Evrópustraumar

Veröld sem er

News IS ↓ 7 Folgen

Í Veröld sem er, hlaðvarpi Evrópustrauma hugveitu, er fjallað um alþjóðamál, Evrópumál og hagsmuni Íslands á alþjóðavettvangi. Með gestum af öllu tagi, sérfræðingum, stjórnmálafólki og álitsgjöfum er rýnt í stóru málin, fréttir líðandi stundar og þau atriði sem varða mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Autor

Evrópustraumar

Kategorie

News

Podcast-Website

podcasters.spotify.com

Neueste Folge

11. Jun 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja 11.06.2026

Skýrsla Evrópustrauma um ESB og rekstrarumhverfi fyrirtækja er komin út. Tollamálin, gjaldmiðlamálin og áherslubreytingar ESB eru til umfjöllunar í samtali við Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda (FA). Þátturinn er sendur út á samtengdum rásum Veraldar sem er og Kaffikróksins, hlaðvarps (FA). Skýrsluna , sem unnin var fyrir FA og Íslensk-evrópska verslunarráðið, ásamt kynningar...

Hvað myndi aðild að ESB þýða fyrir íslenskan sjávarútveg - Samtal við Hjálmar Vilhjálmsson 27.04.2026

Hjálmar Vilhjálmsson er yfirmaður uppsjávarsviðs og aðstoðarmaður forstjóra hjá Brim, einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Áður starfaði Hjálmar í um tuttugu ár sem forstjóri eistnesku útgerðarinnar Reyktal, auk þess sem hann var talsmaður og nefndarmaður í eistneskum sjávarútvegssamtökum.  Í þættinum ræðir Hjálmar hvað aðild Íslands að ESB gæti þýtt fyrir íslenskan sjávarútveg. Til umræðu...

Smáríki og stóra borðið - Samtal við danskan Evrópuþingmann 24.03.2026

Stine Bosse er danskur Evrópuþingmaður frjálslynda flokkahópsins Renew Europe. Í viðtali ræðir hún viðhorf Dana til Evrópusambandsins og áhrif Grænlandsmálsins, áhrif sín í Brussel, hvort minni ríki hafi einhver völd og þau ráð sem hún gefur íslenskum kjósendum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu. 00:00 Inngangur og umfjöllun um viðtalið við Stine Bosse. 06:40 Viðtalið í heild

„Að hafa áhrif er að tilheyra“ - Samtal við finnskan Evrópuþingmann og yfirferð á Evrópþinginu 09.03.2026

Finnski alþjóðastjórnmálaprófessorinn Mika Aaltola situr á Evrópuþinginu fyrir flokkinn European People's Party (EPP). Í viðtalinu ræðir hann um sín áhrif í Brussel sem fulltrúi Finnlands, stöðu Evrópuþingsins í dag, fullveldismál, áhuga Finna á pólitíkinni í Brussel, og þau ráð sem hann getur veitt Íslendingum nú þegar þeir standa frammi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna...

ESB-atkvæðagreiðsla í ágúst, tollar, Íran og Epstein 24.02.2026

Hallgrímur, Hjalti Geir Erlendsson og Hjörtur Ingvi Jóhannsson ræða um það sem efst er á baugi. Frétt Politico um að ESB-þjóðaratkvæðagreiðsla gæti farið fram síðsumars, tollar Trumps í ljósi dóms Hæstaréttar Bandaríkjanna um ólögmæti frelsis-tollana, stigmögnun í Íran, Epstein-skjölin, handtaka Peter Mandelson og fingraför hans á setningu hryðjuverkalaganna gegn Íslandi 2008 eru til umfjöllunar....

„Ég breyttist“ - Samtal við Þórdísi Kolbrúnu um Úkraínu, NATO, ESB-aðild og óvissutímana 20.02.2026

Þingmaðurinn og fyrrum utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ræðir stöðu mála í Úkraínu, hvernig innrás Rússa fyrir fjórum árum hefur haft áhrif á hana sem manneskju, um þýðingu þess fyrir Ísland að vera bandamaður, samskipti Evrópu og Bandaríkjanna, og Evrópusambandsumræðuna á Íslandi. www.evropustraumar.is 00:00 Inngangur 01:26 Þórdís Kolbrún breyttist og mun aldrei breytast til baka...

NATO, ESB og alþjóðamálin með Degi B. Eggertssyni 16.02.2026

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingar, er fyrsti gestur í Veröld sem er, hlaðvarpsþáttum um alþjóðamálin og stöðu Íslands. Dagur ræðir við Hallgrím um NATO og stöðu þess í dag, stefnu Bandaríkjanna undir Trump og áhrifin í Evrópu, Evrópusambandsmál og valkosti Íslands á víðsjárverðum tímum. Evrópustraumar er sjálfstæð hugveita um Evrópumál. Greinar, útgefið efni og skráning á póstlista má ná...

Höre den Podcast Veröld sem er in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet