RÚV
Sjö mínútur með fréttastofu RÚV
Fréttastofa RÚV kryfur augnablikið á 7 mínútum alla mánudaga, miðvikudaga og föstudaga. Umsjón: Freyr Gígja Gunnarsson.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: www.ruv.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Grindavík illa leikin af náttúruöflunum 17.01.2024 7:26
Það er hætt að gjósa við Grindavík en það sér ekki fyrir endann á jarðhræringunum. Benedikt Sigurðsson fór til Grindavíkur þegar byrjaði að gjósa og segir frá upplifun sinni. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson
Þegar ein versta sviðsmyndin rættist í Grindavík 15.01.2024 6:38
Í gær rættist ein versta sviðsmynd vísindamanna þegar gossprungur opnuðust nærri Grindavík. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir segja frá sólarhring sem gleymist seint. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Taugarnar þandar fyrir fyrsta leikinn á EM í handbolta 12.01.2024 7:16
Hvað fer í gegnum kollinn á leikmönnum fyrir fyrsta leik á stórmóti? Af hverju er leikur Íslands í dag einn sá erfiðasti í riðlinum? Ásgeir Örn Hallgrímsson og Kári Kristján Kristjánsson, sérfræðingar EM-stofunnar, fara yfir það sem er framundan á EM í handbolta. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Fíflið, prinsinn og kóngurinn 10.01.2024 6:47
Kynnir Golden Globe skráði sig á spjöld sögunnar, Andrés prins fær líklega ekki að snúa heim en Friðrik heimsækir móður sína sem krónprins og gengur þaðan út sem kóngur. Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Birta Björnsdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson
Pattstaða forsætisráðherra 08.01.2024 7:11
Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu á föstudag um að matvælaráðherra hefði ekki farið að lögum þegar hún stöðvaði hvalveiðar. Hún ætlar ekki að segja af sér. Benedikt Sigurðsson, fréttamaður fer yfir stöðuna. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
11 milljarða króna brjálsemi sem gekk upp 05.01.2024 7:27
Fjórða þáttaröðin af True Detective hefur fengið lofsamlega dóma hjá þeim útvöldu gagnrýnendum sem hana hafa séð. Þættirnir verða frumsýndir um miðjan mánuðinn. Leifur Dagfinnsson, framleiðandi hjá True North, ræðir um 11 milljarða króna verkefnið og samstarfið við stórstjörnuna Jodie Foster.
Hvernig er að vera í framboði til embættis forseta Íslands? 03.01.2024 7:12
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tilkynnti óvænt á nýársdag að hann yrði ekki í framboði í næstu forsetakosningum sem fara fram í sumar. Leitin að næsta forseta er hafin. Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Landsvirkjun og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir frá þeirri reynslu sinni að bjóða sig fram í forsetakosningum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Besta upphitunin fyrir Skaupið? Annállinn 22.12.2023 7:22
Það er góð upphitun fyrir Skaupið á gamlársdag að horfa á annálin. Ólöf Ragnarsdóttir og Alma Ómarsdóttir hafa umsjón með honum í ár og þær reyna að fara yfir það helsta á sjö mínútum. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Soðið, kjarnhitamælirinn og tíminn bestu vinirnir 20.12.2023 7:41
Þótt byrjað sé að gjósa þarf samt að hugsa um jólamatinn. Þar eru soðið, kjarnhitamælirinn og tíminn bestu vinir kokksins. Ægir Friðriksson, deildarstjóri matreiðslu við MK, fer yfir bestu trixin í bókinni. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Það er byrjað að gjósa 19.12.2023 8:41
Eldgos hófst á Reykjanesskaga klukkan 22:17 í gærkvöld. Heiðar Örn Sigurfinnsson, Ingunn Lára Kristjánsdóttir, Birgir Þór Harðarson og Hallgrímur Indriðason segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
"Það gengur allt af göflunum," þegar jólabókaflóðið brestur á 18.12.2023 7:35
Eru ekki allir að hugsa um bækur á þessum árstíma? En hvernig er að fjalla um bækur og rithöfunda í jólabókaflóðinu? Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, og Sunna Dís Másdóttir, gagnrýnandi í Kiljunni, segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Ímyndarkrísa hjá lögreglunni eftir fréttir af strippurum og áreitni? 15.12.2023 7:38
Er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu á leiðinni í ímyndarkrísu eftir fréttir af strippurum og áreitni háttsettra yfirmanna? Kolbeinn Tumi Daðason, fréttastjóri Vísis, og Sigríður Dögg Auðunsdóttir, velta þessu fyrir sér. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Það sem heimsbyggðin var að google en líka Svíar og Norðmenn 13.12.2023 6:58
Heimsbyggðin hafði áhuga á stríðinu á Gaza, Oppenheimer og Barbie en líka Jeremy Renner. Norðmenn veltu fyrir sér hvað væri Woke, Hamas og gjörunnin matvæli. Svíar vildu vita hvað þeir fengju í orkustyrk og Bretar hvenær næsti Love Island yrði sýndur. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Réttað í morðmáli og P Diddy í vandræðum 11.12.2023 7:36
Í dag hefjast réttarhöld í sérstöku morðmáli sem kom upp á Ólafsfirði fyrir meira en ári síðan. Og fjórar konur hafa sakað Sean Combs, betur þekktan sem P Diddy, um gróf kynferðisbrot. Ólöf Erlendsdóttir og Atli Már Steinarsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Laufeyjar-fyrirbærið og Litla Hraun 08.12.2023 7:07
Hvernig varð Laufey að þessari stjörnu sem hún er orðin? Hversu slæmur staður er Litla Hraun? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Sveinn Andri Sveinsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Jólin "koma" hjá þingmönnum og sjötta útgáfan af GTA 06.12.2023 7:46
Hvernig vita þingmenn að jólin eru að koma? Hvað er svona merkilegt við stiklu úr sjöttu útgáfunni af GTA? Höskuldur Kári Schram og Ólafur Þór Jóelsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Varahéraðssaksóknari flytur til Haag 04.12.2023 7:35
Kolbrún Benediktsdóttir hefur verið varahéraðssaksóknari í átta ár. Á næsta ári flytur hún hins vegar til Haag og verður saksóknari hjá Eurojust næstu þrjú árin, eitthvað sem hún telur að eigi eftir að breyta miklu í baráttunni gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Loftslagsráðstefna númer 28 og skemmda vatnslögnin til Eyja 01.12.2023 7:51
Hvað vill Ísland gera á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna? Hvernig líður Eyjamönnum með skemmdu vatnslögnina? Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Linda Blöndal segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Tvær yfirlýsingar um næturbrölt og gengi Íslands á HM 29.11.2023 7:31
Af hverju þurfti þingmaður Pírata að senda frá sér tvær yfirlýsingar um eigið næturbrölt? Og hvernig á íslenska kvennalandsliðinu í handbolta eftir að ganga á HM? Höskuldur Kári Schram og Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Hussein einn eftir á Íslandi og bjartara yfir Grindavík 27.11.2023 7:29
Af hverju fær Hussein Hussein að vera á Íslandi en ekki fjölskyldan hans? Eru Grindvíkingar farnir að eygja von um endurkomu? Haukur Holm og Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Bankar sjá að sér og Katar í lykilhlutverki 24.11.2023 7:27
Af hverju skiptu bankarnir um kúrs gagnvart Grindavík? Hvers vegna er Katar að semja við Hamas um lausn gísla? Höskuldur Kári Schram og Bjarni Pétur Jónsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Dómur í Bankastræti Club-máli og allt á suðupunkti hjá OpenAI 22.11.2023 7:38
Hversu lengi verður dómari að lesa upp dómsorðið í Bankastræti Club-málinu? Af hverju er það stórfrétt að Sam Altman hafi verið rekinn? Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir og Þorgils Jónsson segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Jarðhræringar og stýrivextir og nýtt landris við Svartsengi 20.11.2023 7:25
Hafa jarðhræringarnar í Grindavík áhrif á hvort stýrivextir hækki eða lækka? Og hvað þýðir nýtt landris við Svartsengi? Magnús Geir Eyjólfsson og Ragnhildur Thorlacius segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson
Stríð tengt ákveðinni nýlendustefnu og afskiptasemi alþjóðastofnana 17.11.2023 7:31
?Þetta er nútímalegt stríð sem byggir á ákveðnum atburðum 20. aldar og tengjast hugmyndum um þjóðerni og sjálfsmynd, ákveðinni nýlendustefnu og afskiptasemi alþjóðastofnana,? segir Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor í sögu Mið-Austurlanda. Hann ræðir við fréttastofu í hlaðvarpsþættinum Sjö mínútur með fréttastofu RÚV. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson
Falsfréttir á tímum jarðhræringa og Grindavíkurbær rýmdur í skyndi 15.11.2023 7:09
Hvaða falsfréttir komust á kreik þegar Grindvíkingar þurftu að yfirgefa bæinn sinn? Og af hverju þurfti að rýma bæinn í skyndi í gær? Ingunn Lára Kristjánsdóttir og Ragnhildur Thorlacius segja frá. Umsjón hefur Freyr Gígja Gunnarsson.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS