Bíddu bara

Bíddu Bara

Kids IS ↓ Odcinki: 34

Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: podcasters.spotify.com

Autor

Bíddu bara

Kategoria

Kids

Strona podcastu

podcasters.spotify.com

Ostatni odcinek

7 lip 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android 5 mln+ pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Annar þriðjungur meðgöngu 07.07.2026

Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛

Fyrsti þriðjungur meðgöngu 30.06.2026

Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.

Terrible twos og mömmubugun 23.06.2026

Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er með ung börn.

Sumarfrí með börnum 16.06.2026

Nú styttist í hið hefðbundna sumarfrí með börnunum☀️ Í þessum létta sumarþætti spjöllum við um sumarið framundan, rifjum upp okkar uppáhalds æskuminningar og deilum hugmyndum af hlutum til að gera með börnunum í sumar.

Pabbaspjall - Heimir Daði 09.06.2026

Þá er komið að næsta pabbaspjalli! Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið. Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.

Elínborg - unga fólkið okkar 02.06.2026

Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík. Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virk...

Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar 26.05.2026

Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.

Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof 19.05.2026

Ræðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!

Mömmuþáttur 12.05.2026

Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛 Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!

Ofbeldi í nánum samböndum 05.05.2026

Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum. Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál. Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaf...

Aðskilnaðarkvíði 28.04.2026

Í þessum þætti tölum við um aðskilnaðarkvíða, bæði hjá okkur foreldrunum og börnunum. Hvort sem það er í fyrsta skipti sem barnið fer í pössun, næturpössun, til dagmömmu eða byrjar í leikskóla, þá fylgja oft alls konar tilfinningar.

Fæðingarsaga Helgu Dísar 21.04.2026

Helga Dís deilir reynslu sinni af erfiðri fæðingu og þeim áhrifum sem hún hafði á fyrstu mánuðina. Hún ræðir bæði andlega og líkamlega vanlíðan og þá áskorun sem fylgdi því að stíga inn í móðurhlutverkið við þær aðstæður ❤️‍🩹

Guðrún Sortveit - finna stílinn eftir meðgöngu ✨ 14.04.2026

Guðrún Sortveit áhrifavaldur kom til okkar í spjall um mömmulífið og hvernig það er að finna sig og stílinn sinn aftur eftir meðgöngu og orlof.

Fæðingarsögur Ásdísar 07.04.2026

Í þessum þætti segir Ásdís frá sínum tveimur meðgöngum og fæðingum. Við deilum líka fréttum tengdum hlaðvarpinu 💬✨

Páskaþáttur 🐰 31.03.2026

Má borða páskaegg fyrir páska? förum yfir páskahátíðina - hefðir og venjur. Léttur og góður þáttur fyrir fríið.

María Ellen - ófrjósemi 24.03.2026

María Ellen kom í heimsókn til okkar og deildi sinni persónulegu og heiðarlegu sögu af ófrjósemi. Það gekk ekki áfallalaust fyrir hana að verða ólétt og hún ræðir opinskátt um sína reynslu.

Eyrún Ösp - Krabbameinsgreining eftir fæðingu 17.03.2026

Eyrún Ösp greindist með þriðja stigs krabbamein í leghálsi þegar hún fæddi þriðja barnið sitt. Hún deilir ótrúlegri baráttu sinni og fjölskyldunnar á krefjandi tíma, en skömmu síðar varð rýming í Grindavík þar sem þau bjuggu.

Fanney Dóra - Baby Led Weaning 🥑 10.03.2026

Fanney Dóra, mamma og áhrifavaldur kemur til okkar að spjalla um spennandi og stressandi tímann þegar maður byrjar að gefa barninu sínu að borða.

Babyshower & skírnarveislur 03.03.2026

Í þessum þætti tölum við um allt sem tengist babyshower og skírnar/nafna-veislum. Förum yfir undirbúninginn, vafaatriði, hugmyndir að gjöfum, veitingar og fleira. Léttur og skemmtilegur þáttur fullur af praktískum ráðum og svörum við algengum spurningum!

Nostalgía 24.02.2026

Köfum aðeins ofan í æskuna okkar og rifjum upp hvernig það var að alast upp á tíunda áratugnum (90s) og svo auðvitað aldamótastemninguna sem fylgdi í kjölfarið. Ef þú ert „millennial“ eins og við, eða bara elska fortíðina og nostalgíu, þá munt þú elska þennan!

Kristín Gunnarsdóttir - kraftaverkasaga! 17.02.2026

Í þessum þætti fáum við að heyra ótrúlega áhrifamikla og persónulega frásögn Kristínar Gunnarsdóttur af því þegar nýfæddur sonur hennar veiktist alvarlega. Kristín deilir upplifun sinni af þessum ólýsanlega erfiða tíma, frá fyrstu einkennum og allt þar til lífi sonarins var á ótrúlegan hátt bjargað á elleftu stundu. Við ræðum hvernig er að takast á við svona erfitt ferðalag með makanum sér við hli...

Hlaðfréttir - Pabbaspjall 10.02.2026

Fengum þá Benna og Fannar úr Hlaðfréttum í alvöru pabbaspjall. Þeir tveir eiga, eins og þeir orða það "saman" sex börn og við ræddum við þá um pabbalífið og lífið almennt! Mjög einlægt, fyndið og skemmtilegt spjall.

Halló febrúar ✨🩵 03.02.2026

Einn léttur, ljúfur og kátur þar sem við kveðjum lengsta mánuð ársins og tökum fagnandi á móti fallegum febrúar! Skemmtilegt yapp um allskonar og mömmupepp fyrir komandi mánuð!

Leikskólamálin með Höllu Gunnarsdóttur 27.01.2026

Í þessum þætti ræðum við við Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um leikskólamálin sem hafa verið mikið í umræðunni upp á síðkastið. Sveitarfélögin eru mörg hver farin að bjóða sex tíma gjaldfrjálsan leikskóla. Við ræðum um pressuna á foreldra, áskoranir starfsfólks leikskóla og hvort við séum á réttri leið í að byggja upp kerfi sem virkar fyrir börn, foreldra og samfélagið allt. Mjög áhugavert og mi...

Kristín svefnráðgjafi 20.01.2026

Gott og fræðandi spjall við Kristínu svefnráðgjafa um svefn ungabarna 👼💤

Słuchaj podcastu Bíddu Bara w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS