Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Sveitin milli sanda – Lokasenan 16.09.2016 43:59
Það er varla til íslenskara lag en Sveitin milli sanda. Samt er lagið framandi. Það minnir á dollara-vestra. Eða japanskt geishu-partí. Eða Miami kalypsó-sitdown. Í Sveitinni mætast menningarheimar. Einnig tímaheimar. Þetta lag tónskáldsins Magnúsar Blöndal Jóhannsonar er tímalaust. Ekki skemmir svo fyrir að ástsælasta söngkona Íslands söng það. Það er söngur eddunnar, álfkonunnar eða bara […...
Albatross – Svifið fram af brúninni 09.09.2016 1:15:37
Fleetwood Mac þekkja allir. Undanfarin tíu ár hefur það verið hipstera-standard að hlusta á adult contemporary stöffið frá síðla-sjöu Fleetwood Mac og fíla það beint upp úr sósupakkanum.
Golden Brown – Velkomin inn í móðurkvið 02.09.2016 1:01:09
Fílalag fjallar um The Stranglers í dag og fíla lag þeirra Golden Brown. Lagið á sér fáar hliðstæður í músík. Það er einstakt. Það fjallar víst um heróín, en í stærra samhenginu má segja að það fjalli um að skríða aftur inn í móðurkvið. Lagið er einstakt því það er skrítin blanda af barokk og […]
Týnda kynslóðin – Núna beygla allir munninn 26.08.2016 48:49
Nú eru engir sjénsar teknir hjá Fílalag og músík tekin fyrir sem allir Íslendingar yfir tólf ára aldri hafa öskursungið. Nú er það bjart, maður minn, ekki ský á himni enda ein stærsta íslenska negla 9. áratugarins undir mónó-nálinni. Lag sem kitlar okkur flest í innanverð hjartahólfin. Týnda kynslóðin finnur sig sjálf þegar hún heyrir […]
Survivor – Velgengni, Já takk 19.08.2016 59:14
Bandaríkin verða seint talinn aumingjadýrkendur meðal þjóða. Þvert á móti. Í Bandaríkjunum er málið að vera harður af sér, vera eigin gæfu smiður, sækja sigrana, hlaða í kringum sig snilld og básúna svo út sigurópin þannig að öll veröldin heyri. Mont er svo langt frá því að vera tabú í Bandaríkjunum. Það er dyggð. Við […]
In The Court Of The Crimson King – Stærsta lag allra tíma 12.08.2016 24:35
Fílalag dregur nú fram eina af sínum mikilvægustu fílunum. Í dag heyrum við fílun á lagi sem breytti sögunni. Ekki bara tónlistarsögunni heldur veraldarsögunni. King Crimson var ein af fyrstu „prog“ hljómsveitunum. Þetta voru böndin sem vildu meina að rokktónlist væri miklu meira en „yeah yeah yeah baby let’s rock yeah baby“. Þessir gæjar tóku […]
The Killing Moon – Undir drápsmána 04.08.2016 46:12
Echo and the Bunnymen voru mjóir nýbylgjurokkarar frá Liverpool. Ræfilslegir en hrokafullir töffarar í leðurjökkum með sólgleraugu og sígarettur. Er til eitthvað dásamlegra? Eitt þeirra frægasta lag er í fílað í dag, The Killing Moon, nýrómantískt spangól um ást, ofbeldi og dramatík. Þetta er músík sem alkóhólíseraðir dagskrárgerðarmenn fíla. Ölstofu-sötrandi, hrokafullir en kjökrandi lover-boys....
Aldrei fór ég suður – Kóngurinn kortlagður 28.07.2016 1:15:13
Fílalag heldur áfram poppgreiningum sínum og stingur nú heygöfflum sínum í einn stærsta binginn í hlöðunni. Bubbi Morthens er fílaður í dag. Hann er fílaður í öllum sínum litbrigðum. Hann er fílaður í bleiku, brúnu og bláu. Hann er lofaður með hljómandi skálabumbum. Hann er lofaður með hvellum skálabumbum. Lagið? Aldrei fór ég suður. Lykillinn […]
Born Slippy .NUXX – Smyrjið glow-stick kvoðu á heilann 22.07.2016 1:02:15
Takið fram glowstick vörur. Litið líkama ykkar í neonlitum. Setjið á ykkur ljótan veiðihatt. Klæðist peysu. Hringið í versta fólk sem þið þekkið. Takið svo heilann úr höfði ykkar og setjið ofan í Kitchen Aid blandara. Þrýstið á „liquify“. Þetta er tæplega átta mínútna ferli. Svipað ferli og fer í gang þegar hlustað er á […]
A Case Of You – Gúmmítöffarar þagna 15.07.2016 56:58
Joni Mitchell er ein af stóru stjörnunum á himinhvolfinu. Tónlistarkonan sem listamenn eins og Bob Dylan og Prince grétu sig í svefn yfir. Hæfileikar hennar eru svo óumdeildir að það er engin ástæða til að gera þeim neitt frekari skil. Tónlist Joni Mitchell er þannig að gúmmítöffarar – náungar sem eru búnir að vera með […]
Dirt Off Your Shoulder – Dustið ryk af öxlum yðar 08.07.2016 47:20
Fílalag fer út fyrir þægindasviði í dag og fjallar um rapp í fyrsta skipti. Viðfangsefnið er að sjálfsögðu nasavængja-meistarinn Jay-Z. Ákveðið var að fara inn í miðju hans farsæla ferils og fíla Dirt off My Shoulder af Black Album frá 2003. En auðvitað er líka fjallað um fyrri og síðari tíma Jay-Z. Þegar hann var […]
Riders On The Storm – Baðkarið – Blessunin – Smurningin 01.07.2016 59:51
Í þessum þætti Fílalags verður fjallað um einhvern bragðmesta og klístrugasta súputening rokksögunnar. Hljómsveitina Doors. Þar fór saman ljóðasköddun, djassgeggjun ásamt vænum skammti af blús, bæði í tónfræðilegum og sálfræðilegum skilningi. Ævintýrið – sem hófst innan um bikini-babes á Venice Beach í Los Angeles og endaði í baðkari í Marais-hverfi Parísar – var tónlistar- og […]
Eternal Flame – Að eilífu, kraft-snerill 24.06.2016 57:30
Fílalag grefur í Fílabeinskistuna á þessum föstudegi og töfrar fram umfjöllun sína um eitt stærsta lag ársins 1989. Stúlknasveitin Bangles með kraftballöðurýtinginn Eternal Flame. Ef þið hafið ekki heyrt þennan þátt skuluð þið klæða ykkur í hvítan síðan kjól, bleyta ykkur vel um hárið og bjóða öllum helstu ættingjum niðrí Háteigskirkju því þið eruð að […]
Live Forever – Brekkusöngur alheimsins 17.06.2016 39:04
„Hann kom, sá og sigraði“ var sagt um Sesar. Um Oasis er óþarfi að nota þrjú orð. Þeir komu hvorki né sáu, þeir sigruðu bara. Þeir voru alltaf þarna, Manchester ræflar með kjaft. Það gerðist ekkert fyrir þá eftir að þeir urðu frægir. Þeir voru bara í sömu peysunum, sömu anorökkunum og með sama kjaftinn. […]
Dream On (Gestófíll: Árni Vil) – 18 tommu munnur 13.06.2016 31:53
Aerosmith er tekið fyrir í nýjasta þætti Fílalags. Þar er fjallað um kjaftana, leðrið, hattana og músíkina. Sérstakur gestófíll er Árni Vilhjálmsson, sem flaug alla leið frá Reykjavík til Toronto fyrir þessa 28 mínútna fílun. Aerosmith eru með þeim seigustu í bransanum. Þeir hafa teygt á sér höfuðleðrin, elskast á trommuhúðum og þuklað á gítarhálsum […]
Guiding Light – Ómenguð rockabilly þráhyggja 10.06.2016 44:32
Hvað gera Bandaríkjamenn ef að bíll selst vel? Þeir framleiða meira af honum? Hvað þýðir að framleiða meira af honum? Framleiða fleiri eintök en líka að láta vera meira í hverju eintaki. Stærri vél, fleiri hestöfl, fleiri glasahaldarar, stærri stuðarar, dekkri rúður, þykkari leðurinnrétting o.s.frv. Þetta er saga amerískrar neyslumenningar og þetta er líka saga […]
Angie í Brussel ’73 – Besti flutningur allra tíma 27.05.2016 41:58
Fílalagsmenn eru engir sérstakir tónleikaupptökuperrar. Yfirleitt eru tónleikaplötur hundleiðinlegar svo það sé sagt hreint út. En stundum eru tónleikaupptökur miklu betri en orginallinn. Það á við hérna hjá Stónsurunum.
Popular – Að éta eða vera étinn 20.05.2016 44:25
„Þetta lag er kirsuberið á toppi þeirrar köku sem amerísk 90s unglingamenning gekk út á. Boðskapurinn var: ekkert skiptir máli nema vinsældir, sem eru í eðli sínu köld skilaboð sem hafa þá lógísku niðurstöðu að í raun skiptir ekkert máli í lífinu nema að éta eða vera étinn.“ Þetta kemur fram í nýjasta þætti Fílalags […]
Sweet Dreams – Alvara poppsins 13.05.2016 1:07:50
Árið 1983 var popp farið að taka á sig alvarlega mynd. Fullt af poppstjörnum voru dánar langt fyrir aldur fram vegna ofneyslu. Fleetwood Mac var byrjað að vaða kókaínsnjóskafla upp á nafla, Ozzy var búinn að fara í sína fyrstu meðferð, John Lennon var myrtur af brjáluðum aðdáenda. Það hefur enginn sagt að poppið sé […]
2 H.B. – Roxy Music útkall 06.05.2016 1:01:45
Mikið uppnám varð í herbúðum Fílalags í vikunni. Snorri sendi Bergi Ebba skilaboð. Í þeim stóð orðrétt: „Trommarinn í Roxy Music var að senda mér e-mail. Þurfum að taka upp þátt NÚNA“. Málið er útskýrt betur í þættinum. Lagið sem er tekið fyrir er af fyrstu Roxy plötunni frá 1972. Strákarnir fara yfir allt það […]
The Bad Touch – Tveir mínusar verða plús 02.05.2016 36:45
Fílalag endurflytur nú þátt sinn frá 2014 um lagið „The Bad Touch“ með Bloodhound Gang. Hér er allt gert rangt tónlistarlega. Bandarískt frat-boy band með söngvara sem hefur raddsvið upp á tvær nótur að spreyta sig á euro-poppi. Hvað gæti hugsanlega farið úrskeiðis? Allt.
Don’t Try To Fool Me – Ekki reyna að djóka í mér 29.04.2016 54:05
Hann var ljóðskáld, hann var myndlistarmaður og hann var einn af fremstu lagahöfundum Íslands. Jóhann G. Jóhannsson er til umfjöllunar í þessum nýjasta þætti Fílalags og hvað annað verður tekið fyrir en 1973 neglan „Don’t Try To Fool Me“.Við erum ekki að reyna að djóka í ykkur. Lagið er svo stórt að það er eiginlega […]
99 Luftballons – Gasblöðrur. Gaman. Tortíming. Ást. 22.04.2016 36:21
Allir þekkja 99 Luftballons. Það er eitt frægasta 80s lagið. Fílgúdd með synthum og allir glaðir. Og lagið er kannski fyrst og fremst um gleði, æsku og fjör. En blaðran er blásin stærra en það. Lagið er líka um kalda stríðið, tortímingu, völd, græðgi, kommúnisma en reyndar fyrst og síðast um ástina. Gasblöðrurnar 99 eru […]
Wicked Game – Ljóti leikurinn 15.04.2016 32:45
Árið er 1990. Rockabilly endurvakning ríður röftum í Los Angeles. David Lynch er að dúndra út skrítnum kvikmyndum með sætum krökkum og 50s músík. Ef þú ert stelpa er málið að vera í hvítri blússu og helst líta út eins og Andésína Önd. Ef þú ert strákur áttu að vera með barta, sunburst litaðan Gibson […]
Changing of the Guards – Síðasta útspil Timburmannsins 13.04.2016 1:13:03
Bob Dylan er sá stærsti. Hann er stærri en Bítlarnir, stærri en Elvis, stærri en Stones. Þetta er ekki sagt á mælikvarða plötusölu eða hefðbundinna vinsælda heldur á grunvelli ídeólógíu. Í tónlist Bob Dylan býr stærsta hugmyndafræðin. Þegar Bob Dylan gaf út sína fyrstu plötu árið 1962 þá miðlaði tónlist ekki hugmyndafræði nema í örfínu […]
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.