RÚV

Samfélagið

Society IS ↓ 477 Folgen

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is

Autor

RÚV

Kategorie

Society

Podcast-Website

www.ruv.is

Neueste Folge

26. Feb 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna 26.02.2026

Í þessum síðasta þætti Samfélagsins veltum við fyrir okkur snúbúum – einstaklingum sem flytja til útlanda og snúa svo aftur. Karítas Hrundar Pálsdóttir, doktor í ritlist, hefur rannsakað snúbúa og svokallaðar snúbúabókmenntir. Hún kafar ofan í sálfræði snúbúa og birtingarmyndir þeirra í bókmenntum og ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða þennan áhugaverða hóp. Svo ætlum við að ri...

Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris 25.02.2026

Rekstur dagblaðsins Reykjavík Grapevine er í járnum. Dagblaðið, sem kemur út á ensku, einu sinni til tvisvar í mánuði og hefur gert frá árinu 2003, hefur neyðst til að segja upp þremur blaðamönnum, en biðlar nú til almennings að halda því á lífi. Jón Trausti Sigurðarson, útgefandi, settist niður með okkur og fór yfir reksturinn, söguna og stöðu íslenskrar fjölmiðlaflóru. Við förum líka í heimsókn...

Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi 19.02.2026

Barnaverndarkerfið hefur verið mikið til umræðu. Tómas Hrafn Sveinsson formaður umdæmisráðs barnaverndar Reykjavíkur ræddi við Fanneyju Birnu Jónsdóttur um stöðu barnaverndar í dag, uppbyggingu og gang kerfisins og feril málanna sem koma inn á borð barnaverndarnefnda. Og síðan ætlum við að fræðast aðeins um ferðaþjónustu í Grænlandi, eins og hún blasti við árið 2021. Við endurflytjum viðtal sem Þó...

Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar 18.02.2026

Við byrjum þáttinn á gervigreindinni. Eyrún Magnúsdóttir gervigreindarfréttaritari Samfélagsins ætlar að kíkja til okkar og segja okkur frá því sem ber hæst í gervigreindarumræðunni þessa dagana. Í dag segir hún okkur frá meintum tímamótum í þróun gervigreindar, þegar gervigreindin byrjaði að forrita sjálfa sig – og hvaða áhrif það gæti haft á daglegt líf fólks sem tengist gervigreind ekki neitt....

Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi 12.02.2026

Í byrjun þáttar fáum við til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor við Háskóla Íslands, til að fræða okkur um ávaxtaflugur. Svo heimsækjum við Christian Keldsen, framkvæmdarstjóra Sulisitsisut, félag atvinnurekenda í Grænlandi. Og að lokum rifjum við upp heimsókn okkar á kaffinördakaffihús á Akureyri sem farin var í október 2024. Tónlist úr þættinum: Canadian Brass - The flight of the bumble...

Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan 11.02.2026

Verð á rafmyntinni Bitcoin hefur sveiflast duglega niður á við síðustu mánuði. Í síðustu viku rifjuðum við upp samtal sem við áttum fyrir nokkrum árum við hagfræðinginn Björgvin Inga Ólafsson um rafmyntina, sem þá hafði risið mjög hátt. Nú er þessu öfugt farið og ætlum við að ræða aftur við Björgvin um ástæður þessarar niðursveiflu, traust á rafmyntum og um breytingar á notkun Bitcoin yfirleitt. Á...

Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur 05.02.2026

Rætt við þær Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, prófessor í sálfræði við Háskólann í Reykjavík og Þóru Sigfríði Einarsdóttur, sérfræðingur í klínískri barnasálfræði með áfallasálfræði sem undirgrein, um áföll og ofbeldi sem börn verða fyrir í æsku sem og þau úrræði sem bæði börn og fullorðnir sem verða fyrir slíku geta leitað í. Þá lítum við um öxl og flytjum brot úr áhugaverðum þáttum frá 1976 sem fjö...

Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976 04.02.2026

Fræðimenn á ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands vinna nú að umfangsmikilli rannsókn sem ber heitið Eyðibyggðir miðalda á Íslandi. Þar mætast sagnfræðin og fornleifafræðin meðal annars og varpa nýju ljósi á hvernig samfélag og byggð þróuðust á Íslandi á tímabilinu 1100-1400 (ellefu hundruð og fjórtánhunduð). Árni Daníel Júlíusson rannsóknarsérfræðingur við Sagnfræðistofnun háskólans ræðir við Fanneyj...

Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1 30.01.2026

Almyrkvi á sólu verður sjáanlegur frá Íslandi þann tólfta ágúst. Það er í fyrsta sinn síðan 1954 sem hægt verður að sjá almyrkva hér á Íslandi. Hann mun sjást á vestasta hluta landsins, og má búast við að fólk flykkist að til að verða vitni af þessum atburði. Við sláum á þráðinn vestur á Snæfellsnes þar sem Ragnhildur Sigurðardóttir þjóðgarðsvörður í Snæfellsjökulsþjóðgarði ætlar að segja okkur af...

Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál 29.01.2026

Þrældómur nútímans er yfirskrift málþings sem ungliðahreyfing Íslandsdeildar Amnesty International heldur í næstu viku. fjallað verður um hvernig vinnumansal birtist okkur á Íslandi og á heimsvísu. Við fáum Árna Kristjánsson Ungliða- og aðgerðastjóra og Heiðrúnu Völu Hilmarsdóttur ungliða til okkar í upphafi þáttar. Síðasta jökulár 2024 til 25 fór illa með jöklana okkar. Þeir rýrnuðu um fimmtán mi...

Aðlögun að loftslagsbreytingum, hlaðvarp um fornleifafræði og ADHD 28.01.2026

Loftslagsbreytingum fylgja ýmsar áskoranir sem þarf að bregðast við, meðal annars þarf að tryggja að húsin okkar standi aukið álag af sér. Það var til umræðu í erindi Elínar Þórólfsdóttur teymisstjóra hjá húsnæðis- og mannvirkjastofnun á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum á dögunum. Við tölum við Elínu í upphafi þáttar. Heiðnar grafir á Íslandi, landnám Reykjavíkur og Grænland og Ameríka e...

Smáforritið Bati, Persónuvernd í 25 ár, ljótt og flott umhverfi 27.01.2026

Í dag ætlum við að kynna okkur smáforritið Bata, sem hefur það markmið að styðja við fólk með fíknisjúkdóma. Þórdís Rögn Jónsdóttir, annar stofnenda fyrirtækisins Rekovy á bak við smáforritið, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur meira. Á morgun verður haldið upp á 25 ára afmæli Persónuverndar – stofnunin býður til afmælismálþings í Eddu, húsi stofnunar Árna Magnússonar, þar...

Arkitektúr, 5G og Húsmæðraþættir 26.01.2026

Við ætlum að halda áfram að ræða hið byggða umhverfi á Íslandi, eins og við höfum gert talsvert mikið síðustu vikur. Við höfum verið að reyna að skilja betur hvers vegna byggða umhverfið okkar er eins og það er, hvernig okkur líður í því og hvernig við tölum um það. Í dag fáum við sjónarhorn arkítekta, þegar Björg Torfadóttir, framkvæmdarstjóri Arkitektafélags Íslands sest hjá okkur til að ræða þe...

Óskarsverðlaunin á Youtube 2029, stefna í áfengis- og vímuvarnarmálum og endurheimt vistkerfa 23.01.2026

Nýlega var tilkynnt að Óskarsverðlaunin árið 2029 verða sýnd á Youtube, vídeómiðli í eigu Google. Hvað segir það okkur um umhverfi fjölmiðla og kvikmynda að einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins verði sýndur á miðlum tæknirisa? Við ætlum að velta þessu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, í upphafi þáttar. Á miðvikudaginn voru niðurstöður starfshóps um stef...

Bómullarkynslóðin endurskoðuð og gervigreindarhæp 22.01.2026

Í dag ætlum við að líta um öxl og rifja upp eldri umfjallanir sem hafa staðið tímans tönn. Fyrst flytjum við pallborðsumræður sem við vorum með hér í Samfélaginu í september 2024 þar sem fjallað var um kynslóðir. Við fengum til okkar nokkra góða gesti af nokkrum kynslóðum, spjölluðum við þau um skilning þeirra á kynslóðarmun og meintan ríg milli kynslóða. Síðar í þættinum flytjum við viðtal við ír...

Mannvæn mannvirki, læsi, lestur og svefnleysi 21.01.2026

Hvers vegna líður okkur oft ekki vel í byggða umhverfinu okkar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig að þessa dagana, við í Samfélaginu þeirra á meðal. Við ætlum að halda áfram að fjalla um byggðarmál – í dag frá sjónarhorni arkítekta. Arnhildur Pálmadóttir arkítekt ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða mannvæn mannvirki, sjálfbærar byggingaraðferðir, fagurfræði, nostalgíu, sk...

Jöklar, sveitarstjórnarkosningar og kynjakvótalögin 20.01.2026

Okjökull fyrrverandi og Hofsjökull eystri eru viðfangsefni vísindagreinar sem birtist nýverið í alþjóðlega vísindaritinu annals of glaciology. Því var lýst yfir fyrir tólf árum að Okjökull væri horfinn. Hofsjökull eystri tórir enn, en talið að hann muni hverfa að óbreyttu eftir þrjátíu og fimm til fjörutíu ár. Eyjólfur Magnússon frá Jarðfræðistofnun háskóla íslands og Hrafnhildur Hannesdóttir frá...

Sjálfbærni, áhrif loftslagsbreytinga á hönnun samgönguinnviða og safn Annie Leifs 19.01.2026

Í dag ætlum við að taka púlsinn á sjálfbærnimálum. Stærsti sjálfbærniviðburður ársins er að nálgast, það er Janúarráðstefna Festu, miðstöðvar um sjálfbærni. Þema ráðstefnunnar í ár er umbreyting, en meðal annars verður fjallað um sjálfbærni á tímum geópólitískrar óvissu, loftslagsbreytinga og hraðrar tækniþróunar. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu, kíkir til okkar í upphafi þátta til að...

Loðnuleiðangur Hafró og New European Bauhaus 16.01.2026

Fimm skip taka þátt í rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í næstu viku. Í honum á að kanna stöðu loðnustofnsins sem heldur til fyrir norðan landið þessa dagana. Niðurstöður verða nýttar til að veita ráðgjöf um hve mikla loðnu verður heimilt að veiða í ár. Loðnan er verðmætur fiskur og ríkir spenna fyrir niðurstöðunum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talar við Guðmund J. Óskarsson sviðsstjóra...

Fornverk í Höfnum, aðlögun að loftslagsbreytingum og sjálfstæði Grænlands og auðlindir 15.01.2026

Þegar Sveinn Enok Jóhannsson kom sér upp heimili í Höfnum á Reykjanesskaga vildi hann læra að hlaða og lagfæra gamlar hleðslur í garðinum sínum. Þegar það reyndist erfitt að komast á námskeið brá hann á það ráð að finna sérfræðing, halda sjálfur námskeið og bjóða öðrum að koma og læra með sér. Heyrum af þessu á eftir. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, fl...

Reglugerð um ljósvist, sniðganga og áhrif streitu á krabbameinsfrumur 14.01.2026

Ljósvist er nú í fyrsta sinn skilgreind í byggingarreglugerð og settar fram kröfur um ásættanleg birtuskilyrði í nýbyggingum. Mannvirkjahönnuðir þurfa þannig að sjá til þess að dagsljós sé ásættanlegt í vistarverum fólks og að skuggavarp og byggingamagn nýrra hverfa hamli því ekki. Ásta Logadóttir verkfræðingur hefur talað fyrir þessum breytingum á reglugerðinni um langt skeið og við ræðum við han...

Surtseyjarrannsóknir og farsældarhyggja 13.01.2026

Surtseyjarfélagið gaf nýverið út ritið Surtsey Research í sextánda sinn. Ritið er safn vísindagreina um eyna, jarðfræði hennar og lífríki. Tíu manna handvalinn hópur heimsækir Surtsey í júlí ár hvert og sinnir þar rannsóknum sem síðar rata í ritið. Í þætti dagsins spjöllum við við Hólmfríði Sigurðardóttur formann Surtseyjarfélagsins og Bjarna Diðrik Sigurðsson ritstjóra Surtsey Research og gjaldke...

Menntamál, stúdentar og safn RÚV 12.01.2026

Kerfið hefur alfarið og algjörlega brugðist börnunum okkar sagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins og nýorðinn mennta- og barnamálaráðherra um menntakerfið fyrir helgi. Orð Ingu hafa vakið mikla umræðu um málaflokkinn og eru ekki allir sammála um hvort þau máli rétta mynd af stöðunni. Sigrún Blöndal, kennari á Egilsstöðum finnst þau ekki endurspegla það sem hún sér í vinnunni á hverjum degi og...

Konukot í nýju húsnæði, upplýsingaóreiða og gervigreind, Kvæðamannafélagið Iðunn 09.01.2026

Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, opnaði á nýjum stað í Ármúla í gær. Skýlið hafði verið til húsa í Eskihlíð í um tvo áratugi en nýja húsið er stærra og hentar betur þörfum starfseminnar. Þetta eru mikil tímamót fyrir Konukot og Rótina, félagssamtökin sem reka Konukot, og Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur hva...

Endurhæfing kvenna í fangelsum og niðurstaða í stóra sundlaugarmálinu í Mývatnssveit 08.01.2026

Hópastarf gegnir lykilhlutverki í endurhæfingu kvenna í fangelsum. Í fangelsinu á Hólmsheiði eru haldin Konukvöld alla þriðjudaga þar sem tveir sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum hitta konur í afplánun. Markmiðið er að efla tengsl, hæfni í samskiptum og draga úr félagslegri einangrun en margar konur í fangelsum hafa ekki áður fengið tækifæri til að læra heilbrigð samskipti eða byggja upp traust í...

Höre den Podcast Samfélagið in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet