Stefán Þór Þorgeirsson
Heimsendir
Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#155 Gervigreindarspjall með Stefáni Atla (samstarfsþáttur) 27.04.2026 50:05
Í þessum samstarfsþætti með HEIMSENDA tekur Stefán Atli á móti gamla æskuvini sínum Stefáni Þór Þorgeirssyni — leikara, leiðsögumanni og hlaðvarpsstjóra Heimsenda. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar þeir voru tíu ára gamlir og gerðu stuttmyndir undir merkjum M5 Studios í Flataskóla. Þeir ræða hvernig leiklistin og Japan mótuðu Stefán Þór, leikritið hans „Fyrirlestur um gervigreind“ sem sýnt var...
#154 Tai Chi Walking og örplast í öllu 10.04.2026 50:59
Hver kannast ekki við að rekast á Tai Chi Walking auglýsingar á YouTube? En af hverju á maður að verða massaður á göngutúrum? Af hverju er örplast í gosdósum? Loks, hvernig lifum við til 130 ára aldurs? Njótið vel!
#153 Árið 2025 gert upp - Fjármál, heilsa og nýársheit 17.02.2026 38:43
Heldur seinn að gera upp síðasta ár en svona er lífið þegar maður er önnum kafinn, og það er kannski lúxusvandamál. Í þessum þætti skoða ég síðasta ár og nýársheitin sem ég strengdi, hvort þau stóðust, og hvernig þau höfðu áhrif á nýársheit þessa árs. Svo fer ég yfir nýlegar vangaveltur í fjármálum og heilsu, sem og alþjóðamálum. Njótið vel!
#152 Ferðasaga til Japan 2025 19.09.2025 59:49
Ég er mættur aftur til Japan! Við fjölskyldan erum á ferðalagi um land hinnar rísandi sólar enn á ný og í þessum þætti fer ég yfir það sem á vegi okkar verður. Kostir og gallar eða þakklæti og það sem betur má fara. Hvernig blasir Japan við mér eftir eins árs fjarveru? Við skulum komast að því!
#151 Er óhollt að hlusta á hlaðvörp? 16.06.2025 47:26
We back! Mættur til baka, af miklu að taka. Í þessum þætti ræði ég síðustu vikur í mínu lífi - framleiðslu á barnaþáttum, sjóveiki um borð í skipinu og hlaðvarpsföstu sem ég tók fyrr í maí. Við skoðum hversu mikil hlaðvarpsneysla telst eðlileg og hvenær maður á ekki að hlusta á hlaðvörp.
#150 Lífið á Íslandi - Japanskir raunveruleikaþættir 08.04.2025 54:56
Margt að ræða - Trump og tollamúrar, nýtt upphaf Evrópu, leikskólamál í Reykjavík, og auðvitað japanskir raunveruleikaþættir sem allir ættu að horfa á enda feel-good af bestu gerð. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#149 Þórarinn Hjartarson 01.04.2025 59:16
Þórarinn Hjartarson er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Ein pæling og stjórnmálafræðingur. Í þættinum förum við um víðan völl og snertum meðal annars á upprisu Indlands, lýðfræðivandamálum Kína, persónulegum hindrunum, ágæti kapítalisma og framtíð Íslands.
#148 Frímann Gunnarsson 19.03.2025 55:30
Frímann er sjónvarpsmaður og stjórnmálafræðingur með próf frá London School of Politics. Hann hefur lengi prýtt skjái landsmanna en þættirnir hans hafa verið sýndir á Skjá Einum, Rúv og Stöð 2. Næstu helgi verður Frímann síðan á hvíta tjaldinu í Bíó Paradís. Í þessum þætti ræðum við námsárin, ljóðlistina, listaelítuna og hvort gott sé að blanda áfengi og svefntöflum. Þátturinn er í boði Bíó Paradí...
#147 Lífið á Íslandi - Er að koma stríð? 25.02.2025 50:53
Kominn aftur miklu meiri kraftur! Í þessum þætti fjöllum við um síðustu vikur lífs míns á Íslandi ásamt umræðum um vinina Trump og Pútín, framtíð Evrópu og Úkraínu, AI auglýsingar, útivist og áfengislausan lífstíl. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#146 Logi Pedro 28.01.2025 1:09:47
Logi Pedro er hönnuður og tónlistarmaður. Við ræðum hnignun stórvelda, jákvæða þjóðerniskennd, mikilvægi vinnu, hreinskilna stjórnmálamenn og margt fleira. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#145 Fjármálaráðgjöf 2025 - Get Rich Quick! (OPINN ÞÁTTUR) 21.01.2025 56:33
Þetta er vissulega ekki fjármálaráðgjöf, en, þið vitið. Vangaveltur um Bitcoin, fasteignir, hlutabréf og fleira. Hvernig á að haga fjármálum og fjárfestingum árið 2025? Hvernig mun gervigreind hafa áhrif á vinnu? Hvað er fjárhagslegt frelsi. Þetta og fleira í þætti dagsins. Þátturinn er í boði Bíó Paradís.
#143 Árið 2024 gert upp! (OPINN ÞÁTTUR) 30.12.2024 44:24
Stærsta ár lífs míns? Kannski ekki, en svakalegt ár engu að síður. Fór á nyrsta odda Japans, dó næstum í jarðskjálfta í Taiwan, flutti með kött og barn til Íslands, hitti Jeff Daniels, landaði fiski og lúbarði hyski. Þetta var gott ár en 2025 verður betra. Hentu í follow á hlaðvarpsveitur og Insta fyrir allt það helsta úr smiðju Heimsendis!
#142 Erna Mist (OPINN ÞÁTTUR) 11.12.2024 1:03:21
Erna Mist er listmálari, pistlahöfundur og leikhúsvera. Við ræðum lífið og vinnuna, Ísland og London, morgunrútínur og málverkakaup til Kína. Auk þess tölum við um listina sem tekjulind og tækifæri til að framþróa samfélag. Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.
#140 Eiður Westmann - Frambjóðandi til Alþingis (OPINN ÞÁTTUR) 26.11.2024 56:05
Útlendingamálin. Orkumálin. Vindmillur og plastagnir. Efnahagskrísa vestanhafs og ólga í Evrópu. Uppstokkun í sviðslistasjóði. Eiður Westmann, frambjóðandi úr Flokki Fólksins, mætir í Heimsendi til að ræða allt þetta og meira til í aðdraganda Alþingiskosninga 2024. Kæri hlustandi, þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis...
#139 Lífið á Íslandi - Trump inn, Bitcoin upp, Evrópa út? 19.11.2024 11:10
Hlustið í heild á patreon.com/heimsendir Ég hef verið með hluti á heilanum uppá síðkastið - Kosningar í BNA, hnignandi staða Evrópu, fullris Bitcoin. Auk þess er gaman að ræða lífstíl og fallin vígi. Loks eru Heimsfréttirnar á sínum stað.
#138 Tumi Gonzo (OPINN ÞÁTTUR) 08.11.2024 58:12
Trump forseti. Geópólitík. Deepfakes og gervigreindarmyndbönd. Gestur þáttarins er Tumi Gonzo, listamaður og leikstjóri. Önnur umfjöllunarefni eru kosningar á Íslandi, orkumálin og framtíð landsins. Þátturinn er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar. Ef þig langar að fá fullan aðgang að öllu efni Heimsendis bendum við á patreon.com/heimsendir
#137 Lífið á Íslandi - Raunhagkerfið 02.11.2024 13:38
Hlustið í heild á www.patreon.com/heimsendir Löndun í Grindavík. Heimavinnandi húsfaðir í Hlíðunum. Milljón á mánuði. Og Kamala Harris í vandræðum. Allt þetta og meira í þessum flæðiþætti (sumir kalla það gas). Njótið vel!
#136 Bolli Már Bjarnason (OPINN ÞÁTTUR) 24.10.2024 1:06:53
Bolli Már Bjarnason er uppistandari og útvarpsmaður, veiðimaður líka, og margt fleira. Í þættinum ræðum við jólin og rjúpurnar, áhugamál og fjölskyldulíf, vinnu og peninga. Lífið á Íslandi er líka til umræðu sem og samanburður við Japan. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.
#135 Framtíð Íslands 17.10.2024 13:51
Hlustið í heild á patreon.com/heimsendir Björt framtíð? Mögulega. Í þessum þætti fjöllum við um framtíð íslenskrar náttúru og efnahags, fólksþróun, menningu og tungumál, listir og alþjóðamál. Er íslenskan á útleið? Verður stofnaður her á Íslandi? Munu jöklarnir bráðna? Þessar og fleiri verða í brennidepli.
#134 Er gervisykur að drepa þig? (OPINN ÞÁTTUR) 04.10.2024 1:00:07
Sykur vs. Sykurlaust? Aspartam eða aspas? Í þessum þætti skoðum við möguleg neikvæð áhrif gervisykurs og spurjum okkur hvort það sé ekki bara betra að borða venjulegan sykur í staðinn. Þessi þáttur er í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Takk fyrir að hlusta!
#132 Veiðisumarið gert upp (OPINN ÞÁTTUR) 03.09.2024 59:01
Veiðiveiran leggst í dvala. Sumarið 2024 var risastórt í stangveiði. Í þættinum fer ég yfir vatnaveiði í Þingvallavatni, Baulárvallarvatni, Meðalfellsvatni og fleiri góðum tjörnum ásamt laxveiði fyrir norðan og sjóbirtingsveiði síðsumars. Vakin skal athygli á að myndbandsútgáfa þáttarins er til á YouTube, X og auðvitað á Patreon.
#131 Vinna peningar fyrir þig? 27.08.2024 15:10
ÞESSI GÆTI BREYTT LÍFI ÞÍNU. Þátturinn fjallar um bókina Ríkur faðir, fátækur faðir eftir Robert Kiyosaki. Við förum yfir eignir og skuldir, vinnu og viðskipti, eyðslu og sparnað. Hlustið í fullri lengd inni á patreon.com/heimsendir
#130 Spurjum lækni - Hvað er hundaæði (OPINN ÞÁTTUR) 13.08.2024 1:04:04
Rabies, please. Já, í þættinum ræðum við Jóhannes Gauti Óttarsson, Cand. med., veirusýkinguna hundaæði sem er enn ábyrg fyrir um 60.000 dauðsföllum árlega. Við ræðum einkenni, meðferðir, zombie-myndir og fleira. Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Þú getur prófað frítt í 7 daga á patreon.com/heimsendir
#129 Lífið á Íslandi - Kulnun á Þjóðhátíð (OPINN ÞÁTTUR) 08.08.2024 52:54
Menn lentu í kulnun. Tvöfaldri. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur á Íslandinu, góða veðrið, stangveiði, Verslunarmannahelgina, pestó á pasta og fleira gott. Einnig eru Heimsfréttir vikunnar og Íslenskuhornið til staðar. Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon.
#128 Umhverfis Ísland á stórkostlegu skipi 23.07.2024 8:56
Full lengd: patreon.com/heimsendir Langar þig að vita hvernig það er að sigla umhverfis Ísland á skemmtiferðaskipi með 150 manns sem kalla þig Steven? Langar þig að fræðast um Flatey og Látrabjarg? Þá er þessi fyrir þig. Komdu með um borð og hlustaðu á ferðasöguna sem og punkta um allt það góða og slæma við núverandi starf mitt á skipinu góða.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.