Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
In The Air Tonight – Farið í ullarsokka og fyllið munninn af húbba búbba 02.10.2015 34:00
„Við höfum margoft verið beðnir um að fíla „In the Air Tonight“ með Phil Collins,“ segir Bergur Ebbi í nýjasta þætti Fílalags þar sem orðið var við þeirri beiðni. „Það er soldið eins og að biðja mann um að draga andann. Það er eiginlega of sjálfsagt til að maður geti einbeitt sér að því,“ segir […]
Layla – Guð, gítar, kjuðar, dramb, ást, þrá, hamar, hnífur 25.09.2015 52:39
Sagan sem sögð er í nýjasta þætti Fílalags er líklega ein sú stærsta í rokksögunni. Þátturinn fjallar um Laylu, blúsrokk-neglu Eric Claptons og félaga sem teygði sig nokkuð nálægt himinskautum og er enn þann dag í dag talin með metnaðarfyllstu tónverkum sem rafmagnsgítarinn hefur smíðað. „Þetta er náttúrulega nánast því oftuggið tyggjó en það kemur […]
Síðan hittumst við aftur – Helgi Björns og vatnstankurinn 18.09.2015 42:36
Bergur Ebbi og Snorri Helgason taka fyrir lagið Síðan hittumst við aftur í nýjasta þætti Fílalags. Sveitaballapopp var nafn á íslenskri tónlistarstefnu sem nú hefur að mestu liðið undir lok. Hún náði hámarki um síðustu aldamót þegar hljómsveitir eins og Á móti Sól, SSSól, Í svörtum fötum og Írafár sendu frá sér metnaðarfull lög og myndbönd. […]
Man In The Mirror – Poppið og konungur þess 11.09.2015 1:07:38
Shamone. Fílalag stendur á tímamótum. Allt hefur verið gert. Konungur rokksins hefur verið fílaður. Glamrokk prinsinn hefur verið fílaður. Stjórinn hefur verið fílaður. Margir hafa verið tilnefndir. Flestir hafa verið maukfílaðir. En nú er komið að aðalréttinum: konungi poppsins. Við erum að tala um hanskakanslarann, sjálfan Michael Jackson, konung popp músíkur. Það verður ekki ráðist í neitt obsc...
You’re So Vain – Kona lætur karlana heyra það 14.08.2015 31:09
Carly Simon gaf út lag sitt, You’re So Vain, árið 1972. „Hún er 27 ára þegar þetta lag kemur út en samt er þetta rosalegt uppgjör við fortíðina. Það er eins og hún hafi lifað margar ævir þó hún sé ekki eldri en þetta,“ segir Bergur Ebbi í þessum nýjasta þætti Fílalags þar sem þessi […]
Please Don’t Let Me Be Misunderstood – Að rista á hol og græða á því 26.06.2015
The Animals komu frá Newcastle á Englandi. Músíklega má segja að Newcastle sé einskonar Liverpool fyrir lengra komna. Newcastle liggur nokkrum gráðum norðar, er nokkrum stigum blúsaðara og tónlistin sem kom þaðan endurspeglaði það. Í þessum nýjasta þætti Fílalags er farið beint í hjartað á British Invasion bylgjunni í tónlist sem er það merkilega fyrirbæri […]
Dancing On My Own – „Ég er út í horni og horfi á þig kyssa hana“ 12.06.2015 37:23
Robyn gaf út Dancing on My Own árið 2010 en það lifir enn góðu lífi á skemmtistöðum og heimapartíum út um allan heim. Lagið er tragískur diskóstompari, stútfullt af dansvænni örvæntingu og metrósexúalískri sænskri fegurð. Það er ekki annað hægt en að fíla kjötsöxuðu bassaynthalínuna, yfirkeyrðan vocal-trackinn og chorus-bestunina. Sagan í textanum er mannleg og […]
I Wanna Be Your Dog – Sturlaði táningurinn Detroit 05.06.2015 50:17
Ef Bandaríkin væru fjölskylda og borgir landsins fjölskyldumeðlimir þá væri Detroit sturlaði táningurinn. Það sem meira er: Detroit er eilífðartáningur. Vandræðagemsinn sem mætir heim til aldraðra foreldra sinna í leðurjakka og drepur í sígarettu á Drottinn blessi heimilið skiltinu og skipar föður sínum að fara út og kaupa bland og mömmu sinni að búa til […]
Sound of Silence – Gæsahúð handa þér 01.05.2015 35:49
Það var heitt á könnunni. Það var heitt á pönnunni. New York ómaði af þjóðlagatónlist. Alpahúfurnar bærðust í vindinum og vindurinn boðaði breytingar. Paul Simon, ungur lagahöfundur frá Queens, var til í þetta og vinur hans fékk að vera með. Þeir boðuðu óm þagnarinnar. Hér er til fílunar Sound of Silence. Ein mesta gæsahúðarsprengja tónlistarsögunnar. […]
Criticism as Inspiration – „Sex mínútna langur hengingarkaðall“ 24.04.2015 41:38
„90’s var tími öfga í tónlist. Það sem var að seljast var annaðhvort öfga hedó-popp eins og 2Unlimited eða öfga rokk um sjálfstortímingu eins og Nine Inch Nails. Það var annaðhvort grunna laugin eða hyldýpið, ekkert pláss fyrir venjulegt svaml. En þegar rykið var að setjast voru margir í sárum. Heil kynslóð var sködduð. Meðal […]
Too Much Monkey Bussiness – „John Lennon var með berjasósuna á heilanum“ 17.04.2015 38:48
„Við erum að fíla „Too Much Monkey Business“ hérna. Þarna er þetta að hefjast. Holden Caulfield er búinn að marinerast í nokkur ár þarna og Rebel Without a Cause með James Dean er ennþá heit í kvikmyndasýningavélunum. Það þurfti bara smá push til að klára málið og Chuck Berry sá um það,“ segir Bergur Ebbi […]
Da Da Da – Poppheimurinn sigraður 20.03.2015 36:19
Í dag fara Fílalagsbræður í skemmtilegt ferðalag um heim popptónlistar þar sem við sögu koma Bítlarnir, Mannfred Mann og Michael Jackson. Staðnæmst er við árið 1982 þegar Jackson gaf út Thriller, sem er mest selda plata allra tíma, en það er ekki lag af þeirri plötu sem er til umfjöllunar í þættinum. Það merkilega við […]
Maggie May – Graðasti maður breska samveldisins neglir heiminn 13.03.2015 48:47
„Árið 1971 var Rod Stewart einfaldlega nítrólýserín dýnamít-túba ready to explode. Það er bara þannig,“ segir Snorri Helgason í nýjasta þætti Fílalags þar sem fyrsti hittari Rod Stewarts, Maggie May, var fílaður með pompi og prakt. „Á þessum tímapunkti er hann búinn að gera góða og stöðuga hluti með öllum helstu spöðunum í breska tónlistarheiminum […]
Hefnófíl 07.03.2015 1:14:19
Fílalag bauð Hefnendunum Hugleiki og Jóhanni Ævari í þátt sinn. Hefnendurnir yfirtóku þáttinn með nördamennsku sinni og fóru að rífast um endurgerðir á kanadískum unglingasápuóperum en loks hófst lagafílun. Hugleikur fílaði lag úr 40 ára gamalli breskri kvikmynd þar sem söngkonan flengir sig í rassinn á meðan hún syngur serenöðu til lögreglufulltrúa sem þjáist af […]
Say it ain’t so – Normcore krakkar þurfa að kæla sig 07.02.2015 53:02
„Menn eru eitthvað að tala um normcore í dag eins og það sé hin ultimate hipstera-kaldhæðni. Að klæða sig í kakí-buxur og hvíta strigaskó úr Hagkaup og drekka Egils Gull og ropa í aftursætinu á Volkswagen Golf. Eins og það sé prógressívt artistict statement. Jú jú. Kaldhæðnin er ekki meiri en svo að þetta er […]
The Letter – Maðurinn sem breytti heiminum nýkominn með punghár 30.01.2015 43:06
„Sko. Höfum það á hreinu að Alex Chilton var 16 ára þegar hann söng þetta. Hann var nýkominn með punghár og fór beint í efsta sætið og þetta er samt ekkert barnastjörnu dæmi. Þetta er fullorðins soul-shaker. Hann hljómar eins og lífsreyndur fjárhættuspilari og kvennabósi en í raun var hann nýkomin úr fermingarkirtlinum,“ segir Bergur […]
If I Can Dream – Elvis og hinn þríréttaði ameríski draumur 23.01.2015 38:33
„Þegar Elvis dreymir þá er ekkert annað á matseðlinum en ameríski draumurinn þríréttaður borinn fram á húddinu á rjómahvítum Cadillac. Það er bara þannig. I rest my case,“ segir Snorri Helgason í nýjasta þætti Fílalags en umfjöllunarefnið er handhafi sjálfrar kórónunnar: Elvis Presley. Lagið sem er til umfjöllunar er ekki neitt entry-level Presley-Pleasure. Nei nei […]
Summer of ’69 – Þrír menn hafa bitið af sér neðri vörina við að heyra þetta 16.01.2015
„Fyrir nokkrum árum fóru menn að tala um konseptið „denim-on-denim“ í merkingunni að klæðast gallabuxum og gallajakka og fóðra sig alveg með denim. Þetta er alveg gott og blessað og fínt að hipsterar hafi fundið svona krúttlegt nafn fyrir þetta en þetta er líka soldið pínlegt því þetta konsept hefur verið kallað „kanadísk kjólföt“ um […]
To Know Him Is To Love Him – Fimma. Flauel. Angurværð. Teen Dream. Bangsi lúrir. 22.08.2014 57:59
„ Yfirvofandi“ er fyrsta orðið sem kemur upp í hugann þegar hlýtt er á „To Know Him is To Love Him“ sem er fyrsti smellur (af mörgum) úr smiðju Phil Spectors. Yfirvofandi, því þrátt fyrir angurværð lagsins sem svífur undursamlega inn í vitundina úr flaueli fimmunnar, þá finnur maður kraumandi sturlunina. Phil Spector er í […]
Daniel – Teppalagning úr Sjöunni 20.06.2014 38:04
Grafið er í fílabeinskistuna og gullmoli sóttur. Umfjöllun um eina torræðustu teppalagningu allra tíma. Daniel. Lagið fjallar um Víetnam-hermann, þó það komi hvergi fram í textanum. Textinn er raunar mjög undarlegur – enda vissi Elton John lítið um hvað textinn átti að þýða. Sú er raunar oft raunin með Elton John, en eins og flestir […]
Racing In The Streets 01.03.2014 1:17:14
Snorri og Bergur Ebbi ræða um Racing in the streets með Bruce Springsteen.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.