Stefán Þór Þorgeirsson
Heimsendir
Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#127 Vöðvar eru lykill að langlífi (OPINN ÞÁTTUR) 16.07.2024 53:14
Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. You don't use it, you lose it. Svo hljóða Hávamál. Í þessum þætti fjalla ég um nokkra vel valda punkta úr viðtali Andrew Huberman við Dr Gabrielle Lyon þar sem tengsl vöðva við langlífi eru í brennidepli. Við skoðum ofþyngd, innkirtla, prótein og kolvetni, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess eru nokkrir punktar úr daglegu lífi hér á Íslandi. Njóti...
#126 Lífið á Íslandi - Er dýrt að búa á Íslandi? 25.06.2024 7:10
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir Í þessum þætti fjalla ég meira um vinnumál og fjármál, rigningu og tuðmenningu, útilegu með 7 mánaða dreng og loks spurninguna: Er dýrt að búa á Íslandi. Svo bregðum við okkur víðsvegar um heiminn í Heimsfréttum vikunnar.
#125 Spurjum lækni - Hvað eru berklar? (OPINN ÞÁTTUR) 18.06.2024 1:02:32
Fyrsti þáttur í seríunni Spurjum lækni þar sem við fjöllum um mismunandi sjúkdóma, sögu þeirra og meðferðir. Í þessum þætti tæklum við Jóhannes Gauti Óttarsson, læknir og tónlistarmaður, sjúkdóminn berkla sem herjar enn á stóran hluta jarðarbúa þrátt fyrir að vera lítið í umræðunni hérlendis. Þátturinn er í opinni dagskrá í boði þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir stuðninginn og takk...
#124 Lífið á Íslandi - Barneignir, vinna og peningar 11.06.2024 7:45
Þáttinn má nálgast í fullri lengd inná https://www.patreon.com/heimsendir Ég er faðir án fæðingarorlofs. Það er brekka en hún er líka full af lærdómi. Í þessum þætti fjalla ég um vinnu, gigghagkerfið, uppeldi barna, fjármálin og fleira. Í lok þáttar er síðan Heimsendir vikunnar sem snýr að vendingum í Úkraínu.
#123 Lífið á Íslandi - Menningarsjokk (OPINN ÞÁTTUR) 28.05.2024 1:01:18
Ég er kominn heim, eins og segir í laginu góða. Í þessum þætti fjalla ég um sjokkið við að kveðja austrið og mæta vestur til Íslands. Brenglað hæðarskyn, hátt matvöruverð, sviðasulta í leikhús og orlofshús í Rússlandi. Auk þess eru Heimsfréttirnar og Íslenskuhornið á sínum stað. Þessi þáttur er opinn í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Vertu með!
#122 Fucked í Finnlandi (OPINN ÞÁTTUR) 14.05.2024 43:20
Afsakið frönskuna. Ég er staddur í Finnlandi með kettinum Tító og okkur líður vel þrátt fyrir langt ferðalag að baki. Helsinki er flott borg og hér á hótelinu er sána og rækt. Í þættinum fjalla ég um ferðasöguna frá Japan og heimspekina á bakvið einveru erlendis. Kæri hlustandi, ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis, þá vitið þér hvar skal leita. Takk fyrir að hlusta!
#121 Sayonara Japan! 07.05.2024 6:25
Hlustið á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir Gott fólk, það er komið að því. Heimsendir flytur til Íslands og segir skilið við Japan, í bili. Í þættinum lítum við um öxl og gerum upp árin 2 í Japan - hvað lærðist, hvað afrekaðist, hvers mun sakna og hvers ekki.
#120 Allt sem þú þarft fyrir ferðalag til Japans 23.04.2024 5:13
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir Stórborgir eða smábæir? Sumar eða vetur? Reiðufé eða kort? Tattú eða bað? Í þessum þætti svara ég ykkar spurningum varðandi ferðalög til Japans. Ég minni á að það má senda mér spurningar beint ef fólk vill kafa dýpra. Njótið vel!
#119 Lífið í Sapporo - Svona verðurðu 120 ára (OPINN ÞÁTTUR) 16.04.2024 1:07:49
Ég ætla að verða 120 ára og ég hef fundið formúluna! Í þessum þætti fjalla ég um hreyfingu, mataræði, föstur, stress, tilgang og fleira tengt langlífi, sem og punkta um lífið í Japan og nýtilkomna japönskukennslu. Kæri hlustandi, þessi þáttur er opinn en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk.
#118 Lífið í Sapporo - Er nútíminn bestur eða verstur? (OPINN ÞÁTTUR) 02.04.2024 57:45
Hvernig kemst maður í gegnum ósigra? Hvernig lifum við með samfélagsmiðlum? Af hverju í ósköpunum þurfum við að vinna 40 tíma vinnuviku? Í þessum þætti fjöllum við um kosti og galla nútímans ásamt stuttri japönskukennslu og punktum um lífið í Sapporo. Kæri hlustandi, þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú ert enn að lesa þá segi ég vel gert, og hvet þig s...
#117 Rússneskir landnemar í Síberíu 26.03.2024 10:02
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á: patreon.com/heimsendir Sturluð staðreynd: Það eru aðeins 6km á milli Japans og Rússlands. Í þessum þætti fjöllum við um rússneska landnema í Síberíu og þenslu rússaveldis í austur, alla leið að Kyrrahafi. Á vegi þeirra urðu frumbyggjaþjóðir Norður Asíu, nýjar dýra- og plöntutegundir og stórbrotin náttúra.
#116 Að sigra veikindi (OPINN ÞÁTTUR) 19.03.2024 1:04:23
Ég var við dauðans dyr en nú rís ég eins og fönix upp úr ösku hreinsunareldsins. Í þessum þætti fjalla ég um baráttu við skæða sótt, ástæður fyrir veikindum og mögulegan lærdóm. Síðan má finna nokkra punkta um lífið í Japan og auglýsingar vikunnar. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir að hlusta!
#115 Lífið í Sapporo - Við ætlum ekki að verða þyrluforeldrar 12.03.2024 8:16
Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á https://www.patreon.com/heimsendir Í þessum þætti skoðum við sálfræðimeðferðir barna og þyrluforeldra. Af hverju eru börnin óhamingjusamari en áður? Af hverju skrifa Bandaríkin upp á 41 milljón skammt af amfetamíni ár hvert? Auk þess eru punktar um lífið í Sapporo og smá umræða um geópólitík. Kæri hlustandi, ef þú ert enn að lesa þá minni ég á að þú getur prófað...
#114 Milljón á mánuði? 27.02.2024 5:41
Hlustið á þáttinn í heild sinni á: https://www.patreon.com/heimsendir Nýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.
#113 Lífið í Sapporo - Viðtöl við japani (OPINN ÞÁTTUR) 20.02.2024 1:15:54
Navalný og Pútín, Trump og Biden, vangaveltur um réttstöðulyftu, kaldar sturtur og svefnvenjur ungabarna. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur hér í Sapporo ásamt því að birta viðtöl við 4 unga japani. Allt efni Heimsendis er aðgengilegt á https://www.patreon.com/heimsendir
#112 Japanska mannætan í París 13.02.2024 5:26
Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd á patreon.com/heimsendir Árið 1981 gerðist ungur japani sekur um mannát í París. Nokkrum árum síðar var hann kominn heim til Japan, þá frjáls maður. Í þessum þætti fjöllum við um þetta voðaverk, aðdragandan og eftirmál.
#111 Japanskar bardagalistir (OPINN ÞÁTTUR) 06.02.2024 1:18:25
Súmóglíma, Jiujutsu, Aikido, Kendo, Karate og Júdó keppa hér um titilinn: Besta japanska bardagalistin! Vissulega er þetta huglægt mat en Heimsendir stendur við það. Sömuleiðis hvetjum við alla til að stunda eða allavega prófa japanskar bardagalistir. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fólk sem vill kaupa sér gott karma í lífinu.
#110 Lífið í Sapporo - Kvöldstund með gyðingum 30.01.2024 6:32
Hlustið á þáttinn í heild sinni á https://www.patreon.com/heimsendir Shabbat kvöldverður, mannanafnanefnd, 1000 kall á tímann, týpískur dagur í mínu lífi, makríll og loðna, vinna og borða. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar!
#109 Lífið í Sapporo - Yakuza í sánunni (OPINN ÞÁTTUR) 23.01.2024 1:18:07
Nýjir vinir mínir í Yakuza-glæpasamtökunum, þráðormar í fiski, plastbarkamálið ógurlega og heimsfréttir vikunnar. Í þessum þætti fjalla ég um lífið í Sapporo og það sem ég hef á heilanum þessa dagana. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á áskrift á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis: https://www.patreon.com/heimsendir
#108 Norður Kórea 16.01.2024 6:23
Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Hvaða þjóðarleiðtogi er háður svissneskum osti? Hvaða land refsar þremur kynslóðum fyrir einn glæp? Hvaða hljómsveit heldur tónleika með orrustuþotu á sviðinu? Í þessum þætti fjöllum við um Norður Kóreu - fortíð landsins og framtíð.
#107 United States of Europe? (OPINN ÞÁTTUR) 09.01.2024 57:12
Mun Evrópa einhvern tímann sameinast í ríkjabandalagið USE? Sameinuð Evrópa eða Nýja Evrópa, með 450 milljónir íbúa, annað stærsta hagkerfi heims, herafla upp á 1,3 milljónir hermanna. Gæti þetta gerst? Í þessum þætti skoðum við Evrópu og ástæður þess að möguleg sameining gæti átt sér stað. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon ef þú, kæri hlustandi, vilt styðja fjárhagslega...
#106 Af hverju eru bestu myndavélarnar frá Japan? (OPINN ÞÁTTUR) 27.12.2023 45:38
Canon, Nikon, Fujifilm, Olympus, Sony, Panasonic, Ricoh, svona mætti lengi telja. Japan er geitin í myndavélaframleiðslu og verður líklega um ókomin ár. En af hverju? Í þessum þætti munum við skoða sögu japanskra myndavélaframleiðanda og leið þeirra á toppinn. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni heldra fólk á Patreon þar sem það getur stutt beint við barnafjölskyldu í Japan. Góðar s...
#105 Lífið í Sapporo - Hnattræn hlýnun í Japan 19.12.2023 7:27
Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Síðasti þáttur fyrir jól fjallar um nýbakaða foreldra, lækkandi hitastig og snjó, brjóstamjólk, drykkjuhátíð þar sem innganga krefst ölvunar og auðvitað loftslagsmál í Japan.
#104 Yukio Mishima II (OPINN ÞÁTTUR) 12.12.2023 42:36
Annar þáttur um japanska rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um seinni hluta lífs hans, þar sem hann varð pólitískari og jafnvel herskárri. Við fjöllum um stærsta ritverk hans, Sjó frjóseminnar, og endalok lífsins á annarri hæð í herstöð í Tokyo. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk. Þar er allt efni Heimsendis á verði kaffi...
#103 Lífið í Sapporo - 2 vikna sonur og 2 eldri konur 05.12.2023 9:46
Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Allt sem þú þarft að vita um líf mitt í Norður Japan. Í þættinum fjalla ég um son minn so far, japönsk nöfn á jólatertum, núðluauglýsingar, muninn á Íslandi og Írlandi, einmanaleika og samfélagið í Sapporo.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.