Stefán Þór Þorgeirsson

Heimsendir

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...

Autor

Stefán Þór Þorgeirsson

Kategoria

Society

Ostatni odcinek

27 kwi 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#102 Yukio Mishima I (OPINN ÞÁTTUR) 28.11.2023

Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis. Fyrsti þáttur um rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um uppvöxt Mishima og innreið í japanskt menningarlíf. Við tökum fyrir fyrstu skáldsögurnar, fyrirsætustörf og leiklist ásamt hugmyndafræðinni sem mótaði einn þekktasta rithöfund Japans.

#101 Næsta stórveldi Asíu 21.11.2023

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Þessi er RISASTÓR. Keppendur eru Japan, Kína, Indónesía og Indland. Keppnisgreinar eru efnahagur, hernaður og sjálfbærni. Í þessum þætti leitum við svars við spurningunni: Hvert er næsta stórveldi Asíu. Heimurinn er að breytast og næsta stórveldi Asíu mun hafa áhrif um allan heim - bein áhrif í gegnum stjórnmál, viðskipti og hernað, óbein áh...

#100 Sonur (OPINN ÞÁTTUR) 14.11.2023

Þátturinn er í opinni dagskrá í boði Bíó Paradís. Ég minni þó á Patreon fyrir fólk sem vill styðja við framleiðsluna. Ég er faðir - Faðir Stefán. Á feðradaginn 2023 fæddist mér sonur. Í þessum þætti fjalla ég um meðgönguna og fæðinguna þó ég eigi sjálfur aðeins um 5% heiðursins, Sherine er hetjan. En ég var á hliðarlínunni og fjalla hér um þá upplifun. Halló heimur!

#99 Hrekkjavakan sem kostaði 159 ungmenni lífið (ÓKEYPIS) 31.10.2023

Árið 2022 átti sér stað stórslys í Itaewon hverfinu í höfuðborg Suður Kóreu. Hvernig getur svonalagað gerst í einu þróaðasta landi heims og hvar liggur ábyrgðin? Nú þegar ár er liðið frá hörmungunum er tækifæri til að líta til baka og skoða troðninginn á hrekkjavökunni í Itaewon.  Þátturinn er í boði Bíó Paradís en þér er einnig velkomið að koma í hlýtt faðmlag Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. 

#98 Sjálfshjálparþáttur Heimsendis 24.10.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! SJÁUMST ÞAR! Stefán Þór, Heimsendir CEO, tells it all. Hér förum við á dýptina og ræðum alla nauðsynlega sjálfshjálp á heimsendatímum - samfélagsmiðlar, mataræði, áfengi og partý, föstur, Wim Hof, hlaupin, svefn og fleira. Podcastlegasti þáttur Heimsendis til þessa, mögulega.

#97 Laxeldi á Íslandi (ÓKEYPIS) 17.10.2023

ÞÁTTURINN ER Í OPINNI DAGSKRÁ Í BOÐI ÞEIRRA SEM HAFA SKRÁÐ SIG Á PATREON. SJÁUMST ÞAR! Á síðasta áratug hefur laxeldi stóraukist á Íslandi, sérstaklega sjókvíaeldi. Eldisfyrirtækin tala fyrir öruggri og umhverfisvænni framleiðslu en þegar þúsundir kynþroska eldislaxa hefja göngur í helstu laxveiðiár landsins er eðlilegt að efasemdir vakni. Í þessum þætti fjalla ég um sögu og stöðu laxeldis á Íslan...

#96 Heimsókn til Tokyo og símtal til Íslands 11.10.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í HEILD SINNI Á PATREON! Vinnuferð til Tokyo, AKA. Sin City, Sódóma og Gómorra. Ég gekk mikið og vann yfir mig en það er eins og það er. Í þættinum fjalla ég líka um lífið í Japan almennt - Búddhíska brennu, náttúrulífsþætti, langlífi í Okinawa og fleira. Loks heyrum við símtal til Íslands við góðvin þáttarins, Almar Blær Sigurjónsson. 

#95 Sértrúarsöfnuðurinn Unification Church 26.09.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON! ÞÚ GETUR PRÓFAÐ FRÍTT Í 7 DAGA! Taka tvö. Þessi er góður þó röddin sé rám. Þriðjungur kóreubúa er kristinn en aðeins færri aðhyllast trú kennda við Sameiningarkirkjuna (e. Unification Church) sem þó er öflug í alþjóðlegu samhengi. Í þessum þætti fjalla ég um herra Moon, stofnanda kirkjunnar, og svokallaða Moonista sem fylgja honum í einu og öllu. Ég fjalla um s...

#94 Lífið á skipinu - Annar hluti (ÓKEYPIS) 12.09.2023

I'm still on a boat. Í þætti dagsins fjalla ég um líf mitt um borð á ævintýraskipinu National Geographic Resolution. Hvernig er týpískur dagur um borð? Er ég þreyttur og ef svo er, hvar? Hvað er það erfiðasta við starfið? En það skemmtilegasta? Þessum spurningum og fleirum verður svarað í þættinum. Þessi þáttur er ókeypis en... Í GUÐANNA BÆNUM KOMIÐ Á PATREON! 

#93 Lífið á skipinu - Fyrsti hluti (ÓKEYPIS) 05.09.2023

I'm on a boat. Ég bý á ævintýraskipinu National Geographic Resolution og verð þar næstu vikurnar. Við erum að sigla um suðvestur Japan og komum við á stöðum á borð við Naoshima, Ehime, Hiroshima, Nagasaki, Yakushima, Busan (S-Kórea), Hagi og Kanazawa. Í þessum þætti fjalla ég um lífið um borð - hvaða stöðu ég gegni og hvaða skyldum ég þarf að sinna, hvenær ég vakna og hvenær ég sef (ekki oft). 

#92 Japanska heimsstyrjöldin - Þriðji þáttur 29.08.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR! Árið er 1942 og japanska keisaraveldið er á hápunkti ferilsins - það nær alla leið frá Kamchatka skaga í norðri til Ástralíu í suðri. Það inniheldur stærstan hluta Austur og Suðaustur Asíu og stefnir á heimsyfirráð. En Bandaríkin eru komin inn í stríðið og þau ætla ekki að gefast upp. Í þessum þætti fjalla ég um orrustuna um Midway og endalok japan...

#91 Japanska heimsstyrjöldin - Annar þáttur 15.08.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR! Í þessum þætti tökum við fyrir árin 1940-1942 sem marka upphaf Kyrrahafsstríðsins og mestu útþenslu japanska keisaradæmisins. Við skoðum árásina á Perluhöfn, ræðuna hans Roosevelt, olíuleit Japana og ástæður þess að Japan fór í stríð við Holland, Bretland og Bandaríkin. 

#90 Japanska heimsstyrjöldin - Fyrsti þáttur (ÓKEYPIS) 09.08.2023

Fyrsti þáttur í nýrri seríu um seinni heimstyrjöldina í Japan. Við byrjum á seinni hluta 19. aldar við Meiji endurreisnina og þræðum japanska sögu í gegnum nútíma- og iðnvæðingu, uppbyggingu hers og þjóðar. Sérstaklega verður tímabilið 1930-1939 tekið fyrir enda markar það upphaf seinni heimstyrjaldar í Japan og hefur óafturkræf áhrif á söguna. Kæri hlustandi, rífðu þig í gang og hentu þér á Patre...

#89 Lífið í Sapporo - Barneignir í Japan 18.07.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON. KOM ÞÚ ÞANGAÐ! Allt að gerast í Japan, nema kannski barneignir. Japönsku þjóðinni fer fækkandi enda fæðingartíðni í lágmarki og innflytjendur enn fáir. Í þessum þætti fjalla ég um þróun fólksfjölda í Japans ásamt því að skoða hvað ríkisstjórnin er að gera til að bregðast við fólksfækkun. Loks fjalla ég um hvernig við Sherine upplifum stuðning frá...

#88 Mun gervigreind rústa heiminum? 11.07.2023

Gervigreind, ChatGPT og geópólitík eru umræðuefni dagsins. Ég fjalla almennt um gervigreind og mismunandi tegundir hennar, hættur og áskoranir, og hvort hún muni taka af okkur öll störf. Ég fer líka yfir hvernig gervigreind spilar inn í alþjóðastjórnmál og varnarmál ásamt því að fjalla um soft power vestursins gegn rísandi þjóðum á borð við Rússland og Kína.  Kæri hlustandi, þátturinn er opinn en...

#87 Sayonara Tokyo 04.07.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Á PATREON. SJÁUMST ÞAR! Bless bless, kæra Tokyo. Sæl vertu, Sapporo. Í þessum þætti geri ég upp árið í Tokyo og komandi tíma á nýjum stað í Norður Japan. Kostir og gallar stærstu borgar Jarðar, stolt mitt og eftirsjá. Hvað gerði ég vel og hvar hefði ég mátt bæta mig? Svo endum við þáttinn á nokkrum vel völdum; rassabón, Smells like Xi, Like-pandemic og fleira.

#86 Heilun í Japan með Guðna Guðnasyni 27.06.2023

Guðni Guðnason er íslendingur búsettur í Japan. Hann rekur skólann The Modern Mistery School sem býður upp á alls konar námskeið í andlegri og líkamlegri iðkun, hugleiðslu og heilun. Yfirlýst markmið skólans er heimsfriður og í þessum þætti ræðum við Guðni markmiðið, vegferð hans til dagsins í dag, vandamál Japans og heimsins, menningarmun og mögulegar lausnir.  Kæri hlustandi, þessi þáttur er í o...

#85 Lífið í Tokyo - Japanskir draugar 06.06.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON! Yōkai eru japanskir andar og draugar. Sumir eru góðir, aðrir illir. Í þessum þætti fjalla ég um nokkrar tegundir Yōkai og hvernig ber að verjast þeim. Ég tek líka nýjan dagskrárlið - spurningakeppni vikunnar - ásamt punktum um lífið og tilveruna í Tokyo. Sjáumst á Patreon!

#84 Epísk þrælaþjóð með Bergþóri Mássyni 30.05.2023

Bergþór Másson, fellow PHD hlaðvarpsþáttastjórnandi, kom til Japan eftir langt ferðalag um heiminn - Ísrael, Indland og Indonesía, svo eitthvað sé nefnt. Í þættinum ræðum við epíkina sem finnst í Japan, heragann, fortíðarþránna og hæfileikann til að skeyta litlu um skoðanir annarra. En við ræðum líka þrældóminn sem gerir Japan óskiljanlegt í augum svo margra.  Kæru hlustendur, þessi þáttur er í op...

#83 Versta árás skógarbjarnar í Japan 23.05.2023

ÞÁTTURINN ER AÐGENGILEGUR Í FULLRI LENGD Á PATREON APPINU. SJÁUMST ÞAR! Árið 1915 varð lítið þorp í norðurhluta Japans fyrir verstu bjarnarárás í sögu landsins. Í þessum þætti fjalla ég almennt um árásir bjarna í Japan og tek síðan fyrir þessa hryllingssögu frá 1915. Loks eru nokkrir punktar teknir fyrir um lífið í Tokyo. Þar má nefna umfjöllun um leiksýninguna Hroki og Hleypidómar, Mamachari árás...

#82 Japönsk drykkjumenning (KAMPAI) 16.05.2023

Let us get drunk. Áfengi í Japan er eins og vont veður á Íslandi, mjög algengt. Í þessum þætti fjalla ég um drykkjumenningu japana með tilheyrandi drykkjavali og þeim samfélagslegum áhrifum sem fylgja the devil drink.  Kæru hlustendur, komið á Patreon eigi síðar en núna!  Takk fyrir að hlusta!

#81 Lífið í Tokyo - Hversu mikið þarf ég að vinna? 02.05.2023

Er list vinna? Er maður að vinna ef það er gaman? Mun fólk þurfa að vinna í framtíðinni? Þessum spurningum og fleirum verður að öllum líkindum svarað í þætti dagsins ásamt punktum um lífið í Tokyo, auglýsingum vikunnar og Heimsendahorninu. Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ef fólk vill sjá af nokkrum hundraðköllum í gott málefni má endilega gerast áskrifendur á Patreon og fá fullan aðgang að öll...

#80 Lífið í Tokyo - Samskipti Rússlands og Japans 25.04.2023

EKKI BÍÐA. KOMIÐ Á PATREON, RIGHT NOW. SJÁUMST ÞAR! Hvað eiga stærsta land í heimi og þriðja stærsta hagkerfi heims sameiginlegt? Landamæradeilur. Og fleira. Rússland og Japan eru í love/hate sambandi og hafa lengi verið. Í þessum þætti rekjum við söguna aftur til ársins 1855 og skoðum samskipti, deilur og stríð þessara tveggja grannríkja. 

#79 Frí frá Tokyo - Hakone, Kyoto, Osaka og Okinawa 11.04.2023

ÞESSI ÞÁTTUR ER Í ÁSKRIFT Á PATREON. ÞÚ GETUR VERIÐ ÞAÐ LÍKA! Náðu í Patreon appið, finndu Heimsendi, og fáðu fullan aðgang að öllum þáttum fyrir svo lítið sem 700kr á mánuði. Fjölskyldan mín er í Japan og við erum að ferðast. Í þessum eintalsþætti fjalla ég um ferðalagið frá Tokyo - Hakone - Kyoto - Osaka - Nara - Okinawa. Þessi þáttur nýtist sem skemmtun sem og ferðatips fyrir verðandi Japansfar...

#78 Kyotobúinn Ída Pálsdóttir 04.04.2023

Ída Pálsdóttir fluttist til Kyoto með fjölskyldu sinni í byrjun árs 2022. Í þessum þætti ræðum við menningarsjokkið sem fylgdi komunni, kosti og galla þess að búa í Japan, kyrrðina í Kyoto og fleira til.  Þessi þáttur er í opinni dagskrá en ég minni á Patreon þar sem hlustendur geta fengið aðgang að öllu efni Heimsendis fyrir litlar 700 kr. á mánuði. Takk fyrir að hlusta!

Słuchaj podcastu Heimsendir w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS