Fílalag
Fílalag
Fílalag er hlaðvarp um tónlist. Á hverjum föstudegi senda þeir Snorri Helgason og Bergur Ebbi frá sér nýjan þátt þar sem dægurlag er tekið fyrir og fílað í ræmur. Í fíluninni felst að greina menningarleg fyrirbæri sem eru kynnt í laginu, tískustrauma í hljómi og tíðaranda í framsetningu. Farið er um víðan völl og fjallar þátturinn um poppmenningu í stærra samhengi. Um málið er ekkert meira að segja. Fílið þetta bara og fokk svo off.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
There She Goes – Stanslaus húkkur 06.10.2017 1:06:07
Einn stærsti one hit wonder sögunnar er fílaður í dag. Þvílíkur smellur. Rúmlega tveggja mínútna stanslaus húkkur. Hér eru allar stjörnur á réttum stað á festingunni. Lagið er gítar- og raddasull frá Liverpool, hæfilega artí og hæfilega bjórblandað. Frum-Brit-Pop – 90s lag sem er reyndar tekið upp í áttunni. Áhugaverð saga – mikil stemning. Lag […]
Papa Don’t Preach – Meyjan, krossinn, kynþokkinn 29.09.2017 1:01:32
Þó fyrr hefði verið. Madonna er undir nálinni hjá Fílalags bræðrum í dag. Já, þið heyrðuð rétt. Michican-meyjan sjálf. Stólpi poppsins – risinn sem tók heiminn slíku heljartaki í áttunni að enginn hefur þorað að anda síðan. Þvílíkt choke-hold. Madonna er muscle-car frá Detroit sem sörfar á bylgju kaþólsku kirkjunnar (eða áþjánar hennar), byggð í […]
Bo Diddley (Einar Kárason gestafíll) – Það er ekki „go“ fyrr en Diddley segir „go“ 22.09.2017 46:30
Fílalag hringdi í einn af spámönnum sínum. Fílalag: „Er það Einar Kárason?…hæ, við erum með hlaðvarpsþátt sem fjallar um að fíla lag og við erum stundum með gesti og við viljum endilega fíla lag með þér. Er eitthvað sérstakt sem þú myndir vilja fíla? Einar Kárason: (án þess að þurfa neinar frekari útskýringar): „Bo Diddley […]
Smukke Unge Mennesker – Með Kim út á kinn 15.09.2017 1:17:04
Fáið ykkur hálft kíló af saltlakkrís, tvo lítra af froðubjór, töluvert af sinnepssíld. Klæðið ykkur í cowboy-buxur eða klæðið ykkur úr öllu. Nú verður Kim Larsen tekinn fyrir. Allt verður tekið fyrir. Tennurnar, kjafturinn, sixpensarinn og óslökkvandi alþýðulostinn. Allt er undir. Þegar Kim Larsen er fílaður er varir nagaðar í sundur og rúður brotnar. Þetta […]
You Really Got Me – Þröngar buxur, rifið sánd, mannkyn ærist 08.09.2017 1:10:46
Það er stóri hvellur. Kinks fílaðir í annað sinn. Og nú er það risinn. Sjálfur Homo Erectus. You Really Got Me. Sperrtasta lag allra tíma. Þó að Chuck Berry hafi ræst frumhreyfilinn árið 1955 þá var ekki almennilega búið að stíga á bensíngjöfina fyrr en Kinks mæta með You Really Got Me. You Really Got […]
Stand By Your Man – Negla frá Nashville 01.09.2017 1:13:06
Amerísk country-tónlist nær oftast ekki alþjóðlegri hylli þó að frá því séu mikilvægar undantekningar. Ein þeirra er lagið Stand by Your Man með Tammy Wynette, sem fílað er í þætti dagsins. Tammy Wynette var sveitadrós frá Mississippi sem gifti sig fimm sinnum og eignaðist tvö börn fyrir tvítugt á milli þess sem hún sinnti einum […]
(Don’t Fear) The Reaper – Dasað, ráðvillt, daður við dauðann 25.08.2017 1:19:56
Sjöan tók Guðmund og Geirfinn og Íslendingar eru enn ráðvilltir um hvað gerðist. Hvernig gátu tveir ungir karlmenn horfið inn í myrkrið? En í Bandaríkjunum var sjöan eins og ryksuga og ungmennin hurfu í stórum stíl eins og enginn væri morgundagurinn. Amerísk sjöa: Krakkar að stíga yfir í móðuna, krakkar að láta sig gossa. Blue […]
Jesse – Martröð Elvisar 18.08.2017 1:20:25
Fílalag kafar djúpt í dag. Það er alvöru listahátíðar-kröns í boði. Lagið Jesse með Scott Walker er uppgjör við ellefta september. En Jesse er líka uppgjör við hversu langt er hægt að teygja dægurtónlist í átt að kjaftæði. Og það má segja að niðurstaðan sé: svona langt. En líklega ekki lengra. Áhugaverðar umræður í Fílalag […]
The Winner Takes It All (Live frá Húrra) – Sértrúarsöfnuður hlustar á Abba 12.08.2017 55:21
Það var þétt setið á skemmtistaðnum Húrra í gær þegar Fílahjörðin kom þar saman, en fílahjörðin eru dyggustu hlustendur hlaðvarpsins Fílalag. Þetta var sértrúarsafnaðardæmi og mættu sumir með klappstóla með sér. Hare Krishna. Prinsip var brotið í gær því að Abba var fílað. Fílalagsmenn höfðu áður gefið frá sér yfirlýsingu um að þeirra eina prinsip […]
Bullet With Butterfly Wings (Gestófíll: Octavio Juarez, arkítekt) – Mexíkóskur arkítekt. Guðshatari frá Chicago 04.08.2017 1:02:38
Fílalag sendir frá sér sérstakan þátt í dag. Snorri var fastur utan símasambands í afskekktum firði fyrir Vestan og Bergur Ebbi fékk mexíkóskan arkítekt til að fylla í skarðið til að fíla lagið Bullet With Butterfly Wings. The Smashing Pumpkins var mikilvæg hljómsveit. Hún var (og er) miklu meira en nokkrir slagarar úr níunni. Hún […]
Arthur’s Theme – Gasið sem sefar 28.07.2017 49:37
Ameríkanar elska skammstafanir. Loftkæling er til dæmis aldrei kölluð annað en A/C (ei-sí), sem er skammstöfun fyrir air-conditioning. AC er svo líka notað sem skammstöfun fyrir annað, ekki síðra fyrirbæri, eða „adult contemporary“ sem er ekki beinlínis tónlistarstefna heldur frekar hluti af aðferð markaðsmanna til að sortera músík eftir markhópum. „Adult Contemporary“ er þar af […]
Steal My Sunshine – Kanadíski draumurinn 21.07.2017 56:37
„Hey Matt“ „Já, Tim“ „Hefurðu talaði við Marc nýlega?“ „Ööö, nei, ég hef eiginlega ekki talað við hann, en hann virkar soldið ööö leiður“ „Hahaha. Hann virkar soldið ööö leiður“ „Jæja, kannski ættum við að gleðja hann.“ „Hvað stingur þú upp á að við gerum?“ „Ja, finnst honum smjörbökur góðar?“ Þannig hefst guðspjallið. Fyrsta bók […]
Átján og hundrað – Prins allrar alþýðu 14.07.2017 53:01
Fílalag er á heimaslóðum í fílun dagsins. Ekki er seilst nema um átta ár aftur í tímann og Ísland ekki yfirgefið. Nú er hún loksins tekin fyrir: Seyðisfjarðar/MH/síðkrútts/hakks-og-spaghettí senan. „18 & 100″ er fyrsta smáskífa Prins Póló, sem er eitt af mörgum tónlistarverkefnum Svavars Péturs Eysteinssonar – en hér er þetta allt tekið fyrir. Jólaskreytingarnar […]
Clubbed To Death – Orkudrykkir, bakpokar, misheppnuð ást á japönskum kúltúr 07.07.2017 58:58
Líklegast átti það að vera orðaleikur þegar tónlistarmaðurinn Rob Dougan gaf lagi sínu nafnið „Clubbed To Death“. Orðasambandið þýðir í venjulegri merkinu: „að vera laminn til dauða með kylfum“ en einnig er hægt að lesa merkinguna: „að dansa sig til dauða“ út úr orðunum. En vandamálið er bara að þrátt fyrir fönk-uppruna trommutaktsins þá er […]
All Along The Watchtower – Verið á varðbergi 23.06.2017 1:11:51
Það er stór fíll í herberginu. All Along the Watchtower er undir nálinni í dag. Bæði Dylan og Hendrix útgáfan. Vúff. Líklega er best að gera öryggisráðstafanir áður en hlustað er á þennan þátt. Farið í Ellingsen og kaupið björgunarvesti. Kippið líka með 3-400 grömmum af þurrkuðu kjöti og nokkrum brúsum af Gatorade. Þetta verður […]
If You Leave Me Now – Djúp Sjöa 16.06.2017 52:52
Í dag kafar Fílalag dýpra ofan í Sjöuna en nokkurn tíman áður. Farið er ofan í læstar hirslur úr dánarbúi Ingólfs í Heimsferðum og sebraskinns-teppið „If You Leave Me Now“ með hljómsveitinni Chicago, grafið upp. Hér er um að ræða tólf strengja kassagítar, Fender Rhodes, mjúka strengi og silkihúðað brass-sánd að ógleymdum parasetamól-maríneruðum raddböndum Peter […]
Ain’t No Sunshine – Klósettísetningarmaðurinn sem varð frægur 09.06.2017 59:56
Fáir hafa slegið jafn skyndilega í gegn og Bill Withers. Hann var smábæjarstrákur frá West-Virginia af verkamannaættum og hafði unnið sig upp sem hörkuduglegur flugvirki sem sérhæfði sig í flugvélaklósettum þegar frægðin bankaði ár dyrnar. En hvað getur maður sagt? Þegar sólin skín og maður er staddur í Kaliforníu og árið er 1970, þá er […]
November Rain – Hægur og fagur dauðakrampi 02.06.2017 57:49
Fílalag hefur fjallað um allskonar öfga í gegnum tíðina. Í lýsingu á þættinum sem fjallaði um Elvis mátti til dæmis finna þessa setningu: „á matseðlinum er ameríski draumurinn þríréttaður borinn fram á húddinu á rjómahvítum Cadillac, Jobsbók klædd í hempu amerísks skemmtanaiðnaðar, þrælseigur toffímoli með beiskju, kergju en umfram allt þrá, lífsvilja og unaðslegu eftirbragði […]
Try Sleeping With A Broken Heart – Brotið hjarta úr eldhúsi helvítis 26.05.2017 53:55
Fílalag er á nútímalegum slóðum í dag og fílar lag frá 2009. Um er að ræða stóran smell með Aliciu Keys, lag sem gerði ágætis hluti þegar það kom út fyrir átta árum síðan, en á líka helling inni. Alicia Keys er multi-talent. Frábær söngkona, lagahöfundur og hljóðfæraleikari. Hún er einnig frumkvöðull í cross-over kúli, þ.e. að missa ekki kúlið þrátt fyrir að skella sér á bólakaf í meinstrím mennin...
Friday On My Mind – Föstudagsmanía 19.05.2017 57:27
Fílalag er komið aftur úr fimm vikna vorfríi og kemur aftur með krafti. Þar sem fílalag er alltaf sent út á föstudögum var löngu kominn tími á að fíla 100% upprunavottaðan föstudags-stomper. Við förum suður til Ástralíu og kíkjum á hvað menn voru með í pottunum þar í sexunni. Þar stendur að sjálfsögðu mest upp […]
Where Do You Go To My Lovely? – Harmonikka, fókus, negla 26.04.2017 35:43
Fílalag er í fríi fram í miðjan maí en er með fólk í vinnu sem gramsar í gullkistunni og dregur fram mikilvæga fílun frá 2014. Where Do You Go To My Lovely er rifjað upp nú, meðal annars til heiðurs minningu listamannains, Peter Sarstedt sem lést í janúar á þessu ári. Where Do You Go […]
Peg – Sexuð tannlæknastemning 07.04.2017 1:09:25
Takið fram léttskyggðu fjólubláu sólgleraugun, hneppið niður efstu 3-8 tölunum á skyrtunni/blússunni, ræsið blæjubílinn. Himininn er alblár en er hægt og rólega að leysast upp í mengunarmistrað sólsetur. Það er maulandi 70s og þið eruð stödd í Los Angeles. Vúff. Hvað er hægt að segja? Fílalag er að taka fyrir Steely Dan í dag. Hvernig […]
More Than A Feeling (Live á Húrra) – Lag sem fjallar um að fíla lag 31.03.2017 47:23
Nú er það hámarks-fílun. Lag sem fjallar um „fíling“ og meira en það. More Than a Feeling með Boston er eitt af lögunum sem Fílalag var stofnað í kringum. Risastór 70s feðgarokks-negla sem lifir góðu lífi á gullbylgjum hvar sem stigið er niður í þessari veröld. Saga þessa lags inniheldur svo margt. Hefnd nördsins, mildi […]
Band On The Run – Flóttinn mikli 17.03.2017 1:32:39
Fílalag heldur áfram að hringsnúast í kringum Bítlana eins og köttur í kringum heitan graut. Í dag er sjálfur sir Paul McCartney tekinn fyrir ásamt félögum sínum í Wings. Band on the Run fjallar um flótta í margvíslegum skilningi. Flótta undan frægðinni, kvöðinni og skyldunni. Að lokum kemur fram einhvers konar lausn. Þetta er eitt […]
I Got You Babe – LA beibs og draumur innflytjandans 10.03.2017 1:00:19
Skellum okkur til ársins 1965. Unglingarnir keyrðu um á stórum bensíndrekum. Kalifornía var troðin af bjartsýnu fólki. Allir með sólgleraugu og góðar tennur. Þetta er tíminn þegar allir voru beibs, konur og karlar, og það eina sem maður þurfti var beib sér við hlið. Sonny Bono er ameríski draumurinn. Sonur bláfátækra ítalskra innflytjenda sem fluttust […]
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.