Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categoría

Society

Web del podcast

www.thjodmal.is

Último episodio

16 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

#392 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Brynjari Níelssyni – Einn Kaldi í nesti jafnvel tveir 06.02.2026

Brynjar Níelsson og Jens Garðar Helgason fara glaðir með okkur inn í helgina. Við ræðum um stöðu Seðlabankans sem hélt vöxtum óbreyttum í vikunni, stöðu ríkisstjórnarinnar sem er búin að missa tökin á verðbólgunni og ríkisfjármálunum, stöðuna í hagkerfinu, hvað er framundan í stjórnmálunum og margt fleira.

#391 – Kaffispjall með Ingva Þór og Konráð Guðjóns – Við fengum ekki verðmætasköpunarhaust en fáum verðbólguvor í staðinn 03.02.2026

Ingvi Þór Georgsson og Konráð Guðjónsson ræða um flókna stöðu hagkerfisins, upplýsingaóreiðuna um ástæður þrálátrar verðbólgu og hver hinn raunverulegi sökudólgur kann að vera, hvort einhverjar líkur sé á vaxtalækkunum í bráð, misreikning í áætlunum stjórnvalda og fleira í þeim dúr. Þá fjöllum við einnig um nýlegt dæmi um það hvernig Evrópusambandið tók snúning á Írlandi við kvótaúthlutun innan sa...

#390 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Erni Arnarsyni – Sleggjan er týnd 30.01.2026

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um það sem skiptir þjóðina mestu máli um þessar mundir, handbolta. Þá er einnig rætt stuttlega um prófkjör og leiðtogaprófkjör, hvernig nýr oddviti Samfylkingarinnar hagnaðist bara alveg óvart af lóðabraski, þráláta verðbólgu í boði ríkisstjórnarinnar og komandi vaxtaákvörðun Seðlabankans, ráðherra sem er ósammála staðreyndum, stöðuna í hagkerfinu, mikilvægi...

#389 – Kaffispjall með Birni Inga 27.01.2026

Björn Ingi Hrafnsson ræðir um nýafstaðið prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík og hvað afleiðingar það kann að hafa, ólíka stöðu annarra flokka í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, umræðu um alþjóðmál og margt fleira sem snýr að stjórnmálunum þessa dagana.

#388 – Bóndadags-helgarvaktin með Þorsteini Víglunds og Vilhjálmi Árnasyni 23.01.2026

Vilhjálmur Árnason og Þorsteinn Víglundsson fara yfir fréttir vikunnar á bóndadegi. Við ræðum um nýjustu vendingar í baráttunni um Grænland, væntanlegt prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, ástæðu þess að Þorsteinn sagði skilið við Viðreisn og almennt um stjórnarsamstarfið, þróun á fylgi flokkanna, hvernig Össur Skarphéðinsson skólaði Sigmar Guðmundsson til, stöðuna í efnahagsmálum, framboð Þors...

#387 – Kaffispjall með Andrési og Andreu – Óvæntar uppákomur í pólitíkinni 20.01.2026

Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon frá Morgunblaðinu ræða um allt það helsta sem er að eiga sér stað í stjórnmálunum þessa dagana. Við ræðum um óvænta afsögn þingmanns Viðreisnar og hvort að til staðar séu ósagðar fréttir í því máli, átök innan Samfylkingarinnar í Reykjavík, undarlega uppákomu við kynningu á nýju vinstri framboði í Reykjavík, leit Miðflokksins að oddvita, hvort það verði ei...

#386 – Helgarvaktin með Herði Ægis og Þórði Pálssyni – Grjóthrúgur í veginum að aukinni hagsæld 16.01.2026

Hörður Ægisson og Þórður Pálsson ræða um stöðuna í hagkerfinu og horfurnar framundan, heimatilbúin vanda af hálfu ríkisstjórnarinnar sem viðheldur verðbólgu og háum vöxtum, af hverju Seðlabankinn skilar auðu í gagnrýni á aukin útgjöld ríkisins, um gildishlaðin ummæli nýs félagsmálaráðherra um Seðlabankann og efnahagsmálin, um heimsókn Maríönu Mazzucato hingað til lands, nýja stjórn Íslandsbanka og...

#385 – Kaffispjall með Sigurði Má um Venesúela, Íran og allt þar á milli 13.01.2026

Sigurður Már Jónsson ræðir um stöðuna í Venesúela og í Íran, um aðkomu Bandaríkjanna að þessum tveimur ríkjum og svæðunum í kringum þau, hvort við séum að horfa á einhverja breytta heimsmynd eða hvort að sagan sé að einhverju leyti að endurtaka sig, hvernig næstu skref kunna að verða og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um pólitíkina hér heima, um hvort og þá hvernig verðbólgan kann að hafa á...

#384 – Helgarvaktin með Bergþóri og Þórði Gunnars – Viðverusamtal 09.01.2026

Bergþór Ólason og Þórður Gunnarsson, sem snýr aftur úr agabanni, ræða hvað kann að felast í því að biðja um „gamla góða Ísland“, við ræðum fylgisþróun flokkanna, framboðsmál í borginni, breytingar á ríkisstjórninni, um rúman veikindarétt opinberra starfsmanna, hver sé líklegur til að taka við sem framkvæmdastjóri SA og margt fleira.

#383 – Kaffispjall með Sigurði Kára og Óla Birni – Hvar á (hægri) maðurinn heima? 06.01.2026

Sigurður Kári Kristjánsson og Óli Björn Kárason ræða um stöðu hægri manna á Íslandi, hvort þeir séu sundraðir í mörgum flokkum, hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi aftengst hægri mönnum, mikilvægi þess að móta og tala fyrir skýrri stefnu og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um hlutverk fjölmiðla, handtöku forseta Venesúela og fleira.

#382 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari sem gera upp nýliðið ár 02.01.2026

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson gera upp nýliðið ár og leggja línurnar fyrir það næsta. Við ræðum um áhugaverða þróun í stjórnmálum og viðskiptum á síðasta ári, hvernig fylgi flokkanna er að þróast, hvernig útlitið er í efnahagsmálum, um ríkisstjórn sem leggur meiri áherslu á áferð en árangur, hvernig nýja árið heilsar okkur og margt fleira.

#381 – Kaffispjall með Sigríði Hrefnu í Nóa Siríus 30.12.2025

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Siríus, ræðir um rekstur félagsins sem á sér rúmlega 100 ára sögu hér á landi, hvernig staða þess var þegar hún tók við sem forstjóri og hvað hún þurfti að gera til að snúa rekstrinum við, um kosti og galla vöruþróunar, hvernig framleiðslan er að breytast, utanaðkomandi þætti sem hafa áhrif á verðlagningu, samskipti við smásölurisana og margt fleira í...

#380 – Þorláksmessa með Birni Bjarnasyni 24.12.2025

Björn Bjarnason fer yfir stöðuna í aðdraganda jóla og ræðir um ársafmæli ríkisstjórnarinnar, hverju hún hefur áorkað og hverju ekki, almennt um stöðuna í stjórnmálum, tilraunir til þess að festa Rúv í sessi á kostnað annarra fjölmiðla, hvort og þá hvaða hagsmuna verið sé að gæta í Evrópumálum, óskir Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland og áhrif þess á Íslands, og margt fleira.

#379 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Pálssyni – Slétt yfirborð en hrufótt undirlag hjá ríkisstjórninni 19.12.2025

Andrés Magnússon og Stefán Pálsson ræða um síðustu metrana á haustþinginu, villandi upplýsingaáróður stjórnarmeirihlutans, hvort Samfylkingin hafi gengið of langt með skipulagðri árás á aðila utan stjórnmálanna, um leikþátt fjármálaráðherra með áhrifavaldi, klúður við makrílsamninga, vendingar í borgarmálum og hvort von sé á sameinuðu vinstri framboði og það mikilvægasta af öllu – hvort að Die Har...

#378 – Ásgeir Jónsson ræðir um Síðasta formanninn í kaffispjalli 16.12.2025

Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og rithöfundur, ræðir um nýútkomna bók sína, Síðasta formanninn. Titill bókarinnar vísar til afa Ásgeirs, Bjarna Jónsson, sem var síðasti hákarlaformaðurinn sem sótti út á Húnaflóa. Inn í þessa sögu ratar þó líka saga forfeðra og formæðra Ásgeirs, þættir í sjálfstæðisbaráttu Íslands, konunglegar heimsóknir og áhrif þeirra, tilraunir til að byggja upp þjóðmenningu,...

#377 – Helgarvaktin með Hermanni Nökkva og Þórði Gunnars – Ég biðst afsökunar ef þú endilega vilt 12.12.2025

Bræðurnir Þórður og Hermann Nökkvi Gunnarssynir fara yfir stóru málin, stöðuna í þinginu, bandorm sem gæti orðið að njálg fyrir skattgreiðendur, meinta afsökunarbeiðni forseta Alþingis sem missti stjórn á skapi sínu við upphaf þingfundar, stöðu dómsmálaráðherra sem skipar í fjölda stórra embætta á næstu misserum, mögulega bresti í stjórnarmeirihlutanum, sex hluti sem ríkisstjórnin segist vera búin...

#376 – Kaffispjall með Rósu Guðbjartsdóttur 09.12.2025

Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, mæti í kaffispjall. Við ræðum um samskiptin milli stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar, hvort og þá hvernig reynslan úr bæjarstjórn nýtist í landsmálunum, hvernig það kom til að hún ákvað að reyna fyrir sér í stjórnmálum á sínum tíma, um reynslu hennar af móttöku hælisleitenda í Hafnarfirði, fylgislækkun...

#375 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Kristínu Gunnars – Þegar yfirlætið og hófsemin mætast 05.12.2025

Kristín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta á helgarvaktinni. Við ræðum um allt milli himins og jarðar, í orðsins fyllstu – meðal annars um pólitík, tilraunir Þjóðkirkjunnar til að bæta ásýnd sína, breytingar hjá Sjálfstæðisflokknum, hreinsanir ríkisstjórnarinnar í skólakerfinu, ríkisfyrirtæki í Viðskiptaráði, sjálfsmat ríkisstjórnarinnar og margt fleira.

#374 – Aðventukaffi með Gunnari Úlfars og Ingva Þór – Hverjir vinna jólaleikinn og óvænt skúbb í beinni 04.12.2025

Gunnar Úlfarsson og Ingvi Þór Georgsson kíkja í aðventukaffi. Við ræðum meðal annars um jólaverslun, hverjir það eru sem standa uppi sem sigurvegarar og hverjum bregst bogalistin, um kaup á afþreyingu og öðrum jólatengdum vörum, tilboðsdaga sem hafa breytt mynstrinu og margt fleira í þeim dúr. Þá er rætt um yfirvofandi skattahækkanir og hvaða áhrif þær kunna að hafa, óvissu sem ríkir um upphæð vei...

#373 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Þakkargjörðarhátíð og gjafir á kostnað annarra 28.11.2025

Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir vikuna, stöðuna í þinginu, viðvaningshátt við fjárlagagerð og skattahækkanir, ummæli forsætisráðherra um kólnandi hagkerfi, gjafirnar sem Inga Sæland vill gefa en láta aðra borga fyrir, oddvitamál í borginni, yfirlæti í garð stuðningsmanna Miðflokksins, hvort það sé áhugavert að fjárfesta í sjávarútvegi og margt fleira.

#372 – Bransatal með Pálma Guðmundssyni 25.11.2025

Pálmi Guðmundsson er líklega einn reynslumesti fjölmiðla- og markaðsmaður landsins, með um 35 ár í bransaum eins og sagt er, og hefur komið að framleiðslu á mörgum af þekktustu sjónvarpsþáttum sem framleiddar hafa verið hér á landi. Í þætti dagsins ræðum við um afþreyingarbransann, hvernig þróunin hefur verið og hvernig má ætla að hún verði á næstu árum, samkeppnina á milli sjónvarpsins og kvikmyn...

#371 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Með Wellington á borðum eftir Hátíðarkvöld Þjóðmála 21.11.2025

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir það helsta frá Hátíðarkvöldi Þjóðmála. Einnig er rætt um stýrivaxtalækkun Seðlabankans og kólnun hagkerfisins, slök viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tollum Evrópusambandsins, uppstillta mynd af forsætisráðherra tala í símann, nýtt slagorð Viðreisnar, nýja könnun sem sýnir Miðflokkinn stærri en Sjálfstæðisflokkinn, hátt setta ríkisstarfsmenn sem...

#370 – Sigríður Margrét í kaffispjalli 18.11.2025

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um stöðuna í hagkerfinu og á vinnumarkaði, þörfina á lægri vöxtum, skattastefnu stjórnvalda og viðhorf til verðmætasköpunar, hættuna sem skapast með öryrkjagildru og tengingu almannatrygginga við launavísitölu, samskiptin við samtök launþegar, meinta óeiningu innan SA og margt fleira.

#369 – Helgarvaktin með Andreu Sig og Tómasi Þór 14.11.2025

Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir það helsta sem þótti markvert í vikunni. Við ræðum um stöðuna í pólitíkinni, „góð“ lagafrumvörp sem eru ófjármögnuð, klaufaskapinn við flutning ríkislögreglustjóra í starfi, kísiltolla og slaka hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda, hvort að horfur séu á vaxtalækkun í næstu viku, vörn Rúv á fréttafölsun BBC, umhverfisskatta sem vega þungt hjá ís...

#368 – Bogi Nils Bogason í kaffispjalli 11.11.2025

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ræðir um stöðu félagsins, flókna stöðu í alþjóðakerfinu sem hefur áhrif á reksturinn, hvort og þá hvernig hægt sé að bæta reksturinn, komandi kjarasamninga, framtíðarhorfur, flotamál og fyrirhugaða áfangastaði, erlenda samkeppni, skattastefnu stjórnvalda og margt fleira.

Escucha el podcast Þjóðmál en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos