Austurbrú

Austurland

Society IS ↓ 74 Folgen

Hlaðvarp á vegum Austurbrúar þar sem fjallað er um ýmis málefni tengd austfirsku samfélagi og verkefnum stofnunarinnar.

Autor

Austurbrú

Kategorie

Society

Podcast-Website

austurbru.is

Neueste Folge

2. Jul 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

73 – Olgeir Pétursson og Dyrfjallahlaupið 02.07.2026

Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Olgeir Pétursson, hlaupastjóra Dyrfjallahlaupsins, um uppruna og þróun hlaupsins sem hefur á fáum árum fest sig í sessi sem eitt af stærstu utanvegahlaupum landsins. Þeir ræða sjálfboðaliðastarfið og samfélagsandann á Borgarfirði eystri, hvernig hlaupið varð til og hvers vegna markmiðið hefur alltaf verið stærra en... Read more &#...

72 – Ragnar Sigurðsson og SSA 25.06.2026

Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Ragnar Sigurðsson, nýkjörinn formann Sambands sveitarfélaga á Austurlandi (SSA). Ragnar fer yfir sýn sína á hlutverk SSA, hvernig efla megi samstarf sveitarfélaganna og hvers vegna hann telur mikilvægt að einbeita sér að sameiginlegum hagsmunamálum Austurlands. Einnig rifjar hann upp eigin leið inn í sveitarstjórnmál og... Read mo...

71 – Páll Baldursson og Starfamessa Austurlands 2026 23.06.2026

Í þessum þætti Austurland hlaðvarps ræðir Jón Knútur Ásmundsson við Pál Baldursson, verkefnastjóra hjá Austurbrú, um Starfamessu Austurlands 2026 sem fram fer í Neskaupstað 24. september. Þeir fara yfir markmið messunnar, mikilvægi þess að kynna ungu fólki fjölbreytt störf og menntunarmöguleika á Austurlandi og hvernig slíkir viðburðir geta styrkt tengsl milli skóla og atvinnulífs. Einnig... Read...

70 – Signý Ormarsdóttir og Skapandi Austurland 09.06.2026

Viðmælandi er Signý Ormarsdóttir, fulltrúi menningar hjá Austurbrú, en fimmtudaginn 11. júní fór fram ráðstefnan Skapandi Austurland, ráðstefna um menningu og listir í landsbyggðunum sem Austurbrú, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið og Menningarstofa Fjarðabyggðar standa fyrir. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

69 – Austurbý á Nýsköpunarvikunni 30.04.2026

Viðmælandi í þættinum er Sæunn Vigdís Sigvaldadóttir, frumkvöðull og býrækandi á Austurlandi. Hún hélt erindi á Iceland Innovation Week/Nýsköpunarvikunni sem fram fór í Reykjavík dagana 27. til 30. apríl. Erindi hennar var hluti af viðburði sem landshlutasamtök hringinn í kringum landið héldu í Grósku 28. apríl. Á honum kynntu þátttakendur úr Startup Landið, nýsköpunarhraðli fyrir... Read more &#1...

68 – Málþing um safnamál á Austurlandi 17.04.2026

Í þættinum er fjallað um safnamál á Austurlandi af því tilefni að á mánudaginn, 20. apríl, verður málþing í Vonarlandi á Egilsstöðum þar sem fjallað verður um söfn og samfélag á Austurlandi. Viðmælendur eru Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, Guðrún Rúnarsdóttir hjá bókasafninu á Reyðarfirði, Hlín Gylfadóttir hjá Borgarsögusafni Reykjavíkur, Elsa Guðný Björgvinsdóttir, fulltrúi menni...

67 – „Erfiðasti skólinn var samvinna við annað fólk“ 31.03.2026

Í þessum þætti ræðir Stefán Bogi Sveinsson, forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga og fyrrverandi sveitarstjórnarmaður, um reynslu sína úr pólitík og starfi á Austurlandi. Hann fer yfir hvað það krefst að starfa í sveitarstjórn, hvað hann lærði á tólf árum í pólitík og hvers vegna hann ákvað að stíga til hliðar. „Erfiðasti skólinn var samvinna við annað... Read more »

66 – Samtal við Smára Geirsson um SSA 02.03.2026

Í nýjum þætti Austurland hlaðvarp er saga SSA rifjuð upp með Smára Geirssyni, fyrrverandi formanni og höfundi bókar um sögu SSA. Rætt er um Fjórðungsþing Austfirðinga, hugmyndir á vettvangi þess um fylkjaskipan Íslands og baráttuna fyrir auknum völdum landshlutans. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

65 – SSA 60 ára og Sterkur Stöðvarfjörður 18.02.2026

Í þættinum er spjallað við Björn Hafþór Guðmundsson, fyrrum formann og framkvæmdastjóra SSA, og Valborgu Warén, verkefnastjóra Sterks Stöðvarfjarðar. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

64 – Samvinnurými 07.01.2026

Samvinnurými eru orðin mikilvægur hluti af atvinnu- og byggðaþróun á Austurlandi. Í þessum þætti er rætt við Söru Elísabetu Svansdóttur hjá Austurbrú, Múlinn í Neskaupstað er heimsóttur og starfsmenn þar teknir tali og svo er rætt við framkvæmdastjóra Múlans og SÚN, Guðmund R. Gíslason, en síðan Múlinn opnaði árið 2021 hafa orðið til rúmlega 2o... Read more »

63 – Fræðslustjóri að láni 05.01.2026

Í þessum þætti Austurland hlaðvarps er fjallað um verkefnið „Fræðslustjóri að láni“ sem Austurbrú býður fyrirtækjum og stofnunum á Austurlandi til að styðja við markvissa sí- og endurmenntun. Umsjónarmaður þáttarins, Jón Knútur Ásmundsson, ræðir við Hrönn Grímsdóttur og Þorbjörgu Ólöfu Jónsdóttur (Bobbu) hjá Austurbrú, sem leiða verkefnið, sem og Lúðvík Emil Arnarsson og Hjálmar Ólaf... Read more...

62 – Matarmót Austurlands – annar hluti 03.11.2025

Í þessum þætti ræðir Jón Knútur við Dóru Svavarsdóttur, matreiðslumeistara og formann Slow Food á Íslandi, um Matarmót Austurlands sem haldið verður 15. nóvember. Þau ræða hæglætismatvæli, mikilvægi staðbundins hráefnis og hvernig betri matur getur skapað betra samfélag.

61 – NATALIE verkefnið – annar hluti 28.10.2025

Í þessum þætti af Austurland hlaðvarpi er fjallað um vinnustofu NATALIE-verkefnisins sem haldin var á Reyðarfirði 28. október. Verkefnið miðar að því að þróa náttúrumiðaðar lausnir sem auka viðnám samfélaga gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga á strandvistkerfi. Í þættinum koma við sögu Anna Berg Samúelsdóttir frá Matís, Pétur Már Bernhöft hjá GreenFish og Ragnar Sigurðsson, bæjarfulltrúi í... Read...

60 – Matarmót Austurlands 2025 24.10.2025

Matarmót Austurlands 2025 verður haldið í fimmta skipti laugardaginn 15. nóvember í Sláturhúsinu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Landsins gæði – austfirsk hráefni“. Þar sameinast að venju framleiðendur, frumkvöðlar og mataráhugafólk í sannkallaðri veislu fyrir bragðlaukana þar sem landshlutinn sýnir hvað hann hefur upp á að bjóða þegar kemur að hráefnum og matargerðarlist. Viðmælandi þáttarins...

59 – Geðræktarmiðstöðvar á Austurlandi 20.10.2025

Geðræktarmiðstöðvar voru opnaðar í Múlaþingi og í Fjarðabyggð í október. Við ræðum við Hilmar Garðarsson, notendafulltrúa, og Lindu Pehrsson, forstöðumann Starfsendurhæfingar Austurlands í þættinum. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

58 – Tanni Travel 16.10.2025

Í þættinum er rætt við Díönu Mjöll Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra Tanna Travel. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

57 – Farsældarráð á Austurlandi 03.10.2025

Í þættinum er fjallað um stofnun farsældarráðs á Austurlandi. Farsældarráðið verður svæðisbundinn samráðsvettvangur þjónustuveitenda sem bera ábyrgð á þjónustu við börn og fjölskyldur á Austurlandi. Viðmælandi í þættinum er Nína Hrönn Gunnarsdóttir, verkefnastjóri farsældar á Austurlandi. Umsjón hefur Jón Knútur Ásmundsson.

56 – Sjálfbærniverkefni á Austurlandi 23.09.2025

Sjálfbærniverkefni Alcoa Fjarðaáls og Landsvirkjunar var komið á til að fylgjast með áhrifum framkvæmda við Kárahnjúkavirkjun og álverið í Reyðarfirði á samfélag, umhverfi og efnahag á Austurlandi. Viðmælandi í þættinum er Lilja Sif Magnúsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sem hefur umsjón með verkefninu fyrir okkar hönd. Hún hefur verið að rýna í gögn sjálfbærniverkefnisins síðustu vikur... Re...

55 – Hernámsdagurinn á Reyðarfirði 04.07.2025

Hernámsdagurinn á Reyðarfirði hefur verið endurvakinn eftir hlé og við kynnum okkur hann. Jón Knútur Ásmundsson ræðir við Árna Pétur Árnason frá Menningarstofu Fjarðabyggðar og sagnfræðinginn Gauta Pál Jónsson sem skoðað hefur mannfall Íslendinga af völdum setuliðsins á stríðsárunum.

54 – Umhverfisráðstefna Austurlands – 2. þáttur 28.05.2025

Í þessum þætti höldum við áfram að fjalla um Umhverfisráðstefnu Austurlands 2025. Ráðstefnan fer fram 5. júní í Sláturhúsinu á Egilsstöðum og fjallar um sjálfbæra framtíð í mannvirkjagerð, skipulagi og vistvænum lausnum með Austurland í forgrunni. Talað er við Helgu Jóhönnu Bjarnadóttur, sviðsstjóra samfélags hjá Eflu og fundarstjóra ráðstefnunnar, og Alexöndru Kjeld, umhverfisverkfræðing, sem ver...

53 – Umhverfisráðstefna Austurlands 23.05.2025

Í þessum þætti beinum við sjónum að Umhverfisráðstefnu Austurlands, sem fer fram 5. júní í Sláturhúsinu á Egilsstöðum undir yfirskriftinni „Hvernig byggjum við 2050?“ Viðmælendur eru: Signý Ormarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú og einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar og Skarphéðinn Smári Þórhallsson, landfræðingur, sem á ráðstefnunni ætlar að kynna framtíðarsýn um nýjan byggðarkjarna í Fljót...

52 – Náttúran sem lausn: NATALIE-verkefnið á Íslandi 19.05.2025

Hvernig getum við nýtt náttúruna til að aðlagast loftslagsbreytingum? Í nýjasta þætti Austurland hlaðvarp fjöllum við um NATALIE, stórt Evrópuverkefni sem snýst um að þróa náttúrumiðaðar lausnir gegn afleiðingum loftslagsbreytinga. Verkefnið er hluti af Horizon Europe og Ísland tekur virkan þátt með Austurland sem tilvikssvæði. Viðmælandi þáttarins er Anna Berg Samúelsdóttir hjá Matís, sem stýrir....

51 – Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 28.02.2025

Í nýjasta þætti Austurlands hlaðvarps ræðum við Sóknaráætlun Austurlands 2025-2029 og hvað hún þýðir fyrir samfélagið okkar. Viðmælandi þáttarins er Urður Gunnarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, sem leiddi vinnuna. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

50 – Námskeið í notkun gervigreindar á Austurlandi 14.01.2025

Gervigreind er komin til að vera og hlutverk hennar í okkar daglega lífi mun aukast gríðarlega á næstu árum. Fræðslu- og ráðgjafafyrirtækið Javelin AI í samstarfi við Austurbrú ætlar að bjóða upp á námskeiðið „ChatGPT frá A til Ö“ í janúar og mars sem mun nýtast öllum sem vilja tileinka sér gervigreind í leik og... Read more »

49 – Íslenskukennarinn Davíð Samúelsson 14.11.2024

Í þættinum er rætt við Davíð Samúelsson sem kennir íslensku fyrir útlendinga. Davíð er búsettur í Belgíu og kennir námskeiðin sín í fjarnámi. Í viðtalinu segir hann frá sinni nálgun á kennslu en hann leggur mikla áherslu á að námið sé persónulegt og praktískt. Umsjón: Jón Knútur Ásmundsson.

Höre den Podcast Austurland in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet