Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Kategoria

Society

Strona podcastu

www.thjodmal.is

Ostatni odcinek

10 lip 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#264 – Með Guðmundi Fertram við eldhúsborðið á Ísafirði 12.11.2024

Við heimsækjum Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda og forstjóra Kerecis, á Ísafjörð í aðdraganda fundar sem haldinn er á vegum Innviðafélags Vestfjarða. Rætt er um stöðuna á Kerecis eftir söluna í fyrra, verðmætasköpun á landsbyggðinni, mikilvægi þess að treysta samgöngur og aðra innviði og margt fleira. Myndina á forsíðu þáttarins tók Eyþór Árnason fyrir Viðskiptablaðið.

#263 – Það sem ekki er nefnt um ehf-gatið – Viðhorfið stjórnmálanna til atvinnulífsins 07.11.2024

Sigurður Hannesson og Björn Ingi Hrafnsson ræða um viðhorf stjórnmálaflokkanna til atvinnulífsins, hvað hefur borið á góma í kosningabaráttunni sem snýr að atvinnulífinu og fleira. Við förum yfir það helsta sem kom fram á fundi Samtaka iðnaðarins með formönnum flokkanna sem haldinn var í vikunni, umræðu um orkuframleiðslu, skatta, skipulagsmál og margt fleira. Þá er rætt um hið svonefnda ehf-gat s...

#262 – Lýjandi tekjuskattskerfi sem lítið er rætt um – Björn Berg fer yfir heimilisbókhaldið 04.11.2024

Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi ræðir um nokkur atriði sem brenna nú á fólki hvað varðar heimilisbókhaldið, endurfjármögnun lána, einkaneyslu í verðbólgu, aðgengi að húsnæðismarkaði, kauphegðun á tilboðsdögum, hvort að tekjuskattskerfið sé til þess fallið að draga úr áhuga fólks að vinna og margt fleira.

#261 – Helgarvaktin undirbúin – Könnun um afstöðu til Dags 01.11.2024

Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson ræða um allt það helsta á vettvangi stjórnmálanna, hvernig fylgi flokka er að þróast, hvernig kosningabaráttan er háð, deilur innan Samfylkingarinnar, hvaða áhrif niðurstöður kosninga hafa á fjármál stjórnmálaflokkanna og margt fleira. Þá er greint frá nýrri könnun sem unnin var fyrir Þjóðmál, þar sem spurt var um afstöðu fólks til þess að Dagur B. Eggert...

#260 – Allt sem þú þarft að vita um bandarísku kosningarnar – Hermann Nökkvi stekkur vestur um haf 30.10.2024

Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, ræðir um allt það helsta sem snýr að bandarísku forsetakosningunum sem fara fram í næstu viku, af hverju fylgi frambjóðenda hefur þróast með þeim hætti sem nú er, hvernig kosningabaráttan hefur verið, hvað hefur komið á óvart, hverjar áherslurnar eru, hvaða þjóðfélagshópar styðja hvern og margt fleira.

#259 – Heiðar Guðjóns og Eldur Ólafs ræða um orku og auðlindir 28.10.2024

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq Minerals, og Heiðar Guðjónsson, hagfræðingur og fjárfestir, fjalla um orkunýtingu, þörfina á aukinni orkuframleiðslu, samhengi orkunýtingu og lífskjara, áskoranir sem bæði Íslandi og heimurinn allur standa frammi fyrir, nýtingu málma og margt fleira sem snýr að orku og auðlindarmálum. Þá er fjallað um nýafstaðinn málfund Þjóðmála um sama erindi sem hal...

#258 – Dyggðarskreyting LSR og vesen hjá Controlant en sjálfbærnifulltrúi Seðlabankans í góðum málum 25.10.2024

Hörður Ægisson og Örn Arnarson fara yfir allt það helsta sem er að gerast í viðskiptalífinu og stjórnmálunum. Rætt er um vandræði Controlant, þungan rekstur Play, uppgjör bankanna, dyggðarskreytingu LSR, fordæmalausa húsleit vegna bílalúguapóteka, ný nöfn sem eru að koma fram í pólitíkinni og margt fleira.

#257 – Pólitíkin metin í reykfylltu bakherbergi 22.10.2024

Andrés Magnússon fer yfir allt það helsta sem er að eiga sér stað á vettvangi stjórnmálanna þessa dagana. Hvernig kosningabaráttan mun þróast, hvort eitthvað hafi komið á óvart enn sem komið er, hvernig raðast á lista og hvaða aðferðum er beitt til þess, hvaða þingmenn eru að kveðja og hvort að ný nöfn muni vekja athygli, hvernig fylgi flokkanna kann að þróast og margt fleira.

#256 – Kosninga-Bjórkvöld Þjóðmála 17.10.2024

Upptaka frá Kosninga-Bjórkvöldi Þjóðmála sem fram fór á Kringlukránni 16. október. Örn Arnarson, Þórður Gunnarsson, Björn Ingi Hrafnsson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna, hvort og þá hvaða áhrif komandi kosningar hafa á efnahagsmálin og mögulegt vaxtalækkunarferli, umræðu um skattamál, hvaða mál verða helst á dagskrá í kosningabaráttunni, stjórnarslitin og atburði síðustu daga, hvaða n...

#255 – Bjarni tekur af skarið – Ríkisstjórnin sprungin 14.10.2024

Ríkisstjórnin er sprungin aðeins viku eftir að Svandís Svavarsdóttir tekur við formennsku í VG. Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson fara yfir atburði dagsins, kosningabaráttuna sem er framundan, stöðu flokkanna, þau hjaðningavíg sem kunna að eiga sér stað innan einstakra flokka og margt annað sem snýr að stjórnarslitum og komandi kosningum.

#254 – Er ekki bara best að… flauta þetta af? – Ríkisstjórn á endastöð 12.10.2024

Björn Ingi Hrafnsson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðu ríkisstjórnarinnar sem virðist komin á endastöð. Við veltum vöngum yfir því sem kann að eiga sér stað næstu daga, af hverju staðan er orðin með þessum hætti, hvort og þá hvaða flokkar eru tilbúnir í kosningar, þingmenn sem virðast á útleið og margt annað sem snýr að stjórnmálunum.

#253 – Albert Jónsson fer yfir stöðuna í alþjóðamálunum 07.10.2024

Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðastjórnmálum og fv. sendiherra, fer yfir stöðuna fyrir botni Miðjarahafs nú þegar ár er liðið frá árás hryðjuverkasamtakanna Hamas á Ísrael, hvernig mál hafa þróast á árinu sem liðið er, hvað kunni að vera framundan og hvaða áhrif þetta hefur á alþjóðakerfin. Þá er einnig farið yfir stöðuna á innrás Rússa inn í Úkraínu, veika stöðu Úkraínumanna, hvernig stuðnin...

#252 – Allt bannað nema það sem er sérstaklega leyft – Vaxtalækkun gefur von 04.10.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stýrivaxtalækkun Seðlabankans, hvaða áhrif hún hefur og hvernig næstu skref gætu litið út, um ágreining innan peningastefnunefndar, undarlegan upplýsingafund og margt fleira. Þá er rætt um hegðun lífeyrissjóða vegna netverslunar með áfengi, nýtt frumvarp sem hefur verið lagt fram í þeim efnum, ráðgjafa sem maka krókinn vegna nýrra reglna um sjálfbæ...

#251 – Flugskeytaárás og Þjóðarpúls, þó ekki á sama stað 01.10.2024

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um stöðuna í stjórnmálunum, ný andlit sem hafa litið dagsins ljós í vettvangi stjórnmálanna, nýjasta Þjóðarpúlsinn og hvaða áhrif breytingar á fylgi flokkanna geta haft, hvernig ríkisstjórnarsamstarfið mun þróast, hvers vænta megi næstu vikur og fleira. Þá er rætt um flugskeytaárás Írana á Ísrael sem átti sér stað á meðan upptöku þáttarins stóð.

#250 – Helgistund á Blönduósi 26.09.2024

Við heimsækjum gagnver Borealis á Blönduósi og tökum stöðuna á fyrirhugaðri stækkun þar á bæ. Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson ræða um uppbyggingu gagnavera hér á landi, hvaða þýðingu þessi starfsemi hefur í hagkerfinu og þar fram eftir götunum. Í því samhengi ræðum við um orkumál og nauðsyn þess að framleiða meiri orku hér á landi, þær orkuskerðingar sem eru yfirvofandi og hvaða áhrif þær hafa...

#249 – Einkaframtakið í sinni fegurstu mynd – Farið yfir stöðu ferðaþjónustunnar 23.09.2024

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, ræðir um stöðu þessarar mikilvægu atvinnugreinar, ummæli stjórnmálamanna sem vilja leggja aukna skatta á greinina eða koma böndum á hana, vöxt hennar og vaxtaverki, það hvort að menn hafi lært eitthvað af örum vexti hennar fyrir faraldur, hvernig greinin mun þróast til lengri tíma, hvort að framþróunin verði til á skrifborði stjórn...

#248 – Aukin lífsgæði byggja á öflugu atvinnulífi – Sigríður Margrét í viðtali 19.09.2024

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fer yfir sviðið í ítarlegu viðtali. Rætt er um ársfund atvinnulífsins og þau skilaboð sem þar koma fram, nauðsyn þess að ná samstöðu um græna orkuframleiðslu – og aukna orkuframleiðslu, svonefnda grænþreytu og óraunhæf markmið í loftslagsmálum, stöðuna í hagkerfinu, hvort að aðilar vinnumarkaðarins hafi reynt að hafa áhrif á ákv...

#247 – Ráðherrar á krísufundi í náttfötunum 17.09.2024

Andrés Magnússon og Björn Ingi Hrafnsson ræða um deilur innan ríkisstjórnarinnar, atburðarrásina síðustu daga og hvaða afleiðingar hún kann að hafa, hvaða möguleikar eru fyrir hendir ef ríkisstjórnin springur, hvort að hlutabréfin í dómsmálaráðherranum hafi hækkað eða lækkað, hvort að flokkarnir séu tilbúnir í kosningar og margt fleira.

#246 – Bjórkvöld Þjóðmála á Akureyri 13.09.2024

Við settum Þjóðmálastofuna upp á á Akureyri fyrir vel sótt bjórkvöld Þjóðmála. Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson ræða um það helsta í stjórnmálunum, þingsetningu, fjárlögin, fjölgun ríkisstarfsmanna, vangaveltur um formannsefni VG, mikla fjármagnsþörf ríkisins og fleira. Þá er rætt um kostnað við forsetaframboð Katrínar Jakobsdóttur, fólk sem þykist hafa gaman að því að borga skatta, rí...

#245 – Tæknin og framtíðin – Hvað er með þessa gervigreind? 09.09.2024

Ólafur Andri Ragnarsson, sérfræðingur í tæknimálum, kemur í Þjóðmálastofuna og ræðir um þá miklu tækniþróun sem hefur átt sér stað á liðnum árum. Fjallað er um gervigreind og hvort að ástæða sé að óttast þær breytingar sem hún hefur í för með sér, notkun dróna og róbóta, af hverju nær öll framþróun í tæknimálum á sér stað utan Evrópu, hvernig iðnbyltingar fara af stað, hvað verður um störfin sem s...

#244 – Fjármagnstekjur á Ljósanótt – Skrýtnar hugmyndir um sjálfærni 05.09.2024

Þjóðmálastofan færir sig suður með sjó og kemur sér fyrir í húsgagnaversluninni Bústoð í Keflavík. Örn Arnarson og Þórður Gunnarsson fjalla um umfjöllun um fjármagnstekjur og hvaða hlutverki þær gegna í samfélaginu, hvernig umræða um þær hafa þróast með einkennilegum hætti og fleira. Þá er rætt um delluhugmyndir um það hvernig sjálfbærni fyrirtækja er mæld, ummæli um ungar þingkonur og margt fleir...

#243 – Laufin falla snemma í ár 02.09.2024

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um flokksráðsfund Sjálfstæðisflokksins og stöðuna í pólitíkinni, um ný húsaleigulög, úttekt um eftirlitsiðnaðinn og viðbrögð þeirra sem alltaf vilja verja kerfið, slakt uppgjör sjávarútvegsfyrirtækja, hvort líkur séu á vaxtalækkunum, tilraun Gildis til að hemja kaupréttarkerfi skráðra fyrirtækja og margt fleira.

#242 – Ungu mennirnir láta í sér heyra – Þörf á fleiri leiðinlegum stjórnmálamönnum 29.08.2024

Brynjar Níelsson og Óli Björn Kárason ræða um fylgi Sjálfstæðisflokksins, hvað kunni að skýra lækkandi fylgi flokksins, um það hvort og þá hvaða skilaboð flokkurinn er að gefa frá sér, hvort að flokkurinn hafi sinnt kjósendum sínum nægilega vel og þar fram eftir götunum. Þá er fjallað almennt um stöðuna í stjórnmálum, um fylgi annarra flokka, ríkisstjórnarsamstarfið og fleira.

#241 – Hægri stefnan á alltaf við – Áslaug Arna í viðtali 26.08.2024

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir um hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins, hvort og þá hvaða erindi flokkurinn eigi við fólk, hvað kunni að skýra minna fylgi flokksins, hvort möguleiki sé á því að auka fylgið og þar mætti áfram telja. Þá er rætt um „fría“ hluti í boði stjórnmálamanna, baráttuna um hugmyndafræði flokka, hvort að líklegt sé að stjórnmálamenn vindi ofan af vaxandi hlutverki ríkisins,...

#240 – Gjöf til þjóðarinnar – Annar maraþonþáttur Þjóðmála á Uppi bar 23.08.2024

Annað árið í röð hlaða Þjóðmál í um fjögurra klukkustunda þátt fyrir þá sem hlaupa maraþon – og alla aðra sem vilja alvöru umræðu og upplýsingar um stöðu mála. Það færðum Þjóðmálastofuna á Uppi bar af þessu tilefni, þar sem margir gestir litu við. Gestir þáttarins eru; Sigurjón Ernir Sturluson, ofurhlaupari og framkvæmdastjóri Ultraform, Bjarney Anna Bjarnadóttir, fjárfestatengill hjá Íslandsbanka...

Słuchaj podcastu Þjóðmál w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS