Tal

Eftirmál

Arts IS ↓ 37 epizód

Fyrrum fréttakonurnar Þórhildur Þorkels og Nadine Yaghi rifja upp áhugaverð fréttamál og fjalla um þau á mannlegum nótum.

Mindenképp látogasd meg a podcast oldalát, és támogasd a készítőjét: www.buzzsprout.com

Szerző

Tal

Kategória

Arts

A podcast weboldala

www.buzzsprout.com

Legutóbbi epizód

2026. okt. 1.

Hol hallgathatod?

Podcastok az alkalmazásban Replaio Radio Hamarosan

A podcastok hamarosan megérkeznek az alkalmazásba. Telepítsd most, és láss elsőként egy teljesen új megközelítést a podcastokhoz

Letöltés a Google Play-ről Telepítsd ingyen Android közel 10 M letöltés · 4,8-as értékelés iOS hamarosan

Epizódok

Edition-málið 01.10.2026

Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition málið svokallaða. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang á  voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára, en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú 12 ára fangelsisdóm í fangels...

Önnur mál #1- Birna Brjánsdóttir, harmleikur á Nýbýlavegi og hver var Catherine Mancel? 01.10.2026

➡️Skráðu þig í áskrift á  eftirmal.is til að hlusta á þáttinn í fullri lengd⬅️ Nadine og Þórhildur fara um víðan völl í Öðrum málum. Í þessum þætti ræða þær við Leif Halldórsson rannsóknarlögreglumann sem rifar upp hvarf Birnu Brjánsdóttur, yfirheyrslur yfir Thomasi Möller Olsen og fleiri eftirminnileg mál frá hans ferli. Þá förum við yfir lausa enda í Edition-málinu. 

** SÉRSTÖK TILKYNNING ** 30.09.2026

Þórhildur og Nadine kynna spennandi breytingar og glænýtt systurhlaðvarp Eftirmála - Önnur mál.  ➡️ Skráðu þig í áskrift á eftirmal.is 

Hryðjuverkamálið 28.07.2026

Sérsveit ríkislögreglustjóra fór í umfangsmiklar aðgerðir í september 2021 og gerði upptæk þrívíddarprentuð vopn sem talið var að væru ætluð til að fremja hryðjuverk hér á landi. Tveir menn voru handteknir og ákærðir fyrir tilraun til hryðjuverka sem er einsdæmi í íslenskri réttarsögu. Í kjölfarið velktist málið um í réttarkerfinu í fjögur ár og í ljós kom að ekki var allt sem sýndist. Við ræðum v...

Leiðangur Johns Snorra á K2 22.07.2026

Leiðangur Johns Snorra Sigurjónssonar á K2, hættulegasta fjall jarðar, í febrúar 2021 átti eftir að reynast örlagaríkur. Hann freistaði þess að verða fyrstur manna til að klífa fjallið að vetrarlagi og þjóðin bæði fylgdist með undirbúningnum að ferðinni og hélt niðri í sér andanum þegar hætti að heyrast frá honum. Farið var í umfangsmiklar leitaraðgerðir á þessu miskunarlausa fjalli í Pakistan, þa...

Ashley Madison og Vodafone-lekinn 13.07.2026

Stórtækasta innrás í einkalíf Íslendinga sem nokkru sinni hefur átt sér stað var þegar tölvuþrjótar láku tugþúsundum sms skilaboðum Íslendinga á netið í Vodafone-lekanum árið 2013. Hver sem er gat þannig flett upp persónulegum málum fólks um allt á milli himins og jarðar. Tveimur árum síðar voru svo viðkvæmar persónuupplýsingar yfir 100 Íslendinga sem skráðir voru á framhjáhaldssíðuna Ashley Madis...

Krýsuvíkurmálið 07.07.2026

Haustið 2024 fór hrollur um þjóðina þegar karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn grunaður um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana skammt frá Krýsuvíkurvegi. Ýmsar sögusagnir fóru á flug og enn eru spurningar sem lögreglan fékk aldrei svör við. Atburðarásin vakti líka um stórar spurningar um stöðu geðheilbrigðismála hér á landi. Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður fór með rannsókn þe...

Morðið á Hannesi Þór Helgasyni 01.04.2026

Fá sakamálmál hafa haft jafn mikil áhrif á íslensku þjóðina og morðið á Hannesi Þór Helgasyni árið 2010. Morðið var einstaklega hrottafengið og þaulskipulagt auk þess sem nokkuð langan tíma tók að upplýsa það. Gunnar Rúnar Sigurþórsson játaði verknaðinn en hann var hugfanginn af kærustu Hannesar og hafði fyrir morðið sett ástarjátningu til hennar á YouTube. Patrik Atlason, systursonur Hannesar, va...

Rock star Supernova ævintýrið 16.02.2026

Átta þúsund manns tóku á móti Magna Ásgeirssyni í Smáralind þegar hann snéri heim eftir þátttöku í raunveruleikaþættinum Rock Star Supernova. Þjóðin stóð á öndinni í þrjá mánuði, vaknaði á nóttunni til að kjósa og  samkeppnisaðilar á markaði fóru í samstillt átak til að koma sem flestum atkvæðum í gegnum símakosningu. Magni lenti í fjórða sæti í keppninni en við heimkomu færði ráðherra honum gjöf...

Wok On málið / Quang Le 02.02.2026

Quang Le, veitingamaðurinn umsvifamikli sem breytti nafni sínu í Davíð Viðarsson, er grunaður um peningaþvætti, mansal, skipulagða glæpastarfsemi og fleira. Hann var handtekinn árið 2024 en bíður enn dóms í málinu sem kennt er við veitingastaðinn Wok On þar sem hann var einn eigenda. Málið er talið vera umfangsmesta mansalsmál Íslandssögunnar, teygir anga sína í ótal áttir og tekur óvænta stefnu o...

PIP brjóstapúðamálið 19.01.2026

Yfir 400 íslenskar konur fengu grædda í sig ólöglega silikonpúða á árunum 2000-2010 frá fyrirtækinu PIP. Í brjóstapúðunum var iðnaðarsilikon í stað læknisfræðilegs silikons og voru þeir í mörgum tilvikum byrjaðir að leka. Í Eftirmálum förum við yfir þetta risastóra svikamál og ræðum við eina þeirra sem fékk púðana grædda í sig með skelfilegum afleiðingum. Málið er enn í gangi fyrir dómstólum meira...

Skáksambandsmálið 06.01.2026

Sérsveitin réðist inn í húsnæði Skáksambands Íslands með látum í janúar 2018 eftir að dularfullur pakki barst þangað. Um svipað leyti féll íslensk kona fram af svölum á heimili sínu á Spáni og lamaðist. Þessi atvik og fleiri urðu hluti af Skáksambandsmálinu svokallaða, marglaga sakamáli sem líkist einna helst kvikmyndahandriti. Í þættinum förum við yfir atburðarásina með fréttamanninum Sunnu Sæmun...

Raðmorðinginn og íslenska eiginkonan 22.12.2025

Rex Heuermann, sem grunaður er um að vera einn mesti raðmorðingi í sögu Bandaríkjanna, er giftur íslenskri konu að nafni Ása Ellerup og hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands. Hann er talinn hafa myrt fjölda kvenna á Gilgo ströndinni í New Jersey og bíður nú réttahalda vestanhafs. Talið er að hann hafi framið einhver ódæðisverkanna á meðan Ása var í fríi með börn þeirra á Íslandi. Við förum y...

Hvarf Lúðvíks Péturssonar í Grindavík 08.12.2025

Í dimmum og köldum janúarmánuði árið 2024 átti sér stað hræðilegt slys í Grindavík þegar jörðin opnaðist og Lúðvík Pétursson, verktaki sem var við gröfuvinnu á svæðinu, hvarf ofan í sprunguna. Þjóðin stóð á öndinni á meðan fordæmalaus leit fór fram í stórhættulegum aðstæðum. Í þættinum er rætt við dætur Lúðvíks sem vilja endurheimta líkamsleifar föður síns. Styrktaraðilar Eftirmála eru: -NOLA snyr...

Braggamálið 18.02.2025

Það hefði líklega fáa grunað að uppbygging á gömlum bragga í Nauthólsvík yrði eitt stærsta fréttamál ársins 2018, en það varð raunin. Braggamálið setti samfélagið á hliðina þegar í ljós kom að kostnaður við framkvæmdina hafði farið langt fram úr öllu hófi, meðal annars vegna höfundaréttavarinna stráa sem plantað hafði verið fyrir framan braggann.  Þátturinn er í boði: Nettó     Duck & Rose Sjö...

Gýgjarhólsmálið 03.02.2025

Í mars 2018 kom upp morðmál á sveitabænum Gýgjarhóli II í uppsveitum Árnessýslu þegar maður varð bróður sínum að bana með hrottafengnum hætti. Málið lamaði samfélagið í sveitinni og  fjölskylda bræðranna sat eftir í sárum. Í þættinum fara börn fórnarlambsins yfir áfallið, baráttuna fyrir dómstólum og hvernig líf þeirra breyttist þennan örlagaríka dag.  Þátturinn er í boði: Nettó     Duck & Ros...

Flugslysið í Skerjafirði 20.01.2025

Í ágúst árið 2000 hrapaði lítil flugvél í sjóinn í Skerjafirði í Reykjavík með sex manns innanborðs. Fólkið var á leið heim eftir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum þegar vélin hætti við lendingu á síðustu stundu. Flugslysið vakti strax upp stórar spurningar og varð að risastóru fréttamáli þar sem aðstandendur fórnarlambanna tóku rannsóknina í eigin hendur til að komast að sannleikanum. Friðrik Þór Guðmun...

Öskjuhlíðarmálið 29.12.2024

Eitt þekktasta sakamál okkar tíma er Öskjuhlíðarmálið eða GAP málið svokallaða. Fá morðmál hafa vakið meiri óhug meðal þjóðarinnar sem hélt niðri í sér andanum á meðan leit stóð yfir af Einari Erni Birgis, farsælum og vinamörgum viðskipta- og íþróttamanni í blóma lífsins. Eftir nokkurra daga leit játaði viðskiptafélagi hans og vinur að hafa myrt hann og komið líkinu fyrir í gjótu á Reykjanesi, en...

Jón stóri 20.12.2024

Jón stóri var á árunum 2009 til 2013 umtalaðasti og umdeildasti maður landsins. Hann lifði og hrærðist í undirheimunum og talaði opnskátt um fíkniefnaneyslu og glæpi á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlaviðtölum þar sem allt var látið flakka. Líf hans einkenndist af glamúr og partýstandi en hann átti líka mjög myrkar hliðar. Í Eftirmálum förum við yfir lífshlaup Jóns stóra og ræðum við fyrrum kærustu h...

Aukaþáttur - Vendingar í máli Söndru Sigrúnar 05.09.2024

Fjölskylda Söndru Sigrúnar Fenton vinnur nú að því með íslenskum lögmanni að reyna að fá hana framselda til Íslands.  Lögmaðurinn hefur rætt við íslensk stjórnvöld og er í sambandi við dómsmálaráðuneytið vegna málsins. Lögmaðurinn og Margrét Fenton, mamma Söndru Sigrúnar, ræða stöðuna í þættinum. 

Búsáhaldabyltingin 20.03.2024

Mótmælin í kjölfar efnahagshrunsins 2008 eiga engan sinn líka í sögunni. Allt byrjaði þetta friðsamlega en mótmælin stigmögnuðust samhliða reiði og ólgu í samfélaginu. Á endanum sauð upp úr og upplausnarástand ríkti á Austurvelli, þar sem eldur logaði víðs vegar, mótmælendur köstuðu skyri, eggjum og grjóti í lögreglumenn og reyndu að brjóta sér leið inn í Alþingishúsið. Stefán Eiríksson, sem var l...

Rauðagerðismálið 04.03.2024

Nýr veruleiki blasti við í íslensku samfélagi einn sunnudagsmorgun í febrúar 2021 þegar fréttir bárust af kaldrifjuðu morði í Rauðagerði, götu í rólegu fjölskylduhverfi í Reykjavík. Sá myrti var skotinn níu sinnum fyrir utan heimili sitt. Atburðurinn var fordæmalaus, minnti einna helst á aftöku og þótti marka aukna hörku í undirheimum Íslands. Í Eftirmálum förum við yfir atburðarásina í þessu umfa...

Mál Róberts Downey og uppreist æra 20.02.2024

Líklega óraði engan fyrir því að barátta þolenda kynferðisbrotamannsins Roberts Downey fyrir upplýsingum um uppreista æru myndi verða til þess að sprengja ríkisstjórn Íslands haustið 2017, en svo fór. Uppreist æru málið hristi hressilega upp í þjóðinni og óvænta stefnu þegar þegar meðmælabréf með dæmdum barnaníðingum voru gerð opinber. Málið skók þjóðina, stjórnmálin og umræðuna en Sigríður Anders...

Bitcoin-málið 05.02.2024

Innbrot í gagnaver í Reykjanesbæ í lok árs 2017 markaði upphaf Bitcoin-málsins svokallaða, sem oft er talað um sem stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Málið tók nýja og ævintýralega stefnu þegar Sindri Þór Stefánsson, einn þeirra sem tók þátt í innbrotinu, trauk úr fangelsinu að Sogni og flaug til útlanda í sömu flugvél og forsætisráðherra. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, sem rannsakaði málið, ræðir þessa...

Hvarf Valgeirs Víðissonar 22.01.2024

Í sumar eru 30 ár síðan Valgeir Víðisson hvarf sporlaust af heimili sínu á Laugavegi.  Hvarfið er eitt umtalaðasta og dularfyllsta lögreglumál okkar tíma og rannsóknin stóð yfir árum saman. Ótal flökkusögur urðu til og lögeglu bárust fjöldi ábendinga og samsæriskenninga í gegnum árin en allt kom fyrir ekki, hvarf Valgeirs er enn óupplýst. Hörður Jóhannesson fyrrum rannsóknarlögreglumaður rifjar up...

Hallgasd a(z) Eftirmál podcastot a Replaióban

Rádió és podcastok egy alkalmazásban - ingyen és regisztráció nélkül. Telepítsd még ma, és ne maradj le a premierről

Letöltés a Google Play-ről

A Replaio nem podcastkiadó; a műsorok nevei, borítóképei és hanganyagai a szerzőiket illetik, és nyilvános RSS-csatornákon keresztül terjednek.