RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ Odcinki: 985

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategoria

Arts

Strona podcastu

www.ruv.is

Ostatni odcinek

22 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Hark og svipmynd af kollektífu / Yrkjur 28.02.2024

Í þætti dagsins heyrum við af upplifun Trausta Ólafssonar af gamanrokksöngleiknum Hark sem frumsýndur var í síðustu viku í Tjarnabíói. Síðan tekur svipmynd af Skáldakollektífunni Yrkjum við. Yrkjur er skáldakollektífa ungra kvenna sem stofnuð var í byrjun árs 2022. Markmið þeirra er að skapa samfélag þar sem ungir höfundar geta komið saman, lært hver af öðrum og komið sér á framfæri, hvort sem er...

Ragnar Kjartansson á vinnustofunni, Satu Ramö, And Björk of course 27.02.2024

Kikkið við myndlistina er sennilega frelsið, segir Ragnar Kjartansson sem opnaði sína fimmtu sýningu í i8 gallerí í síðustu viku. Sýningin kallast Móðir og barn, gin og tónik og þar gefur að líta ný málverk eftir Ragnar. Ragnar hefur tekist á við málverkið allan sinn feril en oft á tíðum er það afsprengi gjörninga, sem það er líka að einhverju leyti á þessari sýningu. Afsprengi ákveðins ástands se...

Unuhús, arkitektúr í Palestínu og Íslensku þýðingaverðlaunin 26.02.2024

Við gerum okkur ferð að Unuhúsi í þætti dagsins og hittum Jón Karl Helgasson bókmenntafræðing og prófessor við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands en hann heldur námskeið um húsið og arfleifð þess hjá Endurmenntun frá og með næstu viku. Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, flytur pistil um arkitektúr í Palestínu sem nú á dögum er á undanhaldi en byggir á ríkulegri hefð, baráttuhug og seigl...

Með verkum handanna, Ice Hot Nordic Dance, Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 22.02.2024

Í Þjóðminjasafni stendur yfir merkileg sýning sem kallast Með verkum handanna, en þar er hægt að sjá einhver mestu verðmæti íslenskrar listasögu. Um er að ræða þau fimmtán íslensku refilsaumsklæði sem varðveist hafa, samankomin í fyrsta sinn. Níu þeirra eru varðveitt í Þjóðminjasafni Íslands en sex þeirra eru fengin að láni frá erlendum söfnum. Við hittum Svanhildi Óskarsdóttur, prófessor í norræn...

Svipmynd af píanóleikara / Edda Erlendsdóttir 21.02.2024

Edda Erlendsdóttir fæddist á gamlársdag árið 1950 í Reykjavík og ólst upp í Laugarneshverfinu. Hún stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og fór í framhaldsnám í tónlistarháskólann í París og hefur verið búsett í borginni nánast allar götur síðan. Á ferli sínum hefur Edda komið víða við, haldið tónleika um víða veröld og gefið út fjölda diska. Hún hefur kennt og starfað við við Tónlistarhás...

Hendi næst, Dulstirni/Meðan glerið sefur og All of This is Chance 20.02.2024

All of This is Chance nefnist plata úr smiðju írska tónlistarmannsins Lisu O'Neill, en hún kom út í fyrra og vakti þónokkra athygli. Á plötunni sækir Lisa í írska þjóðlagatónlist og miðlar textum um móðurástina, hina kvenlægu orku, föglasöng og hina vægðarlausu raun sem liggur að baki allra tákna. Við kynnum okkur þessa mögnuðu plötu í þætti dagsins. Soffía Auður Birgisdóttir, bókmenntafræðingur,...

Saknaðarilmur, tómið og Heaven 19.02.2024

Í haust kom bókin Heaven, eftir japanska rithöfundinn Mieko Kawakami, út í áskriftarröð Angústúru. Í bókinni lætur höfundur sig varða afar þung umfjöllunarefni; einelti, útskúfun og einmannaleika en þræðir í gegnum þau frásögn af nokkuð óvenjulegri vináttu. Við ræðum við Jón Stefán Kristjánsson, þýðanda Heaven í þætti dagsins. Við hugum einnig að tóminu með heimspekingnum Freyju Þórsdóttur. Í dag...

Hreint ekki neitt, Póstkort og svipbrigði, Andrúmsloft Viktoríu Blöndal 15.02.2024

Póstkort og svipbrigði er yfirskrift tónleika sem þær Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Elísabet Waage hörpuleikari halda í Salnum í Kópavogi á sunnudag. Á efnisskrá eru verk eftir eftir úkraínska fiðluleikarann Andrii Didorenko og hollenska tónskáldið Jurriaan Andriessen en þar að auki þrjú verk sem samin eru sérstaklega fyrir þær Laufeyju og Elísabetu, verkin Árferð eftir Báru Grímsdóttur, S...

Svipmynd af rithöfundi / Eva Björg Ægisdóttir og Lífið er staður þar sem bannað er að lifa. 14.02.2024

Eva Björg Ægisdóttir hlaut á dögunum Blóðdropann, hin íslensku glæpasagnaverðlaun, fyrir bókina Heim fyrir myrkur Bókin er hennar sjötta glæpasaga á jafnmörgum árum, en Eva Björg kom fyrst fram á sjónarsviðið 2018 þegar hún sigraði í samkeppninni Svartfuglinn þar sem nýir höfundar geta sent inn handrit að glæpasögu. Sú bók, Marrið í stiganum, hlaut bresk glæpasagnaverðlaun og hefur verið þýdd á no...

Paul Lydon Umvafin loforðum, Mér líður ágætlega en gæti liðið betur, Bögglapóststofan 13.02.2024

Tónlistarmaðurinn Paul Lydon var að gefa út plötuna Umvafin loforðum og heldur tónleika í Mengi í næstu viku. Paul hefur spilað á píanó síðan hann var unglingur í Boston en hann fluttist hingað til lands fyrir 30 árum síðan, nánast fyrir tilviljun. Paul, sem einnig þýðir ljóð úr persnesku, er heillaður af íranskri tónlist og þau áhrif, auk írskra róta hans, segir hann vera undirliggjandi í tónsmíð...

Smiðjan, Íris Ólöf Sigurjónsdóttir, Skvísubókmenntir 12.02.2024

Valentínusardagurinn nálgast og eflaust munu margir gera sér glaðan dag í því tilefni þó svo að hefð þessi sé ekki rótgróin hér í okkar samfélagi. En að gefnu tilefni ætlum við í þættinum að huga sérstaklega að ástinni og mætti hennar innan bókmenntanna og þá sérstaklega innan skvísubókmennta. Einnig verður Hildigunnur Sverrisdóttir með okkur í dag, og að þessu sinni fjallar hún um Smiðjuna, nýja...

Cauda Collective og Eldjárn, Blængur, Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar 08.02.2024

Við lítum í heimsókn í vinnustofu úti á Granda, þar sem tónlistamennirnir og bræðurnir Halldór og Úlfur Eldjárn taka á móti okkur, en ný tónverk eftir þá bræður verða frumflutt af kammerhópnum Cauda Collective í Hörpu næstkomandi sunnudag. Í strengjakvartettinum Flug/ Vindur sækir Halldór innblástur í teikningar af vindáttum og flugvöllum en í verkinu Mirari veltir Úlfur fyrir sér hæfileika okkar...

Svipmynd af myndlistarmanni / Ragna Róbertsdóttir 07.02.2024

Ragna Róbertsdóttir er fædd í Reykjavík 1945. Hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum og í Konstfack listaháskólann í Stokkhólmi en hefur búið og starfað jöfnum höndum í Reykjavík, Arnarfirði og Berlín. Ragna er hjá Parsons Projects gallerý í Berlín og i8 hér heima. Ragna er einn fremsti listamaður landsins og hefur sýnt víða um heim. Hún hefur verið tilnefnd til hinna mikilsvirtu Carnegi...

Samfélag eftir máli, djazzdúettar á Múlanum 06.02.2024

Samfélag eftir máli: Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi, eftir Harald Sigurðsson skipulagsfræðing, hlaut á dögunum Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. Haraldur hefur eftir þrjátiu ára störf við skipulagsmál enn trú á sömu hlutum og toguðu hann upphaflega í nám til Toronto. Mikilvægast af öllu sé verndun náttúrunnar, að nýta landið vel og með...

Þór Wiium ljóðaslammari, Arnbjörg M. Daníelsen um Egil Sæbjörns, Vaðlaheiðargöng 05.02.2024

Um liðna helgi fór fram árleg ljóðaslammkeppni Borgarbókasafnsins þar sem Þór Wiium bar sigur út býtum með ljóðið Merktur. Ljóðið fjallar um upplifun Þórs á því að vera trans karlmanður og viðbrögð samfélagsins. Í ljóðaslammi er það ekki síst flutningurinn sjálfur og tenging við áhorfendur sem skiptir máli og óhætt er að segja að flutningur Þórs hafi hitt alla viðstadda í hjartastað. Þór verður ge...

Íslensku bókmenntaverðlaunin, Kannibalen, andrúmsloft og Fairuz 01.02.2024

Líbanska söngkonan Fairuz er ekki aðeins í hálfgerðri dýrlingatölu á Mið-Austurlöndum heldur er hún dýrkuð víða um veröld. Á Vetrarhátíð fara fram tónleikar í Salnum í Kópavogi þar sem tónlist Fairuz mun hljóma í flutningi hóps tónlistarfólks og gestasöngvara. Við ræðum við Sigrúnu Kristbjörgu Jónsdóttur sem er einn af listrænum stjórnendum viðburðar. Viktoría Blöndal, höfundur og leikstjóri, verð...

Molta og Svipmynd af listahópi / Óður 31.01.2024

Í Svipmynd dagsins hittum við tvo meðlimi Sviðslistahópsins Óðs, þau Þórhall Auð Helgason og Sólveigu Sigurðardóttur, en hópurinn var á dögunum valin Listhópur Reykjavíkur fyrir árið 2024. Óður hefur það yfirlýsta markmið að útrýma þeim háa þröskuldi sem almennir áhorfendur upplifa við að horfa á óperur. Þau neitar að geyma óperur í glerkössum og vilja miklu frekar taka þær upp, hrista af þeim ryk...

Vaðlaheiðagöng, berskjöldun og Dúnstúlkan í þokunni 30.01.2024

Einkenni kulnunar og einnig hin súrrealíska veröld belgíska listmálarans Magritte voru mikill innblástur við gerð leikverksins Vaðlaheiðagöng sem frumsýnt verður á næstunni í Borgarleikhúsinu. Leikhópurinn Verkfræðingarnir standa að uppfærslunni. Við ræðum við tvo meðlimi hópsins þau Karl Ágúst Þorbergsson og Júlíönnu Láru Steingrímsdóttur í þætti dagsins. Við hugum einnig að berskjöldun og náum t...

Mona Lisa, gítartónlist Suður ameríku og tjaldbúðir við Austurvöll 29.01.2024

Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, fjallar í þætti dagsins um Austurvöll, heilaga staði, grjót, völd og tjöld. Einnig hittum við gítarleikarann Rúnar Þórisson sem heillaðist ungur af tónlist Suður Ameríku. Tónlist sem getur bæði verið full af gleði og trega á sama tíma. Hann hefur nú gefið út gítarplötuna Latin America þar sem hann flytur nokkur lög þekktra höfunda á borð við Piazolla, Barrios o...

Słuchaj podcastu Víðsjá w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS