Bíddu bara
Bíddu Bara
Mömmuhópurinn þinn í eyrunum 🎧
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : podcasters.spotify.com
Auteur
Bíddu bara
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
20 oct. 2026
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
Aðlögun og leikskólaspjall 20.10.2026 46:56
Við fórum yfir aðlögun í leikskóla og allar tilfinningarnar sem geta fylgt því hjá foreldrum. Ræddum líka lífið með leikskólabarn og fórum um víðan völl í allskonar skemmtilegar umræður 💛
Ásdís Björg - Járnskortur 🩸 13.10.2026 1:20:14
Ásdís Björg Pálmadóttir er mamma, nýbökuð amma, stjörnuspekisnemi, íþróttakona, áhrifavaldur og margt, margt fleira. Hún kom til okkar og deildi sinni sögu af járnskorti sem á endanum leiddi hana alla leið til Bretlands í járngjöf, eftir að hafa upplifað að hún fengi ekki þá aðstoð sem hún þurfti hér heima. Miklar blæðingar, meðganga og mikil hreyfing eru meðal þess sem getur haft áhrif á járnbirg...
Hvað er í matinn? 🍽️ 06.10.2026 57:42
Hver kannast ekki við þessa spurning? og hausverkinn sem fylgir því að ákveða hvað á að vera í matinn, dag eftir dag, allt árið um kring. Sérstaklega þegar maður er í orlofi með barn sem er byrjað að borða og þarf allt í einu að hugsa um 4-6 máltíðir á dag. Lofum skemmtilegu jappi um mat og líka einhverjum höxum til að létta foreldrum lífið!
Haust 🤎🍂 29.09.2026 46:27
Haustið, Halloween, kertaljós og kósý! Þátturinn er í boði: 🩵 Fjarðarkaup 🩵 KIDS-WORLD 🩵 Vörður 🩵 Child´s Farm
Hlutir sem myndu senda aðrar mömmur í "coma" 🤯 22.09.2026 49:11
Í þessum þætti afhjúpum við okkur aðeins sem mæður og deilum alls konar hlutum sem við gerum, höfum gert eða höfum einfaldlega ekki nennt að hafa áhyggjur af... og sem gætu mögulega sent aðrar mömmur í coma! Þátturinn er í boði: 🩵 Vörður 🩵 Fjarðarkaup 🩵 Kids-World 🩵 Childs Farm
Valgerður - stjúptengsl 15.09.2026 1:22:36
Í þessum ættir fengum við hana Valgerði Halldórsdóttur, félags- og fjölskylduráðgjafa og konuna á bak við stjuptengsl.is til okkar. Við ræddum allt það sem getur reynst flókið í stjúpfjölskyldum og foreldrasamvinnu. Hvernig er að sameina fjölskyldur? Hvað gerist þegar upp koma árekstrar og ólíkar væntingar? Og hvernig getum við byggt upp góð tengsl innan fjölskyldunnar? Valgerður hefur bæði persón...
Áslaug - Lífið er kynlíf ❤️ 08.09.2026 1:17:49
Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur kom til okkar og ræddi kynlíf og sambönd fólks á barneignaraldri. Það getur verið krefjandi fyrir sambandið að ganga í gegnum meðgöngu, fæðingu og fyrstu árin með ung börn, þegar tími og orka fara oft í annað en sambandið sjálft.
Sara Scime - bleyjulaust uppeldi og koppaþjálfun 👶🚽 01.09.2026 1:20:59
Fengum til okkar Söru Anítu Scime, betur þekkta sem Koppagelluna á TikTok! Sara byrjaði að venja strákana sína tvo á kopp aðeins nokkurra vikna gamla og segir okkur frá bleyjulausu uppeldi, eða "elimination communication", sem getur sparað manni ansi margar bleyjur og bleyjuskipti! Mjög áhugavert spjall þar sem Sara gefur góð ráð fyrir börn á öllum aldri. Það er nefnilega aldrei of seint að byrja...
Sara Davíðsdóttir - erfið meðganga og hreiðurgerð í flutningum ✈️🏡 25.08.2026 1:36:34
Fengum til okkar Söru Davíðsdóttur, einkaþjálfara, flugfreyju og mömmu💛 Sara segir frá afar krefjandi meðgöngu þar sem hún glímdi við mikla ógleði og upplifði að meðgangan færi ekki alveg eins og hún hafði séð fyrir sér. Við ræðum líka flutningana hennar frá Barein til Íslands og hvernig það reyndist mun flóknara en hún bjóst við að flytja tvo hunda með sér heim 🐶🐶
Helena Guðrún – missir á meðgöngu og Gleym Mér Ei 🕊️ 18.08.2026 1:43:52
Helena Guðrún deilir með okkur persónulegri og áhrifamikilli sögu sinni af missi á 15. viku meðgöngu, sorginni sem fylgdi í kjölfarið og lífinu eftir slíka reynslu. Helena situr í stjórn styrktarfélagsins Gleym Mér Ei, sem styður við foreldra og fjölskyldur sem missa á meðgöngu eða í og eftir fæðingu. Í þættinum ræðum við um sorgarferlið, mikilvægi stuðnings og hvernig félagið vinnur að því að lit...
Þórhildur Þorkels - Tæland í fæðingarorlofinu 🏝️ 11.08.2026 1:22:04
Við fengum Þórhildi Þorkels til okkar í spjall en hún fór með fjölskyldunni sinni til Taílands í fæðingarorlofinu. Hún fer yfir hvernig það var að ferðast með lítið barn, undirbúninginn og allt það sem við kemur svona ferðalagi. Þórhildur deilir fullt af gagnlegum ráðum og reynslu fyrir þá sem dreyma um að skella sér í svipað ævintýri, hvort sem það er í fæðingarorlofi eða á öðrum tímapunkti í líf...
Orðablik 04.08.2026 1:03:54
Fengum Ásdísi og Hjördísi, stofnendur Orðabliks, í spjall um málþroska barna. Hjördís er talmeinafræðingur og Ásdís er með bs í sálfræði. Þær segja okkur frá Orðabliki, deila gagnlegum ráðum til að styðja við góðan málþroska barna og ræða hvernig við getum nýtt daglegar stundir til að efla málþroskann. Við förum einnig yfir skjátíma, þær áskoranir sem foreldrar standa frammi fyrir í dag og hvernig...
Hlutir sem eru peningana virði💰 28.07.2026 1:03:18
Í þessum þætti förum við yfir það sem okkur finnst raunverulega vera peningana virði, bæði fyrir börnin og okkur sjálfar 💸👶
Mýtur 21.07.2026 53:07
Förum yfir mýtur sem við höfum heyrt í gegnum tíðina um meðgöngu, börn og uppeldi. Er virkilega hægt að sjá kyn barnsins á lögun bumbunnar? er satt að börn fái hita þegar þau taka tennur?
Þriðji þriðjungur meðgöngu 14.07.2026 49:12
Lokum þessari seríu með lokakafla meðgöngunnar – þriðja þriðjungi🤰✨ Margir myndu segja að þetta sé mest krefjandi tímabilið. Maginn er orðinn stór, svefninn oft stopull, orkustigið sveiflukennt og biðin eftir litla krílinu getur verið löng. Á sama tíma er spennan að ná hámarki og undirbúningurinn fyrir fæðingu og nýtt hlutverk í fullum gangi.
Annar þriðjungur meðgöngu 07.07.2026 50:16
Annar þáttur af þremur í seríunni okkar um meðgönguna. Í þessum þætti förum við yfir annan þriðjung meðgöngunnar, tímabil sem oft er kallað „hveitibrauðsdagarnir“. Við ræðum hvað einkennir þessa mánuði, breytingarnar sem eiga sér stað og deilum okkar eigin reynslu á leiðinni💛
Fyrsti þriðjungur meðgöngu 30.06.2026 56:22
Í þessum þætti förum við yfir fyrsta þriðjung meðgöngunnar, frá því augnabliki sem maður fær já á prófi yfir í fyrstu vikurnar af ógleði, þreytu og alls konar tilfinningum.
Terrible twos og mömmubugun 23.06.2026 1:05:12
Yapp session þáttur, fórum yfir lífið og einhvernegin erum við báðar að díla við terrible twos á byrjunarstigi. Smá reality check líka um bugun og hversu erfitt það getur verið að pússla lífinu þegar maður er með ung börn.
Sumarfrí með börnum 16.06.2026 40:25
Nú styttist í hið hefðbundna sumarfrí með börnunum☀️ Í þessum létta sumarþætti spjöllum við um sumarið framundan, rifjum upp okkar uppáhalds æskuminningar og deilum hugmyndum af hlutum til að gera með börnunum í sumar.
Pabbaspjall - Heimir Daði 09.06.2026 1:50:56
Þá er komið að næsta pabbaspjalli! Heimir Daði er 32 ára þriggja barna faðir úr Grindavík. Hann eignaðist sitt fyrsta barn aðeins 17 ára gamall og fer hreinskilnislega yfir hvernig það er að stíga svona ungur inn í foreldrahlutverkið. Í þættinum deilir hann einnig reynslu sinni af erfiðum áföllum, þar á meðal foreldramissi.
Elínborg - unga fólkið okkar 02.06.2026 1:23:19
Elínborg Ingvarsdóttir er tómstunda- og forvarnarfulltrúi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hún brennur fyrir málefnum barna og unglinga og hefur víðtæka reynslu, meðal annars sem forstöðumaður félagsmiðstöðvar og umsjónarmaður ungmennaráðs í Grindavík. Við fengum Elínborgu til okkar í spjall þar sem fókusinn er á ungt fólk – enda verða börnin okkar eldri og þá taka við nýjar áskoranir. Þetta var virk...
Hafdís - ósýnilegir sjúkdómar 26.05.2026 1:49:55
Hafdís Houmøller Einarsdóttir kom til okkar í spjall og segir okkur frá sinni reynslu af því að lifa með ósýnilegum sjúkdómum. Hún ræðir fordóma og skilningsleysi sem oft fylgir, en líka ákvörðunina að verða mamma þrátt fyrir áskoranir lífsins. Meðal sjúkdóma sem hún er með eru endómetríósa, vefjagigt og mígreni.
Að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof 19.05.2026 58:43
Ræðum um það hvernig það er að byrja vinna aftur eftir fæðingarorlof. Hvernig þetta er á sama tíma erfitt en líka svo frelsandi!
Mömmuþáttur 12.05.2026 1:01:38
Við settumst niður á mæðradaginn sjálfan og spjölluðum um móðurhlutverkið í allri sinni dýrð 💛 Ræðum allt frá því hvað okkur finnst best/erfiðast við móðurhlutverkið, hvað breyttist mest þegar við urðum mömmur og allskonar mömmuspjall. Dass af ranti líka um nýjast útspil heilbrigðisráðherra!
Ofbeldi í nánum samböndum 05.05.2026 1:35:06
Trigger warning: Í þessum þætti er rætt um heimilisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum. Jenný Kristínu Valberg, mamma og starfandi teymisstjóri Bjarkahlíðar ræðir við okkur um ofbeldi í nánum samböndum. Sláandi tölfræði sýnir að um 20 prósent íslenskra mæðra eru beittar ofbeldi á meðgöngu, sem undirstrikar hversu mikilvægt er að tala opinskátt um þessi mál. Jenný, sem hefur mikla reynslu af málaf...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics