Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.spreaker.com
Autor
Thorarinn Hjartarson
Categoría
Web del podcast
Último episodio
23 de oct. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#54 Tjáningarfrelsi - Only Fans, stjórnmál og samsæriskenningar 20.04.2021 57:16
Kristín og Þórarinn ræða við Helga Hrafn Gunnarsson um tjáningarfrelsi. Þrátt fyrir stutt viðtal er farið um víðan völl. Rætt erum um takmarkanir á tjáningarfrelsi, klám, Only Fans vefsíðuna, stjórnmál, vísindi og samsæriskenningar.
#53 Sóttvarnarlæknir svarar gagnrýni öðru sinni (Viðtal við Þórólf Guðnason) 12.04.2021 54:32
Þórarinn ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnarlækni öðru sinni. Þeir ræða niðurstöðu dómstóla um sóttkvíarhótel, pólitíska samstöðu í aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19, umræðuna og fleira.
#52 Varnaðarorð Orwells - Siðanefndir og blaðamenn (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 30.03.2021 1:16:29
Jakob Bjarnar er þungavigtarmaður í íslenskri blaðamennsku. Þórarinn og Jakob ræða um úrskurð siðanefndar RÚV í máli Helga Seljan og umfjöllun hans um Samherja, viðtal Frosta Logasonar við Katrínu Jakobsdóttur um aðgerðir stjórnvalda við Covid-19, hatursorðræðu og margt fleira. Rauður þráður í samtalinu eru varnaðarorð Orwells um málfrelsi og fleira.
#51 Ofríki samráðsins - Ungt fólk og stjórnmál (Viðtal við Hrafn Haraldsson Dungal) 28.03.2021 1:20:38
Þórarinn og Eyþór ræða við Hrafn Haraldsson Dungal um stjórnmál, ungt fólk og áhrif tækninnar. Umræðan hrærist í kringum hugtakið ofríki samráðsins, vísindi og sannleikann. Rætt er um líffræðilegar ástæður slaufunarmenningar, Orwell og stöðnun sögunnar, ábyrgð einstaklingsins, skjótfengna hamingju, andstæðuheitin jöfnuð og frelsi og fleira.
#50 Better Left Unsaid (With Curt Jaimungal) 24.03.2021 1:09:30
Better Left Unsaid: https://bit.ly/blu_preorder Tóti interviews Curt Jaimungal about Better Left Unsaid, a film written and directed by Curt. The film incorporates interviews with intellectuals such as Coleman Hughes, Steven Pinker, Michael Shermer, Noam Chomsky, Janice Fiamengo, and more. It addresses the issue of political extremism in the West, the implications of identity politics, and the new...
#49 In the aftermath of Trump (With Philip Gourevitch) 20.03.2021 56:11
Þórarinn discusses American politics with Philip Gourevitch. Philip is a staff writer at the New Yorker and an author of several books. The discussion is focused on how American politics will look like in the post-Trump era and Trump’s impact on the Republican party.
#48 Slaufunarmenning, ofstæki og ábyrgð (Viðtal við Brynjar Níelsson) 13.03.2021 58:19
Þórarinn ræðir við Brynjar Níelsson um slaufunarmenningu (cancel culture). Rætt er um fitufordóma, ábyrgð, femínisma, ofstæki innan akademískra stofnanna og margt fleira. Einnig er reynt að finna svar við spurningunni afhverju fólk gefur eftir í stað þess að standa í lappirnar gagnvart fasískum öflum.
#47 Nýfrjálshyggja og frelsi (Viðtal við Hannes Hólmstein Gissurarson) 25.02.2021 1:25:32
Þórarinn ræðir við Hannes Hólmstein um nýfrjálshyggju. Bók: https://newdirection.online/2018-publications-pdf/ND-ThinkersVol2-2020f.pdf
#46 Formaður Viðreisnar (Viðtal við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur) 21.02.2021 53:58
Þórarinn og Eyþór ræða við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um áform og hugsjónir Viðreisnarflokksins. Farið er yfir skattamál, frjálslyndi, veiðigjöld, nýju stjórnarskránna og heilbrigðismál.
#45 Atvinnuframboðstrygging, húsnæði og peningar (Viðtal við Ólaf Margeirsson) 17.02.2021 47:01
Þórarinn ræðir við Ólaf Margeirsson um atvinnuframboðstryggingu. Auk þess er rætt um borgaralaun, áhrif atvinnuframboðstryggingar á verkalýðsbaráttu, fjórðu iðnbyltinguna og fleira. Húsnæðismál (mínúta 25) eru einnig sérstaklega rædd. Ólafur er doktor í hagfræði með sérþekkingu á þróun og eðli peninga og tengslum þeirra við húsnæðisverð.
#44 Íslenskur sósíalismi (Viðtal við Gunnar Smára Egilsson) 11.02.2021 1:36:40
Þórarinn ræðir við Gunnar Smára Egilsson um sósíalíska baráttu á Íslandi. Tímalína: •00:01:00 – Samstöðin og elítu miðlar •00:03:00 – Kurteisi umræðunnar •00:17:20 – Hverjar yrðu áherslur sósíalistaflokksins með hreinan alþingismeirihluta? •00:25:00 – Frelsi og hinn frjálsi markaður •00:39:00 – Krónutöluhækkanir og lífskjör •00:47:00 – Lýðræðisfyrirtæki •00:57:00 – Sjálfstæðisflokkurinn og velferð...
#43 Alþingiskosningar 2021 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson) 07.02.2021 2:13:24
Langloka þar sem Þórarinn ræðir við Ólaf Þ. Harðarson og Bjarna Halldór Janusson um næstkomandi alþingiskosningar. Drepið er á ýmsu og farið um víðan völl. Rætt er um hindranir, kosti, galla, sögulegan- og alþjóðlegan samanburð. Hér að neðan má sjá tímalínu umræðunnar: 0:01:00 – Kosningabaráttan 0:19:00 – Staða Viðreisnar í íslenskum stjórnmálum 0:27:30 – Hvað þýðir að vera til vinstri eða hægri í...
#42 Húsnæði í Reykjavík - Þétting, krónutöluhækkanir, framboð og eftirspurn (Viðtal við Pawel Bartoszek) 30.01.2021 54:47
Þórarinn og Eyþór ræða við Pawel Bartoszek um húsnæðismál í Reykjavík. Farið er yfir stefnu borgarstjórnar og áform hennar um að þétta byggð, hugmyndafræðileg álitaefni, krónutöluhækkanir, framboð og eftirspurn.
#41 Kjötneysla og loftslagsaðgerðir í Reykjavík (Viðtal við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson) 26.01.2021 1:01:50
Þórarinn ræðir við Líf Magneudóttur og Egil Þór Jónsson borgarfulltrúa um ágreining þeirra varðandi áætlanir meirihluta borgarstjórnar um að minnka kjötneyslu til muna á ýmsum sviðum Reykjavíkurborgar. Samræðurnar fara um víðan völl, auk kjötneyslu ræða þau loftslagsmál, lífstílssjúkdóma, þéttingu byggðar og húsnæðisskort.
#40 Mun Bitcoin ná heimsyfirráðum? (Viðtal við Ívar Ketilsson) 20.01.2021 1:21:15
Kristín, Þórarinn og Eyþór koma öll saman til þess að ræða við Ívar Ketilsson um Bitcoin. Fólk sér ýmist Bitcoin fyrir sér sem fjárfestingu, gjaldmiðil eða jafnvel eitthvað sem mun koma til með að gjörbreyta núverandi efnahagskerfi. Umræðurnar snúa að því að fara betur í saumana á þessu máli. Þau ræða peninga í sögulegu samhengi, hvernig Bitcoin virkar og hvaða eiginleika það hefur ásamt því að rö...
#39 Árás á þinghúsið í Washington D.C. (Viðtal við Friðjón R. Friðjónsson) 13.01.2021 1:00:36
Þórarinn ræðir við Friðjón R. Friðjónsson um árásina á þinghúsið í Washington þann 6. janúar. Rætt er um hvaða orsakasambönd leiddu til þess að árásin var gerð, hugtakið "Moral Marshall Plan" ásamt því að íhuga og ígrunda hvaða skref séu nauðsynleg fyrir Bandaríkjamenn að taka til þess að takast á við þau vandamál sem bandarísk stjórnmálamenning stendur frammi fyrir.
#38 Skattar, neysla og landsbyggðin 08.01.2021 1:13:58
Þórarinn og Eyþór ræða við Ívar Elí um skatta, neyslu og vægi landsbyggðarinnar. Auk þess ræða þeir hvort fyrirgefa eigi Samherja, atvinnuleysisbætur og álitamál sem snúa að niðurgreiddri sálfræðiþjónustu.
#37 Ekki-party í Ásmundarsal (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson) 29.12.2020 53:07
Eyþór og Þórarinn ræða við Þórð Snæ Júlíusson um grein Þórðar sem ber heitið 'Bjarni Sigurvegari'. Greinin fjallar um athæfi Bjarna Benediktssonar á Þorláksmessu þegar honum var boðið í samkvæmi sem lögreglan stöðvaði vegna brots á sóttvarnarreglum. Þremenningarnir ræða kosningagengi Sjálfstæðisflokksins í sögulegu samhengi og hvaða áhrif Þorláksmessuævintýrið muni koma til með að hafa í komandi k...
#36 Sjálfstæðisflokkurinn í borginni (viðtal við Hildi Björnsdóttur) 19.12.2020 1:08:26
Þórarinn og Eyþór ræða við Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þríeykið ræðir hugmyndafræði sjálfstæðisflokksins, einkavæðingu skóla, skatta, kynjakvóta, ungt fólk og byggingariðnaðinn í Reykjavík.
#35 Landsréttarmálið, hrossakaup og fleira (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson) 13.12.2020 2:21:58
Bjarni Halldór Janusson komst í fréttirnar vegna atkvæðagreiðslu árið 2017 í Landsréttarmálinu svokallaða. Þórarinn ræðir við Bjarna Halldór um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í Landsréttarmálinu, hrossakaup og hræsni í íslenskum stjórnmálum, ítök Sjálfstæðisflokksins, Bandarísk stjórnmál, Covid-19 og fleira. MDE 00:02:00 Hrossakaup í íslenskum stjórnmálum og aðhaldsskylda stjórnmálamanna 00:14:30...
#34 The Future of Capitalism (A conversation with Sir Paul Collier) 06.12.2020 40:41
On this podcast, Þórarinn speaks to Sir Paul Collier, professor of economics at the Blavatnik School of Government at Oxford University. They speak about Paul's book, The Future of Capitalism: Facing the New Anxieties, which was published in 2018. They discuss what implications Covid-19 has had on his prior projections and how societies can fix the economic problems following the great divergence...
#33 Iceland and the Great Barrington Declaration (An interview with Martin Kulldorff) 28.11.2020 49:27
Martin is a professor of medicine at Harvard University and does research in statistical and epidemiological methods for disease surveillance. Martin answers Þórarinn's inquiries about the proposals laid out in the infamous Great Barrington Declaration within the context of Iceland, the political implications of the virus, and much more.
#32 Fyrirtæki og hagsmunir (Viðtal við Simma Vill) 25.11.2020 1:40:22
Þórarinn og Eyþór ræða við Simma Vill um rekstur fyrirtækja á Íslandi. Þeir ræða veitingarekstur og muninn á því að vera í slíkum rekstri á Íslandi í samanburði við önnur lönd og sögu Simma í rekstrinum. Í kjölfarið á því er skipt um gír. Þremenningarnir ræða pólitískan rétttrúnað og stjórnmál. Mun langtímahugsjóna Kína í samanburði við skammtímalausnir vestrænna landa. Orkumál og hvaða þýðingu lo...
#31 Sóttvarnalæknir svarar gagnrýni vegna Covid-19 aðgerða (Viðtal við Þórólf Guðnason) 20.11.2020 55:09
Þórarinn ræðir við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni um aðgerðir vegna Covid-19 á Íslandi. Þórólfur svarar gagnrýni Barrington-yfirlýsingarinnar, hvað bóluefni þýðir fyrir næstu mánuði, hvernig tímanum hefur tekist að gera veiruna pólitískt íþyngjandi og fleiru.
#30 Aðgerðir vegna Covid-19 - Ofríki og frelsi (Viðtal við Brynjar Níelsson) 14.11.2020 1:17:54
Brynjar Níelsson sest niður með Þórarni til þess að ræða álitamál sem snúa að aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19. Þeir ræða sænsku leiðina, tjáningarfrelsi og umræðuna í kringum veiruna, hvort að auka eigi útgjöld til heilbrigðiskerfisins og fleira.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos