Ritstjórn Morgunblaðsins

Hringferðin

Society IS ↓ Odcinki: 92

Í tilefni 110 ára afmælis Morgunblaðsins leggjum við land undir fót og ræðum við 110 Íslendingahringinn um landið. Ferðin stendur yfir í heilt ár og í henni verður jafnt og þétt dregin upp spennandi mynd af lífinu í landinu frá sjónarhóli heimamanna á hverjum stað, með sögum af fólki, því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja til þess að efla samfélagið til framtíðar. Ferðin stendur yfir í heilt ár og mun jafnt og þétt draga upp spennandi mynd af því sem helst er að frétta og hvar tækifærin liggja.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: sites.libsyn.com

Autor

Ritstjórn Morgunblaðsins

Kategoria

Society

Strona podcastu

sites.libsyn.com

Ostatni odcinek

15 maj 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

X:26 - Höfnin, húsnæðið og fjárhagurinn vega þungt í Bolungarvík 27.04.2026

Hafnarmál, húsnæðisuppbygging og ábyrg fjármálastjórn eru meðal stærstu viðfangsefna Bolungarvíkur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, ef marka má viðtal við oddvita framboðanna tveggja í bænum. Þeir Guðfinnur Ragnar Jónsson, oddviti K-lista Máttar meyja og manna, og Kristján Jón Guðmundsson, oddviti O-lista Betri Bolungarvíkur, eru sammála um margt sem snýr að grunninnviðum og framtíð bæjarin...

X26 - Skólamál, uppbygging og samgöngur í brennidepli á Ísafirði 24.04.2026

Skólamál, húsnæðisuppbygging og samgöngur voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is í Ísafjarðarbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna. Fimm oddvitar framboðanna í bænum komu þar saman og kynntu áherslur sínar fyrir komandi kjörtímabil. Frambjóðendur voru almennt sammála um að sveitarfélagið stæði frammi fyrir miklum vaxtarverkefnum, ekki síst í skólamálum, þar sem bæði lei...

X26 - Listakosning í Árneshreppi í fyrsta sinn í nær sjö áratugi 23.04.2026

Árneshreppur á Ströndum stendur frammi fyrir tímamótum þegar gengið verður til sveitarstjórnarkosninga í vor. Í fyrsta sinn síðan árið 1958 verður kosið milli framboðslista í þessu nyrsta sveitarfélagi Strandasýslu, þar sem íbúarnir eru aðeins 63 talsins. Tveir listar eru í framboði, Á-listi Framtíðar Árneshrepps og S-listi Sólstaða, og virðist ljóst að ólík sjónarmið um sameiningu sveitarfélaga h...

X26 - Hólmarar hugsa um skuldastöðu, uppbyggingu og sjávarútveg 23.04.2026

Sveitarstjórnarkosningarnar í Stykkishólmi snúast að verulegu leyti um jafnvægið milli áframhaldandi uppbyggingar og aðhalds í rekstri. Það kom fram í viðtali við oddvita H-lista framfarasinnaðra Hólmara, Björn Ásgeir Sumarliðason, og oddvita Í-lista Íbúalistans, Sigurð Grétar Jónasson, þar sem farið var yfir stöðu bæjarins, helstu áskoranir og áherslur fyrir komandi kjörtímabil. Stykkishólmur, se...

X26 - Vesturbyggð á krossgötum 23.04.2026

Vesturbyggð stendur á tímamótum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Sveitarfélagið, sem varð formlega til í núverandi mynd 1. júní 2024 við sameiningu við Tálknafjarðarhrepp, hefur á síðustu árum tekið miklum breytingum. Atvinnulíf hefur styrkst, ekki síst með uppbyggingu fiskeldis, en um leið glímir sveitarfélagið við skuldastöðu, brothætta innviði, húsnæðisskort og ágreining um hvernig tryggja...

X26 - Ólík sjónarmið í Hvalfjarðarsveit 22.04.2026

Tekjustofnar, Grundartangi og samfélagið í forgrunni í Hvalfjarðarsveit Kosningabaráttan í Hvalfjarðarsveit mótast af stórum spurningum um sjálfstæði sveitarfélagsins, tekjustofna þess, atvinnuuppbyggingu og hvernig íbúar komi að ákvörðunum um framtíðarskipan svæðisins. Það kom skýrt fram í viðtali við oddvita A-lista Samhentrar sveitar, Harald Benediktsson, og oddvita Íbúahreyfingarinnar, Þóru Ma...

X26 - Tekist á um uppbyggingu og framtíðarsýn í Ölfusi 21.04.2026

Kosningabaráttan í Ölfusi mótast mjög af örum vexti sveitarfélagsins, mikilli uppbyggingu og ágreiningi um það hvernig best sé að stýra samfélagi sem er að taka stakkaskiptum. Það kom skýrt fram í samtali við oddvita tveggja framboða sem nú bjóða fram í sveitarfélaginu, þá Grétar Inga Erlendsson fyrir D-lista Sjálfstæðisflokksins og Gunnstein R. Ómarsson fyrir lista Samfylkingarinnar og óháðra. Öl...

X26 - Tvísýnt slagverk í Rangárþingi ytra 20.04.2026

Rangárþing ytra gengur til sveitarstjórnarkosninga í vor með stór verkefni í farangrinum, traustan rekstur að mati meirihlutans og skýran áherslumun milli framboðanna um forgangsröðun næstu ára. Sveitarfélagið, sem varð til 9. júní 2002 við sameiningu Rangárvallahrepps, Holta- og Landssveitar og Djúpárhrepps, er eitt af tíu stærstu sveitarfélögum landsins að flatarmáli, en íbúar eru þó aðeins rífl...

X26 - Tímamót í Rangárþingi eystra 18.04.2026

Rangárþing eystra stendur á miklum tímamótum. Sveitarfélagið vex hratt, ferðaþjónustan sækir fram af krafti og fjárfestingar eru miklar, en um leið kalla vöxturinn og breytingarnar á nýjar áherslur í skipulagi, innviðauppbyggingu og rekstri. Þetta kemur skýrt fram í samtali við sveitarstjórnarmenn í Rangárþingi eystra, þar sem rætt er um stöðu mála og verkefnin fram undan í aðdraganda sveitarstjór...

X26 - Vestmannaeyjar: Samgöngur og vatnsöryggi stóru hitamálin 16.04.2026

Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulag og þjónusta við íbúa voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gærkvöld í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga. Þar tókust á Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir fyrir Eyjalistann og kynntu áherslur sínar í líflegum umræðum...

X26 - Lágar álögur, leikskólamál og vöxtur í Hrunamannahreppi 16.04.2026

Sveitarstjórnarkosningarnar í Hrunamannahreppi 16. maí fara fram í sveitarfélagi sem hefur vaxið hratt á síðustu árum og stendur nú frammi fyrir nýjum verkefnum í takt við aukna íbúafjölgun og breyttar þarfir samfélagsins. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita framboðanna tveggja í hreppnum, þá Jón Bjarnason, bónda og oddvita D-lista Sjálfstæðisflokksins, og Daða Geir Samúelsson, verkfræðing...

X26 - Sérstaða sveitarfélagsins í forgrunni í Bláskógabyggð 15.04.2026

Sveitarstjórnarmál í Bláskógabyggð einkennast um þessar mundir af örum vexti, auknum kröfum til innviða og umræðu um hvernig sveitarfélagið geti haldið í sérstöðu sína á sama tíma og því vex fiskur um hrygg. Þetta kom skýrt fram í samtali við oddvita T-lista og Þ-lista, þau Helga Kjartansson og Önnu Grétu Ólafsdóttur, þar sem farið var yfir stöðu sveitarfélagsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosni...

X26 - Uppbygging í brennidepli á Höfn 14.04.2026

Yfirvofandi kosningar á Hornafirði bera þess skýr merki að sveitarfélagið stendur á krossgötum. Á fundi með Morgunblaðinu á Höfn tókust oddvitar fjögurra framboða á um rekstur sveitarfélagsins, álögur á íbúa, innviðauppbyggingu og framtíð stórra þróunarverkefna í ferðaþjónustu og miðbæjarins á Höfn. Framboðin sem um ræðir eru KEX-framboð með Eyrúnu Fríðu Árnadóttur í broddi fylkingar, Sjálfstæðisf...

#54 - Hótel Holt - Guðni Th. Jóhannesson 02.11.2024

Guðni Th. Jóhannesson fyrrverandi forseti Íslands er síðasti, en alls ekki sísti, gestur Hringferðar Morgunblaðsins sem farið var í af tilefni af 110 ára afmæli blaðsins. Morgunblaðið fagnar 111 ára afmæli í dag. Andrés Magnússon og Marta María Winkel Jónasdóttir settust niður með Guðna á Hótel Holti við Bergstaðastræti í Reykjavík. 

#53 - Ásbrandsstaðir í Vopnafirði 26.10.2024

Ferðaþjónusta hefur tekið við af mjólkurframleiðslu á stórbýlinu Ásbrandsstöðum í Vopnafirði. Þar er minningu hinna mögnuðu landpósta einnig gert hátt undir höfði.

#52 - Kaupfélagsbærinn Fáskrúðsfjörður 20.10.2024

Það er líf og fjör í atvinnulífinu á Fáskrúðsfirði. Þar skipta umsvif Loðnuvinnslunnar mestu en fyrirtækið er í eigu kaupfélagsins, sem aftur er sameign stórs hluta bæjarbúa. Mogginn tók hús á tveimur meðlimum kaupfélagsins. Þau standa vaktina á vettvangi þess, en koma úr ólíkum áttum.

#51 - Hollywood og Húsavík 12.10.2024

Magnaðar tilviljanir valda því að Húsavík hefur komist á heimskortið. Þar spila Netflix og Eurovision mikla rullu. Ferðaþjónustan er á góðri siglingu í bænum og þar er í fararbroddi hvalaskoðun sem vaxið hefur mikið á síðustu árum.

#50 - Skógarböðin á Akureyri 05.10.2024

Hringferðin kíkti í heimsókn í Skógarböðin

#49 - Undraveröld í anddyri á Akureyri 28.09.2024

Hótel Akureyri vex nú hröðum skrefum og nýtt anddyri þess er eins og sena frá New York árið 1928. Mæðginin Daníel Smárason og Þuríður Þórðardóttir ráða ríkjum í þessum heimi sem tekur hlýlega á móti ferðamönnum sem drífur að úr öllum áttum. Þau hafa mikla trú á ferðaþjónustunni í Eyjafirði.

#48 - Krúnudjásn ferðaþjónustannar að Deplum 21.09.2024

Lúxushótelið að Deplum í Fljótum í Skagafirði hefur verið á margra vörum síðustu árin enda starfsemin orðlögð fyrir mikinn lúxus. Þangað hafa hins vegar ekki margir komið, enda ekki á allra færi að greiða fyrir herlegheit af þessu tagi. Moggamenn litu við og ræddu við Hauk Sigmarsson sem ræður ríkjum á Deplum.

#47 - Fjölbreyttur búskapur á Brúnastöðum 14.09.2024

Hjónin Stefanía Hjördís Leifsdóttir og Jóhannes Helgi Ríkharðsson hafa, ásamt fjórum börnum sínum, byggt upp myndarlegt bú á Brúnastöðum í Fljótunum. Þar er þó ekki bara um hefðbundinn sveitarbæ að ræða og verkefnin eru fjölbreytt.

#46 - Ari Gísli Bragason fornbókasali í Bókinni 07.09.2024

Á horni Hverfisgötu og Klapparstígs er fornbókabúðin Bókin, 60 ára gömul menningarmiðstöð í hjarta Reykjavíkur. Þar er sagan í hverjum krók og kima, en Ari Gísli Bragason bóksali hefur ófáar sögur að segja af öllu því menníngarástandi.

#45 - Vildi veitingastað en endaði með hótel 31.08.2024

Friðrik Pálsson hefur rekið Hótel Rangá í rúma tvo áratugi. Í viðtali við hlaðvarp hringferðar Morgunblaðsins fjallar hann meðal annars um þau atriði sem helst ber að huga að við rekstur á hóteli í umhverfi sem oft á tíðum er krefjandi.

#44 - Þjóðfáninn táknar allt það besta 🇮🇸 24.08.2024

Fyrir einum og hálfum áratug leit Hörður Lárusson, hönnuður, við hjá Braga í Bókavörðunni. Hann vantaði bók. Eina skilyrðið var að hún væri gatslitin. Innihaldið skipti minna máli, eða það var það sem hann hélt. Bókin átti eftir að leiða hann út á nýjar brautir og spennandi.

#43 - Hvað ef íbúum fjölgar? 17.08.2024

Fólksfjölgun hefur orðið á Vestfjörðum síðastliðin ár og við mótun nýrrar sóknaráætlunar hefur fólk leyft sér, í fyrsta sinn í langan tíma, að velta því fyrir sér hvernig skuli sækja fram ef fólksfjölgunin heldur áfram.

Słuchaj podcastu Hringferðin w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS