Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Pale Blue Eyes – Fölbláu augun 03.03.2017 59:08
Fílalag eyðir tíma í grunnbúðunum í þætti dagsins. Velvet Underground. Pale Blue Eyes. Hér er farið yfir hvað var í gangi í New York 1968. Samruni mynd- og tónlistar, há- og lágmenningar. Sólgleraugun, afstaðan, stemningin. Textinn er krufinn. Þetta er einfaldur texti en inniheldur nokkrar óskiljanlegar línur. En umfram allt er lagið fílað, enda er […]
Wind Of Change – Líklega eitt það allra stærsta 24.02.2017 1:19:27
Hvað gerir tónlist stóra? Vinsældir? Já. Það er einn mælikvarði. Stórt sánd? Það skiptir líka máli. Stór umfjöllunarefni? Langlífi og vigt sem nær út fyrir poppkúltúr? Það er kannski allt heila málið. Lagið sem fílað er í dag er ein söluhæsta smáskífa allra tíma. Talið er að hún hafi selst í um fjórtán milljónum eintaka. […]
Lover, You Should’ve Come Over (Gestófíll: Valdimar Guðmundsson) – Djass og fokk 17.02.2017 1:12:02
Sérstakur gestófíll: Valdimar Guðmundsson Jeff Buckley var með allt. Lúkkið, lögin, sándið og líka stöðugan og vaxandi meðbyr innan bransans. Svo þurfti hann að hoppa út í Mississippi-fljótið og drukkna af slysförum. Það er einn einkennilegasti rokk-dauði tónlistarsögunnar, því sjálfsmorð var það ekki og hvorki Jack Daniels né pillur voru heldur sjáanlegar. Hann skildi okkur […]
Losing My Relegion – Remkex 10.02.2017 1:01:51
Hvað getur maður sagt um R.E.M? Eitt mesta cross-over band allra tíma. Fór frá því að vera þunglyndismúsík fyrir holuhassreykjandi lopapeysulið frá Portland, Oregon yfir í fullt stím með Bylgjulestinni. Ekki einu sinni U2 hefur sent jafn langa stoðsendingu. Galdur R.E.M. er að þetta er djúpfílanleg músík. Þetta eru nöllar með sterka listræna sýn, helling […]
Í sól og sumaryl – Íslenskt sumar, í brúsa 03.02.2017 45:47
Hér er það komið. Íslensk sumarstemning, soðin niður í tveggja mínútna popplag. Í sól og sumaryl er lag sem leynir á sér. Það er einfalt og grípandi, en einnig haze-að og einstaklega grúvandi útsett og flutt. Það var neglumeistarinn Gylfi Ægisson sem samdi lagið, og var hann þá staddur á Akureyri. Þetta er norðlenskt og […]
Holding Back The Years – Gamli góði Rauður 27.01.2017 40:53
Hafið þið einhverntíman átt bíl og skírt hann nafni? Ef hann er rauður er mjög líklegt að hann hafi einfaldlega fengið það nafn: Rauður. Það sama á við um Mick Hucknall, söngvara Simply Red. Hann er einfaldlega Rauður. Hér er hann mættur til okkar. Rauður og einfaldur. Með norður-enskan sálarsöng eins og hann gerist bestur. […]
I Love Rock N Roll – Hurð sparkað upp (í tuttugasta skipti) 20.01.2017 53:30
Farið frá. Hún er komin. Það eru læti. Það er stemning. Við erum að tala um Joan Jett og svörtu hjörtun hennar. Af hverju er alltaf verið að opna veitingastaði með rokk-þema? Glymskratti í horni, gullplötur á veggjum, cadillac-sjeikar og curly fries? Vegna þess að það er stemning. Rokk er stemning. Rokk er besta stemningin. […]
Give it away – Red Hot Upphitun 19.01.2017 38:32
Í ljósi þess að Red Hot Chili Peppers muni mæta til Íslands í sumar hefur verið ákveðið að grafa mjög djúpt í gullkistu Fílalags til að hita upp fyrir tónleikana. Um er að ræða einn af fyrstu Fílalagsþáttunum. Strappið á ykkur pungbindið. Setjið rauðan sólþurrkaðan pipar upp í kjaftin og bítið saman tönnunum. Það er […]
Down By The River – Stóri Ufsilón 13.01.2017 1:23:17
Þá er komið að fílun á einni af burðarstólpum rokksins. Neil Young er tekinn fyrir í Fílalag í dag. Það er vaðið beint í hippaflórinn og „Down By the River“ af plötunni „Everybody Knows This is Nowhere“ frá 1969 er skrensfílað. Við erum að tala um hassreykjandi gítarsóló rúnk með fuglahræðutwisti. Klæðið ykkur í stagaðar […]
Fast Car – Bless, bless krummaskuð 06.01.2017 1:09:03
Aldrei gleyma því hvað Bandaríkin eru stór. Þetta eru 324 milljón manneskjur. Það er svakalegt. Svo er þetta tæpir tíu milljón ferkílómetra. Rosalegt flæmi. Það er allt þarna. Skýjakljúfar og lið að hamra ljóð á ritvélar en mestmegnis er þetta Walmart og bílastæði. En það sem verður aldrei tekið af þeim eru bílarnir. Kannski er […]
Sheena Is A Punk Rocker – Allt er dáið. Allt lifir. 30.12.2016 53:16
Síðasti Fílalags-þáttur fjallaði um George Michael. Þátturinn var sendur út á Þorláksmessu og hann dó tveimur dögum síðar. Svipað var uppi á teningnum í nóvember þegar Fílalagsmenn tóku upp þátt um Leonard Cohen og fréttu svo degi síðar að hann væri einnig dáinn. Þetta er fílalags-bölvunin og hún er ekkert grín. Í kjölfarið fengu Fílalagsmenn […]
Last Christmas – Útvarp Reykjavík. Útvarp Reykjavík. Það eru jól. Það er stemning. 23.12.2016 1:02:33
Það er Þorláksmessa kæru vinir og Fílalag er stemningsþáttur eins og allir hlustendur vita. Þess vegna kemur ekkert annað til greina en að taka fyrir jólalag í dag. Nú verður það fílað í allri sinni dýrð. Last Christmas með Wham! Auðvitað kom ekkert annað til greina. Last Christmas er eins og sjálfur jólasnjórinn. Maður þarf […]
Lovefool – Gollur og sexkantar 16.12.2016 53:09
Ein passívasta flík sem karlmenn geta klæðst er svokölluð „golla“ eða cardigan eins og hún heitir á ensku. Gollan virkar allstaðar. Kurt Cobain klæddist henni og náði þannig að dúlluþekja sýkta persónu sína. Gollur virka í fermingarveislum en einnig á fundum markaðsfræðinga. Sé orðið gúglað í fleirtölu, „cardigans“, koma upp annarsvegar auglýsingar frá fatafyrirtækjum eins […]
Sweet Leaf – Rafmagn í rassinn á þér 09.12.2016 54:15
Fíliði metal? Það er ekki ólíklegt því þungarokk er ein söluhæsta tónlistarstefna sögunnar. En í öllum þáttum Fílalags (sem eru orðnir 101 talsins) hefur þungarokk aldrei verið tekið fyrir. Fyrr en nú! Og auðvitað er gengið faglega í málið. Til umfjöllunar í Fílalag í dag er sjálf Auðhumla metalsins. Þungarokk er löngu orðin að heilu […]
Wichita Lineman – Axlir. Kjálkar. Leitin að kjarnanum 01.12.2016 58:51
Stærstu kjálkar bandarískrar tónlistarsögu eru teknir fyrir í Fílalag í dag. Glen Campbell. Maðurinn sem gaf okkur softkántrí slagara eins og Rhinestone Cowboy gaf okkur líka lagið sem fílað er í dag. Wichita Lineman. Lagið dregur nafn sitt af borginni Wichita í suðurhluta Kansas. Ef kort af Bandaríkjunum er skoðað sést að Wichita er því […]
Fílalag – 100 25.11.2016 1:42:35
Fílalagsmenn fara yfir ferilinn í sínum 100. þætti. Nýjar pælingar í bland við upprifjanir. Hátíðarþáttur sem hlustendur mega ekki missa af. Það er af mörgu að taka í þætti 100. Kíkt er á lögin 99 sem fíluð hafa verið og svo er einnig spáð í framtíðina. Fílalag er komið til að vera nú þegar hundrað […]
Widerstehe doch der Sünde (Gestófíll: Halla Oddný) – Bachaðu þig í drasl 18.11.2016 1:20:55
Hvað vitið þið um Jóhann Sebastian Bach? Líklega slatta. En hafið þið fílað hann eins og hann á skilið? Kannski. Það verður allavega gert í dag. Það er komið að hamfarakrókódílnum frá Eisenach. Fílalagsbræður fengu til liðs við sig Höllu Oddnýju Magnúsdóttur til að fíla Bacharann. Lagið sem er fílað er kantata eftir Bach, en […]
First We Take Manhattan – Leonard Cohen, hryðjuverkamaður í ástum og listum 11.11.2016 1:18:15
Skilaboð frá Fílalagsmönnum: Það hafði lengi verið á stefnuskrá Fílalags að taka Leonard Cohen fyrir. Nú í vikunni létum við loks verða af því og tókum upp hefðbundinn þátt þar sem fjallað er um lagið First We Take Manhattan. Síðar í vikunni barst heimsbyggðinni sú reiðarfregn að Cohen væri látinn. Við sendum þáttinn út, eftir […]
Ghost Town – Komdu í bíltúr í gegnum Coventry frú Margaret Thatcher 04.11.2016 1:05:34
Það besta við rokktónlist er að á góðum degi er hún skurðarflötur alls sem er í gangi í þjóðfélögum. Í músíkinni má heyra raddirnar af götunni en líka skynja stóru drættina. Í kringum 1980 stóð Bretland á krossgötum. Það hafði ríkt efnahagsleg stöðnun og íbúar ríkisins voru pirraðir. Það var enn pirringur vegna Síðari heimstyrjaldarinnar, […]
Hippar (Gestófíll: Dr. Gunni) – „Reipið er til. Hengið ykkur nú.“ 28.10.2016 1:11:19
Fílalagsbræður settust niður með sjálfum Dr. Gunna og fíluðu einn af fyrstu íslensku pönk-slögurunum, Hippa, með Fræbbblunum. Dr. Gunni sagði sögur úr Kópavogi og fór gaumgæfilega yfir stöðuna í íslenskri tónlist áður en Fræbbblarnir og síðar Utangarðsmenn mættu og sögðu gamla liðinu að fokka sér. Fræbbblarnir virtust sérstaklega pirraðir á hippum, en í þeirra heimi […]
Freedom – Frelsun 21.10.2016 1:00:09
Fílalag tekur í dag til umfjöllunar lag sem má ekki gleymast. Það er frá þeim tíma þegar fólk gekk um í leðurjökkum yfir gallajakka, borðaði Jón Bakan pizzur og leið þannig í gegnum íslensku súldina og krafðist einskis meir. Lagið kom út á hápunkti 90s hippie-revival tímans. Þegar stelpurnar voru í mussum með peace-merki og […]
My Friend & I – Íslenskur eðall 14.10.2016 32:55
Fílalag fer á uppáhalds slóðir sínar í þætti dagsins: Íslenskt 70s!! Í þessum gullkistuþætti kynnumst við erki-síð-hippum Íslands. Trúbrot. Trúbrot var band ólíkra karaktera. Við sögu koma larger than life týpur eins og Gunni Þórðar, Shady Owens, Rúni Júl, Karl Sighvatsson, Gunnar Jökull og svo að sjálfsögðu Maggi Kjartans. Trúbrot var hæfileika- og týpu-veisla frá […]
Bohemian Rhapsody (Live á Húrra) – Mest fílaða lag allra tíma 07.10.2016 51:04
Fílahjörðin hittist á Húrra í síðustu viku og hlýddi á live-fílun á laginu sem grundvallar alla lagafílun. Lagið er Bohemian Rhapsody með Queen en allt síðan Wayne og Garth fíluðu það í bílnum í Wayne’s World árið 1991 hefur lagið verið hornsteinn í fílunarfræðum. Hlýðið á stemninguna á Húrra í þessari einstöku lagafílun.
Mother – Móðir. Haust. Fegurð. 30.09.2016 1:29:49
Það er haust. Fílalag tekur fyrir haust tónlistarsögunnar, sem er sólóferill John Lennon. Nánar tiltekið „Mother“ af Plastic Ono Band frá 1970. Hví er haust? Vegna þess að Bítlarnir eru hættir. Vegna þess að tónlistin hljómar krisp og umfjöllunarefnin eru þung – en falleg. Mother er miklu meira en lag. Það er fókuserað listaverk. Það […]
Time To Pretend – Tími til að þykjast 23.09.2016 1:18:39
Popptónlist er ekki lífið sjálft. Popptónlist er leikur og allir sem taka þátt í hamaganginum eru leikarar. Það þýðir samt ekki að það sé ekki mikið í húfi í leiknum. MGMT slógu í gegn fyrir næstum 10 árum síðan. Bandið samanstendur af tveimur náungum, Benjamin Goldwasser fæddum 1982 og Andrew VanWyngarden fæddum 1983. Þeir eru […]
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.