Evrópustraumar
Veröld sem er
Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er rýnt í stóru málin, fréttir líðandi stundar og þau atriði sem varða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: podcasters.spotify.com
Autor
Evrópustraumar
Kategoria
Strona podcastu
Ostatni odcinek
11 cze 2026
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja 11.06.2026 28:58
Skýrsla Evrópustrauma um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja er komin út. Tollamálin, gjaldmiðlamálin og áherslubreytingar ESB eru til umfjöllunar í samtali við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda (FA). Þátturinn er sendur út á samtengdum rásum Veraldar sem er og Kaffikróksins, hlaðvarps (FA). Skýrsluna , sem unnin var fyrir FA og Íslensk-evrópska verslunarráðið, ásamt kynningar...
Hvað myndi aðild að ESB þýða fyrir íslenskan sjávarútveg - Samtal við Hjálmar Vilhjálmsson 27.04.2026 1:03:06
Hjálmar Vilhjálmsson er yfirmaður uppsjávarsviðs og aðstoðarmaður forstjóra hjá Brim, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áður starfaði Hjálmar í um tuttugu ár sem forstjóri eistnesku útgerðarinnar Reyktal, auk þess sem hann var talsmaður og nefndarmaður í eistneskum sjávarútvegssamtökum. Í þættinum ræðir Hjálmar hvað aðild Íslands að ESB gæti þýtt fyrir íslenskan sjávarútveg. Til umræðu...
Smáríki og stóra borðið - Samtal við danskan Evrópuþingmann 24.03.2026 21:49
Stine Bosse er danskur Evrópuþingmaður frjálslynda flokkahópsins Renew Europe. Í viðtali ræðir hún viðhorf Dana til Evrópusambandsins og áhrif Grænlandsmálsins, áhrif sín í Brussel, hvort minni ríki hafi einhver völd og þau ráð sem hún gefur íslenskum kjósendum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. 00:00 Inngangur og umfjöllun um viðtalið við Stine Bosse. 06:40 Viðtalið í heild
„Að hafa áhrif er að tilheyra“ - Samtal við finnskan Evrópuþingmann og yfirferð á Evrópþinginu 09.03.2026 41:57
Finnski alþjóðastjórnmálaprófessorinn Mika Aaltola situr á Evrópuþinginu fyrir flokkinn European People's Party (EPP). Í viðtalinu ræðir hann um sín áhrif í Brussel sem fulltrúi Finnlands, stöðu Evrópuþingsins í dag, fullveldismál, áhuga Finna á pólitíkinni í Brussel, og þau ráð sem hann getur veitt Íslendingum nú þegar þeir standa frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna...
ESB-atkvæðagreiðsla í ágúst, tollar, Íran og Epstein 24.02.2026 44:50
Hallgrímur, Hjalti Geir Erlendsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ræða um það sem efst er á baugi. Frétt Politico um að ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram síðsumars, tollar Trumps í ljósi dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna um ólögmæti frelsis-tollana, stigmögnun í Íran, Epstein-skjölin, handtaka Peter Mandelson og fingraför hans á setningu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 eru til umfjöllunar....
„Ég breyttist“ - Samtal við Þórdísi Kolbrúnu um Úkraínu, NATO, ESB-aðild og óvissutímana 20.02.2026 1:00:19
Þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ræðir stöðu mála í Úkraínu, hvernig innrás Rússa fyrir fjórum árum hefur haft áhrif á hana sem manneskju, um þýðingu þess fyrir Ísland að vera bandamaður, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna, og Evrópusambandsumræðuna á Íslandi. www.evropustraumar.is 00:00 Inngangur 01:26 Þórdís Kolbrún breyttist og mun aldrei breytast til baka...
NATO, ESB og alþjóðamálin með Degi B. Eggertssyni 16.02.2026 58:23
Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, er fyrsti gestur í Veröld sem er, hlaðvarpsþáttum um alþjóðamálin og stöðu Íslands. Dagur ræðir við Hallgrím um NATO og stöðu þess í dag, stefnu Bandaríkjanna undir Trump og áhrifin í Evrópu, Evrópusambandsmál og valkosti Íslands á víðsjárverðum tímum. Evrópustraumar er sjálfstæð hugveita um Evrópumál. Greinar, útgefið efni og skráning á póstlista má ná...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS