Austurbrú
Austurland
Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: austurbru.is
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
73 – Olgeir Pétursson og Dyrfjallahlaupið 02.07.2026 35:57
Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Olgeir Pétursson, hlaupastjóra Dyrfjallahlaupsins, um uppruna og þróun hlaupsins sem hefur á fáum árum fest sig í sessi sem eitt af stærstu utanvegahlaupum landsins. Þeir ræða sjálfboðaliðastarfið og samfélagsandann á Borgarfirði eystri, hvernig hlaupið varð til og hvers vegna markmiðið hefur alltaf verið stærra en... Read more &#...
72 – Ragnar Sigurðsson og SSA 25.06.2026 36:28
Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Ragnar Sigurðsson, nýkjörinn formann Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Ragnar fer yfir sýn sína á hlutverk SSA, hvernig efla megi samstarf sveitarfélaganna og hvers vegna hann telur mikilvægt að einbeita sér að sameiginlegum hagsmunamálum Austurlands. Einnig rifjar hann upp eigin leið inn í sveitarstjórnmál og... Read mo...
71 – Páll Baldursson og Starfamessa Austurlands 2026 23.06.2026 54:40
Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Pál Baldursson, verkefnastjóra hjá Austurbrú, um Starfamessu Austurlands 2026 sem fram fer í Neskaupstað 24. september. Þeir fara yfir markmið messunnar, mikilvægi þess að kynna ungu fólki fjölbreytt störf og menntunarmöguleika á Austurlandi og hvernig slíkir viðburðir geta styrkt tengsl milli skóla og atvinnulífs. Einnig... Read...
70 – Signý Ormarsdóttir og Skapandi Austurland 09.06.2026 50:06
Viðmælandi er Signý Ormarsdóttir, fulltrúi menningar hjá Austurbrú, en fimmtudaginn 11. júní fór fram ráðstefnan Skapandi Austurland, ráðstefna um menningu og listir í landsbyggðunum sem Austurbrú, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Menningarstofa Fjarðabyggðar standa fyrir. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
69 – Austurbý á Nýsköpunarvikunni 30.04.2026 48:43
Viðmælandi í þættinum er Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir, frumkvöðull og býrækandi á Austurlandi. Hún hélt erindi á Iceland Innovation Week/Nýsköpunarvikunni sem fram fór í Reykjavík dagana 27. til 30. apríl. Erindi hennar var hluti af viðburði sem landshlutasamtök hringinn í kringum landið héldu í Grósku 28. apríl. Á honum kynntu þátttakendur úr Startup Landið, nýsköpunarhraðli fyrir... Read more ...
68 – Málþing um safnamál á Austurlandi 17.04.2026 1:28:01
Í þættinum er fjallað um safnamál á Austurlandi af því tilefni að á mánudaginn, 20. apríl, verður málþing í Vonarlandi á Egilsstöðum þar sem fjallað verður um söfn og samfélag á Austurlandi. Viðmælendur eru Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Guðrún Rúnarsdóttir hjá bókasafninu á Reyðarfirði, Hlín Gylfadóttir hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, fulltrúi menni...
67 – „Erfiðasti skólinn var samvinna við annað fólk“ 31.03.2026 49:23
Í þessum þætti ræðir Stefán Bogi Sveinsson, forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga og fyrrverandi sveitarstjórnarmaður, um reynslu sína úr pólitík og starfi á Austurlandi. Hann fer yfir hvað það krefst að starfa í sveitarstjórn, hvað hann lærði á tólf árum í pólitík og hvers vegna hann ákvað að stíga til hliðar. „Erfiðasti skólinn var samvinna við annað... Read more »
66 – Samtal við Smára Geirsson um SSA 02.03.2026 1:05:15
Í nýjum þætti Austurland hlaðvarp er saga SSA rifjuð upp með Smára Geirssyni, fyrrverandi formanni og höfundi bókar um sögu SSA. Rætt er um Fjórðungsþing Austfirðinga, hugmyndir á vettvangi þess um fylkjaskipan Íslands og baráttuna fyrir auknum völdum landshlutans. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
65 – SSA 60 ára og Sterkur Stöðvarfjörður 18.02.2026 57:11
Í þættinum er spjallað við Björn Hafþór Guðmundsson, fyrrum formann og framkvæmdastjóra SSA, og Valborgu Warén, verkefnastjóra Sterks Stöðvarfjarðar. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
64 – Samvinnurými 07.01.2026 59:55
Samvinnurými eru orðin mikilvægur hluti af atvinnu- og byggðaþróun á Austurlandi. Í þessum þætti er rætt við Söru Elísabetu Svansdóttur hjá Austurbrú, Múlinn í Neskaupstað er heimsóttur og starfsmenn þar teknir tali og svo er rætt við framkvæmdastjóra Múlans og SÚN, Guðmund R. Gíslason, en síðan Múlinn opnaði árið 2021 hafa orðið til rúmlega 2o... Read more »
63 – Fræðslustjóri að láni 05.01.2026 39:30
Í þessum þætti Austurland hlaðvarps er fjallað um verkefnið „Fræðslustjóri að láni“ sem Austurbrú býður fyrirtækjum og stofnunum á Austurlandi til að styðja við markvissa sí- og endurmenntun. Umsjónarmaður þáttarins, Jón Knútur Ásmundsson, ræðir við Hrönn Grímsdóttur og Þorbjörgu Ólöfu Jónsdóttur (Bobbu) hjá Austurbrú, sem leiða verkefnið, sem og Lúðvík Emil Arnarsson og Hjálmar Ólaf... Read more...
62 – Matarmót Austurlands – annar hluti 03.11.2025 22:24
Í þessum þætti ræðir Jón Knútur við Dóru Svavarsdóttur, matreiðslumeistara og formann Slow Food á Íslandi, um Matarmót Austurlands sem haldið verður 15. nóvember. Þau ræða hæglætismatvæli, mikilvægi staðbundins hráefnis og hvernig betri matur getur skapað betra samfélag.
61 – NATALIE verkefnið – annar hluti 28.10.2025 23:00
Í þessum þætti af Austurland hlaðvarpi er fjallað um vinnustofu NATALIE-verkefnisins sem haldin var á Reyðarfirði 28. október. Verkefnið miðar að því að þróa náttúrumiðaðar lausnir sem auka viðnám samfélaga gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga á strandvistkerfi. Í þættinum koma við sögu Anna Berg Samúelsdóttir frá Matís, Pétur Már Bernhöft hjá GreenFish og Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi í... Read...
60 – Matarmót Austurlands 2025 24.10.2025 25:42
Matarmót Austurlands 2025 verður haldið í fimmta skipti laugardaginn 15. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Landsins gæði – austfirsk hráefni“. Þar sameinast að venju framleiðendur, frumkvöðlar og mataráhugafólk í sannkallaðri veislu fyrir bragðlaukana þar sem landshlutinn sýnir hvað hann hefur upp á að bjóða þegar kemur að hráefnum og matargerðarlist. Viðmælandi þáttarins...
59 – Geðræktarmiðstöðvar á Austurlandi 20.10.2025 44:11
Geðræktarmiðstöðvar voru opnaðar í Múlaþingi og í Fjarðabyggð í október. Við ræðum við Hilmar Garðarsson, notendafulltrúa, og Lindu Pehrsson, forstöðumann Starfsendurhæfingar Austurlands í þættinum. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
58 – Tanni Travel 16.10.2025 44:11
Í þættinum er rætt við Díönu Mjöll Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Tanna Travel. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
57 – Farsældarráð á Austurlandi 03.10.2025 30:56
Í þættinum er fjallað um stofnun farsældarráðs á Austurlandi. Farsældarráðið verður svæðisbundinn samráðsvettvangur þjónustuveitenda sem bera ábyrgð á þjónustu við börn og fjölskyldur á Austurlandi. Viðmælandi í þættinum er Nína Hrönn Gunnarsdóttir, verkefnastjóri farsældar á Austurlandi. Umsjón hefur Jón Knútur Ásmundsson.
56 – Sjálfbærniverkefni á Austurlandi 23.09.2025 30:24
Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Viðmælandi í þættinum er Lilja Sif Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sem hefur umsjón með verkefninu fyrir okkar hönd. Hún hefur verið að rýna í gögn sjálfbærniverkefnisins síðustu vikur... Re...
55 – Hernámsdagurinn á Reyðarfirði 04.07.2025 35:26
Hernámsdagurinn á Reyðarfirði hefur verið endurvakinn eftir hlé og við kynnum okkur hann. Jón Knútur Ásmundsson ræðir við Árna Pétur Árnason frá Menningarstofu Fjarðabyggðar og sagnfræðinginn Gauta Pál Jónsson sem skoðað hefur mannfall Íslendinga af völdum setuliðsins á stríðsárunum.
54 – Umhverfisráðstefna Austurlands – 2. þáttur 28.05.2025 18:54
Í þessum þætti höldum við áfram að fjalla um Umhverfisráðstefnu Austurlands 2025. Ráðstefnan fer fram 5. júní í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og fjallar um sjálfbæra framtíð í mannvirkjagerð, skipulagi og vistvænum lausnum með Austurland í forgrunni. Talað er við Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, sviðsstjóra samfélags hjá Eflu og fundarstjóra ráðstefnunnar, og Alexöndru Kjeld, umhverfisverkfræðing, sem ver...
53 – Umhverfisráðstefna Austurlands 23.05.2025 32:21
Í þessum þætti beinum við sjónum að Umhverfisráðstefnu Austurlands, sem fer fram 5. júní í Sláturhúsinu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Hvernig byggjum við 2050?“ Viðmælendur eru: Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar og Skarphéðinn Smári Þórhallsson, landfræðingur, sem á ráðstefnunni ætlar að kynna framtíðarsýn um nýjan byggðarkjarna í Fljót...
52 – Náttúran sem lausn: NATALIE-verkefnið á Íslandi 19.05.2025 41:00
Hvernig getum við nýtt náttúruna til að aðlagast loftslagsbreytingum? Í nýjasta þætti Austurland hlaðvarp fjöllum við um NATALIE, stórt Evrópuverkefni sem snýst um að þróa náttúrumiðaðar lausnir gegn afleiðingum loftslagsbreytinga. Verkefnið er hluti af Horizon Europe og Ísland tekur virkan þátt með Austurland sem tilvikssvæði. Viðmælandi þáttarins er Anna Berg Samúelsdóttir hjá Matís, sem stýrir....
51 – Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 28.02.2025 30:37
Í nýjasta þætti Austurlands hlaðvarps ræðum við Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 og hvað hún þýðir fyrir samfélagið okkar. Viðmælandi þáttarins er Urður Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sem leiddi vinnuna. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
50 – Námskeið í notkun gervigreindar á Austurlandi 14.01.2025 20:35
Gervigreind er komin til að vera og hlutverk hennar í okkar daglega lífi mun aukast gríðarlega á næstu árum. Fræðslu- og ráðgjafafyrirtækið Javelin AI í samstarfi við Austurbrú ætlar að bjóða upp á námskeiðið „ChatGPT frá A til Ö“ í janúar og mars sem mun nýtast öllum sem vilja tileinka sér gervigreind í leik og... Read more »
49 – Íslenskukennarinn Davíð Samúelsson 14.11.2024 21:19
Í þættinum er rætt við Davíð Samúelsson sem kennir íslensku fyrir útlendinga. Davíð er búsettur í Belgíu og kennir námskeiðin sín í fjarnámi. Í viðtalinu segir hann frá sinni nálgun á kennslu en hann leggur mikla áherslu á að námið sé persónulegt og praktískt. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS