hann hætti í Bítlunum. Lík Bítlanna var ekki einu sinni komið niður í stofuhita þegar hann var búinn að negla heimsbyggðina með risasmellinum „My Sweet Lord“. Lagið er risastórt á alla vegu. Útsetningin er megalómanísk enda Phil Spector pródúser lagsins, persónur og leikendur voru ekki af verri […]

Wild Is The Wind – Tímalaus vindurinn 14.01.2016

Fyrir aðeins nokkrum dögum síðan grunaði fáa að David Bowie væri feigur. Hann var ekki eins og hinir poppararnir, byrjaður að glamra sig niður í fortíðarþrá með þrútin augu. Þvert á móti. Bowie var agaður og sperrtur allt fram á síðustu stund. Í apríl árið 2014 var Bowie tekinn fyrir í Fílalag. Þá voru menn grunlausir […]

Alright -Kálfum hleypt út 08.01.2016

Eitt sterkasta afl í heiminum nefnist ungæði. Þrátt fyrir ýmsar fregnir af öðru þá elskar ungt fólk yfirleitt lífið því þegar maður er ungur hefur maður ekki áhyggjur af því að vera gamall. Að vera gamall er bara eitthvað sem gamalt fólk gerir. Þetta virkar einfeldningslegt og þess vegna er ungæði svona áhrifamikið. Hljómsveitin Supergrass […]

The Night They Drove Old Dixie Down – Sundlaugarbakki í Hollywood 1969 02.01.2016

Ef tónlistarsagan væri eldhús þá er hljómsveitin The Band bjórinn í ískápnum og það er í raun ótrúlegt að Fílalagsmenn séu ekki búnir að kneyfa hann fyrr. En nú verður það gert. The Band í öllu sínu veldi með eitt sitt stærsta lag: The Night They Drove Old Dixie Down frá 1969. The Band voru […]

Er líða fer að jólum – Bjargvætturinn í rúllustiganum 18.12.2015

Hið fullkomna jólaskap er hátíðarblanda af kvíða og tilhlökkun. Það er ekkert gaman að jólunum nema klifrað sé upp og niður tilfinningastigann í aðdraganda þeirra. Í dag verður íslensk jólaskammdegis-negla fíluð. Er líða fer að jólum er skapað af heilagri þrenningu íslenskrar dægurtónlistar: Ómar Ragnarsson samdi textann (faðirinn). Gunnar Þórðarson samdi lagið (sonurinn) og Ragnar […]

Try A Little Tenderness – Ofnbökuð lagkaka 27.11.2015

Fílalag höndlar afar þungan hníf í þætti dagsins. „Try a Little Tenderness“ er einn helsti soul-slagari allra tíma, var meðal annars einkennislag kvikmyndarinnar The Commitments sem ærði ungmenni um allan heim í upphafi 10. áratugarins. En lagið á sér langa sögu og var meðal annars flutt af Frank Sinatra árið 1946 og er því gerð […]

Killing In The Name Of – „Fuck you I won’t do what you tell me“ 20.11.2015

Hvert er hið eiginlega einkennislag síð X-kynslóðarinnar/early milennials? Er það Smells Like Teen Spirit. Iiih. Núll stig. Giskið aftur. Er það Under the Bridge? Gleymið því. Svarið er að sjálfsögðu Killing in the Name af fyrstu plötu Rage Against the Machine, sem er fílað niður í mólekúl í þessum þætti Fílalags. „Þetta er lag sem […]

Wooly Bully – Með lampaskerm á hausnum 06.11.2015

Árið er 1965 og við erum stödd í Texas. Ímyndið ykkur partí sem farið hefur úr böndunum. Blindfullir tvítugir hálfvitar ráfa um amerískt úthverfahús. Sumir hafa sett lampasker á hausinn á sér. Baðkarið er fyllt með ísmolum til að kæla flöskubjóra en þar liggur einnig hálfrotaður náungi, fljótandi í hálfu kafi í ísvatninu. Inn í […]

(You Make Me Feel Like A) Natural Woman – Að finna til legsins 30.10.2015

Aretha Franklin eignaðist sitt fyrsta barn þegar hún var rúmlega fjórtán ára. Þegar hún var 21 árs var hún þriggja barna móðir. Pabbi hennar var predikari. Hún fæddist í suðrinu en ólst upp í Detroit. Rödd hennar spannar Ameríku; Gleðina, þjáninguna, eplapæið á gluggakistunni, tækifærin, þöggunina. (You Make Me Feel Like a) Natural Woman verður […]

Für Immer – Að eilífu: Súrkál 23.10.2015

Að vera rokkari snýst um að jarða rokkið. Hamra á gítarinn eins og það sé í síðasta skipti sem hann er hamraður. Ef maður gefur ekki allt sitt í hvern tón þá getur maður alveg eins sleppt því að vera rokkari og snúið sér að útgáfu matreiðslubóka. Það sama á við þegar maður hlustar á […]

La Décadance – Mount Everest fegurðarinnar 16.10.2015

Í nýjasta þætti Fílalags er fjallað um Serge Gainsbourg. Um hann þarf ekki að hafa mörg orð hér. Hann var einfaldlega fjallið eina. Tónlistarmaður sem var jafn mikill Frank Sinatra og hann var Dylan. Risastór, þverstæðukenndur og sérstakur. Saga hans er saga dekadantisma í poppkúltúr. Hann var siðferðislegt hrun og þeirri yfirlýsingu fylgir engin vandlæting. Lagið […]

Listen to the Fílalag podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.