Thorarinn Hjartarson
Ein Pæling
Hlaðvarp
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.spreaker.com
Autor
Thorarinn Hjartarson
Categoría
Web del podcast
Último episodio
26 de oct. de 2026
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
#30 Aðgerðir vegna Covid-19 - Ofríki og frelsi (Viðtal við Brynjar Níelsson) 14.11.2020 1:17:54
Brynjar Níelsson sest niður með Þórarni til þess að ræða álitamál sem snúa að aðgerðum stjórnvalda vegna Covid-19. Þeir ræða sænsku leiðina, tjáningarfrelsi og umræðuna í kringum veiruna, hvort að auka eigi útgjöld til heilbrigðiskerfisins og fleira.
#29 Hlaðvarpið eins árs - Uppgjör og fleira 08.11.2020 1:27:05
Hlaðvarpið Ein pæling hefur nú verið starfandi í heilt ár. Stofnendur fagna því með því að fara yfir fyrri hlaðvörp og margt, margt fleira.
#28 Að snúa baki við róttækni - Einsleitni skoðana, hóphyggja og öfgar (Viðtal við Ivu Adrichem) 29.10.2020 1:18:42
Þórarinn ræðir við Ivu Adrichem um einkennapólitík, fræðasamfélagið, hóphyggju, LGB teymið, tjáningarfrelsi, dygðaskreytingu og margt fleira.
#27 Sósíalískur Femínismi (Viðtal við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur) 24.10.2020 1:07:21
Þórarinn ræðir við Laufeyju Líndal Ólafsdóttur um sósíaliskan femínisma, hóphyggju, hatursorðræðu, rasisma og fleira.
#26 Þróun stjórnmála í hinum vestræna heimi - Kosningar, lýðræði og Covid 19 (Viðtal við Ólaf Þ. Harðarson) 20.10.2020 1:05:43
Þverpólitískt hlaðvarp þar sem Þórarinn sest niður með Ólafi Þ. Harðarsyni háskólaprófessor við Háskóla Íslands. Þeir ræða þróun flokkakerfisins á Íslandi síðastliðin 20 ár, óstöðuleika í stjórnmálum, áhrif covid 19 á íslensk og erlend stjórnmál, uppgang popúlisma, hvort að vinstri stjórnmálaflokkar hafi svikið verkamenn, bergmálshella og nýju stjórnarskrána.
#25 Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Þórhildur Sunna (Viðtal við Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur) 18.10.2020 1:12:43
Eyþór og Þórarinn ræða við Þórhildi Sunnu þingmann Pírata. Þau ræða aðgerðir stjórnvalda vegna Covid 19, stéttabaráttu Icelandair, málefni hælisleitenda, mörk tjáningarfrelsis og hatursorðræðu og fleira.
#24 Hvað er framtíðin? (Viðtal við Berg Ebba) 11.10.2020 1:35:15
Í þessu hlaðvarpi ræða Kristín og Þórarinn við Berg Ebba um framtíðina. Umgjörð spjallsins byggist á bók Bergs Ebba, Skjáskot, og fara þremenningarnir vítt og breytt í sínum hugleiðingum um tækniframfarir, samfélagsmiðla og gervigreind.
#23 Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir (Viðtal við Katrínu Jakobsdóttur) 11.09.2020 31:08
Forsætisráðherrann Katrín Jakobsdóttir sest niður með Þórarni og Eyþóri til þess að ræða ýmis pólitísk álitaefni. Þau ræða núverandi stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks, kosningarnar 2021, aðgerðir stjórnvalda í kringum heimsfaraldurinn, nýju stjórnarskrána og fleira.
#22 Skoðanapakkar, háskólar og stjórnmálamenning (Viðtal við Einar Steingrímsson) 09.09.2020 1:07:59
Farið er um víðan völl. Einar Steingrímsson er stærðfræðingur sem bítur sjaldan í tunguna. Eyþór og Þórarinn ræða við hann um háskólamenningu og rannsóknarstarf, liðahugsun og skoðanapakka, einkennapólitík (identity politics), hlutafjárútboð Icelandair, trickle down economics og stjórnarsamband VG, Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Að lokum tala þremenningarnir um tjáningarfrelsi og spá í framtíð a...
#21 Trans - Samfélagsleg álitamál (Viðtal við Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur) 15.08.2020 2:08:47
Þórarinn og Kristín ræða við Uglu Stefaníu um samfélagslegu spurningar sem brenna á mörgum í sambandi við trans mál. Þau ræða tjáningarfrelsi og siðareglur fjölmiðla, mismunandi kyn og fornöfn, hvenær trans manneskja verður trans, blæðingar, íþróttir, fangelsi vald og fleira.
#20 Afleiðingar lögregluafskipta í Bandaríkjunum 09.08.2020 52:26
Þórarinn ræðir við Margréti Valdimarsdóttur um lögregluafskipti og afleiðingar þess í Bandaríkjunum. Rasismi er rauði þráður hlaðvarpsins en Margrét skrifaði doktorsritgerð um afleiðingar lögregluafskipta á ungt fólk og hvernig það hefur áhrif á framtíð þess. Ásamt ritgerðinni ræða þau morðið á George Floyd, ákvörðun Trump um að beita alríkislögreglunni til þess að takast á við mótmælin, aðrar rit...
#19 Cultural appropriation og rasismi á Íslandi (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere) 11.07.2020 1:15:26
Kristín, Sunna og Þórarinn ræða um menningarnám (cultural appropriation) og fara yfir þau ýmsu álitamál sem að málinu snúa. Þau ræða íþróttir, hrekkjavökubúninga, fastar fléttur og fleira. Hefði Dagbjört Rúriks átt að biðjast fyrirgefningar fyrir að fá sér fastar fléttur? Hefði Pétur Jóhann átt að biðjast fyrirgefningar fyrir það að gera grín að asískum vændiskonum? Þríeykið reynir að svara þessum...
#18 Rasismi, óeirðir og mótmæli (Viðtal við Sunnu Sasha Larosiliere) 30.06.2020 1:45:02
Sunna Sasha Larosiliere er blönduð stelpa sem ólst að hluta til upp í Bandaríkjunum. Hún er stjórnmálafræðingur og með mastersgráðu í krísustjórnun. Kristín og Þórarinn ræða við hana um rasisma í Bandaríkjunum, óeirðirnar og mótmælin í kringum morðið á George Floyd og fleira. Viðtalið er nokkurskonar framhald af þarsíðasta viðtali þar sem aðrir vinklar eru skoðaðir.
#17 Forsetaframbjóðandinn Guðmundur Franklín (Viðtal við Guðmund Franklín) 24.06.2020 23:30
Þórarinn ræðir við Guðmund Franklín forsetaframbjóðanda. Viðtalið er stutt og fer þorri þess í að rýna í pólitískar skoðanir Guðmundar á hinum ýmsu málefnum. Stefna hans er að efla forsetaembættið með því að nýta málskotsréttinn í meira mæli en fyrrum forsetar. Þeir ræða innflytjendamál, efnahagsmál, jafnréttismál, loftslagsmál og hvaða alþingismann Guðmundur myndi kjósa sér til þess að prófa ayah...
#16 Lögregluofbeldi og morðið á George Floyd 14.06.2020 1:58:13
Í þessum þætti ræða Kristín, Þórarinn og Eyþór lögregluofbeldi og morðið á George Floyd. Þau velta fyrir sér hugmyndafræði Black Lives Matter, dyggðarskreytingu fjölmiðla og black out tuesday, hvort rasismi sé meiri á Íslandi eða í Bandaríkjunum og hvaða áhrif mótmælin og óeirðirnar munu koma til með að hafa á framtíðina.
#15 Fitufordómar (Viðtal við Töru Margréti og Ernu Kristínu) 08.06.2020 1:22:09
Kristín og Þórarinn ræða við Töru Margréti og Ernu Kristínu um fitufordóma. Fyrst fara Tara og Erna yfir skilgreiningu fitufordóma og hvaða áhrif þeir hafa á samfélagið í heild. Rætt er um álitamál heilbrigðisvísindanna, holdarfar og hamingju, offitu barna, hvort það megi gera grín að feitum og ummæli Kára Stefánssonar um greindarvísitölu fólks í offitu.
#14 Hver er Brynjar Níels? (Viðtal við Brynjar Níelsson) 30.05.2020 1:03:56
Í þessum þætti kynnast Þórarinn og Eyþór Brynjari Níelssyni. Í fyrstu er rætt um upphaf Brynjars í stjórnmálum og álit hans á ýmsum efnum. Þaðan er lagt í umræður um fíknivanda, hugsunastjórnun, akademíuna, fóstureyðingar og aðgerðir stjórnvalda á tímum Covid-19. Að lokum er Brynjar spurður hverjum hann myndi bjóða í eftirparty og hverjum hann myndi síst vilja fara með í sumarbústaðarferð.
#13 Covid 19 - Kreppan og aðgerðir stjórnvalda (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson) 27.05.2020 1:08:27
Þórarinn ræðir við Þórð Snæ Júlíusson um aðgerðir stjórnvalda og þá kreppu sem Covid-19 krísunni fylgir. Þeir ræða hlutabótaleiðina, mismunandi styrki og lán sem stjórnvöld hafa lofað, ójöfnuð, skiptingu auðlinda, fjórðu iðnbyltinguna og fleira.
Podcastumræður #1 - Yuval Noah Harari og Sam Harris 17.05.2020 37:24
Kristín og Þórarinn prófa örlítið nýtt í þessum þætti. Þau ræða mismunandi hugmyndir sem komu fram í hlaðvarpi Sam Harris þar sem hann ræðir við Yuval Noah Harari. Hlaðvarpið nefnist Making Sense Podcast og er þátturinn númer 201. Umræðuefnin eru breyttar hugmyndir um dauðann, vald og ný gildi á tímum covid, stöðu alþjóðasamskipta, samfélagslegan klofning og jákvæðar hliðar þjóðernishyggju, og að...
#12 Covid 19 - Efnahagur, heimspeki og fleira 10.05.2020 1:25:23
Þórarinn, Eyþór og Ívar Elí ræða Covid 19 og áhrif þess. Tekist er á um hvort að "sænska leiðin" sé rétta svarið og hvaða afleiddu afleiðingar það mun koma til að hafa á efnahag þróunarlanda. Þeir ræða hlutabótaleiðina, hegðun fyrirtækja á opinberum markaði og hvaða áhrif það muni hafa á stjórnmál á Íslandi í náinni framtíð. Að lokum er heimspeki rædd og reynt að finna svar við hvers virði mannslí...
#11 Fjölmiðlar og pólitískur rétttrúnaður (Viðtal við Jakob Bjarnar Grétarsson) 13.02.2020 1:35:31
Að þessu sinni fá Kristín og Þórarinn blaðamanninn Jakob Bjarnar Grétarsson í hlaðvarpið til að ræða um fjölmiðlun og pólitískan rétttrúnað. Þættinum er skipt í þrjá hluta. Fyrst verður rætt um siðferði og skyldur blaðamanna, æsifréttir, "clickbait" og áhrif samfélagsmiðla. Í öðrum hluta ræða þau um pólitískan rétttrúnað í blaðamennsku, femínisma, #MeToo-byltinguna, fóstureyðingar, fitufordóma, ak...
#10 Samfélagsmiðlar 06.02.2020 1:17:43
Að þessu sinni ræða Eyþór, Kristín og Þórarinn samfélagsmiðla. Þau ræða menningarleg, heilsufarsleg og pólitísk áhrif þeirra og spá fyrir um hvernig þetta muni breyta samfélögum um allan heim í náinni framtíð. Rýnt er í gögn um þau geðrænu vandamál sem samfélagsmiðlar virðast auka og hvort rétt sé að, og jafnframt hvort hægt sé að, sporna við síauknum yfirráðum tæknirisanna.
#9 Saving Democracy (A conversation with Lawrence Lessig) 26.01.2020 1:02:07
In this episode Þórarinn talks to Lawrence Lessig. Lawrence is a professor at the Harvard School of Law and an adamant fighter for democracy around the world. They discuss how technology is corrupting our minds to benefit financially while simultaneously undermining our democratic institutions. Lawrence gives a brief description of the Icelandic referendum in 2012 for a new constitution, what it m...
#8 Innflytjendur (Viðtal við Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac) 03.01.2020 1:26:42
Kristín og Þórarinn fá Þórð Snæ Júlíusson og Jasmínu Crnac með sér í hlaðvarpið til þess að ræða innflytjendur. Þórður er ritstjóri Kjarnans og Jasmína er verkefnastjóri fjölmenningar hjá Mennigarhúsum í Kópavogi og varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ. Farið er yfir efnahagslegar, menningarlegar og samfélagslegar afleiðingar þess að taka á móti innflytjendum. Munurinn milli innflytjenda, flóttamanna o...
#7 Breskar þingkosningar 2019 (Viðtal við Bjarna Halldór Janusson) 31.12.2019 1:38:46
Eitt þverpólitískt. Þórarinn er einn að þessu sinni en fær til sín góðan gest. Bjarni Halldór Janusson var á sínum tíma yngsti þingmaðurinn til þess að gegna Alþingisembætti og stundar nú framhaldsnám í stjórnmálafræði í Bretlandi. Þórarinn og Bjarni ræða Breskar þingkosningar og hvernig popúlismi hefur haft áhrif á landslag stjórnmálanna í Evrópu. Þeir varpa fram eftirfarandi spurningum: Hafa vin...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos