Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ 1424 epizód

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: brotkast.is

Szerző

Brotkast ehf.

Kategória

Arts

A podcast weboldala

brotkast.is

Legutóbbi epizód

2026. okt. 5.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

„Veruleikinn er miklu skrýtnari en við höldum“ – Gunnar Dan | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E59 05.10.2026

Gunnar Dan, hlaðvarpsstjórnandi og rithöfundur, snýr aftur í Spjallið með nýja bók, UFO 202, og segir óhætt að fullyrða að mikið hafi breyst frá því hann settist síðast niður með Frosta til að ræða eitt dularfyllsta viðfangsefni samtímans. Undanfarin misseri hafa fyrrverandi starfsmenn bandaríska hersins og leyniþjónustustofnana stigið fram með ótrúlegar frásagnir af óþekktum fljúgandi fyrirbærum,...

Sadó-masókismi íslenskra kjósenda | Harmageddon | S04E37 01.10.2026

Í Harmageddon þætti dagsins veltum við fyrir okkur hversu þolinmóðir íslenskir kjósendur ætla að vera gagnvart Viðreisn og Samfylkingu sem sýna engin merki þess að ætla ná þeim tökum á efnahagsmálum sem þau voru kosin til að gera. Við ræðum líka um mikinn árangur sem Já-hliðin náði fram í nýlegri þjóðaratkvæðagreiðslu með drjúgri aðstoð úr sjóðum skattgreiðenda og fjöllum um óhóflega notkun Íslend...

Óli Björn Kárason: „Ægivald Ríkisútvarpsins er orðið þrúgandi“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E58 29.09.2026

Óli Björn Kárason, fyrrverandi þingmaður og ritstjóri, er gestur Spjallsins að þessu sinni. Tilefnið er ný bók hans, Villigötur valdsins – til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun, en samtalið vindur fljótt upp á sig og verður að víðtæku uppgjöri við íslensk stjórnmál og þróun samfélagsins undanfarna áratugi. Óli Björn ræðir hvers vegna hægrimenn misstu sjálfstraustið og...

Ísland á bandarísku áhrifasvæði | Harmageddon | S04E36 23.09.2026

Fyrir nokkrum vikum var ágengni Trumps gagnvart Grænlandi sögð sýna að Ísland gæti ekki lengur treyst Bandaríkjunum og yrði að leita skjóls í Evrópusambandinu. Nú hefur náðst farsælt samkomulag um Grænland, allir eru hæstánægðir og stærsta röksemdin fyrir inngöngu Íslands í ESB virðist hafa gufað upp. Við fjöllum um þetta og fleiri mál líðandi stundar í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift...

Jón Helgi: „Ríkisstjórnin stöðvaði vinnu að betra íbúðalánakerfi“ | Spjallið með Frosta | S04E57 21.09.2026

Jón Helgi Egilsson, doktor í peningamálahagfræði, segir að Ísland geti boðið húsnæðislán með föstum vöxtum til mun lengri tíma en nú tíðkast. Hann tók þátt í vinnu á vegum fyrri ríkisstjórnar sem miðaði meðal annars að því að gera tíu ára vaxtafestingu að raunhæfum valkosti fyrir íslenska lántakendur. Sú vinna hafi hins vegar verið stöðvuð eftir að Daði Már Kristófersson tók við embætti fjármálará...

Tæp 60% atvinnulausra eru útlendingar – en umræðan er vandamálið | Harmageddon | S04E35 16.09.2026

Erlendir ríkisborgarar eru aðeins um fjórðungur vinnuaflsins en tæplega 57% þeirra sem voru á atvinnuleysisskrá fyrstu sjö mánuði ársins. Við ræðum þessar sláandi tölur og spyrjum hvers vegna stjórnvöld virðast hafa meiri áhyggjur af umræðunni en vandanum sjálfum. Við förum einnig yfir hvernig stríð stjórnvalda gegn nikótínpúðum virðist hafa leitt til aukinna sígarettureykinga meðal ungmenna, kynj...

Sigmundur Davíð: „Við verðum að ná stjórn á landamærunum“ | Spjallið með Frosta | S04E56 15.09.2026

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu að þessu sinni. Í viðtalinu ræðir hann niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið og gagnrýnir viðbrögð ríkisstjórnarinnar við ósigrinum. Hann segir stjórnvöld hafa misst af tækifærinu til að sameina þjóðina og telur fráleitt að halda lífi í gamalli aðildarumsókn eftir að þjóðin hefur sagt n...

Hallalausu fjárlögin: Núllið þeirra - reikningurinn okkar | Harmageddon | S04E34 09.09.2026

Ríkisstjórnin fagnar hallalausum fjárlögum fyrir árið 2027. En þegar betur er að gáð fæst núllið meðal annars með hærri sköttum og gjöldum, rýrari bótum og aðgerðum sem gætu aukið verðbólguþrýsting. Við förum yfir það sem leyndist á bak við glansandi kynninguna og spyrjum: Eru fjárlögin raunverulega hallalaus - eða hefur reikningurinn einfaldlega verið færður yfir á almenning? Fáðu þér áskrift og...

Debbie Hayton: „Transkonur eru karlar – sættið ykkur við það“ | Spjallið með Frosta | S04E55 07.09.2026

Debbie Hayton er breskur kennari, blaðamaður og verkalýðsbaráttukona sem gekkst sjálf undir kynleiðréttingu árið 2012. Þrátt fyrir það hefur hún orðið ein ötulasta gagnrýnisröddin gegn nútíma kynvitundarpólitík og þeirri hugmyndafræði sem hún telur hafa tekið yfir umræðuna um transfólk. Í þessu ítarlega viðtali ræðir Debbie við Frosta Logason um eigin æsku, vanlíðanina sem leiddi til kynleiðréttin...

Við viljum ráða okkur sjálf | Harmageddon | S04E33 02.09.2026

Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum erlendis við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Víða er henni fagnað sem verðskuldaðri áminningu til Evrópusambandsins um að sífellt fleiri Evrópubúum hugnast illa sú aukna miðstýring sem sambandið stefnir að. Viðbrögðin hér heima hafa þó verið af öðrum toga. Tapsárir já-sinnar virðast margir haldnir þeirri meinloku að Nei-ið hafi aðeins...

Bjarni Benediktsson: „Ríkisstjórnin er augljóslega í brekku“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E54 01.09.2026

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og fyrrverandi forsætis- og fjármálaráðherra, sest hjá Frosta Logasyni í ítarlegt viðtal um stöðu efnahagsmála, uppnám á vinnumarkaði og niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-viðræður. Bjarni segir niðurstöðuna „hart nei“ og mikið áfall fyrir Evrópusinnuðu stjórnarflokkana. Hann telur ríkisstjórnina vera í brekku eftir að verðbólga...

Richard Werner: Why EU Membership Would Be a Grave Mistake for Iceland | S04E53 27.08.2026

Professor Richard Werner warns Icelanders against surrendering their monetary sovereignty by joining the European Union and eventually adopting the euro. In this wide-ranging interview, recorded ahead of Iceland’s referendum on reopening EU accession negotiations, Werner argues that joining the euro would be one of the worst economic decisions Iceland could make. By abandoning the Icelandic króna,...

Athygli ríkisstjórnarinnar á að vera á efnhagsmálum | Harmageddon | S04E32 27.08.2026

Á baráttufundi já-hliðarinnar í vikunni talaði Kristrún á þann veg að helst mætti skilja að hún væri búin að gefast upp á verkefninu, sem ríkisstjórnin hefur varla byrjað á, og væri nú sannfærð um að aðeins kommissararnir í Brussel gætu kveðið niður verðbólguna á Íslandi. En ríkisstjórnin gæti byrjað á því að efna sinn hlut í síðustu kjarasamningum. Hún gæti afturkallað gjaldahækkanir sem hafa þrý...

Egill Almar: Ísland hefur nær ekkert vaxið í tíu ár | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E52 25.08.2026

Egill Almar Ágústsson hefur á síðustu misserum vakið athygli fyrir skrif sín um íslenska krónu, verðtryggingu, vexti og hagvöxt. Hann telur að Ísland standi frammi fyrir miklu stærra efnahagsvandamáli en flestir geri sér grein fyrir: Hagvöxtur á mann hafi verið sáralítill síðasta áratuginn og íslenskt atvinnulíf búi ekki til nægilega mörg ný og vel launuð störf. Egill vill að Ísland fari í sókn, o...

Hilmar Veigar Pétursson - Allt viðtalið | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E51 25.08.2026

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í Evrópusambandið og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum. Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess að hann skipti um skoðun. Hann ræðir reynslu sína af Brexit, hnignandi samkeppnishæfni Evrópu, sívaxan...

Snærós Sindradóttir - Allt viðtalið | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E50 24.08.2026

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Byggjum á árangri Íslands - Hilmar Veigar segir ESB trufla rétta forgangsröðun | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E50 24.08.2026

Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris og maðurinn á bak við CCP og EVE Online, studdi áður inngöngu Íslands í ESB og upptöku evru. Nú hefur honum snúist hugur og ætlar að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum. Í þessu ítarlega viðtali útskýrir Hilmar hvað varð til þess að hann skipti um skoðun. Hann ræðir reynslu sína af Brexit, hnignandi samkeppnishæfni Evrópu, sívaxandi regluverk...

Ólafur Ragnar Grímsson | Kjarni málsins með Helga Bjarna | S01E01 | Þátturinn í heild sinni 24.08.2026

Við byrjum á því hvernig heimsmyndin er að breytast og færum okkur þaðan að norðurslóðum, stöðu Íslands og alþjóðlegum viðskipta- og öryggishagsmunum. Síðan ræðum við nýjar atvinnugreinar og tæknibreytingar, meðal annars gervigreind, áður en við endum á Evrópusambandinu og komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askri...

Hinn raunverulegi kostnaður við aðildarviðræður við ESB | Harmageddon | S04E31 19.08.2026

Því er gjarnan haldið fram að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu aðeins saklaus leið til að „kíkja í pakkann“. En viðræðurnar eru hvorki hlutlaus könnunarferð né ókeypis. Þær eru umfangsmikið pólitískt og stjórnsýslulegt ferli sem hefur eitt skýrt lokamarkmið: fulla aðild Íslands að ESB.Í Harmageddon förum við yfir kostnaðinn við slíkt ferli, skortinn á skýru pólitísku umboði og þá hagsmuni s...

Snærós Sindradóttir „Við myndum finna betur fyrir því að vera rík þjóð í ESB“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E49 19.08.2026

Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, mætir í ítarlegt og beinskeytt samtal um Evrópusambandið og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Snærós telur að Íslendingar eigi að segja já við áframhaldandi aðildarviðræðum. Með því sé ekki verið að samþykkja inngöngu í Evrópusambandið heldur kaupa þjóðinni tíma til að fá skýrari svör, sjá mögulegan aðildarsamning og taka síðan upplýsta...

Geir H. Haarde: „ESB-viðræðurnar eru áhættuspil“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E49 | Þátturinn í heild sinni 17.08.2026

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, sest niður með Frosta Logasyni og ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið. Geir telur rangt að stilla kosningunum upp sem áhættulausri leið til að „kíkja í pakkann“. Verði niðurstaðan já sé ekki aðeins verið að kanna hvað ESB hafi fram að færa heldur þurfi Ísland...

Hryðjuverkamálið, Quang Le og baráttan um ESB | Sveinn Andri Sveinsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E48 13.08.2026

Sveinn Andri Sveinsson lögmaður er gestur Frosta Logasonar í Spjallinu. Í fyrri hluta viðtalsins ræða þeir svokallaða hryðjuverkamálið en Sveinn Andri var verjandi annars mannanna sem sakaðir voru um að hafa undirbúið hryðjuverk hér á landi. Málið endaði með sýknu af hryðjuverkaákærunum eftir langt og umdeilt dómsferli. Sveinn Andri fer yfir upphaf rannsóknarinnar, blaðamannafund ríkislögreglustjó...

„Ef ég væri Íslendingur myndi ég kjósa nei“ | Carl Baudenbacher um ESB | Spjallið | S04E47 | Þátturinn í heild sinni 12.08.2026

Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins og einn helsti sérfræðingur Evrópu í EES-rétti, ræðir hér þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og hvað hann telur að raunverulega sé undir. Baudenbacher hafnar þeirri framsetningu að fyrri þjóðaratkvæðagreiðslan snúist aðeins um að „sjá hvað sé í boði“. Jákvæð niðurstaða myndi að hans mati skapa sterkan pólitískan meðbyr í átt að aðild og gera Í...

„Fyrra já-ið er úrslitaatkvæðið“ - Carl Baudenbacher um ESB ferlið | Spjallið með Frosta | S04E47 11.08.2026

Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, segir þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst ekki aðeins snúast um að „sjá hvað sé í boði“. Jákvæð niðurstaða myndi setja öflugt pólitískt ferli af stað og gera erfiðara að hafna aðild síðar. Í klippunni ræðir hann sjálfstæði EFTA-stoðarinnar, mikilvægi Icesave-dómsins, óvissuna um varanlega undanþágu í sjávarútvegsmálum og geopólitísku rökin fyr...

Engin trygging | Harmageddon | S04E30 06.08.2026

Allt varð vitlaust þegar Ólafur Ragnar Grímsson benti á í viðtali við Brotkast að engin trygging væri fyrir því að sérstök þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin um lokasamning við Evrópusambandið. Honum var umsvifalaust gefið að sök að ljúga, blekkja og fara rangt með staðreyndir. En þegar hlustað er á það sem Ólafur Ragnar sagði í raun er málflutningurinn töluvert skýrari. Hann sagði beinlínis að það...

Hallgasd a(z) Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.