Stefán Þór Þorgeirsson

Heimsendir

Heimsendir eru þættir sem fjalla um Japan, japanska sögu og menningu. Þáttastjórnandinn Stefán Þór býr ásamt fjölskyldu sinni í Japan og segir okkur frá lífinu þar - hvernig það er að vera leikari í Japan, hvaða tækifæri eru að finna og hvaða áskorunum fólk þarf að mæta í landi hinnar rísandi sólar. Heimsendir byrjaði sem umræðuþáttur um mismunandi sviðsmyndir heimsenda - allt frá gervigreind til uppvakninga, líftækni til heimsstyrjaldar. Nú þegar Stefán Þór er búsettur í Japan er fókusinn færður þangað en inn á milli má finna heimsendatengt efni á borð við uppgang gervigreindar, geópólitík Au...

Autor

Stefán Þór Þorgeirsson

Kategoria

Society

Ostatni odcinek

27 kwi 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

#127 Vöðvar eru lykill að langlífi (OPINN ÞÁTTUR) 16.07.2024

Þátturinn er í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. You don't use it, you lose it. Svo hljóða Hávamál. Í þessum þætti fjalla ég um nokkra vel valda punkta úr viðtali Andrew Huberman við Dr Gabrielle Lyon þar sem tengsl vöðva við langlífi eru í brennidepli. Við skoðum ofþyngd, innkirtla, prótein og kolvetni, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess eru nokkrir punktar úr daglegu lífi hér á Íslandi. Njóti...

#126 Lífið á Íslandi - Er dýrt að búa á Íslandi? 25.06.2024

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir Í þessum þætti fjalla ég meira um vinnumál og fjármál, rigningu og tuðmenningu, útilegu með 7 mánaða dreng og loks spurninguna: Er dýrt að búa á Íslandi. Svo bregðum við okkur víðsvegar um heiminn í Heimsfréttum vikunnar.

#125 Spurjum lækni - Hvað eru berklar? (OPINN ÞÁTTUR) 18.06.2024

Fyrsti þáttur í seríunni Spurjum lækni þar sem við fjöllum um mismunandi sjúkdóma, sögu þeirra og meðferðir. Í þessum þætti tæklum við Jóhannes Gauti Óttarsson, læknir og tónlistarmaður, sjúkdóminn berkla sem herjar enn á stóran hluta jarðarbúa þrátt fyrir að vera lítið í umræðunni hérlendis. Þátturinn er í opinni dagskrá í boði þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir stuðninginn og takk...

#124 Lífið á Íslandi - Barneignir, vinna og peningar 11.06.2024

Þáttinn má nálgast í fullri lengd inná https://www.patreon.com/heimsendir Ég er faðir án fæðingarorlofs. Það er brekka en hún er líka full af lærdómi. Í þessum þætti fjalla ég um vinnu, gigghagkerfið, uppeldi barna, fjármálin og fleira. Í lok þáttar er síðan Heimsendir vikunnar sem snýr að vendingum í Úkraínu.

#123 Lífið á Íslandi - Menningarsjokk (OPINN ÞÁTTUR) 28.05.2024

Ég er kominn heim, eins og segir í laginu góða. Í þessum þætti fjalla ég um sjokkið við að kveðja austrið og mæta vestur til Íslands. Brenglað hæðarskyn, hátt matvöruverð, sviðasulta í leikhús og orlofshús í Rússlandi. Auk þess eru Heimsfréttirnar og Íslenskuhornið á sínum stað. Þessi þáttur er opinn í boði Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Vertu með!

#122 Fucked í Finnlandi (OPINN ÞÁTTUR) 14.05.2024

Afsakið frönskuna. Ég er staddur í Finnlandi með kettinum Tító og okkur líður vel þrátt fyrir langt ferðalag að baki. Helsinki er flott borg og hér á hótelinu er sána og rækt. Í þættinum fjalla ég um ferðasöguna frá Japan og heimspekina á bakvið einveru erlendis. Kæri hlustandi, ef þú vilt fullan aðgang að öllu efni Heimsendis, þá vitið þér hvar skal leita. Takk fyrir að hlusta!

#121 Sayonara Japan! 07.05.2024

Hlustið á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir Gott fólk, það er komið að því. Heimsendir flytur til Íslands og segir skilið við Japan, í bili. Í þættinum lítum við um öxl og gerum upp árin 2 í Japan - hvað lærðist, hvað afrekaðist, hvers mun sakna og hvers ekki.

#120 Allt sem þú þarft fyrir ferðalag til Japans 23.04.2024

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á patreon.com/heimsendir Stórborgir eða smábæir? Sumar eða vetur? Reiðufé eða kort? Tattú eða bað? Í þessum þætti svara ég ykkar spurningum varðandi ferðalög til Japans. Ég minni á að það má senda mér spurningar beint ef fólk vill kafa dýpra. Njótið vel!

#119 Lífið í Sapporo - Svona verðurðu 120 ára (OPINN ÞÁTTUR) 16.04.2024

Ég ætla að verða 120 ára og ég hef fundið formúluna! Í þessum þætti fjalla ég um hreyfingu, mataræði, föstur, stress, tilgang og fleira tengt langlífi, sem og punkta um lífið í Japan og nýtilkomna japönskukennslu. Kæri hlustandi, þessi þáttur er opinn en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk.

#118 Lífið í Sapporo - Er nútíminn bestur eða verstur? (OPINN ÞÁTTUR) 02.04.2024

Hvernig kemst maður í gegnum ósigra? Hvernig lifum við með samfélagsmiðlum? Af hverju í ósköpunum þurfum við að vinna 40 tíma vinnuviku? Í þessum þætti fjöllum við um kosti og galla nútímans ásamt stuttri japönskukennslu og punktum um lífið í Sapporo. Kæri hlustandi, þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og Heimsendafjölskyldunnar á Patreon. Ef þú ert enn að lesa þá segi ég vel gert, og hvet þig s...

#117 Rússneskir landnemar í Síberíu 26.03.2024

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á: patreon.com/heimsendir Sturluð staðreynd: Það eru aðeins 6km á milli Japans og Rússlands. Í þessum þætti fjöllum við um rússneska landnema í Síberíu og þenslu rússaveldis í austur, alla leið að Kyrrahafi. Á vegi þeirra urðu frumbyggjaþjóðir Norður Asíu, nýjar dýra- og plöntutegundir og stórbrotin náttúra.

#116 Að sigra veikindi (OPINN ÞÁTTUR) 19.03.2024

Ég var við dauðans dyr en nú rís ég eins og fönix upp úr ösku hreinsunareldsins. Í þessum þætti fjalla ég um baráttu við skæða sótt, ástæður fyrir veikindum og mögulegan lærdóm. Síðan má finna nokkra punkta um lífið í Japan og auglýsingar vikunnar. Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís og þeirra sem styðja Heimsendi á Patreon. Takk fyrir að hlusta!

#115 Lífið í Sapporo - Við ætlum ekki að verða þyrluforeldrar 12.03.2024

Hlustaðu á þáttinn í heild sinni á https://www.patreon.com/heimsendir Í þessum þætti skoðum við sálfræðimeðferðir barna og þyrluforeldra. Af hverju eru börnin óhamingjusamari en áður? Af hverju skrifa Bandaríkin upp á 41 milljón skammt af amfetamíni ár hvert? Auk þess eru punktar um lífið í Sapporo og smá umræða um geópólitík. Kæri hlustandi, ef þú ert enn að lesa þá minni ég á að þú getur prófað...

#114 Milljón á mánuði? 27.02.2024

Hlustið á þáttinn í heild sinni á:  https://www.patreon.com/heimsendir Nýr sjálfshjálparþáttur frá Heimsendi. Þessi fjallar um aðferðafræði þess að verða ríkur, milljón á mánuði eða mánuð á milljón, jafnvægi milli vinnu og persónulegs lífs og margt fleira.

#113 Lífið í Sapporo - Viðtöl við japani (OPINN ÞÁTTUR) 20.02.2024

Navalný og Pútín, Trump og Biden, vangaveltur um réttstöðulyftu, kaldar sturtur og svefnvenjur ungabarna. Í þessum þætti fjalla ég um síðustu vikur hér í Sapporo ásamt því að birta viðtöl við 4 unga japani. Allt efni Heimsendis er aðgengilegt á https://www.patreon.com/heimsendir

#112 Japanska mannætan í París 13.02.2024

Þátturinn er aðgengilegur í fullri lengd á patreon.com/heimsendir Árið 1981 gerðist ungur japani sekur um mannát í París. Nokkrum árum síðar var hann kominn heim til Japan, þá frjáls maður. Í þessum þætti fjöllum við um þetta voðaverk, aðdragandan og eftirmál.

#111 Japanskar bardagalistir (OPINN ÞÁTTUR) 06.02.2024

Súmóglíma, Jiujutsu, Aikido, Kendo, Karate og Júdó keppa hér um titilinn: Besta japanska bardagalistin! Vissulega er þetta huglægt mat en Heimsendir stendur við það. Sömuleiðis hvetjum við alla til að stunda eða allavega prófa japanskar bardagalistir. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir fólk sem vill kaupa sér gott karma í lífinu.

#110 Lífið í Sapporo - Kvöldstund með gyðingum 30.01.2024

Hlustið á þáttinn í heild sinni á https://www.patreon.com/heimsendir Shabbat kvöldverður, mannanafnanefnd, 1000 kall á tímann, týpískur dagur í mínu lífi, makríll og loðna, vinna og borða. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar!

#109 Lífið í Sapporo - Yakuza í sánunni (OPINN ÞÁTTUR) 23.01.2024

Nýjir vinir mínir í Yakuza-glæpasamtökunum, þráðormar í fiski, plastbarkamálið ógurlega og heimsfréttir vikunnar. Í þessum þætti fjalla ég um lífið í Sapporo og það sem ég hef á heilanum þessa dagana. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á áskrift á Patreon fyrir fullan aðgang að öllu efni Heimsendis: https://www.patreon.com/heimsendir

#108 Norður Kórea 16.01.2024

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Hvaða þjóðarleiðtogi er háður svissneskum osti? Hvaða land refsar þremur kynslóðum fyrir einn glæp? Hvaða hljómsveit heldur tónleika með orrustuþotu á sviðinu? Í þessum þætti fjöllum við um Norður Kóreu - fortíð landsins og framtíð. 

#107 United States of Europe? (OPINN ÞÁTTUR) 09.01.2024

Mun Evrópa einhvern tímann sameinast í ríkjabandalagið USE? Sameinuð Evrópa eða Nýja Evrópa, með 450 milljónir íbúa, annað stærsta hagkerfi heims, herafla upp á 1,3 milljónir hermanna. Gæti þetta gerst? Í þessum þætti skoðum við Evrópu og ástæður þess að möguleg sameining gæti átt sér stað.  Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon ef þú, kæri hlustandi, vilt styðja fjárhagslega...

#106 Af hverju eru bestu myndavélarnar frá Japan? (OPINN ÞÁTTUR) 27.12.2023

Canon, Nikon, Fujifilm, Olympus, Sony, Panasonic, Ricoh, svona mætti lengi telja. Japan er geitin í myndavélaframleiðslu og verður líklega um ókomin ár. En af hverju? Í þessum þætti munum við skoða sögu japanskra myndavélaframleiðanda og leið þeirra á toppinn.  Þátturinn er opinn í boði Bíó Paradís en ég minni heldra fólk á Patreon þar sem það getur stutt beint við barnafjölskyldu í Japan. Góðar s...

#105 Lífið í Sapporo - Hnattræn hlýnun í Japan 19.12.2023

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Síðasti þáttur fyrir jól fjallar um nýbakaða foreldra, lækkandi hitastig og snjó, brjóstamjólk, drykkjuhátíð þar sem innganga krefst ölvunar og auðvitað loftslagsmál í Japan. 

#104 Yukio Mishima II (OPINN ÞÁTTUR) 12.12.2023

Annar þáttur um japanska rithöfundinn og byltingarsinnann Yukio Mishima. Í þessum þætti fjöllum við um seinni hluta lífs hans, þar sem hann varð pólitískari og jafnvel herskárri. Við fjöllum um stærsta ritverk hans, Sjó frjóseminnar, og endalok lífsins á annarri hæð í herstöð í Tokyo. Þátturinn er í boði Bíó Paradís en ég minni á Patreon fyrir heldra fólk. Þar er allt efni Heimsendis á verði kaffi...

#103 Lífið í Sapporo - 2 vikna sonur og 2 eldri konur 05.12.2023

Hlustaðu í fullri lengd á https://patreon.com/heimsendir Allt sem þú þarft að vita um líf mitt í Norður Japan. Í þættinum fjalla ég um son minn so far, japönsk nöfn á jólatertum, núðluauglýsingar, muninn á Íslandi og Írlandi, einmanaleika og samfélagið í Sapporo.

Słuchaj podcastu Heimsendir w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS