Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#339 – Verslunarmanna-helgarvakt með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen 31.07.2025 1:32:28
Heiðar Guðjónsson og Sigríður Andersen kíkja í Þjóðmálastofuna í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar og fara yfir allt það helsta. Við ræðum um möguleikana á olíuleit, ummæli Heiðars um að mögulega væri hægt að fella niður alla skatta á Íslandi, áherslur ríkisstjórnarinnar á sterkari tengsl við Hamas og ESB á meðan málin hér heima bíða, nýja tolla sem ESB ætlar að setja á Ísland, hvort að forsæti...
#338 – Hún er loksins komin – Upplestur á aðgerðaráætlun stjórnvalda í menntamálum 28.07.2025 54:15
Guðmundir Ingi Kristinsson birti í upphafi þessa mánaðar 2. aðgerðaráætlun stjórnvalda í menntamálum. Menn hafa beðið lengi eftir þessari aðgerðaráætlun og því er hér um að ræða mikið mikinn áfanga. Í aðgerðaráætluninni er meðal annars lögð áhersla á að styðja við grænfánaverkefni Landverndar í skólum landsins, auka áherslu á sjálfbærni og loftslagsmál og tryggja að námsumhverfi styðji við farsælt...
#337 – Kjartan Ólafsson ræðir um uppbyggingu fiskeldis á Íslandi 24.07.2025 1:23:00
Kjartan Ólafsson hefur um árabil komið að uppbyggingu fiskeldis hér á landi. Í ítarlegu viðtali ræðir hann um efnahagslegu áhrifin af þeirri uppbyggingu, hvaða áskoranir hafa orðið á vegi hennar, hvernig næstu ár geta litið út, fjárfestingar í greininni, af hverju neytendur ættu frekar að vilja eldisfisk frá Íslandi frekar en öðrum löndum sem standa í sömu starfsemi og fleira. Þá er einnig rætt um...
#336 – Lífstílsferð Þjóðmála í golf á Spáni – Heimilið fer á hliðina þegar kröfuharða frænkan kemur 21.07.2025 1:31:17
Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson skelltu sér í golfferð og dvöldu í góðu yfirlæti á Camiral vellinum á Spáni. Lífið er þó ekki bara leikur því að sjálfsögðu var tekinn þáttur úti þar sem farið er yfir það helsta sem á sér stað heima fyrir. Þar má nefna hvernig forsætis- og utanríkisráðherra sperrtust upp við það að yfirmaður frá Brussel kæmi til landsins, falskar yfirlýsi...
#335 – Helgarvaktin með Einari Sig og Herði 17.07.2025 2:08:30
Einar Sigurðsson og Hörður Ægisson fara yfir allt það helsta, eftirmálana af þinglokunum, villandi umræðu um mögulega aðild að Evrópusambandinu, verðmætasköpunina sem fjallað er um í stjórnarsáttmálanum en finnst hvergi, minnkandi líkur á frekari vaxtalækkunum í bili, mögulegan samruna Arion og Kviku og margt fleira.
#334 – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna þegar þingið klárast og sólin skín 14.07.2025 1:16:30
Björn Bjarnason fer yfir ein skrautlegustu þinglok sögunnar, hvernig hin svokallaða verkstjórn ber ekki nafn með rentu, Flokk fólksins sem virkar eins og hækja fyrir erfið mál ríkisstjórnarinnar, hvort að forseta þingsins sé stætt á að gegna því embætti áfram, nýjan sendiherra í Brussel sem er ætlað að liðka til fyrir umsóknarferli að Evrópusambandinu og margt fleira sem snýr að íslenskum stjórnmá...
#333 – Helgarvaktin með Kristínu Gunnars og Stefáni Einari – Starfstitill og leiðtogahlutverk er ekki það sama 10.07.2025 1:57:29
Kristín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson fara yfir dramatískan dag í stjórnmálunum á sinn einstaka og yfirvegaða hátt, hvort að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hafi burði til að leiða mál til lykta á farsælan hátt, þá undarlegu staðreynd að fólk sé almennt upplýst um 71.gr. þingskapalaga ásamt öðrum og mikilvægum málum og atbuðum sem áttu sér stað í vikunni.
#332 – Kristján Vilhelmsson í viðtali 07.07.2025 55:00
Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, fer yfir starfsemi félagsins í góðu spjalli sem er tekið upp í Drift á Akureyri. Við ræðum um það hversu mikið stjórnendur þurfa að vera vakandi yfir rekstrinum, hvernig tæknin um borð í skipum og í fiskvinnslum hefur þróast og hvernig félagið hefur náð að hámarka virði þess sem sótt er í sjó og fleira. Þá er rætt um erlenda starfsemi félagsins liðna...
#331 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – 20 ár af Páli Gunnari og áfram höldum við 03.07.2025 1:34:41
Andrés Magnússon og Örn Arnarson fara yfir allt það helsta, stjórnarmenn Rúv sem ætla að læra að lesa ársreikninga, golfáhuga sjávarútvegsráðherra, stöðuna í þinginu sem er enn starfandi, nýtt bankaráð Seðlabankans, pantaða niðurstöðu í gjaldeyrismálum, undarlega fánahyllingu við ráðhúsið og margt fleira áhugavert. Þá ræðum við sérstaklega þann merka viðburð sem átti sér stað í vikunni þegar Páll...
#330 – Áslaug Arna kveður (í bili) 01.07.2025 55:20
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tekur sér hlé frá þingmennsku og heldur til Ameríkuhrepps í nám. Í góðu kaffispjalli í Þjóðmálastofunni fer hún yfir stöðu Sjálfstæðisflokksins, landsfundinn sem fór fram fyrr í vor, hvernig það er að etja kappi við mál þeirrar vinstri stjórnar sem nú situr og ekki síður hugmyndafræðina sem þar liggur að baki, hvort að hugað sé nægilega vel að verðmætasköpun til lengr...
#329 – Bjórkvöld Þjóðmála í Drift EA á Akureyri 27.06.2025 1:14:15
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir stöðuna á bjórkvöldi Þjóðmála sem haldið var í Drift EA á Akureyri. Við gerum upp afdrífaríka forsætisráðherratíð Ingu Sæland sem varði í einn og hálfan sólarhring, fjöllum um vandræði ríkisstjórnarinnar sem vill hækka skatta umtalsvert á sjávarútveginn, óreiðuástandið í dómsmálaráðuneytinu og margt fleira.
#328 – Kaffispjall – Eldur Ólafsson fer yfir starfsemi Amaroq 23.06.2025 1:44:19
Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, fer yfir rekstur og stefnu félagsins í ítarlegu viðtali. Við ræðum um tilgang félagsins, námugröftinn á Grænlandi, aðkomu félagsins að innviðauppbyggingu þar í landi, samskiptin við fjárfesta hér heima og erlendis, tekjumódelið sem félagið er að byggja upp, mikilvægi fágætismálma fyrir heiminn, gengi félagsins á markaði, orðræðu Bandaríkjaforseta um G...
#327 – Helgarvaktin með Guðmundi Fertram og Heiðari Guðjóns 19.06.2025 1:21:30
Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Heiðar Guðjónsson ræða um mikilvægi verðmætasköpunar, um þau áhrif sem of miklir skattar hafa á atvinnulífið, hvort það sé í verkahring stjórnvalda að móta atvinnustefnu, störfin sem verða óvænt til, hvernig íslenska hagkerfið getur litið út í framtíðinni og margt fleira í þessum innihaldsríka þætti.
#326 – Theódór Ragnar fjallar um netöryggi fyrirtækja og einstaklinga 17.06.2025 1:03:15
Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland, ræðir um netöryggismál, hvort að fyrirtæki séu almennt værukær með þau atriði sem hafa þarf í huga og hvort að einstaklingar láti þessi mál sér í léttu rúmi liggja, hvað vaki fyrir þeim sem stunda það að brjótast inn á kerfi hjá öðrum, um mikilvægi þess að deila upplýsingum um veikleika og margt fleira sem snýr að þessum þáttum...
#325 – Helgarvaktin á Heimaey um borð í Heimaey 14.06.2025 1:19:03
Árni Helgason, varaþingmaður og lögmaður, Ólafur Jóhann Borgþórsson, fv. prestur og nú framkvæmdastjóri Herjólfs, og Sveinn Ólafur Melsted, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins mæta á helgarvakt Þjóðmála, sem í þetta sinn er tekin upp um borð í nýjasta skipi íslenska skipaflotans, Heimaey VE. Fjallað er um allt það helsta í pólitíkinni, pirringinn í stjórnarmeirihlutanum, hvort að eldhúsdagskrárumr...
#324 – Kaffispjall með Óla Birni 10.06.2025 1:30:44
Óli Björn Kárason ræðir um stöðuna í stjórnmálunum, hvernig pólitísk umræða er að þróast, hvernig öfund keyrir áfram umræðu um skatta og smitast yfir á umræðu um atvinnulíf, um stöðu hægri manna og hvort þeir séu að einbeita sér að réttum hlutum í umræðunni – og margt fleira í góðu spjalli hér í Þjóðmálastofunni.
#323 – Helgarvaktin með Diljá Mist og Ólöfu Skafta 06.06.2025 1:21:40
Diljá Mist Einarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir fara yfir allt það helsta, ekki bara stöðuna á þinginu heldur líka stemninguna, galgopaleg vinnubrögð Víðis Reynissonar, dyggðarskreytingar þingmanna, ríkisstyrktan áróður fyrir evrópusambandsaðild, fylgi Sjálfstæðisflokksins sem stendur í stað, inniskósvæðingu Ráðhússins í Reykjavík, hverjar þær myndu taka með á Suðurpólinn og margt fleira.
#322 – Vorferð á Hótel Jökulsárlón 03.06.2025 1:34:58
Við færum Þjóðmálastofuna austur fyrir fjall og skellum okkur á Hótel Jökulsárlón, sem er í eigu athafnamannsins Skúla Gunnars Sigfússonar. Það er nú risið glæsilegt hótel sem nú þegar er farin að hafa mikil efnahagsleg og samfélagsleg áhrif. Þeir Andrés Magnússon, Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson skelltu sér með í vorferð Þjóðmála. Við fjöllum um þau fyri...
#321 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Þórði Pálssyni 30.05.2025 1:33:37
Sigríður Andersen alþingismaður og Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, mæta í Þjóðmálastofuna og ræða um stöðuna í þinginu, hvað raunverulega liggur að baki illa unnu frumvarpi um hækkun veiðigjalda, vandræðagang ríkisstjórnarinnar, hversu mikilvægt það er að losa fyrirtæki úr höndum ríkisins, undarlega vegferð utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytisins, hrós vikunnar og margt fleira.
#320 – Það skiptir máli hver stjórnar – Ásdís Kristjáns og Íris Róberts fara yfir stöðuna 27.05.2025 1:17:16
Ásdís Kristjánsdóttir og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjórar í Kópavogi og í Vestmannaeyjum, mæta í Þjóðmálastofuna nú þegar ár er í sveitastjórnarkosningar. Við ræðum um helstu áherslur í rekstri sveitarfélaga, mikilvægi þess að hafa reksturinn í lagi, menntamálin, atvinnulífið og margt fleira sem snýr að rekstri sveitarfélaganna.
#319 – Helgarvaktin með Orra Haukssyni og Þórði Gunnarssyni 23.05.2025 1:21:00
Orri Hauksson og Þórður Gunnarsson fara yfir allt það helsta, hvort að sala á ríkisfyrirtækjum eigi sér hugmyndafræðilegar rætur eða bara praktískar rætur í bókhaldi ríkisins, um það sem forsætisráðherra kallar „erfiðar aðgerðir á tekjuhliðinni“ en aðrir kalla skattahækkanir, þau áhrif sem boðaðar skattahækkanir á sjávarútveginn eru byrjuð að hafa, um uppbyggingu og framtíð fiskeldis hér á landi,...
#318 – Mennirnir sem stóðu í lappirnar – Gunnlaugur Jónsson fjallar um komu Gad Saad til Íslands 20.05.2025 1:14:30
Gunnlaugur Jónsson athafnarmaður fjallar um komu Dr. Gad Saad til Íslands, en hann mun flytja erindi hér á landi í Hörpu mánudaginn 2. júní nk. Gunnlaugur stóð einnig fyrir komu Dr. Jordan Peterson hingað til lands. Í þættinum ræðum við um það hvernig þessir tveir menn hafa haft áhrif á umræðu um þjóðfélagsmál á Vesturlöndum, hvaðan hugmyndir stjórnlynda fólksins eru sprottnar, um slagina sem kapí...
#317 – Helgarvaktin með Herði og Þorbirni Atla 16.05.2025 1:27:40
Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson hjá Acro verðbréfum ræða um nýafstaðið hlutafjárútboð í Íslandsbanka, hvort rétt hafi verið að stækka útboðið, hvort það sé jafnvel heppnað og stjórnvöld halda fram, hvernig eftirmarkaðurinn kann að líta út, um ummæli fjármálaráðherra kosti þess að fjárfesta í banka á meðan útboðið stóð yfir, hvernig Íslandsbanki mun starfa í framhaldinu og margt fleira. Þ...
#316 – Sigurður G. fer yfir vandræðaganginn hjá sérstökum saksóknara 13.05.2025 54:56
Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður fjallar um þau vandræði sem embætti sérstaks saksóknara, nú héraðssaksóknara, hefur komið sér í með tilhæfulausum hlerunum á fjölda manna - hlerunum sem nú hafa ratað frá embættinu í hendur óviðkomandi aðila. Við ræðum um starfsaðferðir embættisins eftir hrun, hvernig réttarkerfið brást í mörgum atriðum, hvort einhverjar breytingar hafi átt sér stað, um s...
#315 – Helgarvaktin með Sigmundi Davíð og Bergþóri - Á endanum klárast Sobrilið hjá ríkisstjórninni 09.05.2025 1:15:40
Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mæta gallvaskir á helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum um stöðuna í pólitíkinni, vandræði ríkisstjórnarinnar sem halda áfram að hrannast upp, stöðu stjórnarandstöðunnar, umbúðir og innihald stjórnmálaumræðunnar, léttar spurningar yfir grillinu og margt fleira.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos