fantasyn

Fantasýn

Sports EN ↓ 42 Folgen

Það er betra að vera með  Sýn  þegar þú spilar Fantasy Premier League.   Fantasýn  er Fantasy Premier League hlaðvarp  Sýnar , heimili enska boltans á Íslandi. Þáttastjórnendur eru Albert Þór Guðmundsson og Sindri Kamban. 

Autor

fantasyn

Kategorie

Sports

Podcast-Website

fantasyn.podbean.com

Neueste Folge

26. Mai 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Lokauppgjör 26.05.2026

Þá eru tímabilinu lokið og Albert og Sindri mættu í stúdíóið til að horfa yfir farin veg.

38. umferðum síðar 22.05.2026

Þeir segja að þetta sé ekki búið fyrr en feita konan syngur, og þrátt fyrir að Arsenal hafi orðið sófameistarar í síðustu umferð þá hefur hún ekki upp raust sína fyrr en á næstkomandi sunnudag. 

Tími til kominn að taka sénsa. 14.05.2026

Nú þegar það eru bara tvær umferðir eftir af tímabilinu ræddu Albert og Sindri um hvaða lið hefðu eitthvað til að spila uppá og hvað lið væru mætt á ströndina.

Þessi tvöfalda umferð er tálsýn 06.05.2026

Tvöföld umferð er yfirleitt fagnaðarefni í fantsy-heimum en er komandi tvöfalda umferð tálsýn ein?

Allt í járnum á öllum vígstöðvum (Bombuspecial) 29.04.2026

Albert fékk engan annan en Gunnar Hilmar Kristinsson eða Gunna bombu í settið til að taka stöðuna á milli 34. og 35. umferðar. 

Við fengum ekki að João Pedro 23.04.2026

Nú er umferð 33. að baki og eftir situr að takast á við þynnkuna sem kemur í umferð 34. en þar leynast gullin tækifæri til að skjóta sér upp töfluna.

Stórasta umferð í heimi. 14.04.2026

Þá er Albert mættur aftur og ekki seinna vænna því loksins er komið að því, stærsta umferð tímabilsins er handan við hornið. Sex lið spila tvöfalda umferð og því nauðsynlegt að taka "deep dive" á það.

Lognið á undan storminum. 08.04.2026

Eftir langt landsleikjahlé tökum við upp þráðinn og rýnum í stöðuna fyrir umferð 32. Líkt og salt og pipar fara umferðir 32 og 33 saman, svo við horfum einnig fram á veginn og metum möguleikana þar. Hvernig ætlar þú að stilla upp chip-strategíunni? Gestastjórnandi er Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ og fantasý spekúlant.

Einn dagur í einu. 18.03.2026

Nú þegar óvissan er alltumlykjandi varðandi hvenær verða tvöfaldar umferðar er mikilvægt að taka einn dag í einu, og gott að hafa bandið á okkar áreiðanlegasta manni, Bruno Fernandes.

What to Expect When You're Expecting 12.03.2026

Deadline fyrir næstu umferð er laugardaginn 14. mars. kl 13:30. Aron Fantabragðabróðir mætti í stúdíóið til að þessa að spá í spilin í fjarveru Alberts. 

Góður, betri, bestur. 02.03.2026

29. umferð hefst þriðjudaginn 3. mars og lokar fyrir breytingar á liðunum kl 18:00. Fórum yfir allt það helsta ásamt því að fara yfir hver væri góður, betri, og bestur sem fyrirliði fyrir umferðina.

Šeško Time 24.02.2026

Næsta umferð hefst föstudaginn 27. febrúar og er Deadline-ið því klukkan 18:30. Ef þú ert að velta fyrir þér hvern þú átt að hafa sem fyrirliða þá fórum  við yfir hvað væri góði pakkinn, betri pakkinn og besti pakkinn í þeim efnum. Pedro vaktin var á sínum stað og svo er spurning hvort það sé ekki að bresta á með Šeško Time!

Úlfarnir bíta frá sér 19.02.2026

Löng umferð að baki þar sem allra augu voru á Gabriel og stóra spurningin er: stóð hann undir væntingunum?  Við horfðum líka fram á vegin og tókumst á við spurningar eins og er Thiago súrt, eða safaríkt epli og hver fær fyrirliðabandið frá Gabriel.

Triple Captain Gabriel? 08.02.2026

Fyrsta tvöfalda leikvika tímabilsins er framundan og stóra spurning er er þá ekki tími til kominn að setja fyrirliðabandið á Gabriel og jafnvel virkja triple captain í leiðinni? 

Nautaat á brúnni 04.02.2026

Í þessum þætti bjóðum við meðal annars upp á áhugavert "take" á næstu tvöföldu umferð og þá höldum við uppá vaxtaákvörðunardag seðlabankans og skoðum leitum svara við því hvor stofnunin, Seðlabankinn eða Fjármálaráðuneytið, er að standa sig betur í fantasy. 

Bandið á Bruno? 29.01.2026

23. umferðin krufin, misgóður árangur hjá Sindra og Alberti og stór spurning tekin fyrir: er Bruno Fernandes rétti fyrirliðinn fyrir næstu umferð? Við svörum spurningum hlustenda, skoðum prógrammið framundan og förum yfir stjörnulið vikunnar, sem að þessu sinni er lið Bjarka Más hornamanns íslenska handboltalandsliðsins. 

Never back the early kick off 20.01.2026

Fórum yfir 22. umferð ensku úrvalsdeildarinnar og tókum fasta liði eins og venjulega. Stjörnulið vikunnar kom hins vegar úr óvæntri átt, en fyrir valinu varð enginn annar en Viktor Gísli, markvörður íslenska handboltalandsliðsins, sem er í toppformi. Bæði á handboltavellinum og í Fantasy. Að lokum hitnaði heldur betur í kolunum þegar Albert og Sindri tókust á um hvort skynsamlegt væri að selja Phi...

Huga ber að "chip" strategíunni 13.01.2026

Sindri er mættur aftur við hljóðnemann eftir fjarveru yfir jólahátíðina. Í þættinum fara þeir Albert yfir fasta liði eins og venjulega, auk þess sem þeir velta fyrir sér hvernig best sé að nýta endurnýjuðu „chipsana“ í komandi umferðum.

Rice Rice Baby 05.01.2026

Albert fékk Róbert Daða Hansson með sér til að gera upp síðustu umferð og spá í spilin fyrir þá næstu.

Markaþurrð á nýju ári 02.01.2026

Albert mætti í stúdíóið á Nýárskvöldi beint eftir lok 19. umferðar ásamt Ragnari Lúðvíki Jónssyni sem er með 16 ára Fantasy-reynslu á bakinu. Nú þarf að hafa hraðar hendur því næsta deadline er laugardaginn 3. janúar klukkan 10:00

Ár Skyttanna 29.12.2025

Þeir Arnar Sveinn Geirsson forseti leikmannasamtaka Íslands og geðþekki skagamaðurinn Kristófer Daði Garðarsson mættu í þennan síðasta þátt ársins til þess að spá í spilin með Alberti. 

Malt og Fantasýn 23.12.2025

Guðmundur Felixson úr lélega fantasy podcastinu mæti sem sérstakur gestur í þetta skiptið og fór yfir 17. umferð og spáði í spilin fyrir 18. umferð.

Fantasy-guðirnir gefa og fantasy-guðirnir taka. 19.12.2025

Fórum yfir allt það helsta fyrir 17. umferð ensku úrvalsdeildarinnar ásamt föstum liðum einsog venjulega s.s. stjörnulið vikunnar og spurningum hlustenda. 

Fantasy-skiptingar á fæðingardeildinni 10.12.2025

Að þessu sinni mætti Pálína Axelsdóttir Njarðvík til okkar í stúdíóið til að fara yfir allt það helsta fyrir næstu umferð í ensku úrvalsdeildinni. Fórum yfir allt frá því hver á að fá fyrirliðabandið í næstu umferð yfir í það hvernig maður kemur því að á fæðingardeildinni að gera breytingar á fantasy-liðinu sínu.

Við tölum ekki um Bruno 05.12.2025

Fórum yfir 14. umferð, en bæði Albert og Sindri voru með fyrirliða-bandið á Bruno. Stundum þarf að taka áhættur, stundum gengur það upp en stundum bara alls ekki. Blessunarlega er stutt í næstu umferð svo það er bara áfram gakk.  

Höre den Podcast Fantasýn in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet