fantasyn
Fantasýn
Það er betra að vera með Sýn þegar þú spilar Fantasy Premier League. Fantasýn er Fantasy Premier League hlaðvarp Sýnar , heimili enska boltans á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban.
Autor
fantasyn
Categoría
Web del podcast
Último episodio
26 de may. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Lokauppgjör 26.05.2026 1:24:43
Þá eru tímabilinu lokið og Albert og Sindri mættu í stúdíóið til að horfa yfir farin veg.
38. umferðum síðar 22.05.2026 1:19:40
Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag.
Tími til kominn að taka sénsa. 14.05.2026 51:57
Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.
Þessi tvöfalda umferð er tálsýn 06.05.2026 42:38
Tvöföld umferð er yfirleitt fagnaðarefni í fantsy-heimum en er komandi tvöfalda umferð tálsýn ein?
Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial) 29.04.2026 1:14:27
Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar.
Við fengum ekki að João Pedro 23.04.2026 1:16:58
Nú er umferð 33. að baki og eftir situr að takast á við þynnkuna sem kemur í umferð 34. en þar leynast gullin tækifæri til að skjóta sér upp töfluna.
Stórasta umferð í heimi. 14.04.2026 1:21:12
Þá er Albert mættur aftur og ekki seinna vænna því loksins er komið að því, stærsta umferð tímabilsins er handan við hornið. Sex lið spila tvöfalda umferð og því nauðsynlegt að taka "deep dive" á það.
Lognið á undan storminum. 08.04.2026 47:21
Eftir langt landsleikjahlé tökum við upp þráðinn og rýnum í stöðuna fyrir umferð 32. Líkt og salt og pipar fara umferðir 32 og 33 saman, svo við horfum einnig fram á veginn og metum möguleikana þar. Hvernig ætlar þú að stilla upp chip-strategíunni? Gestastjórnandi er Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ og fantasý spekúlant.
Einn dagur í einu. 18.03.2026 49:36
Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.
What to Expect When You're Expecting 12.03.2026 1:14:16
Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts.
Góður, betri, bestur. 02.03.2026 1:09:32
29. umferð hefst þriðjudaginn 3. mars og lokar fyrir breytingar á liðunum kl 18:00. Fórum yfir allt það helsta ásamt því að fara yfir hver væri góður, betri, og bestur sem fyrirliði fyrir umferðina.
Šeško Time 24.02.2026 50:49
Næsta umferð hefst föstudaginn 27. febrúar og er Deadline-ið því klukkan 18:30. Ef þú ert að velta fyrir þér hvern þú átt að hafa sem fyrirliða þá fórum við yfir hvað væri góði pakkinn, betri pakkinn og besti pakkinn í þeim efnum. Pedro vaktin var á sínum stað og svo er spurning hvort það sé ekki að bresta á með Šeško Time!
Úlfarnir bíta frá sér 19.02.2026 59:16
Löng umferð að baki þar sem allra augu voru á Gabriel og stóra spurningin er: stóð hann undir væntingunum? Við horfðum líka fram á vegin og tókumst á við spurningar eins og er Thiago súrt, eða safaríkt epli og hver fær fyrirliðabandið frá Gabriel.
Triple Captain Gabriel? 08.02.2026 1:17:38
Fyrsta tvöfalda leikvika tímabilsins er framundan og stóra spurning er er þá ekki tími til kominn að setja fyrirliðabandið á Gabriel og jafnvel virkja triple captain í leiðinni?
Nautaat á brúnni 04.02.2026 1:06:37
Í þessum þætti bjóðum við meðal annars upp á áhugavert "take" á næstu tvöföldu umferð og þá höldum við uppá vaxtaákvörðunardag seðlabankans og skoðum leitum svara við því hvor stofnunin, Seðlabankinn eða Fjármálaráðuneytið, er að standa sig betur í fantasy.
Bandið á Bruno? 29.01.2026 1:09:21
23. umferðin krufin, misgóður árangur hjá Sindra og Alberti og stór spurning tekin fyrir: er Bruno Fernandes rétti fyrirliðinn fyrir næstu umferð? Við svörum spurningum hlustenda, skoðum prógrammið framundan og förum yfir stjörnulið vikunnar, sem að þessu sinni er lið Bjarka Más hornamanns íslenska handboltalandsliðsins.
Never back the early kick off 20.01.2026 1:21:48
Fórum yfir 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og tókum fasta liði eins og venjulega. Stjörnulið vikunnar kom hins vegar úr óvæntri átt, en fyrir valinu varð enginn annar en Viktor Gísli, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, sem er í toppformi. Bæði á handboltavellinum og í Fantasy. Að lokum hitnaði heldur betur í kolunum þegar Albert og Sindri tókust á um hvort skynsamlegt væri að selja Phi...
Huga ber að "chip" strategíunni 13.01.2026 1:17:52
Sindri er mættur aftur við hljóðnemann eftir fjarveru yfir jólahátíðina. Í þættinum fara þeir Albert yfir fasta liði eins og venjulega, auk þess sem þeir velta fyrir sér hvernig best sé að nýta endurnýjuðu „chipsana“ í komandi umferðum.
Rice Rice Baby 05.01.2026 1:37:41
Albert fékk Róbert Daða Hansson með sér til að gera upp síðustu umferð og spá í spilin fyrir þá næstu.
Markaþurrð á nýju ári 02.01.2026 1:26:15
Albert mætti í stúdíóið á Nýárskvöldi beint eftir lok 19. umferðar ásamt Ragnari Lúðvíki Jónssyni sem er með 16 ára Fantasy-reynslu á bakinu. Nú þarf að hafa hraðar hendur því næsta deadline er laugardaginn 3. janúar klukkan 10:00
Ár Skyttanna 29.12.2025 1:30:09
Þeir Arnar Sveinn Geirsson forseti leikmannasamtaka Íslands og geðþekki skagamaðurinn Kristófer Daði Garðarsson mættu í þennan síðasta þátt ársins til þess að spá í spilin með Alberti.
Malt og Fantasýn 23.12.2025 1:24:42
Guðmundur Felixson úr lélega fantasy podcastinu mæti sem sérstakur gestur í þetta skiptið og fór yfir 17. umferð og spáði í spilin fyrir 18. umferð.
Fantasy-guðirnir gefa og fantasy-guðirnir taka. 19.12.2025 1:41:31
Fórum yfir allt það helsta fyrir 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar ásamt föstum liðum einsog venjulega s.s. stjörnulið vikunnar og spurningum hlustenda.
Fantasy-skiptingar á fæðingardeildinni 10.12.2025 1:43:55
Að þessu sinni mætti Pálína Axelsdóttir Njarðvík til okkar í stúdíóið til að fara yfir allt það helsta fyrir næstu umferð í ensku úrvalsdeildinni. Fórum yfir allt frá því hver á að fá fyrirliðabandið í næstu umferð yfir í það hvernig maður kemur því að á fæðingardeildinni að gera breytingar á fantasy-liðinu sínu.
Við tölum ekki um Bruno 05.12.2025 1:20:07
Fórum yfir 14. umferð, en bæði Albert og Sindri voru með fyrirliða-bandið á Bruno. Stundum þarf að taka áhættur, stundum gengur það upp en stundum bara alls ekki. Blessunarlega er stutt í næstu umferð svo það er bara áfram gakk.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos