Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.thjodmal.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
#289 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Meirihlutinn í borginni á lokametrunum – Kerecis heldur áfram að gefa og gefa 07.02.2025 1:16:45
Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson fara yfir allt það helsta. Meirihlutinn í Reykjavíkurborg er kominn að endamörkum og mun springa, við ræðum um vaxtalækkun Seðlabankans og hvers vænta megi í framhaldinu, aukið líf á hlutabréfamarkaði og góð uppgjör í Kauphöllinni, óvænta skattgreiðslu Kerecis, sætaskipun á Alþingi og margt fleira.
#288 – Af hverju lækka þau ekki bara skatta? – Björt Ólafs og Jens Garðar taka kvöldvaktina 04.02.2025 1:17:01
Björt Ólafsdóttir, fv. ráðherra og þingmaður, og Jens Garðar Helgason, nýkjörinn þingmaður, ræða um stöðuna í stjórnmálunum, hverjar helstu áherslurnar og hvaða áherslur vantar, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Þá er rætt um komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum, hvernig það er að reka fyrirtæki hér á landi, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og margt fleira.
#287 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Bundinn er bátlaus maður – Formsatriði var ekki fullnægt 31.01.2025 1:44:05
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir fyrsta mánuðinn í lífi ríkisstjórnarinnar, hið nýja styrkjamál, hvernig halda þarf Flokki fólksins í gjörgæslu, um ónot í garð Morgunblaðsins, ráðningu á flokksgæðingum í ráðuneyti menntamála, slaginn um þingflokksherbergin, formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og mögulega í Framsóknarflokknum og margt fleira.
#286 – Áslaug Arna í viðtali fyrir formannsframboð 27.01.2025 1:06:55
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, hvert flokkurinn á að stefna að hennar mati, hvað hefur misfarist á liðnum árum, hvað hún á við þegar hún segist vilja breyta flokknum, hvernig stjórnarandstöðunni verður háttað og margt fleira.
#285 – Við erum komnir til að sjá og hirða (peningana frá) Sigurjón digra 24.01.2025 1:16:25
Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um titring í Húsi atvinnulífsins vegna gagnrýni á kjarasamninga, það hvernig íslenska vinnumarkaðsmódelið heftir samkeppnishæfni og lífskjör í landinu, furðulegan fréttaflutning Ríkisútvarpsins um umsvif sjávarútvegsfyrirtækja í atvinnulífinu – sem eru sáralítil þegar nánar er að gáð, um þá miklu styrki sem Flokkur Ingu Sælands hefur fengið án þess þó að vera st...
#284 – Gisli Freyr og Stefán Einar í Washington 21.01.2025 1:21:30
Gísli Freyr og Stefán Einar voru staddir í Washington D.C. þegar innsetningarathöfn nýs forseta fór fram. Við fjöllum um það sem helst vakti athygli okkar í borginni þessa daga, hvers vænta megi af nýjum forseta, um ofsafengin viðbrögð við litlum hlutum og annað sem helst hefur borið á góma á liðnum dögum – sumt í samhengi við það sem er að eiga sér stað heima fyrir og annað ekki.
#283 – Helgavaktin með Heiðari Guðjóns og Heiðrúnu Lind 17.01.2025 1:23:10
Heiðar Guðjónsson og Heiðrún Lind Marteinsdóttir ræða um það sem hefur helst borið á góma hjá nýrri ríkisstjórn, hvort að líklegt sé að hagræðingartillögum verði fylgt eftir, hvort að rétt sé að leggja áherslu á umsókn að Evrópusambandinu, snúna stöðu stjórnarflokkanna vegna strandveiða og fleira. Þá er rætt um líkurnar á lægri vöxtum á árinu, leyfisveitingar í atvinnulífinu, hvaða áhrif áhugi Tru...
#282 – Kaffispjall með Sigurði G. Guðjónssyni 14.01.2025 1:07:15
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður ræðir um félagafrelsið og rétt starfsmanna veitingastaða til að gera kjarasamning við stéttarfélagið Virðingu, þrátt fyrir mótmæli Eflingar. Þá er rætt um stöðu fjölmiðla, aðgerðir stjórnvalda til að setja hindranir í veg fyrir einstaklinga og fyrirtæki, slaufunarmenningu og loks réttarríkið og það hvernig því var vikið til hliðar við rannsóknir og dómafr...
#281 – Helgarvaktin – Þú setur mig ekkert á hillu 10.01.2025 1:01:44
Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson leiða okkur inn í helgina. Við ræðum um væntanlega formannakjör í Sjálfstæðisflokknum, hvað Dagur B. ætti að gera við ofurlaunin sín, ummæli Katrínar Ólafdóttur hagfræðings um aukna skattheimtu á sjávarútveginn, rándýra auglýsingarherferð Isavia, stöðuna á hlutabréfamarkaði, af hverju það er ekki búið að skipa nýjan varaseðlabankastjóra og margt fleira.
#280 – Bjarni sprengir stóru tertuna á þrettándanum – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 06.01.2025 1:09:56
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, formannstíð Bjarna, stöðu flokksins og almennt yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðastjórnmálum, valdatöku Trump síðar í þessum mánuði, veikleika ESB-ríkjanna, stöðuna í Úkraínu og margt fleira.
#279 – Nýtt ár og nýtt upphaf með Andrési og Stefáni Einari 02.01.2025 1:45:15
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson taka stöðuna í upphafi nýs árs. Við ræðum vel heppnaða Áramótasprengju Þjóðmála sem haldin var í Borgarleikhúsinu, förum yfir nýliðið ár og þá atburðarrás sem hófst strax í upphafi ársins og leiddi af sér tvennar kosningar, hvernig ný ríkisstjórn fer af stað, val á aðstoðarmönnum, áskoranirnar á nýju ári, mögulegt uppgjör í Sjálfstæðisflokknum, stöðu alþ...
#278 – Á milli jóla og nýárs með Óla Birni Kárasyni 28.12.2024 1:10:39
Óli Björn Kárason fer yfir stöðu mála í stjórnmálunum í lok árs, nýja ríkisstjórn, stöðu Sjálfstæðisflokksins, hugmyndafræðina og margt fleira.
#277 – Ný ríkisstjórn – Ríkisstjórn kerfisins, af kerfinu, fyrir kerfið 21.12.2024 51:24
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson rýna í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar, helstu áherslur hennar, ráðherraskipan, hlutverk aukaleikara í ríkisstjórnarsamstarfinu, stöðu verðandi stjórnarandstöðu og margt fleira.
#276 – Gummi vísar veginn 19.12.2024 1:18:45
Guðmundur Hafsteinsson, Gummi, fjallar um nýútkoma bók sína þar sem sagt er frá störfum hans hjá Google, Apple og öðrum fyrirtækjum í tækniheiminum. Rætt er um ástæður fyrir velgengni eða falli stórra fyrirtækja, vandanum sem skapast þegar frumkvöðlar flækjast fyrir í vexti sinna eigin fyrirtækja, um tækninýjungar sem hafa eða munu breyta lífum okkar, hvort við ættum að óttast gervigreindina eða n...
#275 – Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Opinber starfsmaður 16.12.2024 55:40
Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræða um þær ólíku aðstæður sem annars vegar opinberir starfsmenn og hins vegar starfsmenn á einkamarkaði búa við, nýlega úttekt Viðskiptaráðs um sama mál og viðbrögðin við þeirri úttekt, styrki til stjórnmálaflokka, yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður, rekstur fyrirtækja á leikskólum, skipu...
#274 – Hörður og Stefan Einar gíra sig upp í jólaskapið – Viðreisn velur vinstri beygju – Áramótasprengja Þjóðmála undirbúin 13.12.2024 1:16:59
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á markaði, yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður, hvort að staða ríkissjóðs sé í raun verri en áður var haldið, mikla hækkun á gengi Amaroq MInerals, erlendar fjárfestingar á Íslandi og margt fleira. Í þættinum eru jafnframt flutt tíðindi um Áramótasprengju Þjóðmála, þar sem árið verður gert upp í Borgarleikhúsinu mánudaginn 30. desember...
#273 – Kaffispjall með Snorra Mássyni 10.12.2024 1:07:15
Snorri Másson, nýkjörinn þingmaður Miðflokksins, ræðir um nýafstaðnar kosningar og kosningabaráttuna, það hvernig pólitísk umræða fer fram, hvernig pólitískir andstæðingar tala um hvorn annan, hvernig stjórnmálin gætu þróast næstu ár og margt fleira.
#272 – Framsókn refsað fyrir vinstri beygju og draumastjórn góða fólksins náði ekki að landi 06.12.2024 1:05:50
Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson ræða um mögulegt ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, ákvörðun Bjarna Benediktssonar að heimila hvalveiðar, einkunnagjöf fráfarandi ráðherra og margt fleira sem helst ber á góma á vettvangi þjóðmálanna þessa dagana.
#271 – Brynjar Þ. Níelsson og Sigríður Á. Andersen kveikja á (pólitískum) kertum í upphafi aðventunnar 02.12.2024 1:20:36
Sigríður Ásthildur Andersen og Brynjar Þór Níelsson fara yfir niðurstöður kosninganna um helgina en ræða einnig um það hvernig stjórnmálin eru að þróast, hvort að niðurstaðan feli í sér hægri bylgju eða kratisma, um það hvort að embættismenn ráði meiru heldur en stjórnmálamenn og margt fleira.
#270 – Kosningaþáttur Þjóðmála – Þátturinn sem þjóðin beið eftir 28.11.2024 1:47:26
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt sem skiptir raunverulega máli fyrir kosningarnar á laugardaginn. Við förum yfir kosningabaráttuna, hvernig næstu tveir sólarhringar gætu litið út, tíðindi af vettvangi stjórnmálann sem okkur bárust á meðan upptöku stóð, skróp nokkurra flokka á kosningafundi á Suðurlandi og margt margt fleira.
#269 – Fjórir dagar í kosningar en línur óskýrar 26.11.2024 1:02:50
Björn Brynjólfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður á Morgunblaðinu, fara yfir stöðuna þegar fjórir dagar eru í kosningar. Rætt er um það sem helst skiptir máli, það sem ekki hefur verið fjallað um í aðdraganda kosninga, hvort eitthvað hafi komið á óvart, skoðanakannanir og fleira. Við tökum einnig snúning á kosningaprófi Viðskiptaráðs sem yfir 10.0...
#268 – Hamingjusamir sneru þeir af Hátíðarkvöldi Þjóðmála 22.11.2024 1:02:06
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta glaðir í bragði eftir Hátíðarkvöld Þjóðmála. Við ræðum um þau verðlaun sem Þjóðmál veitti aðilum úr atvinnulífinu og helstu rökum á bakvið þau. Þá er einnig fjallað um stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni, stöðuna í aðdraganda kosninga, umræðuna um evrópusambandsaðild og margt fleira.
#267 – Stefán Einar og Andrés meta stöðuna í aðdraganda kosninga 19.11.2024 1:27:00
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson frá Morgunblaðinu fara yfir stöðuna í aðdraganda kosninga, hvernig næstu tvær vikur kunna að líta út, helstu málefnin sem fjallað er um í kosningabaráttunni, fjölmiðlaumfjöllun um kosningarnar, hvaða áhrif komandi vaxtaákvörðun kann að hafa og margt fleira sem vert er að fjalla um þegar tæpar tvær vikur eru í kosningar.
#266 – Helgarvaktin með Benedikt Gíslasyni 16.11.2024 1:11:23
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, og Hörður Ægisson ræða um það hvaða áhrif séríslenskar reglur og háir skattar hafa á fjármálakerfið – og að lokum viðskiptavini bankanna. Þá er einnig rætt um líkurnar á stýrivaxtalækkun í næstu viku, gagnrýni Benedikts og annarra á vaxtastefnu Seðlabankans, stöðu heimila og fyrirtækja út frá sjónarhorni bankanna, horfurnar í hagkerfinu, stöðuna á hlutab...
#265 – Kaffispjall með Hannesi Hólmsteini 14.11.2024 1:09:02
Hannes Hólmsteinn Gissurarson tekur kaffispjall í Þjóðmálastofunni. Við förum yfir úrslit kosninganna í Bandaríkjunum og það hvað kann að skýra niðurstöður þeirra, tökum stöðuna hér heima, ræðum um óhamingjusama vinstri menn og hægri menn sem eru seinþreyttir til vandræða, um þjóðarstolt og alþjóðahyggju og margt fleira.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS