Ritstjórn Morgunblaðsins

Hringferðin

Society IS ↓ Odcinki: 92

Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: sites.libsyn.com

Autor

Ritstjórn Morgunblaðsins

Kategoria

Society

Strona podcastu

sites.libsyn.com

Ostatni odcinek

15 maj 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

X26 - Reykjavík: oddvitar berjast um borgina 15.05.2026

Oddvitar stærstu framboðanna í Reykjavík tókust á um meirihlutamyndun, rekstur borgarinnar, samgöngur, húsnæðismál og skóla í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Mikill hiti var í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þegar oddvitar sex stærstu framboðanna í Reykjavík mættust í Hádegismóum á lokametrum kosningabaráttunnar. Þar sátu fyrir svörum Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisfl...

X26 - Reykjavík: Baráttuframboðin takast á 15.05.2026

Oddvitar fimm framboða sem berjast um sæti í borgarstjórn Reykjavíkur tókust á um rekstur borgarinnar, húsnæðismál, samgöngur, leikskóla og Evrópusambandið í fyrri hluta oddvitakappræðna Morgunblaðsins og mbl.is fyrir sveitarstjórnarkosningarnar á laugardag. Þátttakendur voru Ingimar Þór Friðriksson fyrir Góðan daginn framboðið, Guðmundur Ingi Þóroddsson fyrir Flokk fólksins, Sigfús Aðalsteinsson...

X26 - Kópavogur: Oddvitaslagur 14.05.2026

Fjármál Kópavogsbæjar, Kópavogsmódelið í leikskólamálum og samgöngusáttmálinn eru á meðal helstu átakapunkta í Kópavogi. Oddvitar fimm stærstu framboðanna í Kópavogi takast á í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum.  Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknarflokksins, María Ellen Steingrímsdóttir, oddviti Viðreisnar, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Jónas Már To...

X26 - Hafnarfjörður: oddvitaslagur 13.05.2026

Oddvitar framboðsflokkanna í Hafnarfirði mætast í myndveri Morgunblaðsins og mbl.is og fara yfir stóru málin þar í bæ. Blaðamennirnir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson stýra umræðunum og spyrja oddvitaefnin spjörunum úr um þau málefni sem helst brenna á bæjarbúum og þeirra sýn á næsta kjörtímabil komist þeir til valda. Sex framboð bjóða fram í Hafnarfirði. Í kappræðunum mætast þau Valdim...

X26 - Reykjanesbær: vaxtaverkir bæjarfélagsins 12.05.2026

Oddvitar framboða í Reykjanesbæ eru sammála um að bærinn hafi vaxið of hratt á undanförnum árum. Mikill vöxtur, uppbygging innviða, húsnæðismál, atvinnuþróun, málefni hælisleitenda og framtíð Þróunarfélagsins Kadeco voru meðal helstu umræðuefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is. Í kappræðunum mættu Arnar Páll Guðmundsson fyrir Viðreisn, Guðný Birna Guðmundsdóttir fyrir Samfylkinguna, Vil...

X26 - Árborg: oddvitar mætast 12.05.2026

Oddvitar fjögurra framboða í Árborg takast á í myndveri Morgunblaðsins. Fjármál sveitarfélagsins, álögur á íbúa og fyrirtæki, uppbygging innviða, leikskólamál, atvinnuþróun og framtíð byggðanna við ströndina eru á dagskrá. Matthías Bjarnason Framsóknarflokki, Heiðrún Kristmundsdóttir frá Viðreisn, Sigurjón Vídalín Samfylkingu og bæjarstjórinn Bragi Bjarnason fyrir Sjálfstæðisflokk mætast en þær An...

X26 - Eyjafjarðarsveit: Vilja tempra vöxtinn 12.05.2026

Í Eyjafjarðarsveit er mikil ásókn í lóðir og húsnæði en oddvitar beggja framboðslista í sveitarfélaginu leggja áherslu á að vöxturinn verði ekki of hraður. Þeir segja mikilvægt að innviðir fylgi íbúafjölguninni og að samfélagskenndin haldist. Sveitarfélagið er sjálfstætt, með um 1.200 íbúa, og varð til 1. janúar 1991 við sameiningu Hrafnagilshrepps, Öngulsstaðahrepps og Saurbæjarhrepps. Það nær yf...

X26 - Garðabær: ólíkar áherslur oddvita 11.05.2026

Skiptar skoðanir eru meðal oddvita í Garðabæ um Borgarlínu, uppbyggingu, fasteignagjöld og mögulegt samstarf eftir kosningar. Þetta kemur fram í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is þar sem frambjóðendur sex lista í Garðabæ tókust á um stöðu bæjarins og næstu verkefni. Í kappræðunum mættu Kjartan Atli Kjartansson fyrir Samfylkinguna, Hlynur Bæringsson fyrir Framsókn, Guðlaugur Kristmundsson f...

X26 - Skagafjörður: Íbúafjölgun stóru áskorunina 11.05.2026

Frambjóðendur fjögurra lista í Skagafirði eru sammála um að fjölgun íbúa sé eitt stærsta verkefni sveitarfélagsins á komandi kjörtímabili. Þeir greinir hins vegar á um hvernig best sé að ná því markmiði, hvernig halda eigi utan um framkvæmdir og hvort sveitarfélagið hafi farið of geyst í stór verkefni. Í Skagafirði búa tæplega 4.500 manns, flestir á Sauðárkróki, en þéttbýli er einnig á Hofsósi, Hó...

X26 - Dalvík: Hitaveitan, lóðir og leikskólar stóru málin 09.05.2026

Skipulagsmál, leikskólar, hitaveita og uppbygging samfélagsins eru meðal helstu umræðuefna í Dalvíkurbyggð í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Fjögur framboð bjóða nú fram í sveitarfélaginu, í fyrsta sinn í langan tíma. Síðast buðu þrír listar fram. K-listi Dalvíkurbyggðar fékk þá þrjá fulltrúa, D-listi Sjálfstæðisflokks og óháðra tvo og B-listi Framsóknar og félagshyggjufólks tvo. K-...

X26 - Akureyri: heitt í kolunum á borgarafundi 07.05.2026

Atvinnumál, Norðurorka, sjókvíaeldi í Eyjafirði, málefni eldri borgara og möguleg sameining sveitarfélaga voru meðal helstu umræðuefna á fjölmennum borgarafundi Morgunblaðsins á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Meðal annars var hart tekist á um Norðurorku, sjókvíaeldi og framtíð Akureyrar. Fundurinn fór fram á Græna hattinum þar sem þétt var setið. Sex oddvitaframbjóðendur...

X26 - Fjallabyggð: vatn, göng og stjórnsýsla í fókus 07.05.2026

Sveitarstjórnarmál í Fjallabyggð snúast nú að stórum hluta um grunninnviði, samgöngur, skólamál og endurreisn stjórnsýslunnar eftir erfitt kjörtímabil. Þetta kemur fram í samtali við oddvita þeirra þriggja lista sem bjóða fram í sveitarfélaginu fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Viðtalið fer fram í Menntaskólanum á Tröllaskaga, en Fjallabyggð varð til árið 2006 við sameiningu Ólafsfjarðarbæja...

X26 - Húnabyggð: Vilja virkja tækifærin 07.05.2026

Sameining sveitarfélaga, fjármál, atvinnumál, orkumál og framtíð innviða voru meðal helstu umræðuefna þegar rætt var við oddvita framboðanna þriggja í Húnabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Í framboði eru A-listi, Öll saman, undir forystu Jóns Gíslasonar, B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna, undir forystu Gríms Rúnars Lárussonar, og D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnabyggð...

X26 - Vilja blása til sóknar í Húnaþingi vestra 06.05.2026

Morgunblaðsmenn eru mættir í Húnaþing vestra á ferð sinni um Norðurland fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí. Sveitarfélagið varð til 7. júní 1998 en fékk núverandi mynd árið 2012 þegar Bæjarhreppur sameinaðist því. Helstu byggðir eru Hvammstangi, Laugarbakki, Reykir og Borðeyri, en sveitarfélagið er víðfeðmt og nær frá Arnarvatni og Holtavörðuheiði, norður Strandir að Stikuhálsi og út á Vatn...

X26 - Seltjarnarnes: oddvitar takast á 05.05.2026

Leikskólamál, fjármál bæjarins, samgöngusáttmálinn og framtíðaruppbygging á Seltjarnarnesi voru meðal helstu ágreiningsefna í oddvitakappræðum Morgunblaðsins og mbl.is vegna sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þátttakendur voru Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, Kristinn Ólafsson, oddviti Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra, og Skafti Harðarson, oddviti Miðflokksins og...

X26 - Mosfellsbær: oddvitar mætast 04.05.2026

Það stefnir í spennandi kosningar í Mosfellsbæ en Mosfellingar þurfa nú að gera upp hug sinn milli sex framboða fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fram fara 16. maí næstkomandi. Í síðustu kosningum voru framboðin sjö, en Vinstrihreyfingin – grænt framboð býður ekki fram í bæjarfélaginu að þessu sinni. Oft er talað um Mosfellsbæ, sem er á norðaustanverðum jaðri höfuðborgarsvæðisins, sem sveit í...

X26 - Borgarbyggð: kappræður oddvita 02.05.2026

Uppbygging, fjármál sveitarfélagsins og grunnþjónusta voru í forgrunni í oddvitakappræðum Borgarbyggðar í Hádegismóum. Þar leiddu saman hesta sína Hermann Valsson fyrir Borgarbyggðarlistann, Davíð Sigurðsson fyrir Framsóknarflokkinn, Þórður Brynjarsson fyrir Miðflokkinn og Sigurður Guðmundsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Borgarbyggð gengur nú til kosninga sem sameinað sveitarfélag með Skorradalshre...

X26: Múlaþing: Samstaða um göng en tekist á um atvinnumál og virkjanir 02.05.2026

Samgöngur, atvinnuuppbygging, rekstur sveitarfélagsins og náttúruvernd voru meðal helstu mála þegar rætt var við oddvita framboðanna í Múlaþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Múlaþing varð til árið 2020 við sameiningu Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar og er eitt víðfeðmasta sveitarfélag landsins. Fimm listar eru í framboði: Framsóknarflokku...

X26 - Akranes: kappræður oddvita 02.05.2026

Mikil uppbygging, skuldsetning, leikskólar, atvinnumál og framtíð hafnarsvæðisins voru meðal þess sem tekist var á um í oddvitakappræðum á Akranesi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Fimm framboð taka þátt í kosningunum og ljóst að áherslurnar eru víða svipaðar þótt leiðirnar séu ólíkar. Mannkynið hefur sem sagt enn ekki fundið leið til að ræða gatnaviðhald án þess að það verði hálfgerður hei...

X26 - Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar á fjölmennum borgarafundi 30.04.2026

Mikill áhugi virðist vera á sveitarstjórnarkosningunum í Fjarðabyggð ef marka má mætinguna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is þar sem oddvitar fjögurra framboða tókust á um rekstur sveitarfélagsins, atvinnuuppbyggingu, samgöngur og þjónustu við íbúa. Fundurinn einkenndist af tiltölulega góðum tóni þrátt fyrir skýran ágreining um áherslur og framtíðarsýn. Á sviðinu voru Ragnar Sigurðsson fyrir...

X26 - Tjörneshreppur: Ráðdeild og sjálfstæði í fámennasta hreppi landsins 30.04.2026

Tjörneshreppur er fámennasti hreppur landsins en lætur ekki smæðina stöðva sig. Í samtali við Morgunblaðið í félagsheimilinu Sólvangi fer Aðalsteinn J. Halldórsson oddviti yfir stöðu hreppsins, sjálfkjörið, íbúaþróun, fjármál og framtíð sveitarfélagsins. Hreppurinn nær yfir norður- og vesturströnd Tjörness að Héðinsvík norðan Húsavíkur og er um 199 ferkílómetrar að stærð. Þar búa nú 56 manns og sj...

X26 - Endurreisn Grindavíkur í forgrunni kappræðna 29.04.2026

Endurreisn Grindavíkur var í algjörum forgrunni í oddvitakappræðum sem fram fóru í myndveri Morgunblaðsins í Hádegismóum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna 16. maí. Þar komu saman þrír oddvitar, þau Magnús M. Guðmundsson fyrir Miðflokkinn, Guðbjörg Eyjólfsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Ásrún Helga Kristinsdóttir fyrir Framsóknarflokkinn. Ljóst var frá upphafi að eitt mál yfirskyggði allt...

X26 - Innviðaskuld og atvinnumál í forgrunni í Norðurþingi 29.04.2026

Staða atvinnulífs, viðhald innviða og fjárhagur sveitarfélagsins voru meðal helstu umræðuefna þegar frambjóðendur í Norðurþingi ræddu stöðu og framtíð sveitarfélagsins á Húsavík. Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu Húsavíkurbæjar, Öxarfjarðarhrepps, Raufarhafnarhrepps og Kelduneshrepps. Íbúar eru nú tæplega 3.200. Sex listar bjóða fram í sveitarfélaginu að þessu sinni: V-listi velferðar,...

X26 - Stór verkefni bíða Strandabyggðar 28.04.2026

Strandabyggð stendur frammi fyrir stórum ákvörðunum á komandi kjörtímabili þar sem saman fara þröng fjárhagsstaða, húsnæðisskortur, orkumál, atvinnuuppbygging og mögulegar sameiningarviðræður. Þrjú framboð bjóða fram í Strandabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Þorgeir Pálsson, sveitarstjóri, leiðir T-lista Strandabandalagsins, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson fer fyrir B-lista Framsóknarmanna...

X26 - Skýr skil í Þingeyjarsveit 28.04.2026

Þrír listar bjóða fram í Þingeyjarsveit þar sem tekist er á um virkjunarmál, innviði, skólastarf, atvinnuuppbyggingu og framtíð stærsta sveitarfélags landsins að flatarmáli. Þingeyjarsveit er um margt einstakt sveitarfélag. Það þekur um 12% landsins, nær inn á Vatnajökul og byggðin dreifist um Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Köldukinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit. Íbúar er...

Słuchaj podcastu Hringferðin w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS