RÚV

Sjö mínútur með fréttastofu RÚV

News IS ↓ Odcinki: 64

Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is

Autor

RÚV

Kategoria

News

Strona podcastu

www.ruv.is

Ostatni odcinek

15 mar 2024

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Hvað er málið með Tiktok og bandaríska þingið? 15.03.2024

Bandaríska fulltrúadeildin samþykkti í vikunni frumvarp sem gæti orðið til þess að Tiktok verði bannað vestanhafs. Við hvað eru bandarískir þingmenn hræddir? Safnar Tiktokt eitthvað meiri upplýsingum um okkur en Facebook og Twitter? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Hallgrímur Indriðason svara því. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Konungsfjölskyldan sem ekkert hefur lært 13.03.2024

Katrín prinsessa af Wales fór í aðgerð um miðjan janúar og síðan þá hefur netið logað af samsæriskenningum um hvar hún sé og hvernig hún líti út. Breytt mynd sem hún birti á mánudag hefur gert lítið til að lægja þær öldur. Anna Lilja Þórisdóttir veit meira um málið. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

Pútín gegn Biden eða Trump 11.03.2024

Um helgina ganga Rússar að kjörborðinu og kjósa Pútín áfram sem leiðtoga sinn. Vestanhafs er öllu meiri spenna þar sem Trump og Biden reyna að vinna kjósendur á sitt band. Skipta þessar kosningar okkur hin einhverju máli? Hallgrímur Indriðason reynir að svara þeirri spurningu. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Hulunni svipt af huldumanninum Davíð 08.03.2024

Frá áramótum hefur Urður Örlygsdóttir aðeins hugsað um eitt; athafnamanninn Quang Lé sem er ættaður frá Víetnam og vill láta kalla sig Davíð Viðarsson. Hann er einn þeirra sex sem úrskurðuð voru í gæsluvarðhald eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu sem beindust að viðskiptaveldi Quang. Urður segir frá Kveiksþættinum og vinnunni á bakvið hann. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Þarf Sjálfstæðisflokkurinn ekki á VG að halda í útlendingafrumvarpinu? 06.03.2024

Þingflokksformaður VG upplýsti í ræðu á Alþingi að flokkurinn setti ákveðna fyrirvara við útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra. Þetta kom stjórnarandstöðunni á óvart. Af hverju gerði VG þessa fyrirvara og skipta þeir einhverju máli? Höskuldur Kári Schram fer yfir stöðuna. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Bíddu - átti ekki að koma gos? 04.03.2024

Það héldu allir að það væri að fara að gjósa á laugardag. En svo gerðist ekki neitt. Þýðir það að það er stutt í næsta gos? Benedikt Sigurðsson fylgdist með jarðhræringunum á laugardag og segir frá skemmtilegri uppákomu á Veðurstofunni og túristum sem vildu sjá gos. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Nærri búinn að kaupa samningajakka þegar allt fór í háaloft 01.03.2024

Samningamaður í kjaraviðræðum breiðfylkingar stéttarfélaganna og Samtaka atvinnulífsins væri nærri búinn að kaupa jakka sem hann ætlaði klæðast við undirritun kjarasamninga þegar allt fór í háaloft. Boðað hefur verið til fundar í dag en er líklegt að deiluaðilar nái saman um helgina? Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir spáir í spilin. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Hver er sannleikurinn um blóðmerahald? 28.02.2024

Kveikur fjallaði í gær um blóðmerahald og hver staðan er í þessari umdeildu atvinnugrein tæpum þremur árum eftir að svissneskir dýraverndunarsinnar birtu myndskeið frá hestahaldi sem fáir vissu af. María Sigrún Hilmarsdóttir segir frá tilraunum Kveiks til að fá að mynda blóðmerahald og ræða við forsvarsmenn Ísteka, eina fyrirtækið sem kaupir blóðið. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Staða Alberts eftir ákvörðun héraðssaksóknara og vopnahlésvon á Gaza 26.02.2024

Héraðssaksóknari felldi á fimmtudag niður mál Alberts Guðmundssonar. Þýðir það að hann komi til greina í landsliðshóp Íslands fyrir umspilsleikinn gegn Ísrael? Það hefur kviknað von um að hægt sé að koma á vopnahléi á Gaza? Hvernig yrði það? Magnús Geir Eyjólfsson og Ólöf Ragnarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Flóknar umræður framundan um útlendingamálin á Alþingi 23.02.2024

Ríkisstjórnin segist hafa náð samstöðu um aðgerðir í útlendingamálum en framundan eru flóknar umræður um málaflokkinn. Hverjum finnst hvað og hvers vegna? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir reynir að svara þessum spurningum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Læknirinn sem segist vera að bjarga fíklum 21.02.2024

Árni Tómas Ragnarsson segist vera læknir af gamla skólanum. Hann hefur verið sviptur starfsleyfi sínu að hluta eftir að hafa ávísað morfinlyf til hóps fíkla. Í dag er væntanleg ný þáttaröð Péturs Magnússonar um Árna Tómas, skaðaminnkunarúrræði og af hverju landlæknir svipti hann starfsleyfinu sínu að hluta. Pétur segir frá en umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Fyrrverandi formenn verja Kristrúnu og sárir Grindvíkingar í röð 19.02.2024

Kristrún Frostadóttir fór í viðtal við hlaðvarpsþátt og upplýsti hver stefna flokksins væri í útlendingamálum. Tveir formenn Samfylkingarinnar sáu ástæðu til að koma henni til varnar. Af hverju? Grindvíkingar eru sárir og spyrja; hvers vegna fær Bláa lónið að hafa opið en ekki önnur fyrirtæki? Magnús Geir Eyjólfsson og Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Leitin að Jóni Þresti og ofbeldi danskra barna 16.02.2024

Í fimm ár hefur fjölskylda Jóns Þrastar Jónssonar barist fyrir því að halda máli hans opnu eftir að hann hvarf í Dyflinni. Til tíðinda dró fyrir viku þegar greint var frá tveimur nafnlausum bréfum og í vikunni var svæði girt af í almenningsgarði. En hvað gerist í dag? Ein af mest lesnu fréttunum á ruv.is í vikunni var frá Danmörku þar sem greint var frá ofbeldi barna í garð annarra barna í grunnsk...

Fjölskyldusameining sem reyndi á þolrif ríkisstjórnarflokkanna 14.02.2024

Þrír starfsmenn á vegum utanríkisráðuneytisins eru komnir til Kaíró til að reyna greiða leið þeirra Palestínumanna á Gaza sem eiga rétt á dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Utanríkisráðherra segist trúa því að ferðin skili einhverjum árangri. Málið hefur samt reynt á þolrif ríkisstjórnarflokkanna. Höskuldur Kári Schram segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Farið að bera á gremju á Suðurnesjum vegna heitavatnsleysis 12.02.2024

Íbúar Suðurnesja hafa mátt búa við heitavatnsleysi og skert rafmagn eftir að stutt en afdrifaríkt eldgos skemmdi Njarðvíkurlögnina og ekki tókst að tengja hjáveitulögnina. Unnið er á vöktum við að búa til nýja heitavatnslögn en Suðurnesjamenn vilja vita; hverjum er þetta að kenna? Linda Blöndal segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Eldgos sem ógnaði heitu vatni og Ofurskál í uppbótartíma 09.02.2024

Ofurskálin í bandarísku NFL-deildinni átti að vera ein í aðalhlutverki en svo byrjaði að gjósa og glóandi hraunbreiða ógnaði heita vatninu á Suðurnesjum. Því var gripið til uppbótartíma sem þau Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir, Andri Ólafsson og Fanney Birna Jónsdóttir nýttu til fulls. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Hryðjuverkamálið fyrir dóm: Var Sindra Snæ og Ísídór fúlasta alvara? 07.02.2024

Á morgun hefjast réttarhöld í einu sérkennilegasta sakamáli seinni ára; hryðjuverkamálinu. 504 dögum eftir að ríkislögreglustjóri hélt blaðamannafund og sagði íslenskt samfélag vera öruggara eftir handtöku tveggja manna koma þeir fyrir fjölskipaðan Héraðsdóm Reykjavíkur og reyna að sannfæra dóminn um að þeir séu meinleysisgrey. Ákæran er ítarleg og þar er ýmislegt sem vekur upp spurningar. Stígur...

Eru ekki allir spenntir fyrir næstu stýrivaxtaákvörðun? 05.02.2024

Á miðvikudag kynnir peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands stýrivaxtaákvörðun sína. Af hverju skiptir það þig máli og hvaða áhrif hafa hlutir eins og kjaraviðræður og Grindavík? Magnús Geir Eyjólfsson útskýrir þetta . Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Engin vöffluilmur í Karphúsinu en kannski gos á næstu dögum og tvenn Grammy 02.02.2024

Það er komið fjölmiðlabann í Karphúsinu og það er yfirleitt vísbending um að staðan sé viðkvæm og kjaraviðræður séu að þokast áfram. Það hefur ekkert bann verið sett á eldgos á Reykjanesskaga; það er ekki spurning hvort heldur hvenær það sjötta kemur. Og svo eru það Grammy-verðlaunin sem hvorki Haukur Holm né Ingunn Lára Kristjánsdóttir hafa unnið en Laufey og Ólafur Arnalds gætu gert það.

Getur Eurovision orðið eitthvað annað en pólitík? 31.01.2024

Sænskir tónlistarmenn bættust í hóp þeirra sem hvetja forsvarsmenn Eurovision til að banna Ísrael frá keppni vegna stríðsreksturins á Gaza. Það flækir aðeins málið að Svíar halda keppnina í ár. Við sögu kemur líka framlag Lúxemborgar sem er ísraelsk söngkona og framlag Íra en hán vill ekki að Ísraelar fái að taka þátt. Birta Björnsdóttir segir frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Ísland frystir neyðaraðstoð og flóknir búferlaflutningar 29.01.2024

Alþjóðadómstóllinn í Haag sagði að auðvelda yrði íbúum Gaza að fá neyðaraðstoð. Á sama tíma frystu nokkur ríki peninga sem áttu að renna til Palestínuaðstoðar Sameinuðu þjóðanna eftir að grunur vaknaði að nokkrir starfsmenn hennar hefðu aðstoðað við hryðjuverkaárás Hamas. Og einir flóknustu búferlaflutningar í sögu Íslands hefjast á morgun. Andri Yrkill Valsson og Brynjólfur Þór Guðmundsson segja...

Jarðhræringar sem halda takti og íbúar sem bíða eftir lausn 26.01.2024

Ef ekkert breytist næstu daga gætu íbúar Grindavíkur fengið að vitja eigna sinna í fyrsta skipti síðan gossprunga opnaðist við bæjarmörkin og hraun rann inn í bæinn. En hvernig er staðan í bænum, sprungunum sem þar hafa myndast og landrisinu við Svartsengi? Benedikt Sigurðsson og Alma Ómarsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Gaza og Söngvakeppnin og þau sem Óskarinn hunsaði 24.01.2024

Stríðsrekstur Ísraela heldur áfram á Gaza og hungursneyð vofir yfir hálfri milljón íbúa. RÚV hefur skipt um stefnu varðandi Eurovision og ætlar að leyfa sigurvegara Söngvakeppninnar að ráða. Og svo eru það Margot Robbie og Leonardo DiCaprio sem hafa leikið hjón og fengu hvorug tilnefningu til Óskarsverðlauna. Dagný Hulda Erlendsdóttir, Andri Yrkill Valsson og Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir segja fr...

Facebook-færsla Bjarna og vantrauststillaga Ingu Sæland 22.01.2024

Utanríkisráðherra skrifaði færslu á Facebook sem vakið hefur mikla athygli. Voru einhver dulin skilaboð í færslunni og hvað verður um vantrauststillögu Ingu Sæland? Alma Ómarsdóttir og Magnús Geir Eyjólfsson setja sig í stellingar fyrir þing sem gæti hafist með hvelli. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson

Grindavík ekki afskrifuð og óhugnanlegt morðmál þingfest 19.01.2024

Grindavík er stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar þessa dagana og fátt annað komist að hjá henni. Í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag verður þingfest óhugnanlegt morðmál. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Stígur Helgason segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.

Słuchaj podcastu Sjö mínútur með fréttastofu RÚV w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS