Bitcoin Byltingin
Bitcoin Byltingin
Bylting er stórt orð en sannfæring okkar er mikil // @byltingin á Twitter // Bitcoin byltingin á Facebook // Bitcoin byltingin á Telegram
Author
Bitcoin Byltingin
Category
Podcast website
Latest episode
Oct 26, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#24 - Stóru málin, Smámálin og Smásálin: Bitcoin í dag 24.04.2022 1:05:42
Bitcoin væðing heimsins, re-cap á Bitcoin Miami 2022, eru Bitcoin hodlers sadistar?, Proof of work virkar ekki, Eldhringir í leifturnetinu og margt fleira: Svo mikið margt fleira.
#23 - Gunnlaugur Jónsson: Um peninga á stríðstímum 09.03.2022 1:42:07
Gunnlaugur Jónson, forstöðumaður Fjártækniklasans, er frjálshyggjumaður sem fylgst hefur með Bitcoin í mörg ár og er mikill fylgismaður rafmyntarinnar. Í þessu viðtali ræddum við um hlutverk Bitcoin og annarra peninga á stríðstímum, Proof of work vs. proof of stake og örlítið um Stjörnustrið svo eitthvað sé nefnt.
#22 - Smári McCarthy: Fékk frægan email frá Satoshi en hefur litla trú á Bitcoin í dag 14.02.2022 1:28:45
Smári McCarthy hefur vitað um Bitcoin frá því að Satoshi senti whitepaper sitt á Cypherpunk-tölvupóstlistann fræga, en er mjög andsnúinn kerfinu, þá sérstaklega hvað varðar orkunotkun þess. Í viðtalinu var farið yfir víðan völl og hlustendur fá að heyra báðar hliðar með og á móti Bitcoin. Cambridge BECI: https://ccaf.io/cbeci/index Ark Investment skýrslan: https://www.ark-bigideas.com/2022/en/page...
#21 - Framtíð efnissköpunar og tekjuöflunar með betri (peninga)kerfum 31.01.2022 1:05:59
Stóru efnismiðlunar-platformin (Youtube, Facebook, Netflix o.fl.) hafa náð taumhaldi yfir efnissköpun og miðlun á netinu. Hverjir eru kostirnir, gallarnir og hvernig gæti framtíð efnismiðlunar átt sér stað, þar sem Bitcoin og Bitcoin-miðaðar lausnir bjóða uppá sanngjarnari og einfaldari möguleika fyrir efnisskapendur og neytendur. Greinin: https://dergigi.com/2021/12/30/the-freedom-of-value/ Breez...
#20 - Hvað var að frétta árið 2021? 07.01.2022 1:18:21
Í þessum fyrsta þætti ársins 2022 kveðjum við það síðasta og förum yfir hæðir og lægðir ársins 2021, auk þess að blæða inn í glóðvolg tíðindi á nýju ári. Grayscale skýrslan: https://grayscale.com/wp-content/uploads/2021/12/Grayscale-2021-Bitcoin-Investor-Study-1.pdf # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltingin@protonmail.com # Sérstakar þakkir Hljóð: Einar Már Harðarson Grafík...
#19 - Erna Ýr Öldudóttir: Grímulausar skoðanir á stórum málum 19.12.2021 2:04:36
Stórskemmtilegt samtal sem fór um víðan völl. Auk þess að fara yfir allskonar Bitcoin pælingar, ræddum við meðal annars um Covid ástandið á Íslandi og út í hinum stóra heimi, mikilvægi reiðufés, velgengni frjálsra samfélaga og fjölmiðlaástandið á Íslandi í dag svo eitthvað sé nefnt.
#18 - Kristján Mikaelsson: Bitcoin, crypto og framtíðin 08.12.2021 1:59:55
Kristján Mikalesson fór á dýptina með Bitcoin Byltingunni um stöðu mála í hratt þróandi heimi Bitcoin og annarra rafmynta, auk þess að spá og spekúlera um framtíð þessa markaðar. # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltingin@protonmail.com # Sérstakar þakkir Hljóð: Einar Már Harðarson Grafík: Helgi Páll Melsted Tónlist: OdIe (tinyurl.com/odiemusic)
#17 - Þórður Pálsson: Er Bitcoin sturluð lausn við grænum peningabólum? 21.11.2021 1:44:02
Þórður Pálsson starfar sem eignastýringar-gúrú á daginn og er vinsæll á Twitter á kvöldin. Nýlega ræddum við BB menn við Þórð um BTC á fugla-forritinu og kjölfarið urðum að bjóða honum í poddara að ræða um efnahagsnástandið í heiminum í dag og skoðanir hans á Bitcoin. Líflegt og gott spjall hér á ferð! # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltingin@protonmail.com # Sérstakar þak...
#16 - Snævar Sölvason: Fjármálaverkfræðingur, kvikmyndagerðamaður og sjómaður labba inná bar 13.11.2021 2:01:22
Kvikmyndagerðamaðurinn Snævar Sölvason settist niður með okkur og sagði Bitcoin sögu sína. Þar á meðal störfum sínum sem fjármálaverkfræðingur og reynslu sinni af því að ræða við finance-bros um Bitcoin ... en það var meira! # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltingin@protonmail.com # Sérstakar þakkir Hljóð: Jóhann Ólason Grafík: Helgi Páll Melsted Tónlist: OdIe (tinyurl.com/...
#15 - Framtíð greiðslumiðlunar á Leifturnetinu (Lightning network) 02.11.2021 1:26:35
Hvað er Leifturnetið (e. Lightning Network) og hvaða áhrif mun kerfið, sem situr ofaná grunnlagi Bitcoin kerfisins, hafa á greiðslumiðlun í framtíðinni? Breez: https://breez.technology/ Closing the Loop - Podcast á Breez: https://t.co/8L8W2jPOh6?amp=1 Blue wallet: https://t.co/P82UqEewWE?amp=1 # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltingin@protonmail.com # Sérstakar þakkir Hljóð...
#14 - Bullspjallið: Víkingur Hauksson og Kjartan Ragnars 22.10.2021 1:34:48
Fyrsti Live þátturinn okkar og það er bullspjall með Víkingi Haukssyni og Kjartani Ragnars. Við förum yfir ýmiss mál þar á meðal: -Áhrif ETF's á kerfið -Er nýtt bullrun hafið? -Afhverju eru hagfræðingar ekki að taka þátt í umræðunni um peningavæðingu Bitcoin. Joinið okkur á Telegram, Bitcoin Byltinginn, til þess að ná næsta Live þætti. # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltin...
#13 - Jökull Sólberg: Blásið á glóðir eða (Bitcoin) blöðrur 22.09.2021 1:18:03
Hressandi spjall við Jökul Sólberg, forritara, ráðgjafa, frumkvöðul og frambjóðanda hjá Sósíalistaflokknum. Samtal m.a. um hvernig skoðun Jökuls á Bitcoin hefur þróast gegnum árin, trú hans á að MMT muni hjálpa þjóðum eins og Íslandi að tryggja örugga hagstjórn og fleira áhugavert Grein Jökuls: https://www.solberg.is/bubbles # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Email: bitcoinbyltingin@protonm...
#12 - Frá Íslandi til El Salvador og til baka - Bitcoin til framtíðar með Ágústi Ólafssyni 17.09.2021 1:44:00
Ágúst Valgarð Ólafsson fór á dögunum fyrir hópi einstalinga sem framleiddi myndbandið "Bitcoin in El Salvador - Congratulations from Iceland". Ágúst kíkti í heimsókn og ræddi við Byltinguna um byltinguna í El Salvador, siðferði, ábyrgð, trúarmál, nútímalist, framtíðina á Bitcoin standard-i og margt, margt fleira. Myndbandið: https://youtu.be/QYLDcjn_6QA # Contact - Telegram: Bitcoin byltingin - Em...
#11 Víkingur Hauksson: Bitcoin Q&A 10.09.2021 2:06:03
Víkingur Hauksson birti á dögunum greinina Bitcoin Q&A á Medium. Í greininni útskýri Víkingur mikilvægi Bitcoin auk þess að sem hann svaraði vinsælum gagnrýnispunktum Bitcoin-efasemndamanna á listilegan hátt. Við ræddum við Víking um efni greinarinnar og áttum stórskemmtilegt spjall saman. Grein Víkings: https://medium.com/@vikingurhauksson/bitcoin-q-a-921031493a4b Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann...
#10 - Er Bitcoin umhverfisvænn peningur? 28.08.2021 1:37:29
Í mörg ár hefur orkunotkun Bitcoin kerfisins verið gagnrýnd harkalega af efasemdamönnum og fjölmiðlum. Í þessum þætti förum við yfir staðreyndir málsins hvað varðar orkunotkun, losun gróðurhúsalofttegunda, umhverfisvæna orkunýtingu Bitcoin námugreftrar o.fl. sem mun opna augu fólks fyrir raunverulegri stöðu kerfisins þegar kemur að umhverfismálum. Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: H...
#09 - Már Wolfgang Mixa: Fjárfestingar til framtíðar 13.08.2021 2:30:22
Már er lektor í fjármálum við HR og skrifaði greinina "Fjárfestingarstefnur í dag, í gær, og á morgun" sem birtist á vb.is 3. júlí. Í þessu viðtali ræddum við við Má um efni greinarinnar sem fjallar um skoðun Más hvað varðar þörf einstaklinga til að hækka hlutfall áhættusamra fjárfestinga til að ná árangri í framtíðinni sem og gagnrýni hans á Bitcoin kerfið og fjárfesta í rafmyntinni hörglu. Grein...
#08 - Bitcoin, ekki bálkakeðjur 07.08.2021 1:08:56
Eftir að peningavæðing Bitcoin hófst hafa þúsundir rafmynta reynt að leika þann leik eftir. Í þessum þætti útskýrum við af hverju það er ómögulegt og af hverju Bitcoin er eina rafmyntin sem skiptir máli. Bitcoin, ekki bálkakeðjur. Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe tinyurl.com/odiemusic
#07 - Persónuleg umsjá 14.07.2021 1:09:44
-Mikilvægi þess að geyma bitcoin í persónulegri umsjá. -Hverjar eru hætturnar við að geyma bitcoin hjá þriðja aðila. -Bestu leiðir til að geyma bitcoin. Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe
#06 - Bullspjallið: Patrekur og Kjartan frá Myntkaup ræða um stöðu Bitcoin 30.06.2021 1:46:16
Kínabann á Bitcoin námugröft, El Salvador, Elon Musk, rökræður um altcoins og margt fleira. Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe https://tinyurl.com/odiemusic
#05 - S2F: Birgðir á móti flæði 19.06.2021 58:30
Stock to Flow módel PlanB er krufið til mergjar í þessum þætti. Módelið sýnir tölfræðilega marktækt samband á milli $ og S2F hlutfallsins. Þrjú módel spá fyrir að verðið á Bitcoin geti náð $50K/$100K/$288K á næstu mánuðum - Getum við treyst þessum módelum? —————————————— Greinar Plan B S2F https://medium.com/@100trillionUSD/modeling-bitcoins-value-with-scarcity-91fa0fc03e25 S2Fx https://medium.com...
#04 - Bullspjallið: Miami og El Salvador 08.06.2021 59:05
Léttara spjall um Bitcoin heiminn síðastliðna daga og vikur. - El Salvador að lögleiða Bitcoin sem gjaldmiðil? - Fréttir um umhverfisvæna framtíð Bitcoin - "Fuck Elon Musk" - og fleira og fleira Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe https://tinyurl.com/odiemusic
#03 - Talan Núll og Bitcoin 07.06.2021 1:40:51
Hvers vegna eru núll og Bitcoin mikilvæg fyrirbæri? Dr. Helgi Freyr Rúnarsson, eðlisfræðingur, ræðir við okkur um ekkert, óendanleika, hugleiðslu, Bitcoin og Aristótelles, svo eitthvað sé nefnt. Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe https://tinyurl.com/odiemusic
#02 - ∞ / 21 milljón 31.05.2021 47:36
Annar þáttur Bitcoin Byltingarinnar - Grein Knut Svanholm "Deeper Down the rabbithole" - Virði er huglægt konsept - ∞ / 21 milljón Bitcoin - Með Bitcoin eru upplýsingar bókstaflega orðnar að verðmætum Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe https://tinyurl.com/odiemusic
#01 - Kynningarþáttur 27.05.2021 51:16
Kynningarþáttur Bitcoin Byltingarinnar - Kynning á nýju hlaðvarpi - Hvað er peningur? - Stutt kynning á Bitcoin - Framtíð hlaðvarpsins Sérstakar þakkir: -Hljóð: Jóhann Ólason -Grafík: Helgi Páll Melsted -Tónlist: OdIe https://tinyurl.com/odiemusic
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.