RÚV
Samfélagið
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál. Netfang: samfelagid@ruv.is
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Gervigreind og vísindaspjall 07.01.2026 59:23
Við fáum heimsókn Ólaf Andra Ragnarsson, tölvunarfræðing, frumkvöðul og gervigreindarsérfræðing, sem hefur um margra áratuga skeið sinnt rannsóknum á nýjustu tækni og framtíð hennar. Undanfarið hefur hann, eins og margir aðrir, mest velt fyrir sér gervigreindinni, og meðal annars skrifað um hana vikuleg fréttabréf sem lesa má á Substack. Í lok síðasta árs og byrjun þess nýja skrifaði hann tvær gre...
Skiptar skoðanir um Kársnesstíg og það vinsælasta á Vísindavefnum árið 2025 06.01.2026 59:00
Aðgreindur hjóla- og göngustígur, Kársnesstígur, hefur verið tilefni umræðna meðal íbúa Kópavogs undanfarnar vikur. Stígurinn á að tengjast Fossvogsbrú, fyrstu stóru framkvæmdinni í fyrsta áfanga Borgarlínu, sem tengir vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur yfir Fossvog. Í nóvember samþykkti bæjarstjórn Kópavogs tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir stíginn, Kársnesstíg, sem kynnt var fyrir íbúum í lo...
Bandaríkin og alþjóðalög, textíl og einokunarverslun á 18.öld og Er ekki allt í lagi heima hjá þér? 05.01.2026 59:32
Á laugardag gerði Bandaríkjaher árásir á Venesúela og handsamaði forsetann, Nicolas Maduro. Búist er við því að Maduro komi fyrir dóm í New York í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Bandaríkin ætla að stýra landinu og að bandarísk fyrirtæki myndu endurreisa olíuiðnað landsins. Viðbrögð alþjóðasamfélagsins hafa verið alls konar – meðal annars hefur því verið haldið fram að árás Bandaríkjaher...
Áramótaheit, ljótar nýbyggingar og kvenleiðtogar 02.01.2026 59:06
Heilsutengd markmið um áramót eru algeng. Til þess að markmiðin náist er gott að hafa í huga að fara rólega af stað, vera með raunhæfar væntingar um árangur og huga að skemmtanagildi hreyfingarinnar. Daníel Sæberg Hrólfsson, WorldFit-þjálfari og einkaþjálfari hjá World Class, kemur til okkar í byrjun þáttar með góðar ráðleggingar til þeirra sem ætla að taka heilsuna föstum tökum á nýja árinu. Við...
Samfélag ársins 2025 - seinni hluti 30.12.2025 56:26
September: Arnhildur Hálfdánardóttir var með pistlaröð um botnvörpuveiðar og stöðu hafsins umhverfis Ísland. Í einum pistlanna ræddi hún við Snjólaugu Árnadóttur, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumann Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík um hafréttarmál. Samfélagið hitti Sigríði Gísladóttur, framkvæmdastjóra samtakanna Okkar heimur, og fékk að fræðast...
Samfélag ársins 2025 - fyrri hluti 29.12.2025 56:46
Í síðustu tveimur þáttum ársins rifjum við upp það helsta sem flutt hefur verið í Samfélaginu árið 2025. Í dag förum við yfir fyrri hluta ársins.
Þjóðsögukistan, fimmtíu og tveir Ungverjar og Austurpóllinn 22.12.2025 55:00
Tíu nýir þættir af Þjóðsögukistunni koma út fyrir jólin. Upp úr kistunni koma tíu jóla- og vetrarsögur, sprottnar upp úr þjóðtrú og sagnaarfi ólíkra landa. Í kistunni leynist meðal annars saga af köngulóm sem skreyta jólatré og norskum tröllum sem troða sér inn í mannahús á aðfangadag og stela jólamatnum. Ingibjörg Fríða Helgadóttir, sem stýrir Þjóðsögukistunni, kíkir til okkar og segir okkur allt...
Þjóðlegar jólahefðir, vættir, kvæði og jólatónar 19.12.2025 58:32
Við verðum á þjóðlegum nótum í þætti dagsins. Í morgun lagði ég leið mína upp í Þjóðminjasafn til að ræða við þjóðfræðinga um jólahefðir – um fáheyrða jólavætti og jólatóna. Núna klukkan 1 hefst málþing um þetta og fjöldi þjóðfræðinga halda þar erindi um ýmis efni, um dansa og jólaleiki, óvenjuleg jólakvæði, jólahrollvekjur og ýmislegt fleira. Og í lok þáttar ætlum við að heyra upptöku frá árinu 1...
Menn ársins hjá TIME, jólapistill Stefáns Gíslasonar og réttindaskóli UNICEF 18.12.2025 57:15
TIME-tímaritið, bandaríska, valdi nýlega forstjóra tæknirisa sem menn ársins. Ekki einn mann heldur hóp tæknileiðtoga sem standa að hraðri þróun gervigreindar. Gervigreindarakríktektarnir, eins og þeir eru titlaðir hjá TIME. Við setjumst niður með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, til að velta fyrir okkur hvort þetta séu hetjur eða skúrkar. Við fáum líka hinn árlega jóla...
Efnafræði og matseld, Bláfjöll og IKEA-geitin 17.12.2025 58:07
Stjórnendur skíðasvæðisins í Bláfjöllum vonast til að opna skíðasvæðið um helgina, ef veður leyfir. Þar eru skíðalyftur sem henta jafnt byrjendum sem lengra komnum og auk þess hefur skíðagöngusvæðið farið ört stækkandi. Á þeim þremur árum sem snjóframleiðsla hefur verið þar hefur aðsóknin aukist mikið. Ástrós Signýjardóttir ræðir við Magnús Árnason, framkvæmdastjóra skíðasvæðisins, sem er spenntur...
Heilsutæknisprotar, bráðnandi jöklar og hundraðasti pistill Páls Líndal 16.12.2025 58:08
Við byrjum þáttinn í heimi nýsköpunar og sprotafyrirtækja. Nýlega lauk sérstökum viðskiptahraðli fyrir heilsutæknisprota – sem haldið var af KLAK-icelandic startups, og við ætlum að forvitnast um hann. Þetta er búið að vera stórt ár fyrir KLAK, sem fagnaði 25 ára afmæli árið 2025. Við fáum til okkar Ástu Sóllilju Guðmundsdóttir, framkvæmdarstjóra og Harald Bergvinsson, verkefnastjóra, til að ræða...
Arsen og jól á förnum vegi 15.12.2025 58:28
Við byrjum þáttinn á læknisvísindalegum nótum og fáum til okkar Valgerði Jakobínu Hjaltalín, nýdoktor á heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands sem hefur verið að velta fyrir sér frumefninu Arsen og sögu þess. Við ætlum að fjalla aðeins um þetta efni, sem getur valdið alvarlegum eitrunum og var áður fyrr oft notað sem morðvopn. Ekki missa af því. En við ætlum líka að kafa ofan í safn ríkisútvarpsi...
Útrás jólabókaflóðsins, leikskólaheimsókn og púlsinn í desember 12.12.2025 55:00
Þessar vikurnar streyma nýútgefnar bækur í bókabúðir og verslanir um allt land í hinu svokallaða jólabókaflóði . Hugtakið vísar til þess þegar nýjar bækur „flæða“ inn á markaðinn rétt fyrir jólin – þetta hugtak er að sjálfsögðu að löngu orðið rótgróið í íslenskri tungu, en á undanförnum árum hefur hugtakið „jólabókaflóð“ byrjað að skjóta upp kollinum á ólíkum tungumálum í erlendum fjölmiðlum. Bra...
Sjálfbær jól, ríkisstyrktir ESB-pepparar, jólamálfar 11.12.2025 57:58
Hvernig höldum við umhverfisvæn og sjálfbær jól? Hvernig höldum við stresslaus jól? Þetta eru spurningar sem margir spyrja sig þessa dagana. Og við ætlum að reyna að svara þeim í dag, eða svona alla vega byrja að reyna að svara þeim. Þær Birgitta Stefánsdóttir og Þorbjörg Sandra Bakke, sem eru í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfis- og orkustofnun, koma til okkar í upphafi þáttar og gefa okkur...
Fátækt, ríkisstyrktir ESB-anstæðingar og Omega-3 10.12.2025 59:00
Fátækt er talsvert algengari og dýpri meðal fólks af erlendum uppruna en hjá fólki með íslenskan bakgrunn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu sem unnin var fyrir forsætisráðherra og er hluti rannsóknarverkefnis sem hófst árið 2022 um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað. Í niðurstöðukafla skýrslunnar segir að aukin hætta á fátækt meðal nýfluttra innflytjenda endurspegli samspil marg...
Átak UN Women gegn kynbundnu, stafrænu ofbeldi og þættir um birtingarmyndir fötlunar í menningu og listum 09.12.2025 58:29
16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi er alþjóðleg herferð UN Women sem stendur ár hvert frá 25. nóvember til 10. desember. Herferðin tengir saman alþjóðlegan baráttudag Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi og alþjóðlegan mannréttindadag Sameinuðu þjóðanna. Í ár, þegar 30 ár eru liðin frá undirritun Peking-sáttmálans, er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Sara McMahon,...
COP30 gert upp og helgidagabrot 08.12.2025 58:15
Síðustu vikur hafa hlustendur Samfélagsins heyrt pistla frá Þorgerði Maríu Þorbjarnardóttur, formanni Landverndar, og Lauru Sólveigu Leffort Scheefer, forseta Ungra umhverfissinna. Þær tóku þátt í COP-30, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Belem í Brasilíu og í pistlum sínum sögðu þær frá dvöl sinni í Belem sem og því sem bar hæst á ráðstefnunni, sem var heldur tíðindamikil í ár. Þær Þorgerðu...
Opið hús í Hússtjórnarskólanum, 60 ára afmæli skólakórs Öldutúnsskóla og jólatré hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar 05.12.2025 57:11
Við verðum á faraldsfæti í þætti dagsins. Við hefjum þáttinn með heimsókn í Hússtjórnarskólann, sem er staðsettur á Sólvallagötu í Reykjavík. Skólinn hefur starfað óslitið frá árinu 1942. Ég kíkti í skólann í gær og ræddi þar við Mörtu Maríu Arnarsdóttur, skólameistara, um námið og hið árlega opna hús sem er í skólanum á morgun. Á ferð okkar Mörtu Maríu um skólann hittum við fleiri kennara sem dei...
Hvatalaus hugverkaiðnaður, eitraðar rúsínur og einhverfa fullorðinna 04.12.2025 58:52
Í dag fjöllum við um hugverkaiðnaðinn og þau hvatakerfi sem ætlað er að styðja rannsóknir og þróun hjá íslenskum fyrirtækjum. Nokkur óánægja hefur verið með þessi mál og einhver fyrirtæki hafa hótað því að sækja stuðning út í heim og jafnvel flytja starfsemina úr landi. Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóri Klappa, ætlar að kíkja til okkar og ræða þessi mál í upphafi þáttar. Stefán Gíslason umhverfiss...
Blái herinn, fuglatalningar að vetrarlagi og glúteinóþol 03.12.2025 55:00
Umhverfisverndarsamtökin Blái herinn fagna 30 ára afmæli í ár. Herinn hefur lagt áherslu á baráttuna við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum, hvatningu og vitundarvakningu. Tómas J. Knútsson, stofnandi Bláa hersins, ætlar að setjast með okkur í upphafi þáttar og fara aðeins yfir starfsemi samtakanna og ræða hvað er fram undan hjá Bláa hernum. Sjötíu ár eru frá því byrjað var að telja fugla...
Munnheilsa Freuds, nýji Landspítalinn og SARS-CoV-2 02.12.2025 57:29
Í dag köfum við ofan í heilbrigðisvísindasöguna – og tökum fyrir sjúkrasögu Sigmundar Freud, föður nútímasálgreiningar, sem gekkst undir meira en 30 skurðaðgerðir og geislameðferð á 16 ára tímabili vegna þess sem talið var vera munnkrabbamein. Svend Richter, fyrrverandi dósent við Tannlæknadeild Háskóla Íslands og ritstjóri Tannlæknablaðsins, kíkir til okkar í upphafi þáttar til að ræða þetta og t...
Gervigreind í skólum, Fullveldisdagurinn 1956 og barnagælur 01.12.2025 55:00
Fyrir þremur árum, í nóvember 2022, var spunagreindarforritið ChatGPT frá OpenAI opnað almenningi. Þessi viðburður leysti úr læðingi eiginlega sprengingu í notkun spunagreindar – og þar voru skólar alls ekki óhultir. En hvernig hafa skólar tekist á við þessa þróun? Og enn fremur; hvernig ættu þeir að takast á við þessa þróun? Tryggvi Thayer, aðjúnkt í upplýsingatækni, nýsköpun og miðlun við HÍ og...
Byggðarfesta og Hjálparkokkar 28.11.2025 50:58
Leiðir til byggðafestu var yfirskrift verkefnis sem kláraðist á dögunum. Þar var leitað leiða til að efla byggð á þeim landsvæðum sem mest eiga undir sauðfjárrækt, í Dölum, Ströndum, Reykhólasveit og á Norðurlandi vestra. Unnin var greining á tækifærum til að efla byggð í þessum sveitum og síðar unnið að tillögum til úrbóta regluverks og staðið fyrir fræðslu heimamanna. Hlédís Sveinsdóttir og Björ...
Gervigreindarbólan og Kvikyndaþing 27.11.2025 58:39
Þingkonan Alexandria Ocasio-Cortez hefur varað við því að bandaríska hagkerfið standi frammi fyrir mögulegri gervigreindarbólu. Hún bendir á að gríðarleg fjárfesting í innviðum gervigreindar hvíli á fáum stórfyrirtækjum og að kerfið byggi um of á væntingum um arðsemi, sem enginn viti hvort standist. Við ætlum að ræða þetta við Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, hér í upph...
Stúdíó Síló á Stöðvarfirði, óæskileg fjarskipti og meira um Rosalind Franklin 26.11.2025 56:45
Í dag fjöllum við um hvernig ódýr raftæki sem keypt eru á netverslunum geta spillt síma- og netsambandi og jafnvel valdið sambandsleysi. Við rifjum líka eitt helsta dramamál sameindalíffræðinnar, sem tengist meðal annars vísindakonunni Rosalind Franklin. En við byrjum á þessu: Á Stöðvarfirði á Austufjörðum, í húsakynnum Sköpunarmiðstöðvarinnar, sem áður var fiskvinnsla þorpsins, er rekið eitt áhug...
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet